Morgunblaðið - 05.09.1973, Blaðsíða 16

Morgunblaðið - 05.09.1973, Blaðsíða 16
16 MORGUNBLAÐrÐ — MIÐVIKUDAGOR 5. SEPTEMBER 1973 Útgefandi hf. Árvakur, Reykjavík, Framkvæmdastjóri Haraldur Sveinsson. Ritstjórar Matthías Johannessen, Eyjólfur Konráð Jónsson, Styrmir Gunnarsson. Ritstjórnarfulltrúi Þorbjörn Guðmundsson, Fréttastjóri Björn Jóhannsson. Auglýsingastjóri Árni Garðar Kristinsson. Ritstjórn og afgreiðsla Aðalstræti 6, sími 10-100. Auglýsingar Aðalstræti 6, sími 22-4-80. Askriftargjlad 300,00 kr. á mánuði innanlands. I lausasölu 18,00 kr. eintakið. Ý'tnsir hafa velt því fyrir sér, hvort ekki mundi auðveldlega nást samstaða um 200 mílna fiskveiðilög- sögu, nú þegar stærsti flokk- ur þjóðarinnar hefur í sam- ræmi við þróun alþjóðamála gert hana að höfuðstefnu sinni í landhelgismálum, enda standa vonir til að stefnu- skráryfirlýsing um stuðning við 200 mílna landhelgi verði samþykkt í upphafi Hafrétt- arráðstefnunnar, sem hefst á næsta ári. En það hefur því miður komið í ljós, að ein- hver misbrestur virðist vera á, að mál þetta verði tekið föstum tökum og leitt farsæl- lega til lykta, a.m.k. hefur Þjóðviljinn ekki við að gera 200 mílurnar tortryggilegar. í hvert skipti, sem blaðið minnist á þennan næsta á- fanga okkar í landhelgismál- inu, skín ógleðin út úr því. 200 mílurnar eru í fullu samræmi við upphaflega stefnu íslendinga í landhelg- ismálinu, þegar lýst var yfir með landgrunnslögunum frá 1948, að íslendingar helguðu sér landgrunnið allt. Land- í VIÐ grunnsstefnan á erfitt upp- 'dráttar á alþjóðavettvangi af ýmsum ástæðum, m.a. vegna þess hve landgrunn margra landa er geysivíðáttumikið. En 200 mílna efnahagslög- saga er sú niðurstaða, sem bezt hentar fyrrnefndri, upp- haflegri landgrunnsstefnu ís- lenzku þjóðarinnar, eins og nú háttar. Þegar það liggur fyrir, er auðvitað ekkert sjálfsagðara en að lýst sé yf- ir stuðningi við þá stefnu, sem gert er ráð fyrir að njóti nauðsynlegs stuðnings á Haf- réttarráðstefnunni og næst stendur hagsmunum íslend- inga, þ.e. 200 mílna stefnuna. Það er því bæði rétt og tíma- bært að leggja höfuðáherzlu á hana nú, svo að enginn sé í vafa um, hvert sé næsta spor íslendinga í þessari sjálfstæð- irbaráttu okkar. benti m. a. á, að allar tillög- ur sjálfstæðismanna um fjölgun varðskipa og eflingu landhelgisgæzlunnar, sem nú hefðu getað verið komnar til framkvæmda, hefðu verið felldar af núverandi stjórn- arsinnum á Alþingi. En Geir hélt áfram: „En við skulum hú víkja ágreiningi um framkvæmd og liðna tíð til hliðar. Við skulum fyrst og fremst líta fram á veg. Ör þróun hefur orðið á alþjóða- vettvangi okkur í vil. í undir- búningsnefndum Hafréttar- ráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna hefur komið í ljós, að fylgi við 200 mílna efnahags- lögsögu hefur stóraukizt.“ SAMRÆMI UPPHAFLEGA STEFNU \ Geir Hallgrímsson, vara- formaður Sjálfstæðisflokks- ins, ræddi um landhelgismál- ið að kvöldi laugardagsins 1. september sl. í útvarpinu og Og ennfremur sagði hann: „Þótt Hafréttarráðstefnunni ljúki ekki á næsta ári, þá er búizt við samþykkt stefnu- yfirlýsingar í byrjun ráð- stefnunnar, er hafi 200 míl- urnar að leiðarljósi. . . . Þar sem 200 mílumar ná í raun- inni alls staðar út fyrir land- ' grunn íslendinga og eru þannig í samræmi við land- grunnsstefnuna, þá fullnæg- ir þessi þróun mála hags- munum okkar mjög vel. Það er því skoðun Sjálfstæðis- flokksins, að við hljótum nú, þegar Alþingi kemur saman, að lýsa yfir, að við færum fiskveiðilögsögu okkar út í 200 mílur fyrir lok næsta árs.“ Geir Hallgrímsson benti á, að með því mundum við skipa okkur ákveðið í sveit 200 mílna þjóðanna „og hafa áfram áhrif á þróun mála okkur í vil“. Hann sagði x lok máls síns, að það væri von sjálfstæðismanna „að þjóðareining takist um þenn- an lokaáfanga okkar í land- helgismálinu, sem hina fyrri“ — og er það áreiðanlega von allra þeirra, sem hugsa um leikslok og lokatakmark, en ekki einungis dægurþras og ríg út af einstökum áföng- um eins og 50 mílunum nú. Er þess að vænta, að þjóðin sameinist 1 baráttunni fyrir 200 mílna fiskveiðilögsögu og taki undir með þjóðskáldinu og stjórnmálamanninum, sem sagði: „Þagnið dægurþras og rígur. . . .“ Þeir, sem hafa 50 mílurn- ar einungis að yfirskini í dægurbaráttu sinni og inn- anlandserjum, verða að taka afleiðingum af skammsýni sinni og hentistefnu. Tekst Kissinger að gera Nixon starfhæfan á ný? &KIPAN Henry Kissingers í embaetti utanríkisráðherra Bandaríkjanna kann vel að vera skynsanileg'asta og kæn- legasta ráðstöfun Richards Nixons, forseta, frá þvi Wat- ergatemálið komst í hámæli, segir Michael Oavie, fréttamað ur OBSERVER í grein, sem hann skrifaði frá Washington fyrir nokkrom dögum. Þar fjaliaði hann um stöðu forset- ans og árangursiitlar tilraun- ir hans til að fá bandarisku þjóðina til þess að leiða hug- ann frá Watergate-málinu og gefa honum frið tii að sinna mikilvægari verkefnum, sömu leiðis um feril og framtíðar- verkefni Kissingers. Fara helztu atriði þessarar greinar hér á eftir endursögð. Davie segir, að forsetinn komi mörgum fyrir sjónir þessa dagana sem sé hann ó- rólegur, taugaspenntur og fari undan í flæmingi — og honum hafi, að því er virðist hvorki tekízt að sannfæra bandaríska kjósendur um sakleysi sitt varðandi yfirhylmingar í Wat- ergate-málinu né um, að hann hafi myndugleika og mátt til að leiða athygli manna frá þessu leiðindamáli. Kissinger hafi sjálfur, þegar hann hélt blaðamannafund daginn eftir, að Nixon skýrði frá skipan hans í embætti, verið sýnu sjálfsánægðari og öruggari ásýndum en forsetinn. „Ugluandlit hans og róleg framkoma minnti menn helzt á evrópskan geðlækni, sem hef ur verið kallaður til að með- höndla stressaðan sjúkling," segir greinarhöfundur og bæt- ir því við, að svo virðist þó sem Kissinger sé sammála for- setanum í því, að nauðsynlegt sé fyrir hann að fá frið fyrir Watergate-málinu til þess að sinna mikilvægari ríkismálum. Röksemdir Kissinger eru þó ekki endilega þær, að það þurfi að bjarga forsetanum persónu lega úr klemmunni, heldur að bandarísku þjóðinni í heild verði það til ills eins, ef sundr- ungin út af Watergate-málinu kemur í veg fyrir, að stjórn- in geti haldið uppi sterkri og markvissri utanríkisstefnu. Kissinger hefur verið skip- aður utanríkisráðherra í því skyni að reyna að tryggja og útfæra friðarstefnu þá, sem tekin hefur verið upp í við- skiptum við kínverska alþýðu- lýðveldið og Sovétríkin. Sem stendur telur hann ástandið í samskiptum rikjanna við- kvæmt og staðhæfir, að ann- aðhvort verði Bandaríkjamenn að setja samstundis annan mann í forsetaembættið eða leyfa Nixon að starfa í friði ella geti Bandarikjamenn ekki rekið utanrlkisstefnu, sem stór veldin treysti. Afleiðingin verði sú, að árangur sá, sem náðst hafi i þá átt að bæta samskipt- in við Sovétríkin, verði að enigu orðinn eftir u.þ.b. tvö ár. Þessar röksemdir Kissingers eru Nixon forseta augljós styrkur og enginn getur sett þær fram af meiri sannfæring- arkrafti, skynsemi og myndug- leik en einmitt Kissinger. En sú staðreynd, að málflutningur hans vegur þungt á metaskál- unum Nixon í hag, kann i sjálfu sér að verða til þess að fæla ýmsa frá stuðningi við Kissinger, sérstaklega öldunga deildarþingmenn úr flokki demókrata, sem hafa bak við eyrað kosningarnar 1974 og 1976. Sakir flokkspólitískra sjónarmiða viija þeir, að repú- blikanar verði sem aumastir, þegar þar að kemur — þeir hafa ekki gleymt því hver áhrif stórviðburðirnir, sem leiddu af utanríkisstefnu Nix- ons, höfðu á kosningaúrslitin 1972 né því, að það var Kiss- inger, sem lagði grundvöllinn að þeim. Þar fyrir utan hafa ýmsir aðilar fjölmiðla, einkan- lega á austurströndinni, bæði hlaða, sjónvarps og útvarps, fullan hug á að sjá Nixon að minnsta kosti auðmýktan og vængstífðan og helzt losna al- veg við hann, ef þeir gætu. Kissinger mun á næstunni leggja á það áherzlu við þessa aðila, að þeir og þjóðin ÖU verði að gera sér ljóst hverra kosta er völ. Þetta er óvenjuleg aðstaða fyrir mann eins og Kissinger. Þýzkur Gyðimgur, flóttamaður, prófessor, hefur að boðí for- seta Bandaríkjanna tekið yfir stjórn utanríkisstefnunnar, þegar bæði forsetaembættið er í húfi og þáttaskil í mannkyns sögunni. Kissinger er sagn- fræðingur og honn er sann- færður um, að nú séu meiri líkur til þess en nokkru sinni frá lokum heimsstyrjaldarinn- ar fyrri að byggja upp stöðugt aiþjóðlegt stjórnmálakerfi. Utanrikismál hafa átt hug hans árum saman. Hann heyrði tii hópi hugsuða við Harvard- háskóla, sem á árunum 1950— 1960 mynduðu nokkurs konar hugmyndahreiður, þar sem fjallað var um kjarnorkuvopn og utanríkismál. Þar voru gerðar flóknar athuganir, sem gerðu miklar vitsmunakröfur til þeirra, sem hlut áttu að máli. Þegar hann kom til starfa í Hvíta húsinu hafði hann skrifað fjórar bækur og fjölda greina, sem flestar voru mjög svo gagnrýnar á utan- ríkisstefnu Bandarikjanna. Se litið yfir siðustu fjögur árin má greina skýran, óslit- in þráð milli hugmyndanna, sem hann útfærði og þeirrar stefnu, sem hann hefur hrund- ið í framkvæmd. Það hlýtur að gefa honum sterka aðstöðu, að hugmyndir hans og stefna njóta stuðnings og virðingar víða um heim og meðal meiri- hluta bandarisku þjóðarinnar. Kannski er þar að finna grund vöH sýnilegs sjálfstrausts hans og þeirra.r ótrúlegu þolinmæði, Nixon og Kissin sem hann hefur sýnt í samn- ingaviðræðum. Um árabil hefur Kissinger velt fyrir sér þeim hættum, sem stafað gætu af ríkjandi ástandi heimsmála, meðan Bandaríkin og Sovétríkin stóðu sem andstæðir pólar hvarvetna í veröldinni. Og þeg ar Ktnverjar sýndu áhuga á því að brjótast út úr þeim

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.