Morgunblaðið - 29.06.1973, Page 4

Morgunblaðið - 29.06.1973, Page 4
4 MORGUNiBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 29. JÚNÍ 1973 ® 22*0*22* RAUÐARÁRSTÍG 31 V________--------■' BÍLALEIGA CAR RENTAL 21190 21188 14444 25555 WMF/W BÍLALEIGA CAR RENTAL BORGIRTÚN 29 CAR RENTAl TpA|]CT| BÍLALEIGA IKAU5II ÞVERHOLT 15ATEL. 25780 AV/S SIMI 24460 BÍLALEIGAN EYSIR CAR RENTAL SKODA EYÐIR MINNA. Shodh LCIGAN AUÐBREKKU 44-46. SÍMI 42600. MJÓR ER MIKILS 0 SAMVINNUBANKINN R Hjartans þakklæti og kveðja bil a'llra vina og vandamanna, sem heiðnuðu mig með gjöf- um og skeytum á 80 ára af- mæLi mími 19. júní Sl. Guð gefi ykkur ölliurn góðar stundir. fú íana Jóhannesdótlir, Hellissandi. 70 ána þakka ég mér sýndan heiður, góðar gjafir, skeyti og hlý harxltök. Lrfið helL Karl G. Pálsson, Grettisgötti I8B |Htirgtmhíaí)íÍ> nucLVSinonR ^«-«22480 STAKSTEINAR Hverjum olli Ragnar vonbrigðum? Sjaldan hefur það komið jafn berlega í ljós, hversu ein angraðir kommúnistar og A1 þýðubandalagsmenn eru í af- stöðu sinni til utanríksmál- efna eins og i sjónvarpsþættin um iim utanríkismál sl. þriðju dagskvöld. Gremja þeirra kemur glöggt fram í Þjóðvilj anum i gær. Ritstjórar blaðs ins hafa sennilega iagzt undir feld að þætti loknnm og reyrit að upphugsa ráð til þess að bregðast við slikum óförum. Lausnin var sú að fela hetzta sljórnmálasérfræðingi blaðsins að vélrita upp við- ræðijj'áttinn og klippa svo nið ur eina og eina setningu eftir hvern þátttakanda og slíta úr samhengi. Síðan var stjórn- málasérfræðingnum falið að snúa út úr og afbaka hverja setningu, sem höfð var eftir Einari Ágústssyni, Benedikt Gröndal, Hannibal Valdimars syni og Geir Hallgrimssyni, með hefðbundnum dylgjum, en fara lofsamlegum orðum um „spakmæli“ Ragnars Arn- alds. Ekki virðist stjórnmálasér- fræðingnr blaðsins þó hafa verið hæst ánægður með verk efnið, og gefur ritstjórum sin um og lesendum það í skyn með því að byrja grein sína með þessum orðum: „Fyrirfram héldu menn að sjónvarps þáttur undir stjórn Eiðs Guðnasonar um utanrik ismái yrði harla merkilegur þáttur. Jafnvel merkiiegt framlag til umræðna um utan ríkismál. Hverjum hann hefur valdið vonbrigðum og hverj- um ekki skal ósagt látið . . Það þarf víst enginn eftir þetta að fara í grafgötur um það, hverjir urðu fyrir von- brigðum með sjónvarpsþátt- inn. Hann var að sínu leyti merkilegt framlag tii um- ræðna um utanríkismál; svo augljóslega sýndi hann fram á einangrun Alþýðubandalags manna í utanríkismálum. Vlta ekki vilja Alþingis I þessum sjónvarpsþætti kom glöggt fram, að enn er allt óvíst um, hvaða afstöðu Alþingi tekur til varnarmái- anna, uppsagnar eða endur- skoðunar varnarsamningsins. Einar Ágústsson, utancikisráð herra, sagðist ekki vita hvort meirihluti væri fyrir því að segja upp varnarsamningn- um. Þingmenn hugsuðu sjálf- stætt og afstaða þeirra gæti ráðizt af framvindu mála næstu sex mánuði. Hannibal Valdimarsson, félagsmálaráð- herra, tók í sama streng og utanríkisráðherra og sagði, að enginn gæti spáð um það, hvernig aiþingismenn myndi* bregðast við, þegar þar að kænii. Hann benti einnig á, að hugsanlegt væri að gerá nýjan varnarsamning, sem ekki hefði í för með sér dvöl erlendra hermanna. Ragnar Arnalds var sá eimi af talsmönnum stjórnarflokk- anna, sem sagðist treysta því, að þingmenn stjórnarflokk- anna stæðu við ákvæði mál- efnasamningsins og segðu varnarsamningnnm upp, hvernig sem þróun máia yrði og hvað sem niðurstaða endur skoðunarinnar leiddi í ljós. Haflidi Jonsson LÓWIR F.IÖLBÝLISHÚSA Á undanfömum árum hefur mikið verið byggt af fjölbýlis húsum. Eftir að fóik hefur flutzt inn í húsin hefur oft dreg izt lengur en skyldi að rækta lóðirnar, sem húsunum til- heyra. Ibúar þessara húsa kjósa jafnan húsráð, sem hefur með höndum stjórn sameigin- legra mála er húseigjnina varða og tíðast er ræktun og umhirða lóðar'nnar erfiðasta viðfangsefnið. Sjaldnast hafa allir íbúarnir jafna aðstöðu tU að sinna þessu mi'kiivæga verkefni og oft skortir ein- staklinga í stórum féiagshóp, áhuga fyrir framkvæmd verk efna, sem þe!r bera ekki per- sónulega ábyrgð á. Samvinnu- búskapur virðist ekki henta Islendingum, ef dæma má eft ir reynsluimi, sem fengizt hef ur af ræktun sambýlishúsa- lóða. Þó hefur þróuntn orðið sú, að horfið hefur verið frá þe rri reglu, sem t. d. var tal- in sjálfsögð við Verkamanna- bústaðina, að hver íbúð fékk sinn útmælda lóðarskika, sem íbúamir undiirstrikuðu eignar- rétt sinn á með öflugri girð- ingu. Nú eru lóðimar látnar haldast sem ein heild og eng- inn getur helgað sér blett á landareigninni, sem hægt er að rækta eftir persónulegum geðþótta. Árangur hinmar nýju stefnu verður sá, að lítið er vandað til ræktunar lóðamia og umhirða þeirra í flestum tiávikum fremur bágborin. Frá þessu eru þó fáeimar und- antekningar. Með hvaða hætti væri hugs- anlegt að bæta úr í þessum efnum? Fyrir það fyrsta þarf að haga skipulagi fjölbýlis- húsahverfa með öðrum hætti en nú er gert. Hyggilegast væri að hafa það fyrst og fremst að markmiði v:ð skipu lagið, að umhverfið verði sem notalegast fyrir manneskjum ar er þar eiga að dveljast, en raða ekki steinkössum eftir regiubundnum línum, þannig að hver íbúð hafi sem skemmsta leið út á umferðar- stræti, og að bíllirun geti verið í þriggja skrefa fjarlægð frá útidyrum. Að sjálfsögðu er nauðsynlegt, ef mikið liggur við, að flutningatæki geti ekið inn á íbúðarhúsalóðir, en það ætti þó helzt ekki að eiga sér stað nema mikil þörf sé á. í dag er það bíllinn, sem ræður skipulaginu. Sú hugar- farsbreyting hlýtur að verða á næstu árum, að það verði bömin sem skipulagssérfræð- ingar hafa fyrst og fremst í huga, þegar þeir raða niður bygg'ngum. Bílliinn verður að þokast út fyrir sjálfan byggð arkjarnann, ef vel á að fara. I*á, en ekki fyrr, getum við farið að byggja hús við garð- stíga í stað umferðarstræta. Jafnframt getur það gerzt, að fjölbýlishús hafi enga afmark- aða lóð umfram grunn sinn, en standi hins vegar í sameig iniegum almennmgsgarði, sem ibúamir borga viðhald á með hiiðstæðum hætti og þeir borga í dag löðarskatt. í>ar með væru þeir lausir við allan ama og amstur af ræktun og viðhaldi lóða, sem þeiir koma sjaldnast í svo viðunanlegt lag, að þar sé ákjósanlegt að dveljast, þegar hvíld gefst frá daglegri önn. t>að er tímabært að taka skipulagsvandamál fjölbýlis- húsanna til endurskoðunar og ef áhugi og vilji eru fyrir hendi má víða bæta stórlega um ræktun og fegrun frá því sem nú er. Slíkt verður þó aldrei gert með tilskipunum í eimni eða annarri mynd, heldur með sameiginlegum vilja íbúa í heilum borgarhverfuim. Glöggt dæmi um það er Ár- bæjarhverfið, þar sem allar lóðir fjölbýliishúsanna tengj- ast saman og eru eitt ræktun- arsvæði. Þar er vísbending um, hvað hægt er að gera og að hverju á að stefna, ef við viljum í framtíðinni búa utan við ys og þys strætanna. Popp-skýrslan ROLLING STONES FOBTÍÐ: Hljöms veitin var stofnuð fyrir 10 árum síðan á upphafsskeiði brezku Rythm and Blues tónlistarinnar og hún hélt alltaf velheppnaðrl, stællegri stefnu á milli blues- tónlistarinnar, sopans, há- tizkufólksins og svívirðilegra einkauppátækja. Hljómsveitin lagði sérstaka rækt við að um vefja sig andrúmslofti linign unar og spillingar, en þetta hafði hinar alvarlegustu af- leiðingar fyrir hana á Alta- mont-útihljómleikunum 1969 (misheppnuðum hljómleikum, sem enduðu með því, að Helj- arenglar börðu svertiugja í hel með reiðhjólakeðjum, sbr. kvikmyndina Gimme Shelter). Eina popphljómsveitin, seni nokkru sinni hefur verið gerð að umtalsefni í leiðara Times í London. MlTffl: Með aldrinum hafa þeir félagar róazt. Jagger er nú alþjóðlegur glaumgosi, en Keith Richard hefur færzt meira í sviðsljósið sem tón- listarmiðpunktur hljómsveitar innar. Hljómsveitin er ennþá af mörgum talin fremsti flytj andi hinnar hráu popptónlist- ar. FRAMTfö: Sögusagnir eru á kreilti um að hljómsveitin sé í miklum vanda stödd vegna bersýnilega lélegra gæða næstu stóru plötunnar, sem hljóðrituðu var á Jama- íka. Jagger mun einbeita sér enn meira að kvikmyndum, en hljómleikaferðir um heim- inn miinu halda áfram i nokk ur ár enn — og óviðjafanleg- ur stæll þeirra mun fylgja þeim allt til grafarinnar. Það væri ánægjulegt stð sjá þá leika í litiu hljómleikasölun- um á ný, þar sem hin sönnu gæði þeirra myndu koma i ljós. ★ Mættum við fá meira að heyra? Þá er lokið birtingu fyrstu 20 þátta poppskýrslunnar — þ. e. þeim hluta hennar, sem fjallar um brezkar hljómsveit ir. Enn er þó liægt að halda áfram í tvo mánuði eða leng- ur, því að Melody Maker hef- ur birt sams konar þátt um 20 bandarískar hljómsveitir og 20 bandariskra einstaklinga og líklega er ókomin popp- skýrsla um. 20 brezka einstakl inga. En einni spurningu er ósvarað: Hafa lesendur ánægju af þessu eða ekki? Við höfum rætt við örfáar hræður, sem hafa lýst ánægju sinni með þetta efni, en það er aldrei að vita nema þar sé um að ræða eintóma sérvitr- inga og furðufugla, sem ekk- ert mark er takandi á. Því hefðum við gaman af að fá bréf eða upphringingu frá les endum, sem vildu segja áiit sitt á þessum skrifum — og öðru efni Poppkornsins. — Það skal tekið fram, að lögð hefur verið áherzla á að þýða orðrétt, eða því sem næst, það sem Melody Maker skrifaðl um hverja hljómsveit — og að eins skotið inn skýringum, ef þörf hefur krafið. Oft hafa skoðanir M.M.-manna verið í andstöðu við skoðanir Popp- korns-ritara, og vafalaust einn ig i andstöðu við skoðanir les enda. M. a. hefur Poppkorni borizt bréf frá Moody Blues- aðdáanda á Akureyri, sem hefur sitthvað við skrifin um Moody Blues að athuga. Við munum ræða efni þess á næstunni, en bréf frá aðdá- endum annarra hljómsveita, sem viidu láta í ljós sitt álit, væru einnig mjög vel þegin.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.