Morgunblaðið - 06.04.1973, Page 20
20
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1973
70 ára í dag:
Sigurður Ágústsson
EINN af stofnendum „Vær-
tngja“ árið 1913, var Sigurður
Ágústsson, sem verður sjötugur
i dag. Hann var aðeins 10 ára
gamall er hann hóf starf með
„Væringjum", sem sr. Friðrik
Friðriksson stofnaði innan K.F.
U.M. Móðir Sigurðar, Ingileif A.
Bartels, var ein þeirra kvenna,
aem hjálpuðu sr. Friðriki til að
láta sauma hina skrautlegu bún-
inga, sem þeir báru; bláan kyrt-
il, rauða skikkju og hvita húfu.
Klæðasnið þetta var líkt því er
gerðist í fornöld og setti þessi
lithýri hópur mjög svip á bæinn.
Síðar breyttist Væringj ahópurinn
I skátafélag innan K.F.U.M. Um
og eftir tvitugsaldur beitti Sig-
urður sér mjög fyrir því að
tengja íslenzka skáta erlendum
skátabræðrum sínum í starfi.
Hann var t.d. fyrstur íslenzkra
skáta tii að sækja alþjóðamót
skáta — Jamboree — sem þá
var haldið í Danmörku árið
1924, og var hinn eini fulltrúi
sinnar þjóðar. Fimm árum sið-
ar varð hann fararstjóri 30 is-
lenzkra skáta er sóttu Jamb-
oree í Englandi með miklum
myndarbrag. Eftir það tók hann
þátt i mörgum erlendum skáta-
mótum, sem fulltrúi þjóðar sinn-
ar. Prúðmennska Sigurðar og
festa mótaði mjög framkomu
islenzkra drengja á þessum al-
þjóðamótum. Hann vann og
ágætt starf með undirbúningi og
stjóm hins fyrsta landsmóts
skáta hér á landi, sem háð var
í Þrastarskógi árið 1925. Sigurð
ur var foringi 1. sveitar félags-
ins um langt árabil. Sú elja og
fórnfýsi er hann sýndi í skáta-
starfi sínu, um þessar mundir,
verður seint fullþökkuð. Sigurð-
ur átti sæti i stjóm Bandalags
íslenzkra skáta í mörg ár. Árið
1929 stofnaði hann skátafélag á
Sauðárkróki, á vegum B.Í.S. í
sömu ferð heimsótti hann fleiri
skátafélðg, m.a. nýstofnað félag
á Isafirði, sem bróðir hans
Henrik W. Ágústsson og Leif-
ur Guðmundsson stofnuðu. Að
Grettisgötu 6, þar sem bræðurn-
ir Sigurður, og Henrik bjuggu,
ásamt yngsta bróður sinum Har
aidi og foreldrum sínum, nutu
margir ungir skátadrengir skiin
ings og skjóls.
Eiginkona Sigurðar, Þórunn
Brynjólfsdóttir, starfaði af mikl
um dugnaði fyrir kvenskáta hér
á landi. Hún andaðist árið 1944.
Undanfarin 37 ár hefur Sig-
urður Ágústsson starfað fyrir
Rafveitu Reykjavíkur, enda raf
virki að mennt. En Sigurði dugði
ekki allt þetta. 1 frístundum sín
um veitir hann nú forustu bæki-
stöð Félags frímerkjasafnara
að Amtmannsstig 2. Telur hann
sig hafa hlotið áhuga fyrir frí-
merkjasöfnun á hinum mörgu
skátamótum erlendis. Sigurði
hefur verið sýndur ýmis sómi i
skátastarfi sínu, t.d. var hann
kjörinn heiðursfélagi í Skátafé-
lagi Reykjavíkur. Skátar óska
þessum siunga, sjötuga manni
gæfu og blessunar.
Jón Oddgeir Jónsson.
Ég get ekki látið hjá líða að
senda vini minum, Sigurði Ág-
ústssyni, ámaðaróskir, kveðjur
og þakkir, I tilefni af sjötugs-
afmædi hans.
Ég hef þekkt afmælisbarnið í
um það bil tíu ár eða frá þvi að
ég gekk í Félag frímerkjasafn-
ara. í starfi sinu fyrir þetta
litla félag í öll þessi ár hefur
Siigurður Ágústsson ekkert
breytzt frá þvi, að ég sá hann
fyrst í herbergi félagsins að
Amtmannsstíg 2. Sigurður er
hógvær, af hjarta lítillátur og
hjálpsamur svo af ber við
fræðsdu annarra og þá fyrst og
fremst þeirra, sem eru fyrsta
sinni að grennslast fyrir um
þessa einkennilegu áráttu hjá
sumu fólki að safna frímerkj-
um.
Sigurður hefur alitaf notið
þess að leiðbeina öðrum, þó ekki
mörgum í senn, enda er slíkt
ekki hægt með góðum árangri.
En burtséð frá því, hugsar hann
ekki um frímerkjasöfnun eins og
sumir, sem virðast telja, að frí-
merkjasafnarar stígi dansinn um
gullkálfinn mannýga. Öðru nær,
Siguirður er ekki og verður ekki
— má ég segja vonandi — rík-
ur af áhugamáli sinu.
Og ekki skal því gleymt, að
Sigurður er einn af elztu skát-
um þessa lands, þó að ég þekki
þann þátt ekki náið. Ég ætla
mér ekki þá dul að ræða lifs-
sögu Sigurðar hér, enda er það
ekki ætlun min með þessum
skrifum, en eitt veit ég þó, ó-
ættfróður, að Jón Guðmundsson,
ritstjóri Þjóðólfs, var langafi af-
mælisbarnsins. Af því sést, að
stofninn er styrkur.
Hin síðari ár, þegar gamla is-
lenzka sturlungaaldareðlinu hef-
ur skotið upp í litla félaginu
okkar, hef ég oft leitt hugann að
því, hver maður það var, sem
bar klæðin á vopnin og leit að-
eins á okkur sem óþekka
krakka. Maður er nefndur gig-
urður Ágústsson.
Vinur minn, ég flyt þér mínar
innilegustu árnaðaróskir á sjö-
tugsafmælisdaginn og óska
þess, að þú megir njóta ævi-
kvöldisins í hljóðlátri kyrrð og
gleði, svo sem þú hefur unnið
ti'l.
Björn Þ. Þórðarson.
KAUPMENN ATHUGIÐ:
Sérstakt tækiíæri í
marígold
Chic, gúmmíhönzkum
Getum nú boðið frítt eitt dúsín af hinum vel þekktu
Marigold, Chic, gúmmíhönzkum fyrir hver 12 dúsín,
sem pöntuð eru fyrir 15. apríl nk.
HÁLFDÁN HELGASON SF.,
umboðs- og heildverzlun,
sími 18493,
Brautarholti 2, Reykjavík.
SA 9128 4 rása stereo segulbandstæki
lERA
SA8479A Hi-Fi stereo plötuspilari
IERA
SA9118AT Kassettu-segulbandstæki
f. rafhlöður eóa 220V. o * cmh » o v om.i u- tr- »
SA5929 A 2X30W Hi-Fi stereo magnari
Siera hljómflutningstæki eru vönduð og glæsileg fermingargjöf.
Eitt elzta og vírtasta gæöamerki
hljómflutningstækja á markaðinum. RAFTÆKJADEILD HAFNARSTRÆTI 23 • REYKJAVtK • SÍMI 18395
IERA
Sjötugur er í dag Sigurður
Ágústsson, rafvirkjameistari,
Reynimel 44, Reykjavik. Á þess-
um merku timamótum í lífi Sig-
urðar, langar mig að senda hon-
um nokkrar línur til að þakka
honum fyrir 44 ára vináttu. Sig-
urð sá ég fyrst i marz 1929, er
hann kom til Sauðárkróks á veg-
um Jónasar Kristjánssonar hér-
aðslæknis og Bandalags ísl.
skáta, i þeim tilgangi að stofna
skátafélag, hvað hann og gerði
22. marz. Okkur strákunum er
vorum með Sigurði þann tima
er hann dvaldi á Króknum, og
stofnuðum með honum skátafé-
lagið Andvarar, vorum mjög
hrifnir af leikni hans t.d. í „spinn
ing“, sem við höfðum aldrei séð
áður. Okkur þótti gott að njóta
leiðsagnar hans, hann hafði gott
lag á að leiðbeina og stjórna
drengjum, enda hafði hann feng
ið góða þjálfun í því er hann
var á skátaforingjaskóla í Dan-
mörku 1924. Skóli þessi Gilwell-
skólinn, er æðsta stig foringja-
þjálfunar fyrir skátafcxringja.
Sigurður var fyrsti ísJendingur-
inn, er útskrifaðist frá slíkum
skóla. Þetta sama ár tók Sig-
urður þátt i aiheimsmóti skáta
Jaimboree, er var haldið rétt ut-
an við Kaupmannahöfn. Þetta var
II Jamboree-mótið er haldið var
og var Sigurður fyrsti Islend-
ingurinn er fór á Jamboree.
Sigurður á langa og merka
sögu að baki sem skátaforingi.
Hann gerðisit skáti á bernsku-
árurn skátahreyfingarinnar hér
á landi í skátafélaginu Væringj-
um og var í foringjaliði þess í
áratugi. Hann átti og sinn þátt í
því, að Bandal. ísl. skáta var
stofnað og sat hann í stjórn þess
árum saman og mótaði oft stefn-
una. Hann var oft mótsstjóri á
Jamboree, eða oftar en nokk-
ur annar ísl. skátaforingi. Hanm
hefir oft séð um skátasýningar
og tekið að sér ótal verkefni
fyrir skátana.
Ég hefi hér að framan, stikl-
að á stóru, aðeins til að sýna
lítinn hluta af störfum Sigurð-
ar. Smáatriðum sleppi ég, en
þau eru svo mörg og i raun það
mikilvæg, að varla er rétt að
kalla þau smá.
Sem dæmi um, hvað Sigurður
Ágústsson var langt á undan
sinni samtíð í mörgu, vii ég
geta eins. Er ég sótti Gilwell-
skólann, var annar íslendingur-
inn er það gerði, þá voru liðin
15 ár frá því að Sigurður út-
skrifaðist.
Ég hefi minnzt á nokkur
stærri verkefni er Sigurður tók
að sér fyrir skátana, en margt
er ósagt og verður það geymt.
Ég er ekki að skrifa ævisögu
hans. Sigurður á vonandi langa
og starfsama ævi eftir. Hann er
starfsamur maður og notar vel
hveirja stund. Hin síðari ár eft-
ir að hann dró sig í hlé frá skáta-
störfum, hefir hann m.a. feng-
izt við listmálun, en Sigurður er
listfengur mjög og smekkmað-
ur. Miklum tima hefir hann var-
ið í frímerkjasöfnun og á hann
mjög gott safn. Ungum drengj-
um og fullorðnum hefir hann
oft leiðbeint við söfnun fri-
merkja. Sigurður var einn af
stofnendum Félags frí-
merkjasafnara og heíir lengst
af átt sæti í stjórn þess. Hann
hefir séð um herbergi félagsins
og upplýsingaþjónustu árum
saman. Og allt er þetta geri ut-
an venjulegs starfsdags. Þetta
geta aðeins þeir, sem eru góðir
skipuleggjarar.
Sigurður er ekki allra vinuir,
en þeir sem eignazt hafa vin-
áttu hans, hafa eignazt góðan
vin. Ég tel <mig eiga góðan vin,
þar sem Sigurður er og ég sendi
tionum mínar innilegustu afmæl
is- og vinarkveðjur og þakka
honuim fyrir áratuga langa vin-
áttu.
íslenzkir skátar senda honum
afmaslis- og skátakveðjur með
þakklæti fyrir vel unnin störf
fyrir islenzka æsku.
Franch Michelsen.