Morgunblaðið - 28.08.1973, Síða 14
14
MORGUNBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 1973
Collie-hundur, stundum nefndur Lassie-hundur er hér. Nokkr-
ir slíklr voru á sýning-unni, en svo mikil var spennan hjá
þeim í keppninni, að þeim lenti saman í henni miðri og er
ekki laust við, að sumum hafi brugðið í brún, þegar skein í
vígtennurnar og urrað var af öllum mætti.
Chico, nem var taiinn bezti smáhundur á sýningunni, er hér til vinstri. Til hægri er Scháfer-
tíkin Lotta, en hún lenti í þriðja sæti i keppni hvolpa yngri en eins árs. — Ljósm. Mbl. Rafn.
Hundasýning í Hveragerði:
Mikill spenn
ingur meðal
hundanna
— og sá íslenzki varð
hlutskarpastur
Síðastliðinn laugardag var
lialdin í fyrsta skipti hunda-
sýning hér á landi í Eden í
Hveragerði. Til keppninnar
voru skráðir 55 hundar af
ýmsum tegundum og stærð-
tun. Mikill mannfjöldi kom
til siýfiingarinnar, en börn
voru þar í meirihluta. Sýn-
ingin tók fimm klukkustund-
ir og voru menn orðnir
þreyttir, er henni lauk. Senni
lega hafa þó httndarnir verið
orðnir þreyttari eftir ailan
taugaæsinginn og hræðsluna
sem mátti sjá á þeim.
AðstaSa til sýningahaids
er ekká nógu góð þarna, hund
arnir voru látnir ganga uim
svæði, sem var afmarkað
með kaðli, en brögð voru að
því að fólk færi inn á sýn-
ingarsvæðið, til að reyna
að sjá sem beat. Urðu
þá þeir, er fjær sátu að bíta
í það súra epfli, að sjá ekki
neitt.
Dórnari á sýniingunni var
ungfrú Jean Lanning, sem er
þektet kona í heimii hunda-
dómari. Hún rannsakaði
dómari. Hún rannsakaði
viina og talin frábær hunda-
hundana af undraverðu ör-
yggi og þurfti aldrei að skrifa
niður eitt orð um atlhuganir
sínar, heldur lagði hún allt
á mánnið.
24 hundar fengu viðurkenn
ingu á sýningunni, en sýndir
voru átta aðalfloklkar hunda
og svo fjórir sérfloklkar. Is-
lenzki hundurinn varð hlut-
skarpastur, og hét sá Kolur.
Hann er eign frú Si'griðar
Ungfrú Jean Lanning dóm-
arinn í keppninni raðar hér
rósettum á borð, en þær voru
svo hengdar í ltálsbönd hlut-
skörpustu hundanna.
Pétursdóttur frá Ólafsvöll-
uim, en hún hefur ásamt
manni sinum unnið dyggiiega
að ræktun íslenzka hundsins.
Kolur fékk verðlaun sem
bezti hundur sýningarinnar,
bezti karllhundur sýningar-
iinnar og sá bezt tamdi.
Hann er sex ára gamal',
faðir hans er Jobbi frá
Hveragerði og móðir Skotta
frá Sætúni.
Önnur verðlaun fékk
Tanya, tík af kyni, sem er
skylt . íslemzka hundakyninu.
Hún er alhvít. Hún var kos-
in næstbezti hundur sýndng-
arinnar, bezt í flofklki stórra
hunda og bezt tamda
tíkiin. Hún er af samoyel
kynli.
Bezti smáhundurinn var
kosinn Chieo, af cháhuahua
kyni. Hamn var jafnframit kos
inn næstbezti tamdi hundur
sýningarinnar af karikyni.
íslandsvinurinn Mark
Watson gaif postulínshunda
og bækur í verðlaun. Bún-
aðarfélag íslands gaf verð-
laun fyrir bezta íslenzka
hundinn og bezta collie hund
inn, en það er s'kozlkur fjár
hundur. HaMdór gúllsmiiður
gaf verð'laun og tveir bændur
úr Skieiðum gáfu farandgrip.
Óhætt er að segja, að sýn
ingin hafi tekizt vel í heild
og ætti hún að örva hunda
vini til dáða um framhald
slí’kra sýninga.
Hví brosir þú svo gleitt, góði
minn ?