Morgunblaðið - 02.06.1973, Page 10

Morgunblaðið - 02.06.1973, Page 10
10 MORGUNBLAMÐ, LAUGARDAGUR 2. JÚNl 1973 Pompidou um fundinn: Líkari getnaði en barns- fæðingu sem líka er skemmtilegra TALSMAÐUR Pompidous for- seta hafði í grærmorgun látið orð að þvi ligrgja, að setmilega mundi forsetinn koma og segja nokkur orð við blaðamenn um leið og ftindi forsetanna tveggja lyki um liádegi. Mundi hann þá koma í sal blaðamanna og ávarpa þá áður en hann æki á flugrvöllinn. Þetta olli miklu umstangi. Þægiiegum stól var komið fyrir á palli, strax og Frakkarnir kom ust að pall!num, ræðustóll flutt- ur burt, myndatökumenn og fréttamenn frá sjónvarpsstöðv- uim tókiu að trygigja sér rúm, setja upp vélar sínar og hrúga upp hljóðmemum á stöng. Frétta- maður Mbl. náði sér m.a. í stól og sat sem fastast í honum í fremstu viígliínu í klukku- tíma. En ekkert gerðist. Salur- inn var orðinn troðfullur af fréttamönnum. Skyndilega birtist Pompidou í dyrunum hinum megin í salin- utn, staðnæmdist þar og ætlaði ekki lengra. Mikið fjaðrafok varð, allir fréttamennirnir þustu að forsetanu.m og umkringdu hann og reyndu að rétta hljóð- nema sina að honum. Fréttamað ur Mbl. hafði tekið undir sig stökk og troðizt inn í þvöguna, nokkum veginn i kallfæri. Pompidou hóf máls á þvL að segja að á fumdunum hefðu hann og Nixon Bandaríkjaforseti talað um ákaflega mörg máiefni. Þeir hefðu m.a. rætt um komu Nix- ons til Parísar í haust. Og þagar hann heyrði óánægju tónirnn í blaðamönnunum iengra í burtu, sem ekki heyrðu til hans, sagði hann: — Þið vinnið við erf- iðar aðstæður. Það geri ég líka. Ég kvarta ekki. Síðan hélt Pompidou áfram: — Á fundunum var sem sagt rætt um alH. Það var ekki ætlum in með þeim að taka neinar ákvarðanir, heldur ræða málin. Ég kom ekki til þessa fundar til að tala fyrir Evrópu. Ég er hér tii að tala fyrir hömd Frakklands. Við höfum á þessum fundum fumdið að mörg vandamál eru fyrir hendi. Um mörg þeirra vor um við sammála, önnur ósam- mála. En í heild voru þau miklu fleiri sem við erum sammála 'im en ósammála. Hvers vegna? Vegina þess að heildarskoðanir okkar á lífi og friði eru hliðstæð- ar. — Ég held að grin, sem ég leyfði mér að viðhafa iinni á fuind'num með Nixon, spegli það, sem þessi fundur hefur verið. Ég leyfi mér að endurtaka þá litlu sögu hér: Funduirinn hefur fremur verið í likingu við það að búa til barn en að fæða það. Og getnaðurinn er venjuíega miklu skemimtiiegri en bamsfæðingin. Ég held að þetta spegli í óeigim- legri merkingu eðli þessa fund- ar. Afleiðimgar eru kannski ekki mjög sjáanlegar, en þær verða það væntanlega í framtíð- inni. Ég þakka ykkur fyrir þoiin mæðina. Þið hafið eytt löngum tíma í að bíða eftir litlu. En ég hygg að þið fáið á næstu mánuð- um og áruim meira að flytja frá þessurn umræðum. Því óska ég ykkur langra lífdaga í þessu starfi. — Þetta var allt og sumt, Messieurs. Næst ferðumst við í Concord-þotu (mun forsetinn þá hafa átt við að næsta ferð hans verður til Kína og ákveðið að hann fari þá löngu vegalengd í Concord-þotu). Að svo búnu hvarf Pompidou á braut og ók til Keflavikiurflug- vallar. FRAMHALD I SAMA JÁKVÆÐA ANDA Talsmaður Elyséehailar, Denis Baudouin, ræddi önstutt við fréttamenn eft r að forsetiinn var fariinn, áður en hann flýtti sér á flugvöliijin á eftir forsetanum. Og hafði hann sama hátt á og forsetinm, að standa á miðju gólfi og tala við þá sem mæstir voru. Hann sagði að i upphafi fund- anna i morgun hefði Nixon hafið máls á þvi að hamn hefði alltaf haft mikinm áhuga á að bæta sambúð Frakka og Bandaríkja- mainna. Samband þeirra hefði verið mjög slæmt 1968, og hefðu Bandaríkjamenn átt sina sök á þvi. En þegar hann hitti de Gaulles eftir að hann kom t'.l valda 1969 hefði strax verið tek- in upp bætt sambúð og vildi hann stuðla að því að hún héldi enn áfram að batna. Og frönsk- um blaðamöinnum fannst það auðheyrilega mikil uppörvun að Bandarikjamenn viðurkenndu í fyrsta simn að hin stirða sambúð væri ekki öll Frökkum að kenna. Forsetarnir ræddu mjög marg vísleg málefni á mongunfundin- utn, m.a. um Evrópumál, Viet- nam, Kambodíu og fleira. Léttar athugasemd'r komu fram, eins og þegar Nixon sagði við Pompidou að hanm væri stöð ugt að verða eiginigjarnari. Og Pompidou svaraði þvi til að sjálf ur yrði hann alltaf minna og miona eigingjarn. — Ekki get ég nú fundið það, svaraði Nixon um hæl. I heild einkemndust umræðum ar af því að ekki var ætlunin að leysa vandamálið, heldur byrja að vinna að þvi, eins ag kom fram i umræðum forsetans i hans ávarpi. Þegar Pompidou Frakklandsfo rsefci kom að heimili Alberts Guðmundssonar, þar som hann dvaldi meðan hann var hér, tóku Albert og fjölskylda hans á móti honum. Hér tekur Albert á móti forsetanum. Að lokum sagði Pompidou við Nixon að það yrði ánægjulegt að hitta hann. — Þá höldum við áfram þessum v ðræðum, sagði hann. Og Nixon kvaðst mumdu biðja alla niénn um að halda áfram að vinna að máiunum í þessum anda, sem hefði einkeinnt þennan fund, þ.e. í jákvæðum anda. Pompidou Frakklandsforseti og NixO'n Bandaríkjaforseti voni hressir í bragði og broshýrir, þegar framan við Kjarvalsstaði. þeiir kvöddust í gær Fundir forsetanna: Yfir 400 blaðamenn komu til íslands — ÉG heyrði sagt, að 150 blaða- menn hefðu komið frá Frakk- landi og 250 frá Bandnríkjunum og þessar tölur virðast mjög sennilegar, miðað við það, að rúmlega 440 blaðamenn voru á skrá hjá Hannesi Jónssyni, blaða fulltrúa rikisstjórnarinnar, sagði Helgi Ágústsson, blaðafulltrúi ut anrikisráðuneytisins, í viðtali við Mbl. í gær. Helgi taldi, að eriendu blaða- meninimir hefðu verið ánægðir með aðbúnaðinn og aðstöðuna, sem þeim var veitt hér. — Mér virtist simaþjónusitain ganga vel, samskiptin við lögregiluna veira með ágaetum og allur aðbúnað- uir vera alveg til sóma. Að visiu voru ýmiis smáatriði, sem betur hefðu mátt fara, etas og alltaf vill verða, en í heildtaa held ég að þeir hafi verið mjög áinægðir. Langflestir blaðamennimir héddu utan í gær, um svipað leyti og forsetamir, en nokkrlr urðu þó eftir, flestir frá Evrópu. Helgi sagði, að þeir hefðu sýnt áhuga á því að skrifa um land- helgisimálið og um áhrif eldgoisis- ins í Eyj'um. Ekki yrði um að ræða neina sérstaka kynntogar- dagskrá fyrir þá hér, en reynt yrði að veita þeim fyrirgreiðslu eftiir megni. Helgi vair að lokum spurður, hvemig honum sjálfum hefði þótt takaist framkvæmd funda- haldstos og þá sérstaklega hvað blaðajmieinin snerti: — Alveg firamúrsíkarandi vel og þar féll engirm skuggi á. Ferming Ferming í Stóra-Núpskirkju sunnudaginn 3. júní. Prestur sr. Guðjón Guðjónsson. Elín Erlimgsdóttir, Sandlæk. Sigríður Áslaug Guðmunds- dóttir, Búrfelli. Soffía Rósa Gestsdóttir, Skaft- holti. Guttormur Bjamason, Stöðul- felli. Ólafur Jökull Ólafsson, Búr- felli. Þórir Ólafsson, Búrfeili.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.