Morgunblaðið - 01.03.1974, Side 1
50. tbl. 61. árg.
FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins
Bretland:
Me tkj ör sókn í tví sýnum þing-
kosningum
London, Belfast 28. febrúar
AP-NTB
0 tJTLIT var fyrir algjöra metkjörsókn f kosningunum á Bretlandi í
dag, einum hinum tvísýnustu f sögunni. Af 40 milljónum Breta, sem
kosningarétt höfðu, var áætlað f kvöld að um 30 milljónir neyttu
atkvæðisréttar sfns. Mesta kosningaþátttaka í brezku þingkosningum
hingað til var árið 1950 eða 84%, og töldu sérfræðingar f London, að
það met kynni að verða slegið áður en kjörstöðum yrði lokað kl. 10 að
ísl. tfma. Kosningaúrslita var ekki að vænta fyrr en í fyrramálið.
9 Strax er kjörstaðir opnuðu kl.
8 í morgun, voru langar biðraðir
af skjálfandi Bretum við kjör-
staðina, en kosningaveðrið var
ekki beysið því vfða snjóaði f
Skotiandi, rigndi f AVales og
blanda af þessu tvennu var víðast
hvar f Engiandi. í fyrri kosning-
um hefur mikil kosningaþátttaka
yfirleitt þýtt sigur Verkamanna-
flokksins, en f skoðanakönnun-
um, sem birtar voru f dag, kom
fram, að Íhaldsflokkurinn hefði
aðeins sterkari stöðu, þótt í heild-
ina virtist þriðjungur kjósenda
styðja hvorn stóru flokkana um
sig. Hins vegar sögðu skoðana-
kannanirnar, að Frjálslyndi
flokkurinn undir forystu Jeremy
Thorpes nyti stuðnings milli 20
og 25% kjósenda.
# A N-lrlandi fór atkvæða-
greiðslan ekki eins friðsamlega
fram og á Englandi. Voru brezkir
hermenn við kjörstaði til að
vernda kjósendur fyrir ágangi
öfga- 'og hermdarverkamanna,
sem virtust lfklegir til að reyna
að aftra fólki frá því að kjósa.
Skotið var á varðmenn síðdegis
en enginn þeirra særðist. I
Londonderry og Belfast kom til
Framhald á bls. 43
Eþíópía á valdi hersins
Addis Abeba 28. febr. — NTB
HERINN í Eþíópfu hafði í kvöld
Addis Abeba, höfuðborg landsins,
fullkomlega á valdi sfnu, svo og
flesta aðra landshluta.
Hermennirnir settu upp vega-
tálmanir umhverfis borgina,
umkringdu flugvelli og settu vörð
um allar mikilvægar byggingar í
Addis Abeba. Gerðu hermenn Ieit
í bílum í höfuðborginni, og var
talið, að þeir væru á höttunum
eftir ráðherrum fyrrverandi
stjórnar landsins, en hún sagði af
sér f gær. Að sögn komu
hermennirnir kurteislega og
stillilega fram og virtust vera
undir fullum aga.
□ Hins vegar var talið, að herinn
héldi tryggð við Haile Selassie
keisara, þótt líkur bentu til, að
yfirmenn hersins væru ekki
ángæðir með val keisarans á nýj-
um forsætisráðherra Endal-
kjchen Makonnen, sem hann tii-
kynnti um f dag, og var sá úr hópi
embættismanna. Einnig tilnefndi
keisarinn nýjan varnarmálaráð-
herra. Er forsætisráðherranum
ætlað að reyna að mynda stjórn.
Haile Selassie hélt útvarpsræðu
í dag og hvatti menn til að gæta
stillingar. Sagði hann, að laun
hermanna yrðu enn hækkuð, en
eins og fram hefur komið, átti
þetta uppþot hersins rót sína að
rekja til óánægju með launakjör.
Breiddist uppþotið út frá
borginni Asmara út um allt land,
0g er talið að svo til allur herinn
standi nú að baki byltingarinnar.
Ekki hafa neinar fregnir borizt
um blóðsúthellingar eða meiri
háttar átök, og i höfuðborginni
var allt meira og minna með kyrr-
um kjörum.
Sprautað
á Picasso
New York, 28. febrúar. —
AP.
MAÐUR nokkur, sem kvaðst
vera listamaður og vilja „segja
sannleikann", réðst f dag á
hina frægu „Guernica" mynd
eftir Pablo Picasso f Nútíma-
listasafninu í New York og
sprautaði á hana rauðri máln-
ingu. Skrifaði maðurinn stór-
um stöfum á málverkið orðin:
,J)repum öll lygarnar.“
Maðurinn var handtekinn þeg-
ar f stað, en safnstjórnin telur,
að málverkið muni ekki bera
varanlegar skemmdir af þessu
tilræði.
Messmer reynir
styrkari stjórn
Pans 28. febrúar — AP
PIERRE Messmer, forsætisráð-
herra Frakklands, sem vinnur nú
að því að mynda nýja ríkisstjórn,
hélt f dag fund með fyrrverandi
ráðherrum sfnum. Ráðherralisti
nýju rfkisstjórnarinnar, sem al-
mennt er búizt við, að verði frem-
ur fámenn með það fyrir augum
að gera hana snarari f snún-
ingum, verður mjög sennilega
birtur á morgun, föstudag, eða
jafnvel seint í kvöld. Þegar var
talið ljóst í dag, að þeir Michel
Jobert utanríkisráðherra og
Valery Giscard d’Estaing fjár-
málaráðherra myndu halda sfn-
um embættum, og Jobert sagði f
dag, að hann ætlaði á morgun að
fara tii Bonn til viðræðna við
Walter Scheel utanrfkisráðherra
Vestur-Þýzkalands, eins og ráð
var fyrir gert.
Giscard d’Estaing sagði frétta-
mönnum i dag eftir fund með
Messmer, að forsetinn hefði
„staðfest fyrirætlun sfna um að
mynda litla, röggsama ríkisstjórn.
Hann skýrði fyrir mér hvaða hlut
hann ætlaði mér í henni og ég gaf
honum samþykki mitt.“ Almennt
er talið í Frakklandi, að það til-
tæki Pompidous forseta að láta
stjórn Messmers segja af sér og
síðan láta hann mynda nýja stjórn
hafi verið sálfræðilegt bellibragð
til að styrkja stöðu stjórnarinnar
áður en gripið verði til mjög
harðra efnahagsaðgerða til þess
að bjarga efnahag landsins.
Bretar kjósa við
gaslampaljós
Frá blaðamanni Mbl.,
Þórleifi Ólafssyni. London
igær.
„BEZTI f lokkurinn mun sigra f
þessum orkulausustu kosning-
um Bretlands," sagði einn
fréttaskýrenda BBC f kvöld, en
þótt kosningar séu f dag í Bret-
landi, gengur Iffið sinn vana-
gang hjá brezkum borgurum.
Hér f London er nístingskuldi
og mjög hráslagalegt er nú hér í
öllum orkuskortinufn. Sumar
verzlanir eru lokaðar vegna
kuldans og f öðrum verzlunum
eru vfða auglýsingar á veggjum
þar sem fólk er beðið afsökunar
fyrir hönd ríkisstjórnarinnar á
kuldanum, sem er innan dyra
og staf ar af orkusi orti.
mikið í útilegum. Sömu sögu er
að segja um skrifstofur Flug-
leiða f London. Þar vinnur
starfsfólkið við gaslampa, sem
bæði sjá þeim fyrir lýsingu og
hita því hvort tveggja er nú af
skornum skammti.
Það virðist liggja i loftinu, að
margir virðast óttast enn frek-
ari gengisfellingu sterlings-
pundsins ef Ihaldsflokkurinn
vinnur í kosningunum. „Hvað
tekur þá við? — það veit eng-
inn,“ segir það.
I kvöldblöðunum var staða
Verkam^ maflokksins og í-
haldsflokksins talin jöfn, en þó
áii’u flest blöðin, að íhalds-
ílokkurinn mundi sigra í kjör-
dæmum í London og nágrenni.
Margar verzlanii eru nú hit-
aðar upp með gastæ. jum lfkum
þeim, sem íslendingar nota
Þrátt fyrir vaxandi fylgi
Frjálslynda flokksins, að því er
virðist, þá er talið, að margir
hiki við að kjósa flokkinn þegar
að kjörborðinu kemur, því eng-
inn veit hvað þessi flokkur, sem
staðið hefir utan stjórnar í ára-
tugi, býður upp á, ef hann fær
einhvern tíma völd.
„Við vitum hvað við höfurn,"
segir almenningur, „en enginn
veit hvað við tekur ef frjáls-
lyndir sigra.“
Að sjáfsögðu eru dagblöðin
hér full af kosningaáróðri og
kosningafréttum. Öll forsíða
Daily Mirror, útbreiddasta
blaðs Bretlands, er til dæmis
áskorun til fólks um að kjósa
Verkamannaflokkinn. Fyrir-
sögnin For All Our Tomorrows
Vote Labour Today þekur alla
forsíðuna.
Önnur blöð eru ekki eins
bundin flokkunum að því er
virðist og reka misjafnlega mik-
inn áróður af ýmsu tagi.
Hvor er betri Heath eða Wil-
son, að áliti Breta? Það kemur í
ljós i nótt eða fyrramálið, og
vfst er, að ef íhaldsflokkurinn
bíður lægri hlut mun enn meiri
ivissa en nú er verða í brezku
efnahagslífi á næstunni.
i