Morgunblaðið - 29.05.1973, Blaðsíða 4

Morgunblaðið - 29.05.1973, Blaðsíða 4
4 MORjGUNBLAÐIÐ, I>RÍÐJUDAGLIR 29. MAÍ 1973 Fi Jf HÍI. iI.l JI. i \ 'ALVIt:' BILALEIGA CAR RENTAL TS 21190 21188 /& 14444 I# 25555 \minm BÍLALEIGA CAR RENTAL 80RGARTÚN 29 AVIS SIMI 24460 __LAUGAVEGI 66 BÍLALEIGAN 51EYSIR CAR RENTAL SST trausti ÞVERHOLT 1SATEI. 25780 LEIGAN AUÐBREKKU 44-46, SÍMÍ 42600 FERÐABÍLAR HF. Bílaleiga. - Sími 81260. Tveggja manrva Citroen Mehari. F.mm manna Citroen G.S. 8—22 manna Mereedes Benz hópferðabílar (m. bílstjórum). HOPFERÐIR Til leigu i lengri og skemmri ferSir, 8—34 farþega bílar. KJARTAN INGIWIARSSON, símar 86155 og 32716. K! mm [\ X? £ 21 /A ^var^: Litlu jólin í nánd Nú eru litlu jólin franmnd- an h.já nokkrum órólegfum skólakrökkum á íslandi. Nlx- on og Pompidou eru aó korna. Vissuleg'a er það merkur at- burður, þegar þessir tveir vaidamiklu þjóðhöf'ði n g j ar hittast á Islandi. Kn þó að slíkur fundur hér sé i sjálfu sér fagnaðarefni, þá er óþarfi að láta i ljós slíka tilhlökkun og litlu kommakrakkarnir gera ntina. Peir eru ekki mönnum sinnandi af eftir- væniingtt eftir komu þjóð- höfðiugjanna. ÆS| (Æsku- lýðssamband fslands), sem er undir stjórn kommúnista og nttsamra sakleysingja er orð ið afskræmi af sjálfu sér. Fé- lagið er nú í daglegu tali nefnt Æst-félagið, enda virð- ist það ekki lengur hafa ann- að á stefnuskrá sinni en æsi- mennsku. Nú þegar landhelgismálið, mesta barátttimái þjóðarinnar í áratugi er á alvarlegu stigi, telur félag, sem kennir sig við íslenzkan æskulýð, sig ekki hafa annað betra að gera en að efna til óspekta á götum úti. Forsprakkar mótmælanna gegn Pompidou «g Nixon segja, að mótmælahátíðahöld þeirra verði friðsamleg. Petta hefur verið sagt fyrr, en ætið hefur það endað svo, að slík- ar samkomur hafa snúizt upp í uppþot, sem orðið hafa þjóðinni til skammar. Það er þess vegna mjög furðulegt, að héraðsdómari einn skuli leyfa sér að taka þátt í að skipuleggja slíka samkomu, sem dæmi öll sýna, að er vísir að stórkostlegum lögbrot um. Dómaranum ætti að vera ijóst, að hann efnir til sam- komu í félagi við það fólk, sent eitt hefur staðið að f jölda ofbeldisaðgerðum á Islandi. Það er fuHljóst, að Æsi-fé- lagið á ekki lengur neitt skylt við markmið það, sem þvi var sett í öndverðu. I»ví hljóta ábyrg félög að endur- skoða afstöðu sina t1l þess santbands fljótlega á næst- unni. Æsingarmennirnir í Æsi-santhandinu geta leilatð sér þar einir. spurt og svarad Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS Hringið í sima 10100 ld. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biðjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsins. SJÓNVABP UM SÍMALÍNUR Bjöm Friðfinnsson, Reykja hl’íð, S.-Þiing., spyr: „Nýlega var birt opinber- iega áætlun um kostmað við að koma sjónvarpsútsending- um á þau býli, sem nú njóta þeirra ekki. Hér var um há- ar tölur að ræða. Víða er- lendis er sjónvarpsefni sent til almennings með sérstökum símaiinum, sem oft a.m.k. eru lagðar með símastaurum, sem fyrir eru. Ég vil þvi spyrja hvort ekki megi nota þessa aðferð til að koma sjónvarp- inu til sj 6nvarpslausra býla á ódýrari hátt en gert var ráð fyrir í fyrrgreindri áætl- un.“ Sigttrður Þorkelsson, yfir- verkfræðingur svarar f.h., Póst- og simamáiastjómar: Ríkisútvarpinu barst fyrir stuttu síðan fyrirspum til dálfcsins „spurt og svarað“ um sjónvarp um símalinur. í>ar eð Póstur og sími sér um uppsetnimgu og rekstur dreifikerfis sjónvarps, hefur Ríkisútvarpið beðið okkur um að svara fyriirspuminni og fylgir svarið hér með. Abybg® ATVINNUBEKENDA Mats Wibe Lund jr. spyr: „1 framhaldi af frétt í Mbl. 15. apríl sl. um Lagarfoss- smyglið vil ég spyrja: Á hvaða rökum bygg- ist það, að atvinnurekandinn daamist ábyrgur fyrir sektar- greiðslum starfsmanna sinna, séu þeir ekki sjálFir borgun- armenn fyrir greiðslunum Er þetta algeng regla, að þannig sé hægt að yfirfæra dóm yfir á þriðja aðila? Hvernig geta atvinnurek- endur tryggt sig gegn þvílík um skakkaf öllum ? Finmst dómsmálaráðherra það rétt að hlífa afbrotamönm um við að taka að fullu af- leiðingum af gjörðum sínum, eins og lögin gera ráð fyrir?“ Jóu Thors, deildarstjóri í dómsmálaráðuneytinu, svar- ar: „Samkvæmt 33. gr. áfemgis laga, nú lög nr. 82 1969, skal skip ávallt vera að veði til tryggingar greiðslu á sektum og málskostnaði fyrir brotum gegn 3. gr. laganna og má kyrrsetja skipið og selja það að undangengnu fjárnámi til lúkningar hvomu tveggja. Slákt ákvseði hefur verið í áfengislögum frá þvi þau voiru sett 1928. Sömuleiðis er i lögum um tollheimtu og toll eftirJit nr. 59 1969 saimsvar- andi ákvæði í 73. gr., sem er svóhljóðamdi: „73. gr. Farartæki, sem hefur veiið notað eða reymt hefur verið að nota til þess að flytja vör- ur ólöglega til Xandsins eða til flutnmgs á sikum vörum á tollisvæði ríkisins, skaX vera að veði til tryggtagar gjöld- um, sektum og kostnaði, sem stjórnanda farartækis, áhöfn eða öðrum starfsmönnum þess verður gert að greiða, og má kyrrsetja það og selja á op- inberu uppboði til lúkningar framangreindum gjöldum og kostnaði án undangengtan ar aðfarargerðar og með þeim hætti, sem segir í 54. gr. Sé sökunautur búsettur hér á landi eða eigi eignir hér, skal þó jafnan reynd aðför hjá honum áður en gengið er að veðtau, en eigi raskar þ»ð rétti til kyrrsetmingar, skv. !L mgr." HbSstætt lagaákvæði er S lögum um bann gegn veiðianit með botnvörpu oig flotvörpu mr. 62 1967, en þar segir 1 3. imgr. 4. gr„ að leggja megi löghald á skipið og selja þaS að undamgenginni aðför táll lúkningar sektum samkvsemt þessari grein og kostmaði. Rökin fyrir þessum ákvseð um eru fyrst og fremst að tryggja greiðsXu til ríkissjóðs á séktum og öðrum gjöldum vegna hrotanna. Þeim er etam ig ætlað að stuðla að þvi, að atvinnurekandinn komi í veg fyrir, að tæki hams séu ncrt- uð til lögbrota og reyni að tryggja sig gegn slíku með vali starfsmanna. Við það, að ríkissjóður fær sekt greidda á þennan hátt frá atvinnurekanda, fiyzrt krafan á hendur hinum brot lega frá ríkissjóði til atvinmu rekanöans, en hinn brotlegi frá atvinnurekanda, flyzt að fullu afleiðingum af gjörð um sínum.“ Popp-skýrslan STRAWBS FORTÍÐ: Strawbs — nú verandi liðsskipan Dave Cous ins, Dave Lambert, Blue Weaver, John Ford og Rich- ard Hudson — var stofnuð sem þ.jóðlagatríó 1967. Utan fámenns hóps átti hún litlu fylgi að fagna unz Dave Cousins stofnaði fyrstu raf- mögnuðu útgáfuna með upp- rttnalega Kðsmanninum Tony Httofier og orgelleikaramim Bick Wakeman, og tónlist þeirra breyttist úr nútíma- þjóðlagatóniist i þjóðlaga- rokk. Eftir finun ára ferii í litlum klúbbum og hljómleika sölum slógu þeir í gegn með- al fjöWans í fyrra með fyrstu vinsælu litlu plötunni sinni, „Lay Down". N’ÚTÍB: Strawbs hiku ný- lega mikilli hljómleikaferð um Bretiand, sem færði þeim nýja aðdáendur og firrti þá flestum þeirra giimlu, þraut- seigu fylgismönnum, vegna þess, að nú bygg.ja þeir frarn- komu sina á látalátum og glitri. Þeir höfða sterklega til yngri áheyrendahópa, en tón Tist þeirra er oft ofar skiln- ingi núverandi áheyrenda. FBAMTÍF): Hljóntsveitin verður að haJda áfram að framieiða vinsælar litlar plöt ur til að haldast í sviðsljós- inu og verður að finna já- kvæða stefnu, sent hana skort ir i augnablikimi. Hún þarf einnig að sýna Bandaríkja- mönnum töfra sína. Erfitt er að sjá í hvaða átt hún mun stefna. Wave Cousíns hefur aldrei lialdið sig við ákveðið tónlistarmynztur lengi i einu. Úti er ævintýri Athyglisvert er að lesa þessa spá Melody Makers, sem samin var fyrir riimum ntánuðt siðan, með nýjnstu fréttir af hljómsveltinni til viðmiðunar, en þær eru í stórum dráttum þessar: HJjómsveitin virðist líkleg tii að sundrast, er hún kemur heim til Bretlands í næsta mámiði að lokinni hijómleika ferð um Bandaríkin. Stofn andinn, Dave Cousins, mun vera óánægður með stefnu þá sem tónlistarsköpun hljóm- sveitarinuar hefur tekið, sið an lokið var gerð stóru plöt- iinuar „Grave New WorId“. Kann svo að fara, að liann verði eftir í Bandarík.ittnum og taki þar upp stóra plötn með aðstoð bandarískra hljómlistarmanna. Þá er á kreiki orðrómttr um að hann muni stofna ilýja hljómsveit með orgelleikaranum Bick Wakeman, sem nú er í Yes, en var áður liðsmaður Strawbs. Dave Cousins liafði verið kominn á fremsta hlimn með að hætta í hljómsveitinni í apríl, í lok hljómleikaferð- ar hennar ttm Bretland, en hætti við þá ráðagerð, þar sem nýja störa platan hljóm- sveitarinnar, „Bursting At The Seams“, fékk góða dónta í Bandaríkjunum. Blaðamenn Melody Makers virðast þ\r hafa veriS rn.jög sannspáir, er þeir skriftiðu: „Erfitt er að sjá í hvaða átt hún '(hljómsveitin) mtini stefna: Dave Cousins hcfur aldrei haidið sig við ákveðiB tónlistarinynwtiir Jengi í einu.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.