Morgunblaðið - 18.05.1973, Page 16

Morgunblaðið - 18.05.1973, Page 16
16 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 18. MAÍ 1973 Otgefandi Framkvæmdastjóri Ritstjórar Ritstjórnarfulltrúi Fréttastjóri Auglýsingastjóri Ritstjóri og afgreiðsla hf. Árvakur, Reykjavfk. Haraldur Sveinsson. Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson. Styrmir Gunnarsson. Þorbjörn Guðmundsson. Björn Jóhannsson. Árni Garðar Kristinsson. Aðalstraeti 6, sími 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, slmi 22-4-80. Askriftargjald 300,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasðlu 18,00 kr. eintakið. A tburðirnir á fiskimiðunum kringum landið síðasta sólarhringinn sýna, svo ekki verður um vilizt, að taugar brezku togaraskipstjóranna, sem stunda veiðar innan 50 mílna lögsögu okkar, eru að gefa sig. í fyrrinótt settu þeir brezku ríkisstjóminni úrslita- kosti, heimtuðu herskipa- vemd þegar í stað, ella mundu þeir halda á brott frá íslandsmiðum. Við þessa hót- un stóðu skipstjóramir og síðdegis í gær voru allir brezkir togarar farnir út fyr- ir 50 mílurnar, sumir leituðu á önnur mið, aðrir stefndu til Bretlands. í gærkvöldi bárust svo fregnir um það frá Bretlandi, að brezku togurunum hefðu verið gefin fyrirmæli um að snúa við. Fregnir um þetta og viðbrögð brezku ríkis- stjórnarinnar voru mjög ó- ljósar. Þó virðist, sem togara- skipstjóramir hafi fengið ein- hver fyrirheit um herskipa- vernd, við tilteknar aðstæð- ur og í gærkvöldi skýrði sjáv arútvegsráðherra Breta frá því í viðtali við brezka út- varpið, að brezka ríkisstjórn- in hefði ákveðið að senda þriðju freigátuna á íslands- mið, sem hefði þyrlu eða þyrlur innanborðs. Þegar fregnir bárust um það í gærmorgun, að brezku togaramir hefðu hypjað sig á brott, mun tæpast nokkur hafa trúað því hérlendis, að þeir væru farnir fyrir fullt og allt, heldur væri brott- sigling þeirra annars vegar til marks um, að taugar skip- stjóranna væru að gefa sig vegna framgangs Landhelg- isgæzlunnar og hins vegar væri hér um að ræða þrýst- ing af þeirra hálfu á brezk stjómarvöld að senda her- skip inn í landhelgi okkar þeim til vamar. Ástæða er til að vara ríkis- stjórn Bretlands alvarlega við því að auka enn ofbeldis- aðgerðir gagnvart íslending- um með því að senda herskip inn í landhelgi okkar. Bret- um ætti að vera ljóst af fyrri reynslu í samskiptum við Is- lendinga vegna landhelginn- ar, að íslenzka þjóðin lætur slíkar ofbeldisaðgerðir ekki á sig fá. Brezk herskip í ís- lenzkri landhelgi knýja ís- lendinga ekki til undanhalds, heldur efla þau enn samstöðu þjóðarinnar og staðfestan ásetning hennar að tryggja lífshagsmuni sína með því að helga sér landgrunnið allt. Við höfum ekki bolmagn til þess að berjast við brezka sjóherinn á hafinu í kringum ísland en við höfum þann siðferðilega styrk, sem smá- þjóð þarf að hafa til þess að sigrast á ofbeldinu. Slíkan sigur höfum við áður unnið. Slíkan sigur munum við að lokum vinna nú. Brezkir togarasjómenn hafa aldrei átt heima á fiski- miðunum í kringum Island. Þeir óttast hörku hins ís- lenzka vetrar og þeir hafa orðið fyrir þungum búsifjum af hans völdum. Við skiljum, að fiskveiðibæirnir í Bret- landi byggja lífsafkomu sína á fiskveiðum, en þær fisk- veiðar verða Bretar að stunda annars staðar en á miðunum í kringum ísland. Það er öll- um fyrir beztu, að brezka SUNDRUNG I LIÐI ANDSTÆÐINGA stórveldið einbeiti kröftum sínum að því að finna önn- ur fiskimið fyrir togara sína, með því að leggja aukna á- herzlu á verndun fiskimið- anna í kringum Bretland. Hingað hafa þeir ekkert að gera. Viðbrögð brezku tog- araskipstjóranna nú benda til þess, að þeir séu að byrja að gera sér þetta ljóst. Það liggur í augum uppi, að Bretar munu tapa þessari deilu við okkur íslendinga. Svo margar þjóðir víðs veg- ar um heim hafa lýst yfir út- færslu fiskveiðilögsögu eða áformum um slíka útfærslu, að telja verður víst, að mun stærri fiskveiðilögsaga en 12 mílur hljóti yfirgnæfandí stuðning á haffréttarráð- stefnu Sameinuðu þjóðanna síðar á þessu ári. Bretum sjálfum er fyrir beztu að horfast í augu við þessa staðreynd og snúa sér frem- ur að því verkefni að leita annarra fanga fyrir sína fiski menn. Nú eru innbyrðis deilur hafnar í herbúðum andstæð- inga okkar í landhelgisdeil- unni. Sú sundrung, sem þar er að koma upp styrkir okk- ar stöðu. Vel má vera, að til tíðinda og harðari átaka dragi á fiskimiðunum kring- um land okkar. Við munum taka því með ró og festu. Herskip eða engin herskip — málstaður okkar mun sigra og íslenzka þjóðin mun ein varðveita og hagnýta þær auðlindir, sem búseta okkar í þessu landi byggist á. Embættisglöp í Finnlandi I DAG, föstudag, hefst í Hels- inki réttarrannsókn í máli, sem varðar tvo fyrrverandi ráðherra og forstöðumann for setaskrifstofunnar. A réttur- inn að kanna á hvem hátt fundargerð frá viðrseðum Kekkonens forseta við sov- ézka leiðtoga um afstöðu Finn lands tii Kfnahagsbandalags Evrópu komst í hendur blaða manna. Aðallega eru það tveir menn, sem ákærðir eru í þessu sambandi, Antero Jyr- anki skrifstofustjóri forsetans, og Seppo Lindblom, fyrrum iðnaðarráðherra. Þriðji mað- urinn, sem á að hafa rofið þagnarskyldu sína, er Jussi Linnamo, sem nýlega sagði af sér sem utanríkisverzlunarráð herra. Ætlunin var að stefna honum fyrir trúnaðarbrot, en Kekkonen kom í veg fyrir það. Forsaga málsins er á þessa leið: í fyrrahaust skýrðu þrjú dagblöC á Norðurlöndum itar- lega frá viðræðum Kekkonens við sovézka leiðtoga í Zavi- dovo, en viðræðurnar fóru fram í ágúst. 1 þessum við- ræðum varaði Leonid Brez- hnev fiokksleiðtogi, Finna við þvi að undirrita viðskipta- samninga við Efnahagsbanda iagið, en bæði hann og Alexei Kosygin forsætisráðherra tóku það skýrt fram að þeir virtu sjálfstæði Finnlands og .ætluðu sér ekki að leggja finnsku stjórninni neinar lln- ur 'i málinu. Á hinn bóginn hét Kekkonen þvi að engin breyting yrði á sambúð Finn- lands og Sovétríkjanna jafn- vei þótt Finnar gerðu við- skiptasamning við EBE. Blöðin þrjú höfðu frétt þessa eftir fréttaritara sinum i Helsinki, Tor Högnas. Vakti hún mikla athygli þar sem hún var bersýnilega byggð á leynilegri fundargerð frá við- ræðunum. Upp úr sauð þó fyrst sex vikum siðar þegar Kekkonen lýsti því yfir öllum á óvart að aðaMega vegna þess að frétt þessi hefði Lek- ið út teldi hann sig ekki bund inn af fyrri fyrirheitum um að gegna áfram forsetaemb- ættinu eftir að kjörtiminn rennur út á næsta ári. Kvaðst hann óttast að mál þetta hefði spiHt góðu sambandi hans við sovézka leiðtoga. Nokkrum dögum eftir þessa yfirlýsingu forsetans hófst umfangsmikil rannsókn á því hvaðan Högnas fréttaritari hefði fengið upplýsingar sín- ar. Alls voru rúmlega 80 manns yfirhéyrðir, sumir þeirra hvað eftir annað, og þessar yfirheyrslur leiddu ti'l þess að ríkissaksóknarinn hef- ur nú ákveðið að höfða mál gegr. þeian Jyranki og Lind- blom. Athyglisvert er að ekk- ert hefur verið fundið athuga- vert við framkomu Högnás, og ekkert mál höfðað gegn honum. Ekki er enn Ijóst hver þeirra þriggja, sem aðallega hafa verið nefndir í sambandi við málið, hefur komið upp- lýsingum um viðræðurnar í Zavidavo til Högnás, ef ein- hver þeitrra er þá sekur. Auk þeirra er nefnilega fjöldi ann arra, sem hefur haft aðgang að fundargerðinni eða séð hana. Allir þrír hafa lýst yfir sak- leysi sínu, og enginn verið ákveðnari 1 því en Jussi Linnamo. Hann hefur tekið þátt í sammingaviðræðum Finna bæði við EBE og efna- hagsbandalag kommúnista- ríkjanna, Comecon, og er að sjálfsögðu einn þeirra, sem að gang höfðu að fundargerðimni. En hann harðneifar að hafa rofið þagnarskylduna. fyrstu lýsti hann því yfir að hann hygðist ekki segja af sér ráð herraembættinu. Þó fór svo að hann sagði af sér nú í byrjun mánaðarins, og sagð- ist hann gera það vegna þess áð grunsemdir i hans garð gérðu honum erfitt að vinna embættiisstörf sín sem skyldi. Ekki er vitað hvort leiðtogar Jafnaðarmanmaflokksims hafa átt nokkurn þátt í ákvörðun hans um að segja elí sér. Þeir Linnamo, Jyránki og Lindblom eru allir jafmaðar- menn, og innan flokksins hafa heyrzt raddir um að málaferl in séu liður í fyrirhuguðum hreinsunum i flokknum. Hafa ýmsir látið í ljós ótta við að flokkurinn fái á ný orð á sig fyrir að vera óábyrgur í utan- ríkismálum, eins og gerðist fyrir tiu árum. Grunsamlegust þykir fram- koma Jyránki skrifstofu- stjóra. Hann á í fyrstu að hafa harðneitað allri vitneskju um málið. En eftir nokkrar yfirheyrslur kom í ljós að þótt hann hefði ekki átt rétt á að fá afrit af fundargerð- inni, hafði honum tekizt að útvega sér ljósrit af henni, og jafnvel lánað óviðkomandi mönnum útdrátt úr henni. Þegar svo rannsókn hófst í málinu eyðilagði hann ljósrit- ið. Þegar Kekkonen á sínum tima skipaði Jyránki í emb- ætti skrifstofustjóra, olli það nokkrum kurr innan flokks- ins, því Jyránki þótti helzt til róttækur í skoðunum. Er því talið að fáir muni gráta það ef honum verður vikið úr embættinu. Ekki er ljóst hvaða ttlgangi það þjónaði aðláta birta fund argerðina frá Zavidovo. Sum- ir telja að á bak við birting- una hafi staðið andstæðingar þess að Finnar semdu við EBE, en aðrir benda á að sam hengi geti verið milli birting- arinnar og þess að töf varð á því að ákvörðun yrði tekin um endurkjör Kekkonens þeg ar kjörtímabilið rennur út á næsta ári. Hvort heldur er ætti að útskýrast við máls- rannsóknina, sem hefst í dag. (Aðallega úr Aftenposten).

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.