Morgunblaðið - 29.05.1973, Blaðsíða 14

Morgunblaðið - 29.05.1973, Blaðsíða 14
14 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 29, MAl 1973 Átök Hér s.jást g-ötin tvö á stjórnborðshlið skipsins, sem hvað mestan usla gerðu og hæfðu netalestina og fiskilestina. Segli ihefur verið ti’oðið i gatið á fiskilestinni, en gert hefur verið \ið gatið á netalestinni, enda við sjólínu. (Ljósm. Mbl. Kristinn Ben.). „THE LAST MAN WINS VIÐ siglum trillunni fram með stjórnborðshlið Ever- tons og skyggnumst eftir kúlnagötunum á hlið togar- ans. Skyndilega kemur þorsk- ur fljúgandi frá togaranum og lendir á borðstokki trill- unnar. Við þessar kringum- stæður er engu líkara en stríðshanzka sé fleygt í átt til okkar. Upp á von og óvon höfum við siglt 17 sjómílur í norður frá Grimsey til að ná tali af áhöfn Everton og fá frásögn þeirra af viðureign þeirra við varðskipið Ægi. Þorskurinn gefur ótvírætt til kynna að við séum ekki velkomnir. Bátsmaðurinn Wally Hall. Klukkan er sex að morgná sunnudags. Við Morgunblaðs- menn höfum þremur stundum áður tekið á leigu trilluna Dóru I Grímsey ásarnt enskum blaða- manni frá Daily Mail. Áður höf- um við flogið yfir og gengið úr skugga um hvar togarann sé að finna; komið auga á hann, þar sem hann lsetur reka ásamt enska dráttarbátnum Statesman. Síðan er si'glt í vcyrnæturstillu og al'gjörlega ládauðum sjó norður á bóginn. Óll Ólason, eigandi trillunnar, segir okkur að svona hafi veðrið verið allan laugardag inn meðan varðskipð átti i viður eigninni við togarann. Þegar við komum að skipun- um tveimur er ekkert líf að sjá um borð í Statesman. Þar virð- Sjóliðsforinginn frá Júpiter sem nú var hæstráðandi á Everton. ast a'ilir í fasta svefmi. Við sigl- um nokkur hundruð metra til viðbótar í átt að togaranum, rennum aftur fyrir hann og fram með honum á stjómborða. Fáeim- ir menn standa þajr á dekki og fimm eða sex þeirra halla sér fram yfir borðstokkinn -— virða okkur fyrir sér næstum fjand- samlega. Nú kemur það sér vei að Eniglendingur er með okkur í förum. Hann vippar sér upp á stefni tri'llunnar og kastar á þá kveðju. Þeir sjá fljótlega að þarna fer landi þeirra, kuldalegt viðmót þeirra breytist og þeir taka undir kveðjuna. Isinn er brotimn — við biðjumist leyfis að fá að gamga um borð. Ungur maður í einkennisklæð um tekur sig þá út úr hópnum og segir nokkuð valdsmannsleiga að hér fari enginn um borð. „Banmar skipstjórinn það?" spyrjum við. „Ég banna það,“ svarar hinn einkennisbúni, og þeg ar við spyrjum hann hvemig á veru hans standi þarna um borð í Everton, kemur i Ijós að harnn er sjóliðsforingi af brezku írei- gátunni Jupiter og hefur verið falin umsjá togarans meðan „hernaðarástandið" rikir. Togarinn er furðu l'itið siiginn, eins og við höfðum imyndað okk ur, vatni er stöðugt dælt úr hon- um. Á srðumni teljum við sex kúlnagö't. Fjöguir eru framarlega á stefninu en tvö aftar og annað niður við sjólinu, sýniilega þau er hæfðu netalestina og fiskilestina. Troðið hefur verið í aftasta gat- ið og al'gjörlega virðist vera bú- ið að gera við gatlð í metalest- inni. Eins hafa trétappar verið reknir í götin neðst á framstefn- imu. Hins vegar hafa kúlur varð sklpsins falið alla leið í gegn efst á framstefninu, því að á bakborða sjáum við tvö göt og þar standa jámflísarniar í jaðr- irnum. Kúlnagötin eru ekki stór — kannski 15-20 sm í þvermál. Það þarf engiin fagmannsaugu til að sjá að hér hefur verið stað ið vel að verki af hálfu varð- skipsmanna. Kúlugatið á neta- lestinni, þar sem lekinin kom fyrst að togaranum, er sem fyri segir rétt niður við sjólínu. Mér virðist því sem að sjór hefði ekki náð að flæða inn í netalestina, ei togarinn hefði stöðvað strax eft- ir að sú kúla hæfði skipið, en hitt er jafn ljóst að sjórinn hefur streymt þar inn meðan hann héit fulliri ferð. Og eft- ir því sem togarinn hefur sigið

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.