Morgunblaðið - 01.03.1974, Side 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974
kerfinu einkar vel, og þannig
eigum við ákveðna talsmenn í
öllum mplaf lokkum
Það kom f minn hlut þegar
við upphaf kjörtímabilsins, að
gegn formennsku í æskulýðs-
ráði borgarinnar, Þar er fjallað
um viðkvæman málaflokk og
vissulega eru ekki allir á eitt
sáttir um hversu athafnasöm
borgaryfirvöld skuli vera á
þeim vettvangi. Sumir telja, að
þau skuli algjörlega halda að
sér höndum. Stefnan hefur í
reynd verið önnur.
Æskulýðsráð hefur að undan-
förnu einbeitt sér að upp-
byggingu félagsaðstöðu úti í
hverfunum. Þannig eru fram-
kvæmdir nú langt á veg komn-
ar í félagsmiðstöð í Fellaskóla í
Breiðholtshverfi III og
ákvarðanir hafa verið teknar
um uppbyggingu svipaðrar að-
stöðu í Bústaðakirkju. Á báðum
þessum stöðum verður
húsnæðisþörf æskulýðsfélaga
og klúbba leyst auk þess sem
við gerum ráð fyrir að félags-
skapur fólks á öllum aldri fái
ákjósanlegan starfsvettvang í
þessum nýju hverfamiðstöðv-
um. Á næsta ári verður svipuð
aðstaða I Árbæjarhverf i og
Breiðholtshverfi I efst á við-
fangsefnalista.
Til að tryggja blómlegt og
þroskandi starf í þessum nýju
húsakynnum og eins í eldri
starfsstöðvum hefur æskulýðs-
ráð nú gert tillögur um ákveðið
fyrirkomulag styrkveitinga
borgarinnar til æskulýðsfélaga
í Reykjavík, bæði þeirra sem
fyrir eru og annarra, er í fram-
tíðinni kunna að verða stofn-
sett. Tel ég mjög mikils vert, að
félögin fái með þessum hætti
traustan rekstrargrundvöll og
nái vonandi þar með fótfestu í
úthverfum.ört vaxandi borgar.
Hröðun á framkvæmdum við
þjónustustofnanir í hverfunum
verður eítt af þýðingarmestu
verkefnum næstu borgar-
stjórnar. Búseta fólks í nýjum
hverfum og bygging og rekstur
skóla, dagvistunarheimila
verzlana og annarra þjónustu-
miðstöðva verður að haldast I
hendur, og sérstaklega ber á
næstu árum að bæta heil-
brigðisþjónustu i hverfunum
með stofnun læknamiðstöðva,
þar sem heimilislækna-
þjónustan verði staðsett ásamt
vissum sérfræðigreinum og
slysahjálp.
Ekki er mér grunlaust um, að
margir hafi spurt sjálfa sig og
aðra: „Hversu stór á Reykjavík
að verða?‘.‘ Kostirnir til enn
meiri útvíkkunar byggðar-
svæða borgarinnar eru ekki
óþrjótandi. Enn er þó landrými
fyrir hendi og á því verður að
skipuleggja ný b.vggingarsvæði
hið fyrsta. Þar þarf að leggja
áherzlu á sem fjölbreytilegast
framboð á lóðum, svo að ein-
staklingurinn fái færi á að
byggja eins og hann vill. Hugur
flestra Reykvíkinga stendur til
þess að búa I einbýlishúsum
eða raðhúsum og verða borgar-
yfirvöld því að bjóða upp á
möguleika til byggingar þeirra
húsagerða I ríkum mæli.
En okkur má þó ekki skorta
heildaryfirsýn yfir byggðina í
borginni. Hvað er að gerast í
fullbyggðum borgarhlutum
eins og t.d. í þeim elztu vestur í
bæ? Dæmi eru um að á sumum
svæðum í gamla bænum séu
aðeins um tveir einstaklingar á
hverja íbúð á móti fimm á ibúð
i yngstu hverfunum. Þarna
gætir vaxandi röskunar á jafn-
vægi I byggð borgarinnar, sem
yfirvöld verða að hafa strangar
gætur á. Ungt fólk verður að fá
kost á að eignast íbúðarhús-
næði í elztu hverfunum, sem
það á bágt með eins og nú er
ástatt vegna verðlagsins. Lána-
fyrirgreiðslu verður því að
auka í þessum tilfellum. Borg-
arfélaginu í heild eru augljós
hagur af jafnri skiptingu
aldursflokka í öllum borgar-
hlutum, svo að þjónustustofn-
anir, sem þar eru fyrir, nýtist
að fullu, og komið verði í veg
fyrir alvarlegar félagslegar af-
leiðingar, sem breiðara bil milli
kynslóða í búsetu borgarinnar
myndi óhjákvæmi lega leiðatil.
Markús Örn Antonsson
ritstjóri.
Helztu
upplýs-
ingar
um próf-
kjör
sjálf-
stæðis-
manna
A morgun kl. 14 hefst prófkjör
á vegum Sjálfstæðisflokksins um
skipan framboðslista Sjálfstæðis-
flokksins við borgarstjórnar-
kosningarnar, sem fram fara í
vor. Prófkjör þetta stendur næstu
3 daga. A morgun laugardag 2.
marz og sunnudaginn 3. marz
verða kjörstaðir opnir I átta kjör-
hverfum borgarinnar á tfma-
bilinu kl. 14—19, en mánudaginn
4. marz verður kjörstaður opinn I
Tjarnarbúð frá kl. 16—20. Hér er
um opið prófkjör að ræða, sem
þýðir, að ekki aðeins flokks-
bundnir sjálfstæðismenn hafa
rétt til þátttöku, heldur allir þeir,
sem hyggjast styðja Sjálfstæðis-
flokkinn I borgarstjórnarkosning-
unum I vor. Til þess að prófkjörið
geti orðið bindandi fyrir kjör-
nefnd þurfa 6.967 kjósendur að
greiða atkvæði I þvf. Hér fara á
eftir nokkrar upplýsingar um
prófkjörið og framkvæmd þess.
Atkvæðisréttur
Atkvæðisrétt I prófkjörinu hafa
allir stuðningsmenn D-listans í
borgarstjórnarkosningunum, sem
náð hafa 20 ára aldri 26. maí 1974
og áttu Iögheimili í Reykjavík 1.
desember 1973, ennfremur með-
limir sjálfstæðisfélaganna í
Reykjavík, sem ná -18 ára aldri 26.
maí 1974 eða fyrr og lögheimili
áttu í Reykjavík 1. desember
1973.
Frambjóðendur
Frambjóðendur í prófkjöri
voru valdir með framboðum
studdum af minnst 25 flokks-
bundnum sjálfstæðismönnum, en
að auki tilnefndi kjörnefnd fram-
bjóðendur I prófkjörið, en hún er
skipuð 15 kjörnum og tilnefndum
sjálfstæðismönnum.
Ctfylling
atkvæðaseðilsins
Á atkvæðaseðli er nöfnum
frambjóðenda raðað eftir
stafrófsröð. Kjósa skal fæst 8
frambjóðendur og flest 12. Skal
það gert með því að setja kross
fyrir framan nöfn frambjóðenda,
sem viðkomandi óskar eftir að
skipi .endanlegan framboðslista.
Bindandi úrslit
Til þess að úrslitin geti orðið
bindandi fyrir kjörnefnd, þarf
fjöldi þeirra, sem þátt tekur i
prófkjörinu að vera 1/3 af kjör-
fylgi Sjálfstæðisflokksins við
síðustu borgarstjórnarkosningar
eða minnst 6.967. Auk þess þurfa
einstakir frambjóðendur að
hljóta minnst 50% greiddra at-
kvæða til þess að kosning þeirra
verði bindandi.
Birting úrslita
Ef þátttaka I prófkjörinu nem-
ur 1/3 eða meira af kjörfylgi
Sjálfstæðisflókksins við borgar-
stjórnarkosningarnar 1970 er
kjörnefnd skylt að birta opinber-
lega upplýsingar um úrslit I próf-
kjörinu, að því er tekur til 16
efstu sætanna.
Átta kjörhverfi
Eins og fyrr segir verða laugar-
dag og sunnudag opnir kjörstaðir
I 8 kjörhverfum borgarinnar.
Kjörhverfi og kjörstaðir eru sem
hér segir:
1) Nes- og Melahverfi,
Hringbraut og öll byggð sunnan
hennar. Kjörstaður: KR-heimili
við Frostaskjól.
2) Vestur- og miðbæjarhverfi,
öll byggð vestan Bergstaða-
strætis, Oðinsgötu og Smiðjustígs
og norðan Hringbrautar. Kjör-
staður: Galtafell, Laufásvegi 47.
3) Austurbæjar-, Norðurmýrar-
Hlíða- og Holtahverfi. Hverfið
takmarkast af 1. og 2. kjörhverfi I
suður og vestur, Kringlumýrar-
braut í austur, en af Laugavegi og
Skúlagötu í norður. Kjörstaður:
Templarahöllin við Eiríksgötu.
4) Laugarnes-, Langholts-,
Voga- og Heimahverfi. Öll byggð
norðan Suðurlandsbrautar og
hluta Laugavegs. Kjörstaður:
Samkomusalur Kassagerðarinnar
h/f við Kleppsveg.
5) Háaleitis-, Smáíbúða-,
Bústaða- og Fossvogshverfi.
Hverfið takmarkast af Kringlu-
mýrarbraut I vestur og
Suðurlandsbraut í norður. Kjör-
staður: Miðbær við Háaleitisbraut
58—60.
6) Árbæjarhverfi og önnur
Reykjavíkurbyggð utan Elliðaáa.
Kjörstaður: Kaffistofa
verksmiðjunnar Vífilfell h/f,
Draghálsi 1.
7) Bakka- og Stekkjahverfi
(Breiðholt I). Kjörstaður: Urðar-
bakka 2.
8) Fella- og Hólahverfi (Breið-
holt III). Kjörstaður: Vesturberg
197.