Morgunblaðið - 12.02.1974, Side 12

Morgunblaðið - 12.02.1974, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1974 Eyjólfur Isfeld Eyjólfsson: Undanfarið hefur mönnum orð- ið tíðrætt um loðnu og er það eðlilegt, þar sem loðnuafurðir eru nú að verða með stærstu liðum i framleiðslu og útflutningi. Þessar athugasemdir beinast eingöngu að frystri loðnu, en f því efni hafa birzt mjög villandi frá- sagnír, sem ýmist eru byggðar á röngum eða ófullnægjandi upp- lýsingum, samfara ókunnugleika þeirra, sem um hafa fjallað. Þetta hefur jafnvel leitt til þess, að m.a. hefur af ýmsum verið spurt í fullri alvöru, hvort hægt væri að selja nokkra loðnu, og af fram- leiðendum, hvort viðlit væri að frysta loðnu. 1. Mér vitanlega hafa útflytj- endur hér getað selt allt það magn af loðnu, sem þeir óskuðu og treystu sér til að framleiða, og var þvi raunar þegar ráðstafað fyrir síðustu áramót. 2. Nokkur ágreining.ur var um verð milli kaupenda og seljenda og má slíkt fremur teljast regla en undantekn- ing í sölu okkar afurða og þá einnig að nokkurn tima geti tekið að samræma verðsjónarmiðin. Staglazt er á, að umsamið verð sé lægra en við var miðað í Verðlags- ráði, þegar hráefnisverð var ákveðið og gefið beint eða óbeint í skyn, að loðnuvinnsla sé óhagstæð og takmarkist af þessum sökum. Alit er þetta út i hött. Það hefur nú sýnt sig, að söluverð hafa kom- izt í að vera innan við eitt prósent frá þeím verðum, sem hráefnis- verð var miðað við í Verðlagsráði og frávik eru ekki meiri frá degi til dags, en búast má við með marga gjaldmiðla á „floti“. Þetta atriði hefði því haft mjög óveru- leg áhrif á verðlagningu í Verð- lagsráði, þótt henni hefði verið frestað. Þvi má svo bæta við, að Norðmenn höfðu ákveðið sitt hrá- efnisverð á undan okkur og i því efni byggt á svipuðu söluverði og hér var gert. 3. Þótt undarlegt sé, þá hafa þeir, sem mest fjölyrða um þessi mál, ekki minnzt á meginvanda- málið í sambandi við loðnufryst- inguna, sem byggist á miklum verðmun eftir flokkun loðnunnar, þ.e. hlutfalli hrygnu í framleiðsl- unni, og sem hefur miklu meiri þýðingu en eitt eða tvö prósent á hvem flokk í söluverðum. Sem dæmi um þetta má nefna, að Norðmenn fengu 24% hærra meðalsöluverð fyrir sina loðnu á síðasta ári heldur en við, og er þá einungis reiknað með að þeir hafi fengið sama markaðsverð og við fyrir hvern flokk. Næst stærsta vandamálið hefur raunar heldur ekki verið minnzt Nokkrar athugasemdir um loðnumál á, en það er flutningur framleiðsl- unnar. Það er ógaman að þurfa að ákveða skipakomur með nokk- urra mánaða fyrirvara til afskip- ana á vöru, sem er jafn óviss í tima og magni og loðnan er, þegar jafnframt þarf að taka tillit til mjög takmarkaðs geymslurýmis frystihúsanna og það sérstaklega í byrjun vetrarvertíðar, sem er aðalframleiðslutimi frystihús- anna á loðnusvæðinu. í Verðlagsráði og yfirnefnd Verðlagsráðs var mikill ágrein- ingur um hráefnisverð á loðnu á þessari vertíð. Þessi ágreiningur byggðist að mestu á, við hvaða flokkun loðnunnar og þar með meðalverð skyldi miðað. Af hálfu seljenda var þvi haldið fram, að sú mikla vélvæðing í flokkunar- vélum, sem ráðgerð var, ger- breytti aðstæðum og því eðlilegt að miða hráefnisverð að verulegu leyti við hæstu verðflokka og lág- an vinnsiukostnað. Af hálfu full- trúa kaupenda var bent á, að var- lega bæri að fara í þessum efnum og líta á þessa vertið sem reynslu- tíma á, hvernig þessar vélar skil- uðu sínu hiutverki. Fulltrúum seljenda var einnig bent á, að við núverandi aðstæður bæri að stefna að því, að nýta frystigetu frystihúsanna eftir fremsta megni, og þá einnig með nætur- og helgidagavinnu, þegar hráefni væri fyrir hendi. Þá skyldi enn- fremur hafa f huga, að þessi vinnsla yrði það hagkvæm fyrir frystihúsin, að þau tækju hana fram yfir annað, þann skamma tima, sem loðnan er frystingar- hæf. Ekkert af þessu fékk hljóm- grunn hjá fulltrúum seljenda og náðist því ekki samkomulag um hráefnisverð. Hins vegar var þvinguð fram hrein bráðabirgðalausn með nú- gildandi hráefnisverði. sem byggð ist á því, að verð skyldi endur- skoða eftir viku vinnslu með til- liti til reynslu fyrirfram ákveð- inna frystihúsa. Miðað var við 1. marz, en sú dagsetning varð þannig til, að í fyrra hófst fryst- ing loðnu 8. febrúar, en nú höfðu fiskifræðingar spáð, að loðnan yrði nokkuð seinna á ferðinni og var því miðað við, að vinnsla hæf- ist 18. febrúar, og að fyrrgreindar upplýsingar lægju þá fyrir að viku liðinni, eða 25. febrúar, og nýtt verð gæti þvi tekið gildi að þeim athuguðum, eða 1. marz. Nú hefur komið í Ijós, að varn- aðarorð fulltrúa fiskkaupenda höfðu við rök að styðjast. Að vísu hefur sú flokkun náðst á pappírn- um, sem gengið var út frá i yfir- nefnd Verðlagsráðs við ákvörðun hráefnisverðs, en það hefur ein- ungis gerzt með því, að raða mikl- um fjölda fólks til flokkunar frá vélunum, og jafnframt þýtt, að stærri frystihús hafa ekki unnið nema með innan við hálfum af- köstum, miðað við frystigetu. Ýmsir byrjunarerfiðleikar og vankantar hafa komið fram, sem ekki er óeðliiegt, þegar um er að ræða nýjar og áður óreyndar vél- ar við okkar aðstæður, en þetta hefur bæði tafið framleiðslu og leitt til mikils aukakostnaðar. Þá er nú ljóst, að afköst flestra þess- ara véla eru mun minni en al- mennt var búizt við, og að þær flokka ekki loðnuna jafn mikið og ýmsir höfðu gert sér vonir um. Mér kæmi ekki á óvart, þótt loðnubátar hafi orðið fyrir nokkr- um vonbrigðum með það tak- markaða magn, sem þeir hafa raunverulega selt í frystingu (ég segi raunverulega, því þótt tals- verðu njagni hafi verið keyrt í frystihúsin, þá skiptir eingöngu það magn máli, sem nýtt er), þar sem hráefnisverðið hefur krafizt flokkunar i hæstu verðflokka. Sú takmarkaða reynsla, sem nú þegar er fengin, virðist þvi benda tilþess, að fulltrúar seljenda, hafi gert umbjóðendum sínum útgerð ar- og sjómönnum, bjarnargreiða með óbilgjömum verðkröfum og síður en svo ástæða til að óska þeim til hamingju með verðlagn- ingu loðnunnar. Af þessu leiðir þá einnig, að útflutningur okkará frystri loðnu verður minni í ár en efni stóðu til, og þótt vitað sé, að Japanir kjósa helzt að fá sem mest af 100% hrygnu, eða sem allra hæst hrygnuhlutfall, og stefna beri að þvi, að svo geti orðið, þá þýðir ekki að ætla sér hraðar i þessn tilliti, en framleiðslutækni í frystihúsunum leyfir. Skóla- fólk hjá Morgun blaÖinu BERGÞÓRA Einarsdótt- ir, 15 ára nemandi í 4. bekk B í Laugalækjar- skóla, dvaldi hjá okkur á Morgunblaðinu í eina viku og kynnti sór blaða- mennskustarfið og blaða- útgáfu. Hún valdi sér það verkefni að fá viðtal við Ólaf Jóhannesson for- sætisráðherra, en hann sá sár ekki fært að veita henni nokkrar mínútur af tíma sínum, svo hún ákvað að bregða sér í Alþingishúsið stundar- korn og hitta þingmenn að máli. Fer grein hennar hér áeftir: Brotalamir I hyggingum íþróttahúsa Ég gekk niður í Alþingishús um klukkan hálf tvö á hroll- köldum miðvikudegi, með það verkefni upp á vasann að ræða Spáð í tóninn hjá þingmönnum Bjami Guðnason. Skotizt inn í Alþingis húsið Ellert B. Schram lítillega við 2—3 þingmenn, og hafði þá aðallega í huga Bjarna Guðnason og Ellert B. Schram. Eg var búin að telja kjark í migniður allt Austurstræti, og labbaði því beint inn, hug- rekkið uppmálað. Starfsmenn I þinghúsinu buðu mér að setjast í forstof- una og hefja veiðar. Eftir dá- litla stund kom Bjarni Guðna- son inn og ég fór á stjá. Eg reyndi að vera sem gáfulegust á svipinn, stikaði að Bjarna og bar fram erindið. Hann sagði það velkomið að svara nokkrum spurningum. Min fyrsta spurning var, hvort skólarnir og það, sem þeim viðkemur, hafi breytzt mikið frá hans skólaárum. Bjarni setti upp heimspeki- legan svip, og sagði, að það væri meira kennt af náttúrulegum fræðum nú en fyrr og þá hafi verið erfiðara að stunda nám en nú. Þá barst talið að íþróttum, en eins og margir vita, var Bjarni góður knattspyrnu- maður og einnig áhugamaður í handbolta. Álit hans á þessum málum var það, að of litif áherzla væri lögð á likamleg- ar æfingar í skólum, að visu kæmi þar inn í húsnæðisvanda- mál varðandi íþróttaiðkanir. Þá bar ég upp þá spurningu, hvaða knattspyrnuliði hann spáði sigri i íslandsmótinu f sumar. Bjarni brosti og sagði: ,jEg er fyrrverandi liðsmaður í VÍKINGI og ég vona að því liði gangi vel.“ Að lokum spurði ég um áhugamál hans utan þinghúss. Hann kvaðst hafa gaman að lestri og svo knattspyrnu. Og þar með slapp Bjarni Guðna- son. Að halda sér við efnið til að ná árangri. En mannaveiðunum var ekki lokið, næst sveif ég á Ellert Schram, hann var ekkert nema liðlegheitin, og þar með var mér heimilt að spyrja. Eg byrjaði eins á Ellert eins og ég hafði byrjað á Bjarna, og spurði fyrst um skólamálin. Ell- ert kvaðst starfa í menntamála- nefnd, og vinna um þessar mundir að grunnskólafrum- varpinu og þar af leiðandi vera talsvert inni i málinu, en i aðal- atriðum væri fyrirkomulag i skólum mjög líkt og alltaf hefur verið. Þá komu íþróttirnar inn i spilið, en hann er einnig lands- kunnur knattspyrnumaður. Ellert sagði, að til að ná veru- legum árangri yrði að halda sér við efnið, sem stundum vildi þó verða erfitt, en skipti þó öllu máli. Næst spurði ég hvort hann hefði frá upphafi ætlað sér að verða þingmaður. Ellert brosti breitt og sagði: „Þegar ég var yngri hugsaði ég eingöngú um líðandi stund, og hugaði lítið að framtíðinni." Að lokum spurði ég Ellert hvernig hann ætlaði að verja sumarfrfinu sínu. „Fara upp í sveit og skella mér á hestbak," sagði Ellert, og þar með kvaddi ég Alþingishúsið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.