Morgunblaðið - 12.02.1974, Page 15

Morgunblaðið - 12.02.1974, Page 15
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 12. FEBRUAR 1974 15 # Teikningar lögreglunnar af mannræningjunum þremur — stúlkan er hvít, en mennirnir tveir blakkir. Segir Weed unnusti Patriciu, að þau hafi framkvæmt ránið af feikilegu öryggi og skipulagningu eins og „þrautþjálfuð hersveit", og svo til ekkert sagt hvert við annað. Án þess að nokkuð sé víst um tilgang ránsins, telja Hearst og iögreglan, að hugsanlega sé það ætlun samtakanna að fá tvo af liðsmönnum þeirra, sem nú sitja í fangelsi vegna dularfulls morðmáls, látna lausa. HVAÐ VILL SYMBIO- NESÍSKI FRELSISHERINN? ENN hefur ekkert frekar heyrzt frá hinum dularfullu hermdarverkasamtök- um, Symbionesíska frelsishernum, sem á mánudag í síðustu viku rændu Patriciu Hearst, dóttur blaðakóngsins Randolph Hearst. Hér sjáum við myndir af helztu persónum þessa máls, sem vakið hefur mikið umtal og blaðaskrif í Bandaríkjunum og víðar, — ekki sízt vegna þess, að ekkert er vitað um tilgang mannránsins, né heldur er vitað mikið um, hvers konar hópur Symbionesíski frelsisherinn er. # Patricia Hearst, tvítugur erfingi milljóna. Henni var rænt, er þrír liðsmenn Symboinesíska frelsishersins börðu að dyrum í íbuð hennar sl. mánudag. # Steven Weed, 26 ára unnusti Patriciu, en hann er nú að jafna sig eftir slagsmálin við mann- ræningjana. Weed var í ibúð- inni, er mannránið átti sér stað, en tókst að komast undan þrátt fyrir að honum hafi verið veitt þungt höfuðhögg með stórri vínflösku. Hann hefur lofað ræningjunum því, að hvorki hann sé Patricia muni bera vitni gegn þeim, ef þeir láti hana lausa heila á húfi. # Randolph Hearst faðir fórnarlambsins og, að þvi er virðist, skotspónn mannráns- ins. I bréfi frá ræningjunum segir, að Hearst sé „óvinur fólksins“ og að Patricia sé í haldi sem „strfðsfangi". Sjálfur segir Hearst, að hann hafi ástæðu til að halda, að dóttir hans sé á lifi, þótt þögn ræningj anna um lausnargjaldið sé ógnvænleg. „Kannski að þeir séu bara að láta okkur svitna", segir Hearst. Berjast fyrir 50 HERFERÐ fyrir 50 mílna fisk- veiðimörkum umhverfis Bretland er nú hafin fyrir forgöngu Don Listers, framkvæmdastjóra Con- Kaupmannahöfn 11. febr. Ntb. FYLGI Venstreflokksins í Dan- mörku, sem er nú við stjórn undir forystu Pauls Hartlings, hefur bætt við sig 3.7% atkvæða, síðan hann tók við. Nýtur flokkurinn fyigis 16% kjósenda, en hafði 12.3% í kosningunum. Voru nið- urstöður þessarar skoðanakönn- unar, sem Observastofnunin í Ar- ósum gekkst fyrir, birtar um helgina. Teheran, 11. febr. Ntb. RÖSKLEGA eitt hundrað her- menn féllu eða særðust i landa- mæraátökum milli íraka og írana um helgina, að því er opinberar heimildir i Teheran greina frá. I fréttum frá Teheran segir, að ír- akst lið hafi ráðizt til atlögu sið- solidated Fisheries útgerðarinnar í Grimsby, að þvf er brezka tíma- ritið Fishing News International skýrir frá í janúarhefti sínu. Það Þar kemur fram, að fylgi jafn- aðarmanna hefur aukizt um 2% og er nú 28%, Framfaraflokkur Glistrups hefur misst 3% og hef- ur 13%, Radikale Venstre njóta stuðnings 11%, íhaldsflokkurinn hefur 8%, Miðdemókratar 5%, SF 5% og Kristflegi þjóðarflokk- urinn og Réttarsambandið hafa 4%. Vinstrisósialistar njóta stuðnings aðeins 1 % degis á sunnudag og hafi skrið- drekar og brynvagnar verið fót- gönguliðum til aðstoðar. Var gert áhlaup á landamæravarðstöðvar í Mehran og Rezaabadhéruðunum. íranir svöruðu árásinni en eftir nokkrar klukkustundir drógu að- ilar lið sin til fyrri stöðva. mílum vekur athygli, að það skuli vera Lister, sem hefur forystu um þetta mál, Því hann hefur oftar en einu sinni lýst því yfir — m.a. í viðtölum við Morgunblaðið — að hann myndi aldrei viðurkenna réttinn til útfærslu í 50 mílur. 1 frétt Fishing News segir, að List- er telji sig hafa stuðning tólf tog- araskipstjóra í Grimsby og að hann hyggist fyrst í stað reyna að afla hugmyndinni fylgis meðal þingmanna þessa héraðs. Lister segir, að íslenzk veiðiskip hafi næstum því þurrkað upp síldina umhverfis Orkneyjar og þvf verði Bretland að hefjast handa við verndun stofnanna í Norðursjón- um. „Vernd verður að koma á í Norðursjónum eins og alls staðar annars staðar," segir Don Lister i viðtali við Fishing News Inter- national, en fjölmargir skipstjór- ar hafi staðfest, að ofveiði eigi sér stað á þessum miðum. „Mér er ljóst,“ segir Lister, „að ýmsir munu vera mér ósammála um þörf á vernd á nálægum mið- um. En þeir, sem eru ósammála munu vera þeir, sem láta sér hagnað dagsins í dag meiru skipta en framtíðarhagsmuni fiskiðnað- arins.“ Venstre vinnur á Átök Irana og Iraka Mótmæli í Moskvu SOVEZKT lögreglulið leysti i dag upp mótmælafund, sem var hald- inn úti fyrir aðalbækistöðvum sovézka kommúnistaflokksins. Handteknir voru yfir tuttugu manns, þar af voru 2 bandarískir blaðamenn frá UPI. Þeim var sleppt nokkrum klukkutímum siðar. Voru þeir að hafa viðtöl við þá andófsmenn. Fólk það, sem safnaðist þarna saman, var, að sögn NTB frétta- stofunnar, Eistlendingar, sem hafa sótt um leyfi til að flytjast úr landi en verið neitað. Kona ein, sem þarna var með tvo syni sína, hlekkjaði sig við staur og tók það lögregluna næstum tvo klukku- tima að losa hana. Forvígismanni Glistrupflokks sparkað Flensborg, Kaupmannahöfn, ll.febr. NTB. SAMEIGINLEG yfirlýsing, sem einn helzti forvigismaður Fram- faraflokks Mogens Glistrups og Nýnasistaflokkurinn í A-Hoistein í V-Þýzkalandi gáfu út um helg- ina, hefur vakið gífurlega athygli í Danmörku. Málavextir eru þeir, að einn fulltrúa flokksins I Köge, Egon Brun Kasmussen, fór f heimsókn til Austur-Holstein um helgina og ræddi þar við formann NPD, Hans Hervard Hain. Munu þeir hafa látið þau orð falla að fundi loknum, að Framfaraflokk- ur Glistrups og NPD ættu margt sameiginlegt og æskileg væri einhvers konar samvinna milli þeirra. Glistrup hefur ákveðið, að Rasmussen skipi þriðja sæti á lista Framfaraflokksins við kosn- ingar til bæjarráðs í Hróarskeldu. Gaf Glistrup út yfirlýsingu i dag, þar sem hann sagði, að vart væri Hugði Kissinger á afsögn? Chicago 11. febrúar — NTB. HENRY Kissinger, núverandi utanrtkisráðherra Bandaríkj- anna, velti því f alvöru fyrir sér að segja af sér embætti ráðgjafa forsetans í öryggismálum árið 1971 eftir. að leynilegar upplýs- ingar höfðu 1 stórum stíl „lekið“ milli ráðuneyta þegar stríðið milli Indlands og Pakistans stóð yfir, að þvf er blaðið Chicago Sun Times hefur f dag eftir heimild- um, sem standa nálægt Kissinger. Segja heimildirnar, að Kissinger hafi verið vonsvikinn vegna þess að Hvfta húsið lét það hjá Hðast í heilan mánuð að verja hann gegn ásökunum um að hann hefði stað- ið fyrir „lekanum". Utanríkisráðherrann á að hafa sagt vinum sínum, að hann hafi verið sannfærður um, að rann- sókn ein, sem framkvæmd var af njósnaflokki Hvíta hússins, hafi verið tilraun ráðgjafa Nixons, þeirra H.R. Haldeman og John Ehrlichman, til að draga úr áhrif- um Kissingers. Kissinger ákvað hins vegar að halda áfram störf- umm þegar upp komst, að skrif- stofumaður i varnarmáladeild Hvíta hússins stóð fyrir „lekan- um.“ Brezkur tog- ari týndur Osló, 11. febrúar, AP. BREZKS togara með 36 manna áhöfn er saknað og var siðast vitað um ferðir togarans, er hann var 80 sjómílur út af norður- strönd Finnlands. Ekkert hefur heyrzt frá togaranum síðan á föstudag. Norskur togari fórst fyrr i dag á þessum slóðum og er óttazt um afdrif ellefu manna. Björgunar- sveitir leita brezka togarans úr lofti og á sjó og einnig er svipazt um eftir norsku sjómönnunum, sem eru týndir. hægt að hugsa sér ólíkari flokka, þar sem NPD setti ríkið yfir ein- staklinginn, en Framfaraflokkur- inn setti einstaklinginn yfir rikið. Sagði Glistrup, að Ijóst væri, að Brun Rasmussen hefði ekki skilið hugmyndafræði flokks síns. Brun Rasmussen brást hins vegar hinn versti við og sagðist hafa verið f vinarheimsókn hjá Hain, sem hann hefði kynnzt i fyrrasumar. Teldi hann fulllangt genéið ef hann mætti ekki hafa tengsl við kunningja sina, nema flokkurinn ræki hann fyrir vikið. Hins vegar mun það staðreynd, að Brun Rasmussen sat fund mað fulltrúum NPD um helgina og þar lýsti hann yfir, að flokkarnir hefðu mjög svipaða stefnuskrá, til dæmis í skattamálum. LibÝa: Þjóðnýtir bandarísk fyrirtæki Beirut, 11. febr., NTB. AP. RÍKISSTJÖRN Líbyu hefur ákveðið að þjóðnýta til fulls þrjú bandarisk oliufyrirtæki í landinu og í Tripoliútvarpinu var sagt, að þetta yrði mjög alvarlegt áfall fyrir hagsmuni Bandarikjanna í Arabaheiminum. í september sl. ákveð stjórnin að þjóðnýta 51% af fyrirtækjunum og hagsmunum þeirra og sagðist mundu láta þjóð- nýta þau alveg ef þau sættu sig ekki við skilmála stjórnarinnar. Utvarpið í Tripoli benti á, að ákvörðunin um þetta hefði verið tekin um svipað teyti og orku- málaráðstefnan margumtalaða er að hefjast í Washington. Fyrir- tækin þrjú framleiða aðeins 5% af olíuframleiðslu landsins. Topp- fundur Araba- leið- toga Kairó 11. febr., NTB. í UNDIRBÚNINGI er fundur æðstu manna nokkurra arabískra leiðtoga og verður hann að líkind- um haldinn f Káiró, enda mun Sadat Egyptalandsforseti hafa átt frumkvæði að þessum fundi. Verður þar rætt um, hvernig Arabaríkin skuli beita „olíuvopn- inu“, svo og um stefnu þeirra gagnvart ísrael. Búizt er við, að fulltrúar frá Saudi Arabiu, Kuwait, Alsír, Marokkó og Sýrlandi sitja fund- inn. NTB-fréttastofan segir senni- legt, að fundarstaðurinn verði við Aswan.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.