Morgunblaðið - 01.03.1974, Blaðsíða 43
MORGUNBLAÐIÐ, FÖSTUDAGUR 1. MARZ 1974
43
Argentína:
Lögreglumenn eru
í uppreisnarhug
Snorri Sveinn sýnir í Norræna húsinu
Cordoba, Argentinu
28. febrúar AP-NTB.
UM 10.000 lögreglumenn f næst
stærstu borg Argentfnu, Cordoba,
hafa gert uppreisn til þess að ýta
á eftir kröfum um að vinstri sinn-
uð yfirvöld héraðsins verði fjar-
lægð. Hafa lögreglumennirnir
tekið sýslumanninn fastan og
halda honum og nokkrum helztu
fylgismönnum hans f gíslingu.
Hafa lögreglumennirnir útvarps-
stöð á valdi sfnu, og sögðu þeir
hinum 9ÖÖ.ÓÖ0 fbúum borgarinn-
ar ao tara ekki til vinnu f dag.
Juan Peron forseti Argentínu
hélt skyndifund með ráðgjöfum
sfnum um málið, en ekki var vit-
að um niðurstöðu þess fundar.
Sýslumaðurinn í Cordoba,
Ricardo Obregon Cano, hefur
Jón G. Kristjánsson
Nýr skrifstofu-
stjóri borgar-
verkfræðings
FRÁ og með deginum f dag tekur
Jón G. Kristjánsson lögfræðingur
við starfi skrifstofustjóra borgar-
verkfræðings af Má Gunnarssyni,
sem gegnt hefur þvf starfi undan-
farin ár.
Jón er fæddur á Hólmavfk árið
1944, sonur hjónanna Kristjáns
Jónssonar, stöðvarstjóra Pósts og
síma, og Önnu Jónsdóttur. Hann
lauk stúdentsprófi frá Mennta-
skólanum á Akureyri 1964 og
embættisprófi i lögfræði frá
Háskóla íslands 1971. Síðan
starfaði hann um skeið sem full-
trúi tollstjóra, en f október 1971
varð hann lögfræðingur hjá
Sjóvátryggingafélagi íslands og
hefur starfað þar þangað til nú.
Vantraust
í Finnlandi
Helsingfors, 28. febr. — NTB.
Stjórnarandstöðuflokkarnir f
Finnlandi lögðu f gær fram van-
trauststillögur f þinginu gegn rfk-
isstjórninni, en þá var orkumála-
stefna hennar tekin til umræðu.
Er stjórnin einkum gagnrýnd fyr-
ir að Iáta viðgangast að olfuverð
hafi hækkað of ört að undanförnu
og aðgerðir hennar hafi verið van-
hugsaðar. Þá er kvartað yfir þvf
að orkumálastefnan sé of óljós og
láti ýmsum vandamálum ósvarað.
Stjórnmálaskýrendur telja að
ríkisstjórnin muni engu að síður
halda velli eftir atkvæðagreiðsl-
una í þinginu á morgun, föstudag.
stöðugt verið sakaður um að vera
vinstrisinnaður allt frá því er Per-
on hóf hreinsanir meðal vinstri
manna í valdastöðum. Borgin hef-
ur lengi verið óeirðasöm í verka-
lýðsmálum, en verkalýðsforystan
er einnig nokkuð á vinstri kantin-
um. Ekki er vitað um mannfall í
þessu uppþoti.
ÓBREYTT VERÐ
Á LOÐNU
TIL FRYSTINGAR
Á fundi Verðlagsráðs sjávar-
útvegsins í gær varð samkomulag
um, að lágmarksverð á ferskri
loðnu til frystingar frá og með 1.
marz til 15. maí 1974, skuli vera
óbreytt frá þvi verði, sem gildir
til 28. febrúar, þ.e. kr. 13.60 hvert
kg miðað við nýtingu.
Ekið á kyrr-
stæða bifreið
Miðvikudaginn 27. febr. sl. kl.
08—19 var ekið á rauða Vauxhall
Viva-bifreið, R-28827, á stæði
framan við Tómstundahúsið að
Laugavegi 164 og dældað
farangurskistulokið og farangurs-
kistan sjálf. Þeir, sem kynnu að
geta gefið upplýsingar um
ákeyrsluna, eru beðnir að láta
lögregluna vita.
— Seinn til svars
Framhald af bls. 16
gefa skýringu á lögfræðilegum
hugtökum og vildi ógjarnan fara
með staðlausa stafi. Ræddi þetta
mál við f jölda manna og frétti þá,
að til væri rit, sem heitir „Eignar-
réttur" eftir próf. Ölaf Lárusson.
Það er ekki að visu á glámbekk
(fæst ekki í verzlunum). Nú hefi
ég þetta rit undir höndum og hefi
ekki lengi lesið, þegar ég finn full
rök fyrir fuliyrðingum mínum. Á
bls. 11 stendur meðal annars:
„Maður, sem á jörð, getur búið á
henni og nýtt sér afrakstur henn-
ar, gert mannvirki á henni, breytt
mannvirkjum á henni eða lagt
þau niður,“ o.s.frv.
Ég tel mig hafa eignazt ábýlis-
jörð mína með öllum þeim rétt-
indum, sem foreldrar mínir áttu
Og jörðinni hafa fylgt frá dögum
Ingólfs Arnarsonar. Skerðing
þessa réttar, eignarréttarins, hef-
ir kostað mig það, að i stað þess að
eiga nú lífvænlegt bú, er aðstaða
min einyrkja hokur.
Um þetta mætti rita langt mál
sem um hið furðulega traðk þétt-
býlisins á rétti bóndans:
Fasteignagjaldið á Reynisvatni,
aðförina að bóndanum á Reykja-
borg við Reykjavik o.s.frv.
Hér verður að láta staðar numið
í trausti þess að fá glögg og góð
svör og stuðning við þann forna
rétt, að bændur hafi fjárforræði
sem aðrir fullveðja menn.
Með beztu kveðju.
Úlfarsfelli i Mosfellssveit,
19. júlí 1973.
— Varnarliðið
Framhald af bls. 18
frá fæðingardeildinni ásamt
sjúkraliða þyrlunnar önnuðust
konuna allan timann, meðan á
fluginu stóð.
21. nóvember nauðlenti Navy
C-117 á Sólheimasandi. Áhöfn
vélarinnar, 7 manns, var flutt
með þyrlu varnarliðsins til Kefla-
víkurflugvallar. Björgunarsveit
SVLÍ, Víkverja, Vík í Mýrdal,
veitti varnarliðsmönnum mikla
aðstoð við að gæta flugvélarinnar,
auk þess sem þeir höfðu 24
klukkustunda hlustvörslu í tal-
stöðvarbil við flak flugvélarinnar.
Snorri Sveinn Friðriksson
listmálari opnar sýningu í
sýningarsal Norræna hússins kl.
15 næstkomandi laugardag og
sýnir þar 35 stórar kolmyndir,
sem hann hefur gert á þessu og
síðasta ári.
Þetta er þriðja einkasýning
Snorra Sveins, hinar tvær hélt
hann 1964 og 1969. Auk þess
hefur hann tekið þátt í mörgum
Þetta var sú skýrsla, sem borist
hefur frá Slysavarnafélagi
íslands um samvinnu við varnar-
liðið á árinu 1973 um björgunar-
störf.
Eins og ég áðan sagði, voru
þessar beiðnir 20 á s.l. ári, en alls
voru aðstoðarbeiðnir opinberra
aðila samtals 52 á árinu, mest út
af eldgosinu í Vestmannaeyjum.
Þessu má skipta þannig, að farin
voru 25 sjúkraflug, 12 leitarflug,
4 björgunarflug og 11 ferðir voru
famar vegna brottflutnings frá
hættusvæði.
A tímabilinu frá 23. janúar.
1973, þegar Vestmannaeyjagosið
byrjaði og tii 15. mars sama ár,
lagði varnarliðið fram um 50 þús.
vinnustundir til aðstoðar, t.d.
fóru yfir 1000 hermenn til
hjálparstarfa á Heimaey. Flug-
vélar varnarliðsins fluttu um 850
tonn af húsgögnum, birgðum,
tækjum, búsmala og matvælum.
Þær fluttu og yfir 1500 flugfar-
þega til og frá Heimaey. Einnig
má nefna, að varnarliðið annaðist
flutning á nærri 600 gámum frá
Þorlákshöfn til Reykjavíkur á 5
dögum i upphafi gossins. Það
lagði til slökkvibifreiðar og alls
konar slökkvitæki, auk ýmiss
konar útbúnaðar. Að lokum er
rétt að minnast á það, að varnar-
liðið og Bandaríkjaher lögðu fram
mikið starf við það að safna
saman dælum, vatnshönum og
leiðslum 1 Bandaríkjunum fyrir
kælikerfið, sem notað var gegn
hraunstraumnum.
Fyrir utan þá aðstoð, sem nú
hefur verið minnst á, má geta
þess, að samkomulag er um það
við varnarliðið að flytja nýrna-
Sjúklinga til Kaupmannahafnar,
hvenær sem á þarf að halda, en
þegar skipta þarf um nýra í fólki,
má ekki langur timi líða þar til
nýtt nýra af réttum flokki er
komið á sinn stað í líkama
sjúklingsins.
4. spurningin er um það, hvort
ég telji nokkuð því til fyrirstöðu,
að íslendingar geti tekið þessa
björgunarstarfsemi að sér. Ég tel
ekki vafa á því, að íslendingar
geti haftþessi störf með höndum,
ef þeir fá fulla þjálfun. Það er
hins vegar alltaf matsatriði, hve
öflug slík björgunarsveit þarf að
vera til þess að fullkomið öryggi
sé fyrir hendi og um það get ég
ekki fullyrt. Hins vegar er ljóst,
að spurningin er fyrst og fremst
fjárhagslegs eðlis og ef hafa ætti
sams konar rekstur á Keflavíkur-
flugvelli og nú er þar i höndum
varnarliðsins, er enginn vafi á
þvi, að um mjög háar fjárhæðir
væri að ræða.“
samsýningum, bæði hér álandi og
erlendis. Hann hefur til dæmis
tvfvegis átt verk á útisýningunni
á Skólavörðuholti. Undanfarin ár
hefur hann ennfremur fengizt
nokkuð við skreytingar ný-
bygginga í samvinnu við arki-
tekta. Hann skreytti hús Lands-
banka íslands á Akranesi bæði að
utan og innan og vinnur nú að
skreytingu fleiri bygginga.
— Bretland
Framhald af bls. 1
átaka milli uppivöðsluseggja og
hermanna, og tveir menn voru
skotnir. Herskáir leiðtogar
beggja trúflokka hvöttu kjósend-
ur til að sitja heima. Norður-
trland á 12 sæti í neðri málstofu
þingsins.
Þetta eru fyrstu kosningarnar í
Bretlandi, sem haldnar eru þegar
neyðarástand gildir i landinu.
Heath, leiðtogi íhaldsflokksins,
sagði, er hann hafði greitt sitt
atkvæði um 11-leytið í morgun, að
hann væri fullviss um að flokkur
sinn myndi sigra.
Þegar dró að lokum kosninga-
dagsins í kvöld, óku áróðursbif-
reiðar um stræti hinna ýmsu
borga og létu slagorðin dynja á
vegfarendum. íhaldsmenn not-
uðu slagorðið: „Heath fyrir
trausta og réttláta ríkisstjórn",
Verkamannaflokkurinn: „Við
getur hreinsað upp óreiðuna eftir
ihaldsmenn“, og Frjálslyndi
flokkurinn hvatti menn til að gefa
sér tækifæri til að rjúfa áratuga
langa pólitiska einokun ihalds- og
Verkamannaflokksins.
— Frestuðu
afgreiðslu
samninga
Framhald af bls. 44
kröfu til þess, að viðskiptaráð-
herra yrði viðstaddur.
Á siðari fundinum var við-
skiptaráðherra viðstaddur. Hann
tók mjög í sama strang og for-
sætisráðherra, en í ljós kom á
fundinum, að hann hafði ekki
gert sér fulla grein fyrir því, hve
mikill hluti af kostnaði heild-
verzlunarinnar væri launa-
kostnaður, en hann er 55%. Kaup-
menn höfðu um þessa kröfu fullt
samráð við Samband islenzkra
samvinnufélaga, sem styður þá í
þeirri viðleitni að fá verðlags-
ákvæðum breytt.
A meðan á sáttafundum stóð,
endurtók Lúðvík Jósepsson loforð
sín um að launahækkunin mætti
fara út í verðlagið að fullu fyrir
smásöluverzlunina, en vandamál
heildverzlunarinnar yrðu athugað
nánar. Þó tók Árni Gestsson það
fram á fundi stórkaupmannanna i
gær, að heldur hefði hann tekið
betur undir óskir stórkaupmanna,
er á leið en fyrst er þær hefðu
Snorri Sveinn er leikmynda-
teiknari sjónvarpsins og hefur
gengt því starfi í fimm ár. Árið
1972 gerði hann leikmynd fyrir
Þjóðleikhúsið við „Sjálfstætt
f ólk“ eftir Halldór Laxness.
Sýning Snorra Sveins Friðriks-
sonar í Norræna húsinu verður
opin daglega kl. 16 — 22, laugar-
daga og sunnudaga kl. 15 — 22.
verið bornar fram. Lúðvík endur-
tók síðan loforð sín að viðstöddum
fulltrúum í 7-mannanefnd Vinnu-
veitendasambandsins og lét
Hjörtur Hjartarson, formaður
Verzlunarráðs Islands, sáttasemj-
ara bóka þar ummæli ráðherrans.
Gunnar Snorrason, formaður
Kaupmannasamtakanna kvað og
Lúðvík Jósepsson hafa skýrt sér
frá því, að ekki aðeins launapró-
sentan færi inn í verðlagið, held-
ur myndu og sérkröfur, sem geng-
ið hefði verið að, verða metnar
inn í heildardæmið.
I FÍS urðu engar umræður um
afgreiðslu málsins og samþykktu
menn strax einróma að fresta
fundi og ákvörðun um fullgild-
ingu samningsins. Meðal smásölu-
kaupmanna urðu aftur á móti
talsverðar umræður, m.a. á hvern
hátt annan yrði unnt að mæta
kostnaðaraukningunni og urðu
allmiklar umræður um styttingu
opnunartíma o.fl.
Árni Gestsson, formaður FÍS,
sagði í viðtali við Mbl. eftir fund-
inn í gær, að kaupmenn hefðu átt
þrjá kosti — að samþykkja samn-
ingana, fella þá eða slá afgreiðslu
málsins á frest. Hann taldi mjög
eðlilegt, að ákvörðun hefði verið
frestað þar til kaupmenn sæju á
hvern hátt yfirvöld stæðu við gef-
in loforð. Hækkunin, sem verzlun
in yrði að bera af þessum nýju
kjarasamningum, væri gífurleg
og taprekstur fyrirsjáanlegur, ef
ekki kæmu á móti einhverjar bæt-
ur.
Gunnar Snorrason sagði, að
það, hve fundur Kaupmannasam-
takanna hefði verið fjölsóttur,
sýndi að félagsmenn hefðu áhuga
á þessu. Sagði hann að afgreiðsla
málsins væri eðlileg og hefði hún
ekki komið sér á óvart. Nú reyndi
á það, að loforðin yrðu efnd, því
að kaupmenn vildu vita hvar þeir
stæðu. Gunnar tók fram, að ekki
mætti lita á þessa afstöðu kaup-
manna sem árás á launþega i
verzlunarstétt, heldur væri káup-
menn aðeins að leggja áherzlu á,
að unnt yrði að greiða laun sam-
kvæmt nýja kjarasamningnum og
það hlyti að vera beggja hagur,
launþega og vinnuveitenda.
Hjörtur Hjartarson, formaður
Verzlunarráðs Islands, sat báða
félagsfundina. Hjörtur sagði í við-
tali við Mbl., að afgreiðsla málsins
væri að sfnum dómi mjög eðlileg.
Kaupmenn hlytu að þurfa að hafa
einhverja fyrirvara um að staðið
yrði við gefin loforð um leiðrétt-
ingu verðlagsmálanna. Samtök
verzlunarinnar myndu og fylgja
þvi eftir af miklum þunga, að við
loforðin yrði staðið.