Morgunblaðið - 05.09.1973, Qupperneq 28

Morgunblaðið - 05.09.1973, Qupperneq 28
28 MOR&UNBLAÐIÐ — MIÐVIKUDAGUR 5. SEPTEMBER 1973 velvakandi Velvakandi svarar í síma 10100 frá mánudegi til föstudags kl. 14—15. 0 Steinninn yfir séra Gunnlaugi Oddssyni „Gamall Keykvíkingur“ skrifar: „Kæri Velvakandi! Fyrir allnokkru skrifaði ég þér bréf, þar sem ég kvartaði yfir þvi, að enn væri verið að róta í gamla bæjarfógeta- garðinum á horni Kirkjustræt- is og Aðlastrætis. Grafarró forfeðra okkar væri raskað og legsteinum rutt í burtu. í>á var aðeins einn legsteinn eft- ir, steinninn á gröf Gunnlaugs Oddssonar, dómkirkjuprests í Reykjavík og consistorial-ass- essors, en margt mætra og þekktra manna hér í Reykja- vík og víðar getur rakið ætt sína til hans. Aldrei var bréfi mínu svar- að, en mig minnir, að ég hafi meðal annars skorað á dóm- kirkjuprestana í Reykjavik að standa vörð um leiði forvera síns, sem hafði hlotið leg í elzta kirkjugarði Reykvíkinga alveg við hið forna kirkju- stæði. 1 sumar sá ég mér svo til sárrar hrellingar, að grafið var í kringum steininn, hon- um lyft og ekið á brott. Mér var öllum lokið, er ég sá þetta virðingarleysi Reykvikinga við minningu forfeðra sinna, (að þvl er ég taldi þá), og hafði ekki einu sinni þrek í mér til þess að senda forráðamönnum borgarinnar tóninn í dálkum þínum. Alveg var ég hlessa á Lárusi Sigurbjörnssyni að grípa ekki í taumana, en hann er einn af afkomendum Gunn- laugs Oddssonar. 0 Gamli bæjarfógeta- garðurinn færður í lag En viti menn! Mánudaginn 3. september átti ég leið þarna um homið og sá þá mér tii gleði, að steinn séra Gunnlaugs var aftur kom inn á sinn stað, og auk hans höfðu nokkrir aðrir legstein- ar eða legskildir verið settir niður; vonandi á sinum réttu stöðum. Þetta er verk, sem ég kann að meta og betur en hina ólög- legu málningu á kofunum í Bakarabrekkunni. En fleiri steinar munu vera til, a.m.k. plötur af leiðum, sem á sinum tíma voru múreðar inn í vegg á bak við Landsímahúsið. Þeim ætti öllum að koma fyrir á sínum gamla stað. 0 Látum gamla kirkjugarðinn í friði Þetta leiðir hugann að því, að sumir hafa haft orð á því á prenti, að breyta eigi gamla kirkjugarðinum við Suðurgötu í skrúðgarð. Er hann það ekki nú þegar? Og hverju þarf eig- inlega að breyta? Taka leg- steinana og minnisvarðana í burtu? Þetta tal um að „breyta í skrúðgarð" sýnist mér varla geta bent til annars. En slíkt má aldrei verða. (Tekið skal fram, að þessi hugmynd, sem ég skil varla, er alls ekki kom in frá neinum aðilja á vegum Reykjavikurborgar). Þama hvíla forfeður okkar, og minn- ingu þeirra eigum við að auð- sýna virðingu. Steinarnir eru líka skraut út af fyrir sig, og úr þeim má lesa mikið og margt: persónusögu, harmsög- ur, Islandssögu og breytileg- an smekk syrgjenda. Margir legsteinarnir eru líka hrein- ustu listaverk. Fyrir allamuni látið gamla kirkjugarðinn í friði; hann er ágætur eins og hann er. Elzti kirkjugarðurinn, bæj- arfógetagarðurinn, er nú orð- inn snotur yfir að lita og skemmtileg vin í miðbænum. Þó finnst mér fyrir minn smekk fullmikið um steinlagð- ar stéttir. Það mætti vera meira af grasi og gróðri. Sama verð ég að segja um nýskip- an Austurvallar; stéttirnar eru alltof rúmfrekar á kostnað grasvallarins. 0 Þökk sé borgaryfirvöldum Hvað sem því líður, ber að þakka borgaryfirvöldum fyrir það, sem þau hafa svo sann- arlega vel gert á þessum tveimur stöðum i elzta hluta Reykjavíkur. Austurvöllur hlýtur að vera eitt al-elzta ör- nefni á Islandi; þ.e. völlurinn austur frá bæ Ingólfs land- námsmanns; og í hinum forna kirkjugarði hafa Reykvíkingar hlotið hinzta leg sitt allt frá kristnitöku eða Mklega lengur og ailt fram á seinustu öld eða í næstum þúsund ár. — Gamall Beykvíkingur." 0 Um fóstureyðingar Maður, sem er ekki hrifinn af hinu svokallaða fóstureyð- ingarfrumvarpi, hefur sent Velvakanda eftirfarandi klausu, sem tekin er upp úr ritstjóm- argrein i Bjarma. — Bjarmi er gefinn út af Sambandi ís- íenzkra kriistniboðsfélaga, og ritstjórnargreinin ber fyrir- sögnina „Bamaútburður — fóstureyðingsir". „1 Morgunblaðinu 10. júlí sl. er sagt frá nefndaráliti, grein- argerð og frumvarpi til nýrra laga, sem Magnús Kjartansson, heilbrigðismálaráðherra, lagði fram á blaðamannafundi dag- inn áður. Verður frumvarp þetta væntanlega lagt fram fyr ir Alþingi áður en langt um Mður. Fjallar það m.a. um rétt til þess að drepa börn í móð- uriífi. Gert er ráð fyrir, að konan hafi sjálf úrslitavald um það, hvort hún lætur fram- kvæma fóstureyðingu. Einnig er gert ráð fyrir, að félags- legar ástæður skuii vega þyngra á metunum en hingað til. Lögð er áherzla á, að að- gerðina skuM fremkvæma, áð- ur en konan er gengin 12 vik- ur með og mjög brýnar ástæð- ur skuli liggja til grundvallar, ef beðið er lengúr en til 16. viku. Fóstureyðingu er aðeins unnt að verja siðferðilega, ef Mf og heiilsa móðurinnar er i alvar- legri hættu. Kristni var lög- tekin á Islandi árið 1000, og einn af fyrstu ávöxtum krist- ins siðgæðis var vemd barns- ins, einnig meðan það er að- eins fóstur í móðurlifi. Hvaða munur er á bamaút- burði og fóstureyðingu ? Öðl- ast fóstrið ekki mannréttindi fyrr en það er 12 vikna gam- alt? Út frá kristnu sjónarmiði er fóstrið sjálfstætt Mf frá getn- aðaraugnablikinu og á sama rétt á vernd og aliir aðrir í þjóðfélaginu. Fóstrið er ekki hluti af liik- ama konunnar, eins og sumir hafa viljað vera láta, heldur isjálfstæður einstaklinigur, og þarf ekki einu sinn að vera af sama blóðflokki og móðirin. 1 nágrannalöndum okkar, Danmörku og Svíþjóð, hafa frjálsar fóstureyðingar verið lögleiddar. Ófyrirsjáanlegt er, hvaða afleiðingar slíkt getur haft. Hvenær koma kröfur um, að lögleitt verði að stytta megi aldur ýmsum óþörfum þjóðfé- lagsiþegnum, fávifcum, farlama gamalmennum o.s.frv.? Skemmst er að minnast stefnu nazista í Þýzkalandi á striðs- árumum. Kristnir menn hljóta að berj- ast gegn því, að heiðin sjónar- mið nái yfirhöndinni í löggjöí þjóðarinnar um þessi mál.“ 2ja herb. íbúð ó 3. hæð við Sléttahraun í Hafnarfirði Ibúðin er í fjölbýlishúsi, um 7 ára gömul með fallegu útsýni. Suðursvalir. Þvottahús á hæðinni með 2 öðrum íbúðum. ARNI GUNNLAUGSSON, HRL., Austurgötu 10, Hafnarfirði. Sími 50764. H afnarfjöröur Til sölu 4ra herb. íbúð á efri hæð við Lækjarkinn með 2 herb. í kjallara og sérinngangi fyrir þau. Bílgeymsla fylgir. Verð um kr. 3 millj. ÁRNI GUNNLAUGSSON, HRL., Austurgötu 10, Hafnarfirði. Sími 50764. Ekkert er jafn gott í hlýjan fatnað og ullin okkar Grettisgarníð frá Gefjun er framleitt úr 100% íslenzkri ull. Ekkert innflutt garn hentar eins vel í hlý föt og þetta undraefni, ullin okkar. Grettisgarnið, eins og lopinn og loðbandiö, er til í íslenzku sauðalitunum, en auk þess fæst það í fjölbreyttu úrvali tízkulita, sem ávallt eru fáanlegir. Gefjun framleiðir auk þess nokkrar tegundir dralon og grilon garns í miklu úrvali. Dralon Baby (100% dralon) í barnaföt. Dralon Sport (gróft dralon) í handprjón Grilon Merino (80% ull- 20% grilon) fínt í vélprjón og flos, gróft í handprjón. Grilon garn (80% ull -20% grilon) notað m.a. í sokka og peysur. GEFJUN AKUREYRI Þadertil Gefjunar s gam/ í hverja flík

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.