Morgunblaðið - 02.06.1973, Page 1
32 SIÐUR
v
125. tbl. 60. árg.
LAUGARDAGUR 2. JUNÍ 1973
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
»__________
„Okkur tókst það,
ætluðum okkur“
sem við
titoiauin hafi veiið gerð til að ná
samkomulagi um áþreifanlegar
ály'ktanir í viðskiptum, gjaldeyir-
ismálum og öðrum málum, að
því er Kissinger sagði.
Stefnt að fundi æðstu manna
Norður-Ameríku og Evrópu
ÞEGAR flugvél Nixons for-
seta flaug vestur um haf
í gær eftir fundina með
Pompidou forseta í Reykja-
vík kölluðu helztu ráðunaut-
ar Bandaríkjaforseta í ferð-
inni hlaöamenn á sinn fund
til þess að skýra þeim frá því
að góður árangur hefði náðst
á fundum lciðtoganna.
Pompidou forseti tók í
sarna streng þegar hann
sagði í lok fundanna í gær
að þeir Nixon hefðu verið
sammála í flestum málum,
sem þeir hefðu rætt. Þessi
ummæli leyna því þó ekki að
ekkert áþreifanlegt samkomu
lag var gert á fundunum og
engin sameiginleg tilkynn-
ing birt, en á hinn bóginn
voru forsetarnir sammála um
að stefna bæri að því að
koma í kring fundi æðstu
manna Norður-Ameríku og
Evrópu.
GEHK VEL
Henry Kissinger öryggisráð-
gjafá og WiUiam Rogers utanrik
isráðherra sögðu blaðaimöninum
í þotu forsetans eftir brottför-
ina frá Isilamdi að fundir Nixons
og Pompidous hefðu heppnazt
vel.
„Okkur tókst það sem við ætl
uðurn okkur," sagði Kissinger.
„Þetta gekk mjög vel,‘‘ sagði
Rogers á öðrum fundi með blaða
mönnuim í þotunni. Hann sagði
að íundimir „hefðu uppfyllt þær
vonir“ sem við þá voru tengd-
ar.
Ronald Ziegler blaðafulltrúi
bætti því við að Nixon teldi að
viðræðumar við Pompidou hefðu
verið „mjög árangursrikar“.
Stjórnmálafréttaritari AP bend
ir á að þetta bjartsýna mat á
viðræðunum stinigi í stúf við þá
staðreynd að fundimir ieiddu
ekki tid þesis að nokkur samning
ur var gerður um tiltekin mál
eftir viðræðumar og að þær
leiddu ekki einu sinni til þess að
verulega miðaðd áfram í átt til
hugsanlegra samniniga.
Hins vegar segja ráðunautar
Nixons að ekki hafi verið sótzt
eftir tiliteknum samningum. Mark
miðið hafi verið að marka megin-
linur að sögn Kissingers. Enigin
TOPPFUNDUR
Niðurstaða funda Nixons og
Pompidous varð sú, að þeir
urðu sammáia um að beita sér
fyrir endurnýjun Atlantshafs-
bandalagsins til þess að gera
það færara um að mæta breytt-
um þörfum þessa áratugar,
segja stj órnmálafréttaritarar.
Áþreifanlegt saimikomiuiag
tókst etoki í aðlkallandi máluim
Framhald á bls. 15.
Norðmenn halda áfram sátta-
tilraunum í landhelgismálinu
Osló, 1. júní. — NTB
„NORÐMENN vinna enn
að því að miðla málum í
deilu íslendinga og Breta.
Noregur hefur ennþá sam-
band við báða deiluað-
ila,“ sagði norski utanríkis-
ráðherrann, Dagfinn Vár-
vik, í dag.
Yfirlýsingu sína gaf V&r-
vik utanrikisráðherra í Stór-
þinginu í umræðum sem þar
fóru fram um stefnu Noregs
í málefnum S. Þ.
Per Borten, foringi þing-
flok ks Miðflolklksins, sagði í
umræðum sem urðu eftir
yfirlýsingu utan ríkisráðherr-
ans að hann teldi að íslend-
ingar væru grátt leiknir.
„Það mdnnir á ldðna tíð
þegar þjóðir í sama friðar-
bandalagi beita henskipum
hvor gegn annarri í efna-
hagsdeilu" sagði Borten.
Gunnar Garbo, foringi
Vinstri flokksins, hvattá til
þess að með hliðsjón af haf-
réttarráðstefnunni ás'knldu
Norðmenn eér rétt til ráð-
stafana til þess að vemda
fisikveið'ihagsmiuni sína, ef að-
stæðumar krefðuist þess.
„Við ættum ekki að binda
okkur við hverja þá niður-
stöðu sem verður af ráð-
stefnunni," sagði Garbo.
Ame Kielland, Sósdalis-
tiska þjóðaflokknum, taldi
að íslendinigar stæðu frammd
fyrir sínum 9. apríi (það er
degi þýzfku innrásarinnar í
Noreg 1940).
Ummæli Kiellands urðu til
þess að Halfdan Hegtun, úr
frjálslynda þjóðarflokkinum
sagði að slílk ummæli þjón-
uðu ekki málstað íslend-
inga. Hegtun harmaði einnig
ástandið.
Tillaga frá Kielland var
send rikisstjóminni án þess
að Stórþingið tætei afstöðu
til hennar. Þar er hvatt tál
viðurkennimgar á fiskveiði-
landhelgi Íslendihga, að boð-
izt verði til þess að veita
varðskipaaðstoð og áð ráð-
stafanir verði gerðar gegn
Bretum vegna landhelgisdeii-
unnar innan NATO.