Morgunblaðið - 20.11.1973, Síða 8

Morgunblaðið - 20.11.1973, Síða 8
8 MORGUNBLAÐIÐ — ÞRIÐJUDAGUR 20 NÓVEMBER 1973 ISLANDSMOTIÐ 2. DEILD Þróttur — Völsungur 31:13| (12:5) LEIKURINN: Var næsta daufur og tilþrifalítill, enda um algjöra yfirburði Þnittarliðsins að ræða. Þróttur náði aðgera út um leikinn þegar á fyrstu mfnútunum og jók síðan bilið jafnt og þétt. LIÐIN: Erfitt er að leggja nokkurn dóm á Þróttarliðið eftir þennan leik. Til þess var leikurinn of léttur f>Tir það. Þrátt fyrir þennan yfirburðasigur er ekki hægt að segja, að liðið hafi sýnt neitt sérstakt. Þó er óhætt að segja. að Þróttarliðið er frfsklegt og á örugglega eftir að láta að sér kveða. Lið Völsunga virðist vera hálfgerður byrjandi í handknattleiksíþróttinni og mikið óöryggi f leik þess. Það háði liðinu. að þjálfari þess, Þór Ottesen, fyrrum leikmaður meðGróttu, meiddist snemma f leiknum og gat ekki beitt sér eftir það. BEZTU MENN: Bezti maður Þróttar var Þorsteinn Björnsson markvörður. sem varði mjög vel og bezti maður Völsunga var Guðmundur Jónsson. IMÖRK ÞRÓTTAR: Jóhann Frímannsson 6, Ilalldór Bragason 5, Sveinbjörn Kristjánsson 5. Trausti Þorgrimsson 4, Sigurður Pálsson 4. Björn Vilhjálmsson 3. Erling Sigurðsson 2. Gunnar Gunnarsson og Helgi Þorvaldsson 1 hvor. MÖRK VÖLSUNGA: Þór Ottesen 4. Sigurður Sigurðsson 4. Bjami Bogason 2, Sveinn Pálsson, Sigurður Pétursson og Gfsli Haraldsson 1 hver. DÓMARAR: Kristófer Magnússon og Birgir Björnsson. GS UBK - KA 22:23 (13:8) Leikurinn: I upphafi var leikurinn jafn, en fyrir leikhlé hafði Breiðabliksmönnum tekist að ná fimm marka forystu, 13:8. Síðari hálfleikurinn var svo einstefna KA-liðsins, sem saxaði jafnt og þétt á forvstu Blikanna, komstyfirog vann meðeinu marki 23:22. Liöin: KA-liðið virðist ekki eins sterkt núna og á sama tíma f fyrra og er það einkum slök ntarkvarzla sem háir liðinu. Utkoma liðsins úr tveimur fyrstu leikjunum er þö góð, ef aðeins er litið á stigin, tveir sigrar og fjögur mörk. en markatalan er hins vegar nokkuð naum, liðið hefur aðeins tvö mörk til góða. Breiðabliksliðið er skipað ungum og reynslulitlum leikmönnum að mestu. þeir hafa sýnt miklar framfarir frá því í f.vrra, en skortir þó enn talsvert til að teljast sterk heild. Beztu menn: Brynjólfur Markússon, Halldór Rafnsson og Þor- leifur Ananíasson voru beztir KA-manna að þessu sinni, en Diðrik landsliðsmarkvörður í knattspyrnu var beztur hjá Blikunum. hann sýndi oft lagleg tilþrif f leiknum, ásamt Daníel. Mörk KA: Btynjólfur 10. Halldór 4, Ilörður 3. Þorleifur og Jóhann 2 hvor, Haraldur og Viðareitt hvor. Mörk UBK: Ilörður 7. Daníel og Hörður Már 5 hvor, Bjarni 3, Árni og Sveinn 1 hvor. Dómarar: Ceir Thorsteinsson og Öm R. Pétursson dæmdu ekki vel. es. , Gróttf —Völsungur 23:17 (9:8) | Leikurinn: Völsungar sýndu nú allt annan leik en gegn Þrótti á Iaugardaginn og var leikur þeirra við Gróttu í járnum allt fram á síðustu stundu. Er um 10 mfnútur voru eftir af leiktímanum, sigu Seltirningar fram úr og sigruðu 23:17. Liðin: Gróttuliðið verður án efa f baráttunni í 2. deild i vetur, en þó var liðið alls ekki sannfærandi í þessum leik. Sigur sinn geta Gróttumenn þakkað úthaldsleysi og reynsluskorti norðanmanna, frekar en eigin snilli. Sennilegt er að Gróttumenn hafi vanmetið andstæðinga sína og þvi ekki tekað á eins og þeir geta. Völsungar hafa sterklegu liði á að skipa, en vantar meiri æfingu í stórum íþróttasölum. Á Ilúsavík æfa þeir i mjög litlum sal. Þeir sýndu þó f þessum leik, að ekkert lið er öruggt með sigur gegn þeim og þeirra virðist bfða lengri vist í 2. deild en ætla mátti eftir leik þeirra gegn Þrótti. Beztu menn: ívar Gissurarson, Magnús Sigurðsson og Ómar Kristjánsson voru beztir leikmanna Gróttu, en Þór Ottesen, Sveinn Pálsson og Guðmundur Jónsson, markvörður, hjá Völsungum. Dómarar: Geir Thorsteinsson og Öm Pétursson dæmdu Ieikinn, er það alls óviðeigandi að dómari skuli mæta til leiks í búningi merktumöðrum leikaðilanum. Mörk Gróttu: Magnús 6. Björn, Ómar og Halldór 4 hver, Ámi og Kristmundur 2 hvor, Grétar 1. Mörk Völsunga: Sigurður 6, Þór, Sveinn og Magnús 3 hver, Gísli og Bjarni 1 hvor. Fylkir - KA 25:26 (13:12) LEIKURINN: Var allan tímann mjög jafn og fremur skemmtilegur á að horfa. Oftast munaði ekki nema 1—2 mörkum, en undir lokin virtist svo sem Fylkir væri búinn að tryggja sér sigur, en þá var staðan 23—20, þeim í vil. En þá breytti KA vörn sinni og tókst að loka henni betur. Sigurmark sitt skoraði svo KA úr vítakasti að leiktíma loknum. LIDIN: Lið Fylkis er að mestu skipað kornungum og efnilegum piltum. Liðið leikur hratt og vel fyrir utan, en spilið er þó nokkuð þröngt og gengur mikið inn á miðjuna. Vörnin er ekki nógu góð til þess að liðið geti vænst mikila árangurs, en hins vegar var mark- varzlan ágæt f leiknum. KA liðið leikur einnig skemmtilegan handknattleik og er mikill hreyfanleiki í spilí þess. Vörnin er slakasti hluti liðsins, svo og markvarzlan, sem ekki var nógu góð í þessum leik. BEZTU MENN: Beztu menn Fylkis voru þeir Einar Ágústsson, Guðmundur Sigurðsson og Guðmundur Ragnarsson. Beztu menn KA voru Þorleifur Ananíasson, Ilalldór Rafnsson og Brynjólfur M arkússon. MÖRK FVLKIS: Einar Ágústsson 9, Einar Einarsson 5, Jón Magnússon 5, Guðmundur Sigurðsson 4, Sigurður Símonarson 2. MÖRK KA: Brynjólfur Markússon 9, Þorleifur Ananíasson 7, Halldór Rafnsson 6, Guðmundur Lárusson 2, Hörður Ililmarsson 1, Jóhann Jakobsson 1. DÖMARAR: Kristján Örn Ingibergsson og Ólafur Steingrímsson. Fjármálin aðal áhyggjuefnið ÞAÐ leikur víst ekki á tveimur tungum. að fjármálin eru mesta vandamál Frjálsfþróttasambands- ins. I þeim verður að vinna stór- átak á næstu mánuðum, ef ekki á illa að fara. Heildarskuldir sam- handsins eru nú um 2 millj. króna, og ef samhandinu tekst ekki að grynna á þeim skuldum á næstu mánuðuin mun það verða að draga seglin santan, og það þýðir stöðnun eða afturför. Slikt má ekki henda, þvf að um augljósar framfarir var að ra'ða hjá frjálsíþróttafólki U þessu starfsári . og tæplega 200 íslands- met eru einn vottar þeirrar grósku. Þannig fórust Erni Eiðssyni, formanni Frjálsíþróttasambands Islands. orð á ársþingi sambands- ins, sem háð var að Hótel Loftleið- um á laugardag og sunnudag. Kom greinilega frá á þinginu. að fjármálin eru stærsti þrándur f götu f rjálsíþróttasambandsins. Þótt tekjur sambandsins hafi aldrei verið meiri en á síðasta ári. eða 1.6 millj. króna. þá varð rekstrarhalli um 900 þúsund krónur. Langstærsti kostnaðar- liður sambandsins var utanferðir frjálsíþróttafólks. en til þess var varið rösklega 1,3 milljónum króna. Kostnaður við mót hér- lendis nam 761 þúsundi kr„ stjórnunarkostnaður var 128 þús. kr„ og útbreiðslukostnaður 111 þús. kr. Dýrasta utanferð ársins var ferð landsliðsins til þátttöku í Evrópubikarkeppninni í Brussel, en sú ferð kostaði 310 þúsund krónur. Það mót, sem gaf FRl mestar tekjur á s.I. ári voru Reykjavíkurleikarnir, en tekjur af þeim náinu unt 118 þúsund krönum. Það kom fram í skýrslu Arnar Eiðssonar. að stjórn FRÍ er ákveð- in í að sigrast á erfiðleikunum, og hefur hún ýmis áform á prjónun- um til fjáröflunar. Ma. mun stjórnin reyna að koma á kerfi styrktarmeðlima, en slíkt hafa frjálsíþróttasambönd gert víða erlendis með góðum árangri. FRl hefur líka margt á prjónunum f.vrir næsta keppnistímabil frjáls- íþróttafólks, en hæst ber þar landskeppni við íra. sem fram fer f Re.vkjavík 5. — 6. ágúst. — írar eru mjög svipaðir að styrkleika og Islendingar, sagði Öm. — Ef miðað er við bezta árangur þeirra á s.l. keppnistimabiti og bezta árangur islendinga. hefðu irar sigrað f landskeppni með 3 stiga mun. Iiápunkturinn næsta sumar verður svo Evrópumeistaramótið í Róm, en vonandi tekst ein- hverjum islendingunt að ná það góðum árangri, að þeir komist þangað sem keppendur. Þá hefur verið ákyeðin tugþrautarlands- keppni við Frakka og Spánverja, sem fram mun fara í París næsta haust. Örn Eiðsson fjallaði nokkuð um þjálfaramáiin í ræðu sinni nteð skýrslu stjörnarinnar. Taldi hann orðið tímabært og reyndar aðkall- andi, að reynt yrði að fá erlendan þjálfara hingað til starfa, og sagði, að h.vggilegast væri, ef sam- starf gæti orðið um það milli FRÍ og Reykjavíkurfélaganna að fá slíkan mann til starfa. Öm sagði þjálfaraskort vera mikið vanda- mál frjálsfþróttastarfsins. Hér- lendis væru fáir frjálsfþrótta- þjálfarar starfandi og þeir, sem störfuðu að þessum málum, væru allir störfum hlaðnir og yfir- keyrðir. Örn Eiðsson var endurkjörinn formaður FRÍ og f stjórn með honum voru kjörnir þeir: Sigurður Björnsson, Svavar Markússon. Páll Ö. Pálsson. Þor- valdur Jónasson. Magnús Jakobs- son, Sigurður Helgason og Einar Frímannsson. Stjórn FRl: Fremri röð frá vinstri: Svavar Markússon, Öm Eiðsson og Sigurður Björnsson. Aftari röð frá vinstri: Sigurður Ilelgason, Þorvaldur Jónasson, Páll Ö. Pálsson, Magnús Jakobsson og Eínar Frfmannsson. Camel-Winston gaf 100 þús. — Við teljum, að nauðsynlegt sé að að safna að minnsta kosti 1,7 milljónum króna til þess að standa straum af kostnaði, sem leiðir af þátttöku fslenzka hand- knattleikslandsliðsins f loka- keppni heimsmeistarakeppninn- ar í Austur-Þýzkalandi. sagði Sig- urður Jónsson, formaður sér- stakrar fjáröflunarnefndar IISl, á fundi með fréttamönnum, er haldinn var fyrir helgi. — Og við gerum okkur vonir. um, að þetta inegi takast. sagði Sigurður, — víða höfum við orðið varir við mikinn velvilja. Sigurður sagði, að fyrstu að- gerðir fjáröflunarnefndarinnar hefðu verið merkjasala. en eftir ósigurinn gegn Frökkum f Metz, hefði nefndin haldið að sér hönd- unum, enda óvíst, hvort islend- ingar kæmust í lokakeppnina. Eftir sigurinn gegn Frökkum hér í Laugardalshöllinni, þar sem svo gott sem tryggt var að lið okkar kæmist áfram, hefði nefndin síð- an farið ;if stað aftur af fullum krafti. — Við munum vera búnir að selja merki fyrir um 170 þúsund krönur, sagði Sigurður, — og það er vissulega gott sem fyrsta skref. Ef við komumst áfram. eins og fullvíst má reyndar teljast. verða útbúin ný merki. sem á mun standa HSÍ IiM 1974. og vonumst við til að fá göðar undirtektir við sölu þeirra. Þá sagði Sigurður, að fjár- öflunarnefndin væri nú farin að leita til fyrirtækja og óska eftir stuðnigi frá þeim. Undirtektir hafa víðast verið góðar, en höfðinglegasta framlagið, sem okkur hefur verið heitið hingað til, er frá f.vrirtækinu Rolf Johanssen h.f., en það er umboðs- aðili fyrir WINSTON-CAMEL tóbaksvörur. Þar var okkur heitið 100 þúsund krónum. Munar um minna i söfnunina. Er það von okkar. að við fáum góðar undir- tektir hjá þeim fyririækjum, sem við munum leita til í náinni fram- tíð. i fjáröflunarnefndinni eru auk Sigurðar þeir Birgir Lúðvíksson og Karl Benediktsson. Starf þess- arar nefndar er geysilega mikil- vægt, þar sem ekki er með nokk- urri sanngirni hægt að krefjast þess af landsliðsmönnunum í handknattleik, að þeir verði allt að tvo mánuði frá vinnu i ár, án þess að fá það vinnutap bætt. Danmörk vann NORÐMENN og Danir léku ný- lega tvo landsleiki í körfuknatt- leik og fóru þeir fram í Noregi. Danmörk vann báða leikina, þann fyrri 59 — 56 og þann seinni 86 — 83 eftir framlengingu. Benda þessi úrslit til þess, að Norðmönn- um fari mikið fram í þessari íþrótt, en til skamms tíma hafa íslendingar jafnan unnið þá í landsleikjum. — Hörður Framhald af bls. 3. Kristjáns Stefánssonar, þjálf- ara Hauka, og spurði, hvort hann gæti ekki fengið nokkra Haukastráka til að koma á landsliðsæfingu, það vantaði í lið. Iiörður og nokkrir félagar hans í Iiaukum fóru á æfingu hjá landsliðinu og eftir æfing- una kom Karl til Harðar og spurði, hvers vegna hann hefði hætt landsliðsæfingum í vor, hvort hann hefði unnið svo mikið, að hann hefði ekki get- að æft, — Eg jánkaði því, þó að það væri ekki satt, segir Hörð- ur, síðan bað Karl mig að æfa áfram með landsliöinu og ég sé svo sannarlega ekki eftir því. Ég átti ekki beinlínis von á að komast í landsliðið, en er þeg- ar kominn með fimm lands- leiki. i þessum landsleikjum sín- urn hefur Hörður skorað 10 mörk og staðið sig með mikilli prýði, sjötta leikinn sinn fær Hörður í kvöld á móti Svíum. Ástæðan fyrir þvi, að Hörður hætti í FII og gekk í raðir Ilauka er sú að eftir að hann gerðist markvörður Ilauka í knattspyrnu líkaði honum svo vel við félagsandann í Hauk- um, að hann ákvað að skipta einnig í handknattleiknum. — Ilaukar eiga stóran möguleika á að verða islandsmeistarar f meistaraflokki í vetur segir Ilörður. — Valur og Fram eru einnig mjög líklegir sigurveg- arar, tæpast FH og ég er ekk- ert hræddur við mfna gömlu félaga, segir Hörður Sigmars- son að lokum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.