Morgunblaðið - 05.09.1973, Qupperneq 21
MORGUNIBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBKR 1973
21
Nú
endast
skórn-
ir ekki
lengur
en
tízkan
— segir elzti
skósmiður
á landinu,
Ferdínand
E. Eiríksson
Ferdínand og kona lians Magnea Guðný.
ÞEIR ERU orðnir fáir skósmið-
irnir í Reykjavík, og ekki þyk-
ir arðvænlegt fyrir unga menn
í dag að leggja fyrir sig skó-
smíði. En öðruvísi var það fyrir
rúmri hálfri öld. I»á gegndu skó-
smiðirnir mikiivægu hlutverki
fyrir almenning á meðan inn-
flutningur á skóm hingað var
lítili sem enginn. Þegar ungur
maður komst í læri hjá skósmið,
var sagt: Honum er borgið.
Framtíðin er örugg hjá honum.
En nú eru aðeins reknar 8
skósmíðavinnustofur á Reykja-
vikursvæðinu, otg ekki er sýni-
legt, að þeirn fari fjölgandi. Á
Grettisgötu býr og starfar elzti
Skósmiður á landinu, Ferdínand
E. Eiriksson, 82 ára að aldri. í
56 ár rak hann skósmiíðavinnu-
stofu á Hverfisgötu 43, en hef-
ur nú flutt hana á Grettisgöt-
una, þar sem hann hefur búið
ásamt konu sinni, Magneu Guð-
nýju Ólafsdóttur, frá því að þau
byrjuðu búskap og alið þar upp
sjö börn. Gömlu hjónin búa nú
aðeins tvö í vinalegri íbúðinni,
sem í sénn er ldtii og heimilis-
leg, og þangað heimsótti ég þau
einn daginn, og bað Ferdínand
að segja mér frá starfi sínu.
Ferdínand er fæddur og upp-
alinn á Álftanesinu og er einn
af átta systkinum. Ég spyr
hann, hvers vegna hann hafi
gerzt skósmiður.
— Eiginlega var það ekki ég,
sem réð þvi. Ég fæddist með
húðsjúkdóm, og þurfti þess
vegna að hlifa mér við erfiðis-
vinnu. Eimhvern tíma sagði lækn
irinn við pabba, að hann skyldi
senda mig í iðnnám, þvi að ég
væri enginn maður til að vas-
ast mikið. Annað hvort hentar
honum að vera skósmiður eða
skraddari, sagði hann. En hið
fyrrnefnda varð fyrir valinu.
1906 hélt ég ti’l Reykjavíkur og
komst í nám hjá Matthíasi Matt
híassyni, skósmíðameistara, og
vorum við sex piltarnir í læri.
Fyrsta verkefni mitt var að
hreinsa hrákadállana og ollu-
lampana, og þótti mér það held-
ur ógeðfellt. En maður kvart-
aði ekki, og þóttist heppinn að
vera kominn i gott nám. Ég
lærði í fjögur ár kauplaust, en
skósmiðir fengu þá 3.50 krónur
í daglaun, sem þótti ekki slæmt.
Ég varð mér þó úti um smá-
pening fyrir að gæta bama
Matthíasar og gat skroppið í
bíó fyrir.
— Var þetta ekki erfitt starf,
Ferdlínand?
— Jú, það var vissulega erfitt,
því við þurftum að vinna allt
í höndunum. Skósmiðir unnu
mikið að nýsmiði og þá voru
allir skór úr leðri, sem var oft
erfitt viðureignar. Við vorum
alltaf biksvartir af tjöru á hönd-
unuin, og fengum sár á fing-
urna af nálunum. Mest var að
gera fyr-ir jólin við að botna skó
og bæta undir prjónasokkana, og
þá unnið langt fram á nætur.
Fyri.r vertíðina var líka mikið
að gera, og þá gerði maður um
70—80 pör fyrir hverja verttð.
Auk þess þurfti ^nikið að bæta
leðursjóstígvélin, sem voru eng-
an veginn eins sterk og gúmmí-
stígvélin eru.
En eftir að innflutningur á
skóm hófst hér fyrir alvöru,
hættu flestir skósmiðirnir að
smíða skó, og unnu aðeins að
viðgerðum. Eftir því sem tim-
amir liðu, varð starfið auðveld-
ara. Þetta getur varla talizt
handavinna lengur, eftir að vél-
amar komu til sögunnar.
Og svo hefur tsízkan gert það
að verkum, að færri láta gera
við skóna sína en áður fyrr. 1
gamla daga var fólkið ánægt
með að fá sterka og góða skó,
og þeir voru notaðir, þar til þeir
voru gatslitnir orðnir. í dag end
ast skórnir ekki lengur en tízk-
an.
— Er ánægjulegra að starfa
að skósmíði í dag en áður?
— Nei, ekk.i segi ég það, en
það er auðveidara. Og ég spái
þvi að skósmiðir verði starfandi
eins lengi og menningin lifir.
Það verða alltaf til forsjálir
menn, sem láta gera við skóna
sSna.
HEpolÍTE
Stimplar- Slífar
og stimpilhringir
Bxlskuif
eða geymsluhúsnæði óskast til leigu
í Garðahreppi.
EKKÓ,
sími M845.
Skólu- og skjulotöskur
Heildsölubirgðir.
DAVÍÐ S. JÓNSSON & CO. HF.
Sími 24-333.
Austin, lestar gerðir
Chevrolet, 4, 6, 8 strokka
Dodge frá '55—’70
Ford, 6—8 strokka
Cortina 60—70
Taunus, allar gerðir
Zephyr, 4—6 str., ’56—'70
Transit V-4 '65—’70
Fiat, ailar gerðir
Thamas Trader, 4—6 strokka
Ford DS00 ’65
Ford K300 ’65
Benz, flestar gerðir, bensín-
og disilhreyflar
Rover
Singer
Hillman
Skcda
Moskvitch
Perkins. 3—4 strokka
Vauxhail Viva og Victor
Bedford 300, 330, 456 cc
Volvo, flestar gerðir, bensín-
og dísilhreyflar
Volkswagen
Simca
Peugeot
Willys.
Þ. smm & CO
Skeifan 17,
Símar: 84515-16.
onciEcii
Ljósnstillingar
Tökum að okkur Ijósastillingar á öllum gerðum
bifreiða.
Opið frá kl. 7:30—6.
BIFREIÐAVERKSTÆÐIÐ KAMBUR,
Hafnarbraut 10, Kópavogi.
Sími 43922.
challenger
ÓDÝRU, VINSÆLU HAND-
VERKFÆRIN, FÁST HJÁ
FLESTUM HELZTU VERK-
FÆRAVERZLUNUM LANDSINS.
P ÞÖRHF
Jkskorun
til kaupgreiöenda í Reykjavík
og Reykjanesumdæmi
Með tilvísun til reglugerðar nr. 162, 16. maí 1973,
er hér með skorað á alla kaupgreiðendur í Reykja-
vík og Reykjanesumdæmi að senda nú þegar hingað
til embættisins skýrslur eða upplýsingar um alla
starfsmenn sína, sem skatta eiga að greiða í Vest-
mannaeyjum.
Jafnframt er þess krafist með tilvísun til sömu
reglugerðar, að baupgreiðendur haldi eftir af kaupi
nefndra starfsmanna sinna til greiðslu á sköttum
þeirra, og geri síðan skil hingað til embættisins.
Bæjarfógetinn í Vestmannaeyjum,
3. september 1973.
Fr. Þorsteinsson.
Félagsfundur
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur heldur félags-
fund að Hótel Esju fimmtudaginn 6. september 1973
kl. 20: 30.
DAGSKRÁ:
Kjaramál.
Verið virk í VR.
Verzlunarmannafélag Reykjavíkur.