Morgunblaðið - 12.02.1974, Side 5

Morgunblaðið - 12.02.1974, Side 5
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1974 5 Bjartmar Guð- mundsson skrifar: Breyting gerð til batnaðar? STEFÁN Jónsson varaþingmaður og kennari á Laugum hefur látið Þjóðviljann bera út ræðu sína, er hann flutti í sameinuðu þingi 31. janúar og snerist einum þræði um lífið á Laugum 1972—1973. Ekki leynir það sér, að með því vill hann kveða niður með hóg- værð og vitsmunum aðfinnslur þeirra, sem ofbauð söguburður- inn um skólann. Samt hefur svo tiltekizt.að allt sannar hann upp á sig, er að fréttaburði hans hefur verið fundið. Eitt er þó. Nú er það orðinn utanhéraðs- maður, sem fræddi hann um ósómann. Heimamenn þurfa því ekki lengur að taka neitt af þeirri frægð til sín. En eins og ræðan fram gekk af munni mannsins, var ekki annað að skilja en að einhver héraðsbda hefði verið fræðari kennarans og „leitt höld- inn inn“tilsætis i embættinu. Hvernig stendur þá á þvi, að annað stendur nú svart á hvítu í Þjóðvi ljanum? Þannig að þingmenn mega leið- rétta ræður sinar áður en þær eru prentaðar í þingtíðindunum. Mér er kunnugt um, að St. J. hefur notað sér þennan rétt áður en hann gaf Þjóðviljanum lista- verkið til birtingar og skotið ein- hverjum orðum inn í það til prýði og umbóta. Þar á meðal nafnorð- inu: utanhéraðsmaður. Raunar má um það spyrja, hvort það sé til bóta að klína söguburði á einhvern og ein- hvern, sem enginn getur vitað, hvar er að finna eða hvort nokkurn tíma hefur veriðtii. Ennfremur hefur ræðumanni tekizt að bæta inn í ræðu sína: „Þetta er pip“. Ekki hef ég hirt um að kanna* hvort fleiri breyt- ingar hafa verið gerðar. Já, vist má kalla þetta píp, ef menn vilja nota svo ágæta is- lenzku. En sú játning kem- ur svo seint, að spyrja mætti: Eru breytingarnar gerðar og ræðan birt með það fyrir augum að reyna að laga furðulegan ræðu- stúf ögn i framán? Kannski hefur ræðumarin verið farið að svíða svo undan reiði sumra Laugamanna vegna hróp- yrða hans um skólann, að hann hafi þess vegna leitað á náðir Þjóðviljans eins og Káinn leitaði eitt sinn til Lykla-Péturs og kvað: Opnaðu, Pétur, þitt harðlæsta hlið að himinsins dýrðarsölum, skáldið er nú að skilja við skrokkinn fullan af kvölum. MAHGFALDAR GSHili (ðí> HINN MARGUMTALAÐI ÚTSÖLUMARKAÐUR OKKAR HELDUR ÁFRAM AF FULLUM KRAFTIAÐ: AUSTURSTRÆTI 22 I | Föt með vesti í miklu úrvali. □ Stakirjakkar — margar gerðir Q Stakar terelyne & ullarbuxur. I | Mjög mikið úrval af kuldaflík- um dömu- og herra, bæði síðu m og stuttum. Leðurjakkar. n Peysur — blússur — pils. Q Skyrtur — bolir — bindi | | Kjólar — kápur — síð pils. Q Rúskinnskuldajakkar. (i^> # VIÐ GAFUM MIKINN AFSLATT A UTSOLUNNI. EN NÓ GEFUM VIÐ ENN STÆRRI AFSLÁTT. A0°/o-70°/o AFSLÁTTUR - ALLT NÝLEGAR VÖRUR. Cö PIOIMEŒR HLJÓMTÆKJAKYNMNG VIU HÖFUM Á SAMA STAÐ PIONEER-HLJÓMTÆKJAKYNNINGU ALLAR UPPLÝSINGAR ÁSAMT MYNDSKREYTTUM BÆKLINGUM VEITTAR Á STAÐNUM. VIÐ EIGUM NÚ Á LAGER ALLAR GERÐIR AF ÞESSUM FRÁBÆRU HLJÓMTÆKJUM. 3|a ÁRA ÁBYRGÐ - FRÁBÆRIR GREIBSLUSKILMÁLAR PIONEER - ÞEGAR ÞÉR VILJIfl EITTHVAÐ BETRA. (@) KARNABÆR AUSTURSTRÆTI 22 1=' ###############

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.