Morgunblaðið - 06.04.1973, Page 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 6. APRÍL 1973
Skylduverk
Dauf síemmning í leik FH og IR
OFT hafði maður það á tilfinn-
ingtinni í ieik FH og lR i 1. deild
Islandsmótsins i handknattleik i
fyrrakvöld, að Ieikmenn liðanna
litu á það sem skylduverk að
ljúka þessum leik. Aldrei náðist
skemmtileg stemmning í leikinn,
Jafnvei ekki meðan hann var
jafn, og ótrúlega mikið sást a.f
mistökum og röngum sendingum
hjá leikmönnum beggja liða.
Finkum voru það ÍR-ingar sem
voru áhugaiitlir i leiknum, enda
hafði hann nánast enga þýðingu
fyrir liðið. FH-ingar kepptu hins
vegar að því að vera áfram i ba,r
áttunni um fslandsmeistara.tit.il-
tnn og þvi markmiði náðu þeir
án mikillar fyrirhafnar.
í>essi leikur var mikil stór-
skotahríð á báða bóga og flestar
sóknarlotumar a.m.k. hjá FH-
ingum stóðu ekki nema nokkrar
sekúndur, áður en skotið var.
Það þurfti heldur venjulega ekki
að bíða lengi eftir færi, þar sem
lR vömin var ákaflega ósamstiilt
og sofandi. Kom það oft fyrir að
jafnvel reyndustu leikmenn liðs-
ins voru eins og frosnir við fjal
imar í vörninni, og FH-ingarnir
áttu auðvelt með að renna sér
framhjá þeim og skora.
Þrátt fyrir 6 marka sigur var
engin reisn yfir FH-liðinu í leikn
um. Það voru einstaklingar í lið
inu sem sáu um sigurinn og þá
fyrst og fremst þeir Geir, Hjalti
og Viðar. Með því að skora 9
mörk í þessum leik á Geir enn
möguleika á að verða marka-
kóngur mótsins í ár.
Þegar maður horfði á iR-liðið
í þessum leik fékk maður þá til-
finningu að leikmenn þess, sumir
hverjir, væru að komast úr æf-
ingu. Slíkt er raunar mjög ótrú-
legt, en liðið hafði ekki sama
frískleikasvip og það hefur brugð
ið fyrir sig oftsinnis í ve<tur, og
baráttan í því var í algjöru lág-
marki. Eftir að liðið hafði verið
í fallbaráttu í fyrra, átti maður
tæpast von á því að það yrði í
allra fremstu röð í vetur, en það
hefur náð góðum sprettum og
aldrei verið í hættu. I liðinu er
nóg af svo góðum leikmönnum
að árangurinn ætti að geta verið
góður, en eins og stundum áður
er það veikleiki liðsins hversu
misjafnle'ga veil þvi teikst upp.
í STUTTU MALI:
Iþróttahúsið í Hafnarfirði 4. apríl
lslandsmótið 1. deild.
ílrslit: FH — ÍR 24:18 (13:7).
Brottvísanir af velli: Örn Sigurðs
son og Gils Stefánsson, FH í 2
mín.
Misheppnað vitakast: Geir Hall-
steinsson átti vítakast í slá og
út á 27. mín.
Gangur leiksins:
Mín. FH fR
3. 0:1 ÁgÚBt
6. Birgir 1:1
8. Geir 2:1
9. 2:2 Ágúst
11. Geir 3:2
12. 3:3 Brynj.
13. Geir 4:3
14. 4:4 ÁgÚht
15. ólafur 5:4
16. 5:5 Ágúst
17. Auðunn 6:5
17. Geir 7:5
18. ólafur 8:5
21. ólafur 9:5
24. 9:6 Brynj.
25. Viðar 10:6
!6. Geir 11:6
28. Viðar 12:6
29 12:7 Vilhj. <v)
29. Auðunn 13:7
JlA [J'LEIKI'R
i2. Gils 14:7
Í3. 14:8 Vilhj. <v)
*5. Birg’ir 15:8
35. 15:9 Vilhj. < v)
Í6. Viðar 16:9
36. 16:10 Vilhj.
37. Geir 17:10
37. 17:11 Vilhj.
38. Viðar 18:11
38. 18:12 Gunnl.
12. Geir 19:12
15. Viðar 20:12
47. Örn 21:12
19. Viðar <v) 22:12
49. 22:13 Gunnar
50. 22:14 Þórarinn
51. 22:15 Vilhj.
53. Geir 23:15
56. 23:16 Brynj.
57. Geir 24:16
57. • 24:17 Þórarinn
59. 24:18 Þórarinn
Mörk FH: Geir Hallsteinsson
9, Viðar Símonarson 6, Ólafur
Einarsson 3, Birgir Björnsson 2,
Auðunn Óskarsson 2, Gils
Stefánsson 1, Öm Sigurðsson 1.
Mörk ÍR: Vilhjálmur Sigur-
geirsson 6, Þórarinn Tyrfings-
son 3, Brynjólfur Markússon 3,
Ágúst Svavarsson 4, Gunnlaugur
Hjálmarsson 1, Gunnar Haralds-
son 1.
Dómarar: Hannes Þ. Sigurðs-
son og Karl Jóhannsson dæmdu
leikinn allvél.
— stjl.
LEÐ FH: Hjalti Einarsson 3, Birgir Bjömsson 1, Viðar
Simonarson 3, Giis Stefánsson 2, Auðunn Óskarsson 2,
Jón Gestur Viggósson 1, Geir Hallsteinsson 4, Örn Sigurðs
son 1, Birgir Finnbogason 1, Hörður Sigmarsson 1, Sæm-
undur Stefánsson 1, Ólafur Einarsson 2.
LIi) ÍR: Geir Thorsteinsson 2, Gunnar Haraldsson 1,
Hörður Hafsteinsson 1, Þórarinn Tyifingsson 2, Ágúst
Svavarsson 2, Hörður Ámason 2, Gunnlaugur Hjálmars-
son 2, Vilhjálmur Sigurgeirsson 2, Guðmundur Gunnars-
son 2, Brynjólfur Markússon 2, Bjarni Hákonarson 2.
Haukarnir malaðir
Áttu aldrei möguleika gegn
sterku Valsliði sem vann 20-9
ER Þórir Cllfarsson, Haukamað-
ur, skoraði fyrsta mark leiks
Hauka og Vals í fyrrakvöld ætl-
aði allt um koll að keyra í íþrótta
húsinu í Hafnarfirði, svo áköf
voru hvatningaróp áhangenda
Haukaliðsins. En dýrðin stóð
ekki lengi. Enn einu sinni í móti
þessu sýndi Valsvörnin það að
hún stendur vel undir nafninu
„mulningsvélin“, þar sem Hauk-
amir fengu aldrei tækifæri í
Ieiknum og urðu að þola 11
marka tap. Eftir þennan stórsig-
ur má segja að Valsmenn séu í
seilingu við íslandsbikarinn í ár,
og ekkert nema mjög svo óvænt
úrslit geta komið i veg fyrir að
hann gisti Hiíðarenda næsta ár-
ið.
En þrátt fyrir hagstæð úrslit
1 þessum leik, og reyndar flest-
um leikjum mótsins í vetur hlýt
ur það að vera Valsmönnum á-
hyggjuefni hversu lítil breidd er
I liði þeirra. Þegar þeir Ólafur
Benediktsson, Ólafur Jónsson,
Ágúst, Stefán, Gunnsteinn, Jón
Karlsson og Bergur eru inn á er
liðið illstöðvanlegt, en strax og
einhverjum þeirra er skipt út af
koma stórar glompur í liðið.
Þannig var það í þessum leik —
útafskipting eins þeirra varð
þess valdandi að á nokkrum min
útum í fyrri hálfleik tókst Hauk
unum að hala inn 3 mörk. Það
vill til fyrir Valsliðið að nefndir
leikmenn virðast hafa nær ótak
markað úthald, og geta leikið
heilu leikina án hvíldar, en liðið
má ekki verða fyrir miklum
skakkaföllum til þess að það veik
ist verulega.
Skemmst er frá þessum leik
að segja á þá lund, að Haukam-
ir áttu aldrei. möguleika. Vals-
vörnin var ákaflega vel á verði
og stöðvaði hættulegustu menn
Haukaliðsins jafnan í tima. Þeg
ar svo skot Haukanna hittu mark
ið var Ólafur Benediktsson þar
fyrir, og varði hann hvað eftir
annað frábærlega vel, m.a. tvö
vítaköst.
Gunnar Einarsson, Haukamark
vörður varði einnig tvö vítaköst,
en mikill munur var á aðstöðu
hans og Ólafs Benediktssonar í
þessum leik. Haukavömin opn-
aðist stundum ákaflega illa,
þannig að leikmenn Vals gátu
nánast ekki annað en skorað.
Haukaliðið í heild virkaði nokkuð
dauft og óákveðið í þessum leik,
enda annað en spaug að vera
sjö mörkum undir um miðjan
fyrri hálfleik.
í STUTTU MÁLI:
Iþróttahúsið Hafnarfirði 4. aprU.
Islandsmótið 1. deild.
Crslit: Haukar — Valur 9:20
(5:9).
Brottvísanir af velli: Ágúst Ög-
mundsson, Val í 2 mín., Sturla
Haraldsson, Haukum, 2 min.
Misheppnuð vitaköst: Gunnar
Einarsson varði vítaköst frá
Bergi Guðnasyni á 43. og 57.
mín. Ólafur Benediktsson varði
vítaköst frá Stefáni Jónssyni á
17. mín. og Sturlu Haraldssyni á
58. mín. og Ólafur Ólafsson átti
vítakast i stöng á 8. mín.
Gangur leiksins:
46.
48.
49.
51.
52.
56.
l 59.
St«fá.n
9:14
9:15
9:16
9:17
9:18
9:19
9:20
Bergur
Bergur
ólafur
Ágúst
Ágúst
Ólafur
< v)
<v)
Mfn. Haukar Valur
2. Þórir 1:0
5. 1:1 Bergur
8. 1:2 ólafur
9. 1:3 Bergur
11. 1:4 Ágúst
14. 1:5 Stefán
15. 1:6 ólafur
18. 1:7 Gunnst.
24. 1:8 Stefán
25. Ólafur 2:8
26. Stefán 3:8
27. Guðm. 4:8
28. 4:9 Bergur
30. ólafur 5:9
hAlfleikiir
33. 5:10 Jón K.
33. Stefán 6:10
35. 6:11 Stefán
37. 6:12 Bergur
40. Sturla <v) 7:12
41. 7:13 GunnNt.
42. Sigurgeir 8:13
45. 8:14 Ágúst
Mörk Hauka: Stefán Jónsson
3, Ólafur Ólafsson 2, Sturla Har-
aldsson 1, Þórir Clfarsson 1, Sig-
urgeir Marteinsson 1, Guðmund-
ur Haraldsson 1.
Mörk Vals: Bergur Guðnason
6, Ólafur Jónsson 4, Ágúst Ög-
mundsson 4, Stefán Gunnarsson
3, Gunnsteinn Skúlason 2, Jón
Karlsson 1.
Dómarar: Sigurður Hannes-
son og Gunnar Gunnarsson.
Dæmdu þeir leikinn sæmilega,
en ekkert fram yfir það.
— stjl.
2. deild
I FYRRAKVÖLD fóru fram tveir
leikir i 2. deild íslandsmótsins í
handknattleik. Þá sigraði Þrótt-
ur Stjörnuna 31:21 og Fylkir
sigraði UBK 27:15. Þar með
tryggði Fylkir sér áframhaldandi
keppnisrétt í 2. deild, en Stjarn-
an fellur niður I 3. deild. Nánar
verður sagt frá leikjum þessum
á morgun.
LIÐ HAUKA: Sigurgeir Sigurðsson 1, Sturla Haralds-
son 2, Sigurður Jóakimsson 2, Ólafur Ólafsson, Stefán
Jónsson 2, Guðmundur Haraldsson 2, Sigurgeir Marteins-
son 2, Amór Guðmundsson 1, Gunnar Einarsson 3, Þórir
Clfarsson 2, Svavar Geirsson 1.
LIÐ VALS: Ólafur Benediktsson 4, Jón P. Jónsson 1,
Jón Karlsson 3, Torfi Ásgeirsson 1, Gísli Blöndal 1, Gunn-
steinn Skúlason 3, Bergur Guðnason 3, Stefán Gunnars-
son 3, Ágúst Ögmundsson 3, Ólafur H. Jónsson 3, Þor-
björn Guðmundsson 1.
Landsleikur
við Færeyinga
ISLENDINGAR og Færeying
ar munu leika landsleik í borð
tennis í Færeyjum helgina 7.
— 8. apríl. Til fararinnar hafa
verið valdir átta menn ásamt
fararstjóra og er stefnt að
þvi að gera landsleiki milli
þjóðanna að árlegum við-
burði. Færeyingar eru mjög
áhugasamir um borðtennis og
geta þeirra talsverð.
Að líkindum verður íslenzka
liðið þannig skipað: Hjálmar
Aðalsteinsson, Ragnar Ragn-
arsson, Bjöm Finnbjörnsson,
Ólafur H. Ólafsson, Birkir
Gunnarsson, Gunnar Finn-
björnsson, Jón Sigurðsson og
Jóhann Öm Sigurjónsson.
Jón er frá Keflavik, aðrir
eru Reykvíkingar.
Þetta verður i fyrsta skipti,
sem Island og Færeyjar keppa
i borðtennis og jafnframt í
fyrsta sinn sem Islendingar
taka þátt í landsleik í borð-
tennis með átta manna liði.
Valsvörnin lét ekki að sér hæða og Haukarnir fengu ekki svigrúm til athafna. Þarna hafði
Stefán Jónsson fengið sendingu, en Gunnsteinn var fljótur í boltann. Stefán Gunnarsson og
Bergur Guðnason bíða viðbúnir, en Haukarnir á myndinni eru þeir Þórir Clfarsson og Sigurð-
ur Jóakimsson.