Morgunblaðið - 09.03.1974, Page 4
4
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1974
II
F
22 022
RAUÐARÁRSTÍG 31
V______________/
LOFTLEIÐIR
BÍLALEIGA
CAR RENTAL
21190 21188
LOFTLEIÐIR
tel 14444*25555
wm
BILALEIGA CAR RENTAL
| STAKSTEINAR
Stúdentaráð
enn til skammar
Sfðan vinstrimenn náðu
tangarhaldi á stúdentaráði
fyrir rúmum tveimur árum
hefur því auðnast að verða sér
oftar til skammar en búast
mátti við á svo skömmum tfma.
Ráðið hefur f tfma og ótíma
sent frá sér ályktanir, sem
ýmist hafa verið afkáralega út í
hött eða lélegar þýðingar á
fyrirmælum svonefnds „Al-
þjóðasambands stúdenta“,
sem er ríkisrekið áróðursbákn í
austantjaldslöndunum og hef-
ur innan vébanda sinna at-
vinnustúdenta, sem eru þeir
elztu, sem finnast á jörðinni.
Allir muna eftir þvf, er
stúdentaráð ákvað að reyna að
koma í veg fyrir að Ófafur
Jóhannesson gengi að „Ursiita-
kostum“ Heaths f landhelgis-
málinu. Auglýsti ráðið í öllum
fjölmiðium, að það myndi
gangast fyrir stofnun mikillar
breiðfylkingar sem myndi
koma í veg fyrir svik óprútt-
inna stjórnmálamanna í Iffs-
hagsmunamálinu. Var skorað á
alla þá, sem samleið vildu eiga
með stúdentaráði f myndun
hinnar miklu fylkingar að gefa
sig þegar fram. Eini aðilinn
sem gaf til kynna, að hann vildi
hafa eitthvað með stúdentaráð
H.í. að gera var Æskulýðs-
fylkingin, og mynduðu þessir
tveir aðilar þá grennstu breið-
fylkingu sem sögur fara af og
hefur ekkert heyrzt af henni
sfðar. Þvf þegar Lúðvfk
Jósepsson ákvað, með skfrskot-
un til ráðherrastólanna, að
gangast inn á „svikin“, þá hvarf
allur móður úr stúdentaráði og
eftir það hafði ráðið ekki meira
um málið að segja.
Þannig hafa afrek þessa
auma ráðs verið hvert af öðru.
Nú síðast kórónaði það svo
auman feril sinn með þvf að fá
hingað atvinnuáróðursmenn
frá fyrrnefndum „alþjóðasam-
tökum" undir því yfirskini að
um stúdentaleiðtoga frá araba-
löndum væri að ræða. Mættu
þessir fuglar á fund með
stúdentum og sýndu þeim
langa mynd frá heimsþingi
æskunnar f Austur-Berlfn, en
fundarefnið var barátta
Palestínuaraba fyrir endur-
heimt landa sinna!! Textinn
með þessari þrautfúlu mynd
var á rússnesku, en fundar-
mönnum tif glöggvunar hafði
verið komið fyrir arabfskum
skriftexta inn á myndina.
Á blaðamannafundi, sem
þessir gestir „stúdenta" héldu,
kom fram, að þeir leggja bless-
un sfna yfir flugrán og hryðju-
verk svo framarlega sem þau
eru framin í pólitfskum
tilgangi!! Um þær mundir,
sem þessir gestir íslenzka
stúdentaráðsins tjáðu sig með
þessum hætti um þau óhugnan-
legu hryðjuverk, sem gert hafa
veröldina grárri og viðstyggi-
legri að undanförnu, var enn
eitt ódæði framið, er flugvél
með meira en 300 farþegum var
sprengd f loft upp eftir flugtak
frá París.
FuIIljóst er að flestir
stúdentar, sem standa utan við
þá þröngu klfku, sem nú stjórn-
ar stúdentaráði H.I., vifl ekkert
með slfka „gesti“ hafa að gera.
Né heldur vilja þeir ganga inn f
þau „alþjóðasamtök" stúdenta
sem lögðu blessun sfna yfir
blóðbaðið í Ungverjalandi og
innrásina f Tékkóslóvakfu. Það
er gott dæmi um þessi samtök
og þjónslund þeirra við Moskvu
og reyndar beina stjórnun
þaðan, hvernig þau brugðust
við, þegar Alexander Solzhenit-
syn var neyddur til að yfirgefa
ættjörð sfna. Þá þögðu þessi
samtök þunnu hljóði, en hins
vegar töldu þau, fyrir nokkru,
að Pablo Neruda, sem lá hel-
sjúkur af krabbameini, hefði
látizt af völdum valdaráns
fasistanna f Chile, og af þvf
tilefni efndu „alþjóðasamtök-
in“ til verulegra mótmæla. En
um Solzhenitsyn-málið var
ekkert sagt. Að því er ekki
hægt að draga nema tvær á-
lyktanir: Annars vegar þá, að
„alþjóðasamtökin" séu sam-
mála gerðum Sovétstjórnar-
innar eða hins vegar að þau fái
ekki komið fram mótmælum
sfnum vegna ritskoðunar. Þvf
miður er sennilegra, miðað við
reynslu, að fyrri tilgátan sé hin
rétta.
Stúdentum er sæmst að taka
völdin af stúdentaráðsklfkunni
og tryggja að hún gangi ekki f
alþjóðasamtök kommúnista á
móti vilja þeirra.
FERÐABÍLAR HF.
Bílaleiga — Sími 81260
Fimm manna Cítroen G. S.
station Fimm manna Citroen
G S 8—22 manna Mercedes
Benz hópferðabílar (m. bílstjór-
um)
SKODA EYÐIR MINNA.
Shooh
utejut
AUÐBREKKU 44-46.
c SiMI 42600.
/pz bílaleigan
^SIEYSIR
CAR RENTAL
V24460
í HVERJUM BÍL
PIONEER
ÚTVARP OG STEREO
KASETTUTÆKI
Bókhaldsaðstoð
meðtékka-
færslum
BÚNAÐAR-
BANKINN
I DAG hefst úrtökumótið um
landsliðssætin í karla- og
unglingaflokkunum og verður
spilað í félagsheimili Flug-
félagsins við Síðumúla. 20 pör
sóttu um f karlaflokki (eða rétt-
ara sagt flokki eldri spilara),
en 21 par f unglingaflokki.
Karlaflokkur
Arni Guðmundsson—
Bernharður Guðmundss., Rvík
Arni Þorvaldsson —
Sævar Magnússon, Hf
Ásmundur Pálsson —
Hjalti Elfasson, Rvík
Bragi Erlendsson —
Ríkharður Steinbergss., Rvík
Gísli Hafliðason —
Jón Magnússon, Rvík
Guðlaugur R. Jóhannsson —
örn Arnþórsson, Rvík
Gunnar Guðmundsson —
Örn Guðmundsson, Rvík
Gylfi Baldursson —
Sveinn Helgason, Rvík
Hallur Símonarson —
Þórir Sigurðsson, Rvík
Hannes Jónsson —
Oliver Kristóferss., Rvík
Hörður Arnþórsson —
Þórarinn Sigþórsson, Rvík
Jakob Armannsson —
Páll Hjaltason, Rvik
Jakob R. Möller —
Jón Hauksson, Rvík
Karl Sigurhjartarson —
Guðmundur Pétursson, Rvík
Sigfús Þórðarson —
Vilhjálmur Pálsson, Self
Símon Símonarson —
Stefán Guðjohnsen, Rvfk
Varapör:
Anton Valgarðsson —
Sigtryggur Sigurðss., Rvík
Armann Lárusson —
Lárus Hermannsson, Kóp
— 0 —
Unglingaflokkur
Björn Eysteinsson —
Ólafur Valgeirsson, Hf
Björn Friðþjófsson —
Jósteinn Kristjónsson, Rvík
Egill Guðjohnsen —
Jóngeir Steinarsson, Rvík
Guðmundur Sveinsson —
Þórir Sigursteinss., Rvík
Helgi Ingvarsson —
Kjartan Jónsson, Rvík
Helgi Jónsson —
Helgi Sigurðsson, Kóp
Hermann Lárusson —
Sverrir Armannsson, Kóp
Jón Baldursson —
Sigurður Sverrisson, Rvík
Jón Gíslason —
Snjólfur Ólafsson, Rvík
Jón P. Sigurjónsson —
Ólafur H. Ólafsson, Rvík
Kristín Ólafsdóttir —
Ragna Ólafsdóttir, Rvfk
Logi Þormóðsson —
Hjálmtýr Baldursson, Kvík
Maghús Theódórsson —
Sigfús Árnason, Rvík
Ólafur Lárusson —
Sigurjón Tryggvason, Rvík
Sveinbjörn Guðmundsson —
Viðar Jónsson, Rvík
Varapör:
Hróflfur Hjaltason —
Oddur Hjaltason, Kóp
Arsæll Másson —
Magnús Ólafsson, Rvík
Landsliðsnefnd:
Júlíus Guðmundsson
Ingi Eyvinds
Ólafur Þorsteinsson
Karlalandsliðið mun fara út
til keppni á Evrópumótið f
ísrael, en unglingarnir á
Evrópumótið í Kaupmanna-
höfn.
Að þessari keppni lokinni
munu 8 efstu pörin æfa og
keppa innbyrðis í hvorum
flokki. Keppnisstjóri í dag verð-
ur Guðmundur Kr. Sigurðsson
og hefst keppnin kl. 1. Spiluð
verða 120 spil.
A.G.R.
ORÐ í EYRA Á grunnskólastígi
Loksins er þá byrjað að
hanna og senda á markað bæk-
ur fyrir nemendur á grunn-
skólastígi, þó það skólastig sé
ekki til eftir íslenzkum lögum.
Var það ekki seinna vænna, því
ekki er um auðugan garð að
gresja í bókmenntalegum
ebbnum fyrir fólk á því stígi.
Má annars undarlegt heita, að
fyrst nú skuli byrjað að útbúa
lesebbni fyrir þetta gáfnastig,
því grunnskólanemdin hefur
verið að dunda sér við lagasmíð
árum saman, þó þfngmenn hafi
ekki séð ástæðu til að lögfesta
afurðir hennar.
Við alvörumenníngarvitar,
sem höldum okkur ótíentéruð-
um og öpptúdeit í menntamál-
um aungvusíður en maggnús-
torfi, höfum líka alltaf haft
grunnskólann í sigtinu. Það er
nebblega svo menníngarlegt að
tala um grunnskóla. Hvur getur
eigilega leingur komizt af með
jafngamaldags orð og barna-
skóli og úllíngaskóli? Það er
tæpast, að maður geti la-rt að
skrifa þau rétt.EðaGaggfræða-
skóli?
Reyndar var einkvur forn-
gripur að æsa sig útaf því á
dögonum, að gaggfræðaskól-
arnir yrðu hundrað ára á næst-
unni og það væri kostuleg
ammælisgjöf að leggja þá nið-
ur á aldarammælinu. Það væri
nær að leggja viður grunn-
skólanemdina, sem hefði
greinilega ekki slitið barns-
skónum enn. Og eins mætti
leggja maggnústorva niður
mennfngunni að kostnaðar-
lausu.
Auðvitað mótmælti Jakob
svona pfpi kröftuglega og benti
á, að grunnskólinn er nútíminn
og nabbnið geníalt, þó svo það
hafi orðið fyrir misheyrn í
síma. Og það er alveg klárt, að
mikill hluti svokallaðrar skóla-
æsku, sem æskusnobbarnir
seigja vera svo ebbnilega og
gáfaða, er mátulega grunnfær
til að vera í grunnskóla allan
liðlángan daginn og rúmlega
það.
Jakobi er eingin launúng á
því, að honum þykir sómi að
því að vera á grunnskólastigi,
þó það sé ekki til. En væntan-
lega stendur það nú til bóta, þvf
kannski gefst þíngmönnum
kostur á að samþykkja þennan
eftirmálsburð svenskra fyrir
nemdina og ráðherrann, áður
en sauðburður hefst að ráði.
Enda væri nú annaðhvort, fyrst
grunnskólastígið er staðreynd,
hvað sem háttvirtir alþíngis-
menn seigja.
Að minnsta kosti fæst von-
andi úr því skorið með vordög-
um, hvað þfngmenn eru á
grunnskólastígi og hverjirei.