Morgunblaðið - 12.02.1974, Síða 10

Morgunblaðið - 12.02.1974, Síða 10
10 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1974 Lfnan dregin. Ljósmynd Mbl.: Sigurgeir f Eyjum. Um borð. „ívinnu og leikmeð náunganum ” Ahugasamur polli við bryggjupolla Sandgerði. Hann á ugglaust eftir að sigla fleytu að landi þessi dugmikli snáði. Ljósmyndir Mbl.: Arni Johnsen. Þeir kváðust fremur ánægðir með kjörin, en þó gætu þau verið betri fyrir alla þá vinnu, sem ekki væri hægt að komast hjá ef einhver árangur ætti að nást. Eftir stutt rabb á þilfarinu’ var boðið f kaffi í lúkamum. Þar sátu þeir að spjalli Steingrfmur Nikulásson stýrimaður og Benedikt Andrésson vélstjóri. Við spurðum þá hvemig strák- arnir stæðu sig í sjósókninni. „Strákarnir eru alveg ágætir," svaraði Steingrfmur, „byrjendur þurfa alltaf svolítinn tíma til að læra á hlutina, en það vantar bara fiskinn." Þeir róa með fjörtfu stampa og nú er að sjálfsögðu beitt mikið með loðnu, en aflinn fram að þessu hefur verið frá 1,5—4,5 tonn, mest þorskur og svo ýsa, keila og tindabikkja. Það var að sjálfsögðu farið að ræða um kjaramálin og þá sér- staklega sjómanna, en kauptrygg- ing háseta er tæplega 50 þús. kr. og vélstjóra og um 70 þús. kr. „Ég held að það verði ekki verk- fall,“ sagði Benedikt, „er þetta ekki allt undir sama hatti nú,“ bætti hann við og glotti. ,J£ina hálmstráið, sem rfkis- stjómin getur hengt hatt sinn á, er loðnan," bætti Steingrfmur við, „það á að bjarga öllu með ioðnunni þótt það skipti nú vfst líka einhverju máli hvort minni bátarnir skili einhverju. Það er Ifka óskaplegt vandamál hve erf- itt er að manna minni bátana, 100 tonn og þar undir, eða flesta bát- ana, sem stunda aðeins Ifnu og net og troll. Samkvæmt upplýs- ingum Landssambands fslenzkra útvegsmanna vantar nú mann- skap á 50—60 báta.“ „Það er því varla ráð að fjölga bátunum," sagði Benedikt. „Eins og horfir,“ hélt Steingrfmur áfram, „finnst mér vera óráð að byggja báta af þessari stærð þvf það er varla hægt að láta sér detta f hug að hægt sé að reka þá. Það væri hins vegar gaman ef hægt væri að leiða hug yngri manna að þessum störfum.“ Benedikt: „Nema að við getum bara lagt þetta allt niður, það myndi þá sýna sig hvort þjóðin hefur f raun efni á þessu yfirþyrmandi menntakerfi, sem skilar svo ákaf- lega takmörkuðu." Steingrfmur: „Stór hluti af fólkinu f skólunum virðist bara hafa ógagn af menntakerfinu. Að minnsta kosti er það ekki ennþá farið að skila fólki, sem er á neinn hátt þroskaðra við skólaslit en fólk, sem lætur sér það lynda að vinna hin almennu störf í þjóð- félaginu, fólkinu, sem líklega er vfðsýnast og fordómalausast al- mennt séð. Það hefur ekki þótt þroski á tslandi að hengja sig á snaga." Benedikt: „Það er nú svo komið með sjómennskuna, að menn velja þetta starf ekki afsjálfsdáð- um, en einnig ec þannig komið, að þeir, sem hafa ánetjazt menntakerfinu, eru eins og þorskar á þurru landi yfirhöfuð ef þeim er ekki hossað af persónulegum tengslum eftir að þeir hafa lokið námi eða sýna einstæðan dugnað og framtak. Þessu ættu stjórnvöld að gera sér grein fyrir, skóli er ekki aðeins eitthvert kerfi, sem hrifsar til sfn einstaklinga og hengir þá upp á snaga og heldur þeim svo fast við einskorðaðar brautir, það er til nokkuð, sem heitir skóli lffsins, líf einstaklingsins f vinnu og leik með náunganum." -á.j. KOSTURINN stóð á bryggjunni, alls kyns matvörur og annað sem til þarf f hversdagsbaráttunni. Nokkrir sjómenn byrjuðu að handlanga kostinn niður f bátinn við bryggjuna, en alls lágu 7 bát- ar þarna í röð. Það var lognstilla f Sandgerðishöfn. Við fylgdum þeim, sem voru að handlanga kostlnn yfir f yzta bátinn í röð- inni, Ljósa SF 2, bát sem er ný- keyptur til Sandgerðis. Stefán Þorsteinsson, 17 ára gamall Reykvfkingur, var að dunda á þilfarinu ásamt félaga sfnum Jóhannesi Einarssyni, sem einnig er úr Reykjavík og er 16 ára gamall. Þetta er fyrsta vertfð- in hjá þeim báðum, en Jóhannes var aðeins bdinn að fara einn túr. Hann kvaðst hafa verið í Fellaskóla s.l.-' vetur. Þeir sögðu, að þeim líkaði sjó- mennskan vel og kváðust ætla að stunda hana eitthvað áfram, því launin væru góð ef vel fiskaðist. Stefán sagði, að þeir hefðu ver- ið á lfnu frá vertfðarbyrjun og ætluðu að vera það f vetur, en ekki hefði gengið of vel fram að þessu, enda leiðindatfð. Þeir félagar sögðu, að margir af kunn- ingjum þeirra væru sjómenn og áhugi fyrir sjómennsku hjá ung- Um mönnum væri talsvert mikilL Rabbað við sjómenn um borð í Ljósá SF 2 í Sandgerði Skip við skip og stefni f land. Jóhannes Einarsson Stefón Þorsteinsson. Steingrfmur Nikulásson. Benedikt Andrésson.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.