Morgunblaðið - 28.08.1973, Page 10
10
MORGUNBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGUST 1973
Austfirzkir
skuttogaraskipstjórar:
„Kvíðnir fyr-
ir haustinu
—■ þá byrjar
stríðiðu
Rætt við Einar Ásgéirsson,
skipstjóra á Hvalbaki
FJÖGUR fiskvinnslufyrir-
tæki á Breiðdalsvík og Stöðv
arfirði hafa sameinazt um
kaup og rekstur á nýjum jap
önskum skuttogara, Hvaibaki
SU 300. Skipið kom til lands-
ins um miðjan maímánuð og
hefur síðan verið að veiðum
við SA-land, að itndanteknum
10 dögiim, er verið var að
setja í það ísvél og færibönd.
Fyrstu tvo mánuðina aflaði
skipið talsvert yfir 700 lestir
og lagði aflann til skiptis upp
á Breiðdalsvík og Stöðvarfirði
að jafnaði um 100 lestir, ísað
ar í kassa, eftir hverja veiði-
ferð, sem tekur 7—10 daga.
Aflinn hefur verið verkaður í
salt hjá Braga h.f. á Breiðdals
vík og hjá Varðarútgerðinni
h.f. á Stöðvarfirði og faríð í
frystingu í hraðfrystihúsum
Breiðdaisvíkur og Stöðvar-
fjarðar, en þessir í'jórir aðilar
eiga togarann í sameiningu. —
Fara að jafnaði um 20—30 lest
ir af fiski til vinnslu í hverju
fyrirtækjanna og er þannig
allt að helmingi aflans hverju
sinni ekið á milli Stöðvarf jarð
ar og Breiðdalsvíkur, sem er
18 km leið.
Blaðamaður Mbl. átti fyrir
nokkru samtal við E'nar Ás-
geirsson, skipstjóra Hvalbaks,
er skipið var nýkomið inn til
Stöðvarfjarðar með 85—90
lestir eftir 3—4 daga veiði-
ferð. Tal ð barst fyrst að land-
helgismálinu og var Einari
heitt í hamsi, því að dagana á
umdan höfðu tvö varðskip ver-
ið við Hvaibak og látið reka, á
rneðan brezku togaramir allt
að þvi röðuðu sér á 12 milna
límuna við Hvalbak.
„Við töluðum við skipherr-
ana, en þeir sögðust vera í öðr
um verkum,“ sagði Einar. —
„Það er augljóst að þeir ráða
þessu ekki sjálfir, mannagrey
in. Varðskipin eru á þessum
slóðum, en gera ekkert, og
Bretarnir fiska vel þarna. —
Það var gerður smáskurkur
um daiginin og þá lagaðlst þetta
aðeins, en svo var ekkert g-ert
meira.
Við erum óánægðir með
þetta ástand, íslenzku skip-
stjórannir, og kvíðnir fyrir
haustinu, þegar við föruim á
Hornin. Þá byrjar striðið. Það
er ekki hægt að koma nálægt
þessum andskotum, því að
þeir virða ekki eimu sinni
siglingaregiur eða neitt.
Ef ég væri Bretii, þá færi
það fljótlega í taugarnar á
mér, ef ég fengi ekki að vera
í friði við veiðamar. Það er
sálræn-a stríðið sem gildir. —
Það er staðreynd, að þeir eru
mijög ánægðir með ástandið,
og sórstaklega hefur verið
gert lítið hér fyrir SA-landi.
Allar fréttimar koma að vest
an, en hér hrúgast þeir upp,
þar sem þeir hafa augljóstega
frið.“
Á þessum slóðuim eru að
jafnaði 5—8 íslenzk skip og
hafa afl-að sæmitega. „Ef við
fláum. þessa skratta út úr land
heliginni ætti þetta að vera
allt í lagi, en það fer eftir því
hvort fiskurinn klárast áður
eða ekki,“ sagði Einar.
Piskurinn, sem þarna fæst,
er úrvalsfiskur. „Eins og hann
gerist beztur, hreirnt gul-l,“ seg
ir Einar. „Þetta hefuir verið
aðaltega ýsa og þorskur, lítið
af ufsa etois og er, en hamn fer
að aukast. Þetta er verðmæt-
Einar Ásgeirsson,
skipstjóri
ur afli, því að tonnið af þorskii
jafnast á við tvö af uifsa eða
karfa.“
Hann er mjög ánægður mieð
nýja skipið. „Þetta eru mjög
góð skip og vandaðtur frágainig
uir á þeton. Að visu eiga þau til
sín bermskubrek, en þetta eru
góð sjóskip og fara vel með
mammskapinn. Þa-u mættu þó
vera svoma 4 metrum lengri,
þá færu þau betur í sjó og
væru betri togskip.“
Einar teliur þessa stærð, tæp
ar 500 iestir, mun heppitegri
fyrir Auistfirð'nga en td. stóru
1000 lesta skipin, eins og Júní
og Bjarma Benediktsson. „Það
er ekki hægt að gera stór skip
út hér fyrir austan. Það er
svo litið hér af vönum mann-
skap, en það er það sem gild-
ir. Maður verður að hafa góða
netamemn. Við höfum verið
heppn'r með þemnan togara.
Af því að hann er gerður út
frá tveimiur stöðum, höfum
við getað fengið ágætis mann
skap. Útgerð togara bygigist
fyrst oig fremst á því að hafa
góðain man.nskap um borð. Ég
held að þeir séu ánægðir hér
— að vísu er þetta dálítið nýtt
fyrir þeim, en það hefur þó
enginn hætt emnþá. Ég beld,
að þetta skapi ágætar tekjur,
ef fiskurinin er fyrir hemdi,
en það slagar auðvitað ekkert
upp i loðnufiskieri; Túrarnir
eru Híka stuttir, lengst 10 dag-
ar, og miennirnir því oft
heima.“
B'nar var áður með Örn frá
Hofsósi á togveiðuim, en hafði
verið í 20 ár á togurum, frá
13 ára aldri. Þetta er fyrsti
skuttogarinn, sem hann er á.
„Þetta hefði átt að vera kom-
ið fyrir 10—20 árum. Þegar
verið var að kaupa 1000 lesta
togara, þá hefðu það átt að
vera skuittogarar."
— Er starfið á sku'togurun
um minni þrældómur emn á
himum?
„Hér ganga menn vaktir, 6
tíma vinna og 6 tí-ma svefn.
Þetta er stíf vinna þá 6 tíma,
sem menn eru á vakt, en
vinnuaðstaðan er allt önnur
em áður. Nú ganga menn niður
ur á miliildekk í aðgerðtonni og
það er eins og himmaríki hjá
helviti miiðað við útivimnuna
á síðutogurumum. Það á eft-
ir að koma enn betur í ljós i
vetur í frostum og veðrum.“
Þó f'minst Einari hin mi'klu
skuttogarkaup nú of mikið af
því góða. „Ég er á móti svo
mikildi endurnýjun á skömm-
uim tíma. Það þarf að fá sér-
þjálfað fóiik á skipin og þegar
allir skuttogaramir eru komn
ir, verður barátta um mann-
skapinin.“
— sh.
Egg til sölu
Get tekið að mér að útvega fyrir verzlanir, mötu-
neyti og pöntunarfélög. Síminn er 84156.
Fró Bornaskóla Garðahrepps
Skólinn tekur til starfa mánudaginn 3. september.
Nemendur mæti sem hér segir:
12 og 11 ára kl. 9 f.h.
10 og 9 ára kl. 10 f.h.
8 ára kl. 11 f.h.
7 ára kl. 13 e.h.
6 ára kl. 14 e.h.
Nýir nemendur hafi með sér skilríki frá þeim skól-
um sem þeir koma úr. Fólk, sem flytur í Garða-
hrepp, síðar á árinu þarf einnig að tilkynna skóla-
skyld böm sín.
Skólastjóri.
Hártoppar
fyrir karlmenn
NÝTT - NÝTT
Höfum fengið það nýjasta í heiminum í dag, sem
eru HÁRTOPPAR þar sem hárið er steypt í þunnan
og mjúkan húðlitaðan plastbotn, þannig að enginn
munur er á því og eðlilegu hári.
Villi rakari
Miklubraut 68 — Sími 21575
BÍLAR
1973 Chevro'et Blazer
1972 Va-uxhaill Viva
1972 Toyota Corolila Coope
1972 Volvo 144 Deluxe
1971 Toyota Cari-na
1971 VauxhaM Viva
1971 Volkswagien 1302
1971 Bedford CF 1100 sendi-
bí'll bensínhreyfilil
1970 Opel Caravan
1970 Toyota Crown, 6 cyl.,
sjálfsk., 4ra dyra
1970 Opel Record
1970 Opel Kadett Caravan
1970 Vauxhall Victor
1969 Plymouth Barracuda
1968 Chevro'et IMP. Coupe
1966 Opel Rekord 2ja dyra
1965 Saato 96
1964 Tau nius 12 M.