Morgunblaðið - 02.06.1973, Síða 4
4
MORGUNBLAEHÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚ.Nf 1973
® 22*0*22*
RAUDARÁRSTIG 31
BfLALEIGA
CAR RENTAL
TSt 21190 21188
14444
\U 25555
m/unB/fí
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
BORGARTÚjm
Avrs
SIMI 24460
LAUGAVEGI 66
c-
BÍLALEIGAN
5IEYSIR
CAR RENTAL
CAR RENTAL
BÍLALEIGA
TRAUSTI
ÞVERHOLT 15ATEL. 25780
SKODA EYÐiR MINNA.
Shodh
LEtGAN
AUÐBREKKU 44-46
SÍMI 42600
STAKSTEINAR
Verri en
Hannes?
Dómsmálaráðherra lands-
ins hefur opinberað furðuleg
ar hiigrmyndir sinar um prent
fri-lsi og frjálsa blaða-
mennsku. I sjónvarpsþætti í
fyrrakvóid lýsti hann því yfir,
að biaðamenn yrðu að gera
sér það að góðu, að Landhelg
isgæzlan birti ekki upplýsing
ar tun stórfréttir fyrr en eftir
dúk og disk. Sagði forsætis-
ráðherra, að aldrei, og ekki
undir neinum kringumstæð-
nm mætti leita frétta hjá
brezka sendiherranum á Is-
landi. Á forsætisráðberra var
að skilja, að eingöngu mætti
leita upplýsinga h.já öðrum að
ilum málsins. Slíkar hugmynd
ir um fréttamennsku eru að-
eins útfærðar í einræðisrikj-
um fasista og kommúnista,
og meira að segja þar forðast
ráðamenn að lýsa því yfir, að
þannig eigi þetta að vera.
Ríkisstjórnarsambúðin með
kommúnistum virðist vera bú
in að rugla hinn rólega fram
sóknarforystumann illilega í
ríminu. Hann virðist telja, að
istenzk blóð muni í framtið-
inni láta sér nægja upplýsing
ar, sem opinberar stofnanir
bera á borð, hversu ófullkomn
ar og síðbúnar sem þær eru.
Forsætisráðherra er stjórn-
arformaður' dagblaðsins Tím-
ans og það blað fór eftir for-
skrift ráðherrans og tók upp-
lýsingar landhelgisgæzlunnar
góðar og gildar, þótt þær
væru bersýnilega ónákvæm-
ar. Og daginn eftir komust
lesendur þess blaðs að því, að
Timinn hafði upp á eigin spýt
tir sökkt togaranum Everton.
Ólafi Jóhannessyni forsætis-
og dómsmáiaráðherra skal
bent á það, að meðan frjáls
blöð eru enn i þessu landi,
verður hvorki hann né aðrir
beðnir um leyfi til að tala við
ákveðna menn.
Forsætisráðherra verður að
gera sér grein fyrir þvi, að
það tilheyrir Uðinni tið, eða
lokuðum þjóðfélögum, að
banna að hlusta á rök and-
stæðings síns. Sérhver tilraun
til að leyna þjóðina því, sem
er að gerast er vantraust á
þroska hennar og þann mál-
stað sem hún er að berjast
fyrir.
Forsætferáðherra má ekki
skilja það svo, að vinstri
stjórn á fslandi, fylgi óhjá-
kvæmilega skerðing á frétta-
og prentfrelsi. Og auðvitað
ætti enginn að vita betur en
Óiafur Jóhannesson forsætis-
ráðherra, hvað það er hættu-
leg og óbilgjörn krafa að
heimta að fréttastofnanir
snúi sér aðeins til opinberra
btaðafulltrúa. Forsætisráð-
herra hefur nú um tveggja
ára skeið sjálfur haft blaða-
fulltrúa, svo hann ætti að fara
nærri um afleiðingarnar.
Á siðasta degi, sem Alþingi
sat i vor, benti forsætisráð-
herra islenzkum sjómönniun
á, að þeir mættu ekki gagn-
rýna landhelgisgæzluna nenia
gegn kvittun frá landhelgis-
sjóði. Og nú bítur hann höf-
tiðið af skömminni með þvi
að tilkynna íslenzkum frétta
miðltim, að rangar fréttir séu
betri en réttar, ef þær komi
frá réttum stöðum. Ekki verð
ur betur séð en kominn sé tínii
til að safna saman öllum
hinum frumlegu hugsun-
um formannsins i litið grænt
kver og gefa þær út þjóðinni
til viðvörimar.
spurt og svarad Hringið i síma 1D100 kl. 10—11 frá mánudegi til föstudags og biCjið um Lesendaþjónustu Morg- unblaðsins.
Lesendaþjónusta MORGUNBLAÐSINS
l'M LÍFEYRISS.IÓÐI
Laufey Þorgrímsdóttir,
Kársnesbraut 13, Kópavogi,
spyr:
„Hvað er g-ert við liifeyris-
sjóð konu eða manns, sem
deyr? — Er hann greiddur til
eftirlifandi maka eða til
bama?“
Bjarni Þórðarson, frkvst.
Landssambands lífeyr s ^oða
svarar:
„Ákvæði reglugerða ein-
stakra lífeyrissjóða um greiðsi
ur til maka og barna við frá-
fall sjóðfélaga eru talsvert
mismumandi. Yfirleitt öðlast
börn yngri en 16 eða 18 ára
rétt til lífeyr s til þess aldurs,
en eldri böm öðlast ekki rétt
til greiðslna úr lífeyrissjóð-
um, hvorki lífeyris eða end-
urgreiðslu iðgjalds (nema 1
svonefndum séreignasjóðum).
Yfirleitt gera regluigerðir líf-
eyrissjóða ráð fyrir, að maki,
sem ekki öðlast rétt makalíf
eyris, fái endurgreidd iðgjöld
þau, sem sjóðsféjaginn sjálfur
greiddi til sjóðsins (4%). —
Þessi regla gildir ekki hjá
þeim sjóðum verkailýðsfélag-
anna, sem stofnaðir voru i árs
byrjun 1970, enda er þar gert
ráð fyrir að malkalifeyrisrétt-
ur stofnist eftir aðeins sex
mártuði i sjóðmum.
KNATTSPYRNA YNGRI
FLOKKANNA
Arnar Hilmarsson, Hvassa-
leiti 157, spyr:
„Væri ekki hægt að birta
úrslit leikja yngri flokkanna
í knattspymu, þar sem mót
þeirra fara senn að hefjast?“
Steinar J. Lúðvíksson íþrótta
fréttaritari Morgunblaðsins
svarar:
„Það hefur lengi verið ætl
un okkar að b'rta jafnóðum
úrslit í leikjum yngri flokk-
anna í Islandsmótinu í knatt-
spyrnu, en jafnam hefur stað
ið á því að mijög erfitt hefur
verið að fá vitneskju um þau.
Þessir lei'kir skipta hundruð-
um og hingað til hefur en.g-
inn einn aðili innan KSl fenig
ið úrslit leikjainna. í sumar
standa hins vegar vonir til að
úr verði hægt að bæta, þar
sem mótanefnd KSf hefuf
hedið því að ganga mjög hart
eftir þvi að framkvæmdaaðil
ar Leikja skili skýrslum um
þá. Er rétt að nota þetta tæki
færi til þess að undirstrika
hvatningu mótanefmdarinnar
til félaganma að láta vita um
úrslit leikja á skrifstofu KSl
og verði mál þessi í sæmilegu
lagi mun ekki standa á Morg
unblaðinu að birta úrslitin."
SVÆÐIÖ
VIÐ RF.TTARHOLTSVEG
Sigfríð Breiðfjörð, Réttar
hoftsvegi 89, spyr:
„Við höfum búið á horni
Rétitarhöitsvegar og Bústaðar-
vegar í 18 ár, og ekki er enn-
þá farið að standseitja þó
nokkuð svæði, sem er hér fyr-
ir framam. Var okkur nýlega
sagf, að það mumdi ekki gert
á þessu ári. En hins veg-
ar er unmið við að koma Foss-
vogshverfinu i stamd og Stóra-
gerðishverfimiu, sem ennþá er
ekki farið að byggja. En við
borguðum gangstéttargjaid í
fyrra og héldum að þá mi'jmdu
þeir gera eiitthvað í málimu,
en þá var aðeims tagfært Bú-
staðarvegsmegin. Hvers eig-
um við að gjaida, og hvermiig
stendur á þessu?“
Ingi <j. Magnússon, gatna-
mállaistjóri, svarar:
„Skv. mældbliaði, þá tilheyr-
ir þetta ófrágemgna svæði,
sem talað er um, raðhúsunum
nr. 81—97 við Réttarhoiitsveg.
Þar sem ekki virðisit vera
áhugi fyrir hendii hjá lóðar-
höf-um að flytja girðimgamar
fram að gam'gstéttinmii og
ganga frá tóðunum, mun
borgin sjá um snyrtimgu
svæðisimis, ásamt svæðimu
meðfraim Réttarholitsvegi að
austam upp með raiðhúsumum.
Mum verðia stefrrt að því að
gera þessar lagfærimigar nú í
suimajr."
FERÐABlLAR HF.
Bílaleiga. - S.mi 81260.
Tveggja manna Citroen Mehari.
F!mm manna Citroen G.S.
8—22 manna Mercedes Benz
hópferðabílar (m. bílstjórum).
Bezta auglýsingablaöið
Ingvi Steinn.
★ Ingvi Steinn
meö plötu
FORTÍÐ: Keflvíkingurinn
Ingvi Steinn komst fyrst i
sviösl.jósið sem söngvari
hl.jómsveitarinnar Júdas;
söng rneð henni á einum
hljómleikuni áður en liún
hætti, svo og inn á tveggja
laga pliitu. Hefur síðan birzt
af og til á skemmtunum og í
sjónvarpi, leikið á píanó og
sungið, m.a. eigin lög.
NÚTlÐ: Hefur nýlega sung
ið inn á tveggja Iaga plötu
nýs hljómplötufyrirtækis,
Kristal-Músik. Upptakan var
gerð i Stapa með stereó-tækj
um Péturs Steingrímssonar.
Aðailagið er „Flakkarasöng-
urinn“ eftir Ingva Stein,
við texta Þorsteins Eggerts-
Popp-skýrslan
sonar; hitt lagió er „Your
Beauty Shades the Dawn“
eftir Magnús og Jóhann við
texta Barry Nettles, sem gert
hefur marga texta við lög tví
menninganna. Auk Ingva
Steins, sem lék á píanó, sáu
þessir um undirleik: Magnús
og Jóhann á gítar og bassa;
Arnar Sigurbjörnsson, gítar;
Ragnar Sigurjónsson, tromm-
ur; Karl Sighvatsson, synth-
esizer. Björgvin Halldórsson
sá um milliraddir og var auk
þess tæknilegur aðstoðar-
maður við upptökuna. Upp-
takan tók tvo daga.
FRAMTÍÐ: Vonazt er til,
ap platan komist á markað
eftir mánuð eða svo. Ingvi
Steinn mun á næstunni koma
fram á dansleikjum og
skemmtunum — til að aug-
lýsa sjálfan sig og plötuna.
HLJÓMSVEITIN Álos frá
Stykkishólmi hefur starfsemi
sína nú um helgina, en hún er
skipuð fjórmn fyrrverandi
liðsmönnum Óveru og Sigtirði
Björnssyni. Hljómsveitin
hyggst ferðast víða um land-
ið í sumar. Liðsmenn hennar
eru (frá v.): Gunnar Svan-
laugsson (söngtir), Gttnnar
Ingvarsson (troirurmr), Hin-
rik Axelsson (bassi), Ragnar
B. Gíslason (gítar) og Sigttrð-
ur Björnsson (gítar).