Morgunblaðið - 20.11.1973, Side 7
MORGUNBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 20. NÓVEMBER 1973
7
Brynjólfur Helgason
skrifar um kappakstur
Heimsmeislarinn
leggur irá sér
niálminn
SKOTINN Jackie Stewart, nú-
verandi nýkrýndur heimsmeistari
í kappakstri í þriðja sinn, hefur
tilkynnt, að hann sé hættur
keppni. Jackie Stew'art er einn
bezti ökumaður, sem uppi hefur
verið í kappaksturssögunni.
Keppnisferill hans er frábær. A
niu árum tók hann þátt í 99 Grand
Prix keppnum og sigraði þar af I
27, sem er meir en nokkur annar
hefur gert. Skotinn Jim Clark
heitinn sigraði 25 sinnum af 72
Sovétmenn
sigruðu
UM helgina léku sovézku heims-
meistararnir í ishokkí tvo lands-
leiki við Finna i Helsinki. Fyrri
leikurinn varð jafntefli 4 — 4(1
— 2, 1 — 0, 2 — 2) en seinni
leikinn unnu Sovétmenn 7 — 1(1
— 0,4— 1,2—0).
Grand Prix keppnum og varð
tvisvar heimsmeistari, áður en
hann fórst. Astralíumaðuripn
Jack Brabham vann heims-
meistaratitilinn þrisvar, áður en
hann hætti keppni 1970. Aðeins
einn maður hefur oftar sigrað f
heimsmeistarakeppni ökumanna,
en það er Argentinumaðurinn
Juan-Manuel Fagiro, sem varð
heimsmeistari 1951 og síðan 1954
— 1957, fjögur ár í röð, fimm sinn
um alls. Fangio sigraði 24 sinnum
í Grand Prix af aðeins 51, er hann
keppti í. Englendingurinn
Stirling Moss sigraði 16 af 66
Grand Prix keppnum án þess að
nokkurn tíma að sigra í heims-
meistarakeppninni.
Jackie Stewart, sem nú er 34
ára gamall og býr i Sviss með
konu sinni Helen og tveim sonum,
sagðist hafa ákveðið f april s.l. að
hætta keppni að loknu keppnis-
timabilinu í ár, þó enginn fengi að
vita um ákvörðun hans fyrr en
nú.
Jackie Stewart
Stewart byrjaði í kappakstri í
ýmsum minni háttar keppnum,
áður en hann byrjaði f Formúlu 3
Cooper liði, sem timburkaupmað-
inn Ken Týrell stjórnaði. Stewart
sigraði og sigraði, og heimurinn
kynntist Jackie Stewart. Sama ár
skrifaði hann undir samning hjá
bæði Formúlu 2 og Formúlu 1
liðum. Stewart ók fyrir BRM, sem
i þá daga voru með góða bila, frá
1965 til 1968, en þá fór hann aftur
til Ken Tyrrell, nú i Formúlu 1
Matra-Týrrell Ford. Síðari hefur
Stewart ávallt ekið fyrir TVrrell.
Fyrsta heimsmeistaratitil sinn
vann Stewart 1969 á Matra bfln-
um. 1970 ók hann Tyrrell-March.
í lok þess árs leit fyrsti Týrrell-
Ford bilinn dagsins ljós og hefur
síðan ásamt Lotus verið bezti
bílinn i Ofrmúlu 1. A s.l. áravar
Stewart í öðru sæti i heims-
meistarakeppninni, á eftir
Brasilíumanninum Emerson
Fittipaldi, sem tryggði sér titilinn
aðeins 25 ára gamall.
1970 sigraði Austurríkismaður-
inn Jochen Rindt heitinn. Rindt,
sem ók þá fyrir Lotus, var hrað-
skreiðasti ökumaður síns tima þó
að stfll hans væri ekki eins ffn-
gerður og Stevarts. Rindt fórst á
Italíu sama ár, en hafði fengið
nógu mörg stig, eftir fimm Grand
Prix sigra, þar af fjórar í röð, til
að vinna titilinn.
Jim Clark Piers Courage,
Jochen Rindt, Jo Bonnier og hinn
efnilegi franski liðsmaður
Stewarts, Francois Cevert, voru
allir nánir vinir Stewarts en þeir
hafa allir farizt í kappakstri. Frá-
föll félaganna gerðu Stewart
vissulega erfitt fyrir, en Stewart
hefur barizt harðar en nokkur
annar fyrir auknu öryggi á
kappakstursbrautunum og mun
væntanlega halda þeirri baráttu
sinni áfram þó ekki aki hann
kappakstursbíl oftar. Sjálfur lenti
Stewart i slysi 1966 og þótti hann
heppinn að sleppa lifandi þaðan.
Formúla 1 verður ekki söm og
án Jackie Stewarts, en það er
óhætt að segja, að hann hafi gert
mikið fyrir iþróttina og keppnis-
ferill hens hefur vissulega verið
stórkostlegur.
Knattspyrnan
í Sovétríkjun-
um stöðnuð
SlÐAN 1950 hefur framþróunin í
sovézkri knattspyrnu verið næsta
IftiL Það er a.m.k. álit Mikaels
Komans, þjálfara eins bezta
knattspyrnul iðs Sovétmanna,
Dynamo Kijev, sem bendireinnig
á þá staðreynd, að siðan Sovét-
mcnn unnu Olympíu-
meistaratitilinn á leikunum í
Melbourne 1956, hafa þeir ekki
unnið sigur í einni einustu meiri
háttar knattspyrnukeppni. Mega
þetta undur heita, þar sem mikið
fjármagn er lagt f sovézka knatt-
spyrnu og áhugi almennings á
íþróttinni mikill. Knattspyrna
hefur löngum verið vinsælasta
íþróttagreinin f Sovétríkjunum,
en nú segir Moman, að aðrar
íþróttagreinar, einkum hand-
knattleikur sæki fast á.
Nýlega birtist f einu dönsku
dagblaðanna viðtal við Koman,
sem er hið athyglisverðasta. Við-
tal þetta var tekið í tilefni þess,
að danska liðið B 1903 fór til
Sovétríkjanna og lék þar við
Dynamo Kijev í Evrópubikar-
keppni. Sovétmennirnir sigruðu í
leiknum 1—0.
I nefndu viðtali segir Mikael
Koman, að síðan 1960 hafi sovézk
knattspyrna verið með öllu
stöðnuð og reyndar öllu lengur. Á
árunum kringum 1950 segir hann,
að sovézka Iandsliðið hafi verið
bezt. — Við leikum sennilega
svipaða knattspyrnu og við gerð-
um þá, segir þjálfarinn, en við
eigum ekki lengur jafn hug-
myndaríka og ákveðna knatt-
spyrnumenn og þeir Jashin,
Netto, Strelzov, Tatusjin og Iljen
voru. Þeir þorðu að gera hlutina.
Sovétmenn gera sér vandann
ljósan, og hann hefur oft verið til
umræðu, en aldrei hefur fengizt
niðurstaða.
Koman segir, að mörg sovézk lið
hafi haft áhuga á því að fá til sín
knattspyrnuþjálfara frá Vestur-
löndum, en sovézka knattspyrnu-
sambandið hafi lagt við því blátt
bann. Röksemd sambandsins sé
sú, að nóg sé af vel menntuðum
þjálfurum i Sovétríkjunum og þá
eigi að nýta. Telur sambandið
vandamálið liggja fremur i því að
knattspyrnumennirnir eyði of
miklum tíma í kvenfólk, meðan
þeir eru ókvæntir, og í
fjölskylduna, eftir að þeir eru
kvæntir.
Þjálfarinn sagði lið sitt æfa
a.m.k. einu sinni á dag. Leik-
mennirnir hætta vinnu sinni á
miðjum degi og halda þá til
æfinganna, sem fara fram síð-
degis. Þeir halda launum sínum
hjá atvinnurekendunum, sem í
flestum tilfellum eru ríkisrekin,
án tillits til þess hversu miklum
tíma þeir eyða i knattspyrnuna.
Auk þess fá leikmennirnir svo
aukagreiðslur, „bónus“, fyrir að
vinna leiki. Fer það eftir
áhorfendafjöldanum hverju
sinni, hvað sú aukagreiðsla er há,
en hámarkið er þó 70 rúblur, eða
upphæð sem svarar til 5000 fsl.
króna. Fyrir sigur sinn gegn B
1903, fengu leikmenn Dynamo
Kijev t.d. 40 rúblur, en
áhorfendur að leiknum voru
25.000. Hins vegar er mjög
algengt að áhorfendur séu mun
fleiri, allt upp í 100.000 að ein-
stökum leikjum.
Dynamo Kijev er nú forystu-
liðið í sovézkri knattspyrnu. Það
hefur unnið fjóra meistaratitla á
tiu árum, og þau ár, sem liðið
hefur ekki orðið meistari hefur
það verið í einu af efstu sætunum.
í ár stóð baráttan um sovézka
meistaratitilinn milli þess og
Ararat Erewan. Fimm af leik-
mönnum liðsins þykja að jafnaði
sjálfsagðir i landsliðið: Rudakov,
Fumenko, Muntjan, Kolotov og
Blochin.
Koman segir, að síðastnefndi
knattspyrnumaðurinn, Blochin,
sé mesta efnið, sem fram hefur
komið í sovézkri knattspyrnu um
árabil, og hann sé örugglega
fljótasti framherji í heimi. —
Hann á heldur ekki langt að
sækja það, segir þjálfarinn, —
móðir hans var oftsinnis sovézkur
meistari í 100 metra hlaupi.
Blochin er nú 21 árs að aldri og
nemur við fþróttakennaraskóla.
Öttast Dynamo Kijev, að svo
kunni að fara, að liðinu haldist
ekki lengi á honum, þar sem
margir hafa boðið honum starf að
námi loknu. Sovézkir leikmenn
eru bundnir liðum sínum þrjú ár í
senn, en eru þá frjálsir ferða
sinna og einnig frjálst að hætta
knattspyrnuiðkunum.