Alþýðublaðið - 10.08.1920, Page 1
1920
Þriðjtudagirm 10. ágúst.
180. tölubl.
Stórhætta fyrir ísl, skip.
gankahneykslii.
Fimm miljónirnar.
Fjöldi tundurdufla á reki fyrir Austurlandi.
Eitt skip faristí
Frá Austíjörðum er símað að
fjöldi af tundurduflum sé á reki
þar, og hafði eitt skip, færeyskt,
séð ekki færri en tíu. Eru þrjú
tundurdufl rekin á land á Aust-
fjörðum, þar á meðal eitt á Seyð*
isfirði og annað í Bjarnarey við
Héraðsflóa, og höíðu menn í fá-
vizku sinni dregið hið síðarnefnda
á land, en fyrir einhverja alveg
sérstaka hepni hafði það ekki
sprungið.
Sunnan við Langanes sáust
téyfar af skipi, Hbóma“ og fleira,
Og bráði sjórinn þarna á stóru
svæði af lifur. Haldið er að skip
það er þarna hefir farist á tund-
urdufli hafi verið færeyskt fiski-
skip.
Nauðsyniegt er að stjórnarráðið
geri strax ráðstafanir til þess að
eyðileggja duflin, því eins og
straumar iiggja, munu þau reka
suður með Austfjörðum og síðan
vestur með landi. Sérstaklega er
og nauðsyniegt að senda menn
út um alia Austfirði, til þess að
vara fólk við því að snerta tund-
urdufl sem á land reka.
Það er fullyrt að Copland fiski-
kaupmaður hafi í fyrra tekið 5
milj. að láni í íslandsbanka, og
notað til að kaupa færeyskan fisk
fyrir. Það myndi hafa þótt óvitur-
leg ráðstöfun, ef landið hefði far-
ið að lána frændum vorum og
vinum þessa fjárhæð til að verzla
með fisk sinn sjálfir, er það verð-
ur að iifa á bónbjörgum innanlands
og utan. Þó hefði það verið miklu
nær að landið hefði lánað Fær-
eyingum féð, heldur en að aðal-
banki landsins fari að lána spari-
sjóðsinnstæðufé íslenzkra borgara
útlendum prangara til að spekúl-
era með afurðir Færeyinga þeim
auðvitað í óhag.
Hvað lengi eigum vér íslend-
ingar að þola íslandsbanka slíkt
sthæfif Er ekki nóg komið?
Ófriður?
Khöfn, 9. ágúst.
Frá London er sfmað, að boisi-
víkastjórnin hafi algerlega hafnað
enska tilboðinu sem Kameneff
sendi henni á föstudaginn, en inni-
iiald þess var að komið væri á
lojjdaga vopnahié, og friðarsamn-
ingar ræddir á þeim tíma. Fundur
Bandamanna f Hythe hefir vísað
málinu algerlega til herstjórnanna.
Verkalýðurinn um alt England
hefir látið í Ijósi óvild sína gegn
■því að Póiverjuin sé hjálpað.
Blöð franskra jafnaðarmanna
«ru algeriega á móti því að Pói-
veriunri sé hjálpað.
Frá Berlín er sfmað að jafnað-
^rraenn, óháðir jafnaðarmenn og
itotnmúnistar, skori á þýzka verka-
‘^etm að hindra það að Banda-
®enn flytji hermenn um Þýzka-
Sand til hjálpar Pólverjum.
Frá Bukarest er símað að Rú-
menía lýsi yfir hlutleysi sínu.
Loftferðir Dana,
Til Berlííiar og Lundúna.
Loft-áætlanaferðir milli KÍaup-
mannahafnar og Berlínar hófust á
laugardagitm og ganga ágætlega.
Á laugardaginn byrjuðu áætl-
anaferðirnar milli Khafnar og Lund-
úna, með viðkomustöðum í Ham-
borg og Ámsterdam. Fyrst um
sinn, þar til farið verður að nota
nýjar enskar vélar sem von er á,
skifta farþegar um vél í Warne-
múnde en ekki í Hamborg jsvo
sem til er ætlastj.
Frá sendih. Dana.
JSrtiin i Rússlanii.
Ni.
Barnaheimilin
eru þó bezt. Nú sem stendur eru
9 miljónir rússneskra barna á
barnahælum og barnaheimilum og
eru þau öll styrkt af stjórninni
eingöngu. (Allur maturinn á mat-
stöðunum er algerlega ókeypis).
í nánd við Moskva eru 200 siík
barnaheimili (barne kolonier) með
eitthvað um 15,000 bömum sam-
tals. Fyrir stríðið voru aðeins 12
bamaheimili á þessu svæði. Barna-
heimili þessi eru látin vera við
járnbrautirnar svo foreldrum bam-
anna veitist léttara að sjá börn
sín. Á hverju heimili er börnunum
skift í fjölskyidur, um 20 í hverri
og hverri fjölskyldu fylgja 2 kenslu-
konur og 2 fóstrur. Þegar maður
heimsækir þessi heimili, kemur
honum ekki til hugar að hann sé