Morgunblaðið - 17.07.1973, Page 10

Morgunblaðið - 17.07.1973, Page 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRTÐJUÐAGUR 17. JULl 1973 Barnahátíð Kiwanis- manna í Saltvík KIWANIS-klúbbarnir á Reykjavíkursvæðinu og i Keflavík gengust fyrir barna hátið i Saltvík um helg'ina, og auk barna og barnabarna khibbfélaganna var sérstak- lega boðið til hátíðarinnar hópi barna frá barnaheimili lamaðra og fatlaðra i Reykja dal í Mosfellssveit. Veður var hið fegursta síð- degis á laugardaginn, er barna hátíðin hófst, sól og hiti. Veit iingasalan, sem hafði á boð- stólum gosdrykkir, pylsur og sælgæti, heillaði börnin að sjálfsögðu mest framan af, en síðan var farið í le'lki og börnin fylgdust með seglbát- um Sigluness, sem voru að koma inn á Saltvikina. Þá lék 38 manna unglingahljóm- sveit frá Nýfundnalandi nokk ur lög á útisviði og síðan var efnt ti-1 kvikmyndasýningar og leikja inni í hlöðun-ni í Saltvik. Um kvöldið var varð eldu-r. — Á sunnudag var haldið áfram leikjum og keppnum og ýmsir trimmuðu um nágrennið. Þetta er í þriðja sinn, sem Kiwanis-klúbba-rnir gangast fyri-r barnahátíð í Sailtvík, e-n af sérstökum ástæðum varð í þetta sinn að boða t'ál he-nn ar með Skemmri fyriirvara en áður og var þátttaka því ekkl eins mikil og í fyrri skiptin. E'ns og i fyrra var börnum í Reykjadal boðið á hátíðina og höfðu þau augljóslega hin-a mestu ánægju af heim- sókninni. Keppnin i pokahlaupi var geysispennandi, enda til niikils að \inna: Ein pylsa á mann í sigursveitinni. . . . og loksins var það þessi, sem laglegastur var“. Stúikurnar að leik. 38 nianna unglingahljómsveit frá Nýfundnalandi lék nokkur lög, en hingað er hljómsveitin komin fyrir milligöngu Kiw.inis-nianna á Nýfundnalandl og á íslandi. Ljósmyndir: Brynjólfur Helgason.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.