Morgunblaðið - 09.03.1974, Blaðsíða 29

Morgunblaðið - 09.03.1974, Blaðsíða 29
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1974 29 ROSE- ANNA 50 St. Erikstorgi og fór rakleitt heim. Hann slökkti hér um bil strax. Sennilega er hann stein- sofnaður núna. — Það var fyrir tilviljun, að hún kom auga á hann, sagði Ahl- berg. — Hann getur hafa verið hér á hverju kvöldi. — Þó svo hafi verið, sannar það ekkert. — Ekki það? — Kolberg héfur á réttu að standa, sagði Martin. — Já, það hef ég áreiðanlega. Ég hef sjálfur laumast við hús hjá kvenfólki, sent ég hef verið að spá í. Ahlberg yppti öxlum. — Þá var ég að vísu mun yngri. Heilmiklu yngri, reyndar. Þeir héldu aftur á skrifstofuna og settust. Martin sagði ekkert. Hinir luku við taflið. Svo reis Kolberg upp. Velvakandi svarar i síma 10-100 kl. 1 0.30 — 1 1 30, frá mánudegi til föstudags % Starfsmönnum í heilbrigðis- og tryggingamála- ráðuneyti fjölgað um 125% „Velvakandi. Vinsamlega takið þetta til birt- ingar í blaði yðar: Nýlega kom greinargerð um fjölgun starfsmanna í ráðuneyt- um í fjölmiðlum, og kom þar i ljós, að fjölgun fastráðinna starfs- manna í ráðuneytunum f tíð nú- verandi rikisstjórnar er úr 216 í 258. Þegar nánar er að gætt kemur í ljós, að þessi fjölgun er býsna mismunandi eftir ráðuneytum, en þó er ljóst, að fjölgunun hefur orðið langmest i heilbrigðis- og tryggingamálaráðuneytinu. Þar voru árið 1971 starfandi fjórir fastráðnir menn, en eru nú 9, þannig, að fjölgað hefur um 125% í þessu eina ráðuneyti. Áður en Magnús Kjartansson tók við ráðherraembætti sinu var vitað, að hann hefði ekki hugsað sér að sitja aðgerðalaus í stóli sínum, en er þetta nú ekki full- mikið af þvi góða? Þetta væri reyndar ekki tiltökumál ef störf ráðuneytisins hefðu tekið ein- hverjum stakkaskiptum, en það er langt í frá eins og allir vita. En þarna er það sem sagt komið á hreint, að þessi ráðherra ætlar — Við sækjum hann aftur til yfirheyrslu og beitum hann eins mikilli hörku og við getum, sagði hann. Enginn svaraði. — Við byrjum upp á nýtt að skyggja hann og notum nýtt fólk. — Nei, sagði Ahlberg. Martin nartaði i fingurna á sér. Svo sagði hann. — Er hún farin að verða hrædd? — Það held ég ekki, sagði Ahl- berg. — Hún þarf meira til að láta skelfast en þetta. Þeir sögðu fátt fleira og að lok- um hélt hver á sinn stað. Daginn eftir var föstudagur. Nú voru aðeins þrír dagar til fyrstu mánaðamóta ársins og alltaf var veður rakt og grátt. Um kvöldið lagðist þoka yfir borgina. Kiukkan tíu mínútur yfir níu hringdi síminn og rauf kyrrðina í skrifstofu Martins. — Hann er kominn aftur. Stendur við strætisvagnastöðina. að verða afkastamestur í því að raða á ríkisjötuna eftir þvi sem frekast er kostur. Þá liggur næst fyrir að spyrja: Getur einn ráð- herra ráðið eins marga starfs- menn í ráðuneyti sitt eins og hann sjálfur vill? Rikisstarfsmaður." • Hvaðsegja neytendur? Sigrfður Sigurbjörnsdóttir skrifar: „Kæri Velvakandi. Nú, að loknum kjarasamning- um, er darraðardansinn hafinn fyrir alvöru og sú óumflýjanlega staðreynd er nú loks að verða almenningi ljós, að verðbólgan mun éta upp kauphækkanir fyrr en seinna. Þetta er raunar ekkert nýtt, það hefur alltaf verið svona, og verður líklega alltaf svona. Það, sem mér finnst hins vegar furðulegt, er það, hversu lítil áhrif neytendur sem sameinað afl hafa í þessu þjóðfélagi. Neytendasamtök hafa verið starfandi, en ekki hefur þess orð- ið vart í mörg ár, að þessi samtök láti mikið af sér leiða, og er það mikill skaði. Þeir, sem sjá að staðaldri blöð og tímarit frá nágrannalöndum okkar, vita, að þar eru starfandi kröftug neytendafélög og m.a.s. opinber neytendaráð, og fá þessir aðilar miklu áorkað. Það er ekki langt siðan neyt- endur hér urðu sér meðvitandi um það, að þeir gætu haft mikil áhrif, ef þeir aðeins stæðu saman og beittu sér, en alltaf st'endur á því, að eitthvað raunhæft sé gert. Þeir voru fimmtán sekúndum fljótari núna en áður. Hálf mínúta leið og Ahlberg gaf þá til kynna, að hann væri á sínum stað. Þessi endurtekning á atburðum var nánast óhugnanleg. Maðurinn Folke Bengtsson stóð i fjóra klukkutíma á staðnum. Nokkrum sinnum virtist hann ætla að hringja. Einu sinni fékk hann sér pylsu. Svo fór hann heim. Kol- berg fylgdi honum fast á eftir. Martin hafði orðið mjög kalt. Hann flýtti sér niður á skrifstofu sína og Kolberg kom skömmu síðar. — AHt rólegt. — Sá hann þig? — Hann gekk eins og svefn- gengill. Ég held ekki hann hefði tekið eftir því þótt fióðhestur hefði gengið samhliða honum. Martin hringdi til Sonju. — Það er laugardagur á morg- un. Ilann vinnur til klukkan tólf. Fylgstu með honum þegar vinnu hans lýkur og gríptu undir hand- legginn á honum og segðu: „Hæ, ég hef verið að bíða eftir þér. Hvers vegna hringirðu aldrei?" Eða eitthvað svoleiðis. Og svo læt- urðu þar við sitja. Og reyndu að vera ekki meira klædd en nauð- synlegt er. Hann þagði augnablik og bætti svo við. — Þú verður að leggja þig alla fram. Hann lagði tólið á og hinir tveir störðu á hann. — Hver er duglegastur að veita eftirför svo að engin hætta sé á að honum sé veitt athygli? — Stenström. — Sem sagt, frá því augnabliki, sem hann kemur út úr skrif- stofunni á að fylgjast með honum. Stenström sér um það. Skýrsla skal gefin um hvert hans fótmál. Við megum aðeins fara af skrif- stofunni einn f einu. Ahlberg og Kolberg störðu enn á hann, en hann tók ekki eftir því. Klukkuna vantaði tuttugu og tvær mínútur í átta, þegar starfs- dagur Stenströms hófst. Hann var í námunda við flutn- ingafyrirtækið þangað til klukkan var kortér yfir ellefu, þá gekk Það stoðar litið fyrir okkur að sitja álengdar með hendur i skauti og horfa með aðdáun á það, sem nágrannar okkar fá áorkað í þessum málum. % Verðlagseftirlit frá neytendum sjálfum Hér er svo margt óunnið. Til dæmis heyrir það til undantekn- inga, að hér séu vörumerkingar. Örfá fyrirtæki hafa þó séð sóma sinn í því að ganga á undan með góðu fordæmi og merkja þannig eitthvað af framleiðslu sinni, en þetta gerir þó lítið gagn þegar lítið er um þetta. Neytendur hér vita flestir ekki hvernig á að not- færa sér vörumerkingar, vegna þess hve óvanir þeir eru þeim. Mikið hefur verið rætt um verð- lagseftirlit hér — já, svo mikið, að maður er nú næstum orðinn ónæmur fyrir þeim umræðum. Það hlýtur að liggja í augum uppi, að eina virka verðlagseftirlitið hlýtur að koma frá neytendum sjálfum. Hér þarf að gefa álagn- ingu á vöruog þjónustufrjálsa.og þá geta menn treyst því, að neyt- endur verða ekki lengi að átta sig á því, hvar verðið er sanngjarnast og fyrir hvaða þjónustu á að borga í beinhörðum peningum. Því miður virðist svo sem því hafi verið komið inn hjá fólkinu í þessu landi, að kaupmenn og heildsalar séu einhverjir glæpon- ar, sem ekki sé treystandi fyrir neinu, og allra sízt þvi að verð- leggja sjálfir vöruna, sem þeir eru með á boðstólnum. Meðan ég var í vetrarfríinu hefur sá sem tók að sér sjúklingana mina læknað þá alla. VELVAKAIMDI FRAMHALDSSAGA EFTIR MAJ SJÖWALL OG PER WAHLOÖ JÓHANNA KRISTJÓNSDÓTTIR ÞÝDDI hann inn i kaffistofuna, settist við gluggann og beið. Þegar kiukkuna vantaði fimm mínútur í tólf varð hann var við Sonju Hansson á horninu á Norr- landsgötu. Hún var í þunnri blárri kápu og hafði bundið beltrð fast. Hún var i rúllukragapeysu innan undir. Hún hafði enga tösku og enga húfu á höfðinu, sem hefði þó ekki verið vanþörf á vegna veðursins. Hún gekk yfir götuna og hvarf úr sjónmáli. Starfsfólk fyrirtækisins tók að streyma út og að lokum kom Bengtsson, og læsti á eftir sér. Hann fór yfir götuna og þegar hann var kominn nokkur skref, kom Sonja Hansson hlaupandi til hans. Hún greip i handlegg honum, sagði eitthvað og horfði beint framan i hann. Svo sleppti hún takinu, en hélt áfram að tala, síðan gekk hún nokkur skref, snerist á hæli og hljöp áfram. Stenström hafði séð andlit hennar, og það hafði endur- speglað ákafa og gleði. Hann dáð- ist með sjálfum sér að ágætri frammistöðu hennar. Maðurinn stóð kyrr og fylgdi henni með augunum. Hann gekk nokkur skref, eins og hann ætlaði að kalla á hana, en hætti við það, ýtti höndunum niður i vasana og gekk álútur áfram. Stenström tók hatt sinn, borg- aði og gekk gætilega út úr veit- ingastofunni. Þegar Bengtsson fór fyrir hornið, lokaði hann dyr- unum á eftir sér og elti hann. Á Klarastöðinni sátu Martin, Ahlberg og Kolberg þegjandi. Þegar síminn hringdi loksins hafði Martin gripið tólið, áður en fyrstu hringingunni var lokið. — Það er Sonja. Eg held það hafi gengið vel. Eg gerði eins og þú sagðir mér að gera. — Ágætt. Sástu Stenström? — Nei, en hann hefur sjálfsagt verið á næstu grösum. Eg þorði ekki að lita um öxl, þegar ég hljóp i burtu. — Ertu kvíðin? — Ekki vitund. En gefur það ekki auga leið, að það þarf ekki einu sinni að sýna þeim neitt traust. Sá kaupmaður, sem hefði meiri álagningu en aðr- ir, f æri fljótlega á hausinn, og það með braki og brestum. % Dýr blóm Eitt langar mig til að minnast á hér, og það er hið gífurlega verð, sem er á blómum, bæði þeim, sem vaxa í pottum, og þeim, sem eru afskorin. Með mér starfar maður, sem var á ferð í Kaupmannahöfn um daginn. Hann sagðist hafa komið þar að sem maður var að selja túlípana, og kostuðu þeir um eina krónu stykkið, þ.e.a.s um fjórtán íslenzkar krónur. Hér kosta túlípanar um 90 krónur stykkið, og eru þannig margfalt dýrari en í Danmörku. Hér eru túlipanar ræktaðir í gróðurhúsum með jarðvarma, eft- ir því sem ég bezt veit, en í Danmörku eru þeir innfluttir á þessum árstima. 1 hverju liggur þessi geysilegi verðmisinunur? Hvað segja íslenzkir neytend- ur? Er þetta litla dæmi ekki eitt það, sem huga þarf að? Eg hirði ekki um að taka fleiri dæmi að þessu sinni, en vil leyfa mér að skora’ á neytendur að ranka nú við sér og fara að gera eitthvað raunhæft í málunum. Sigriður Sigurbjörnsdóttir." Velvakandi getur að ýmsu leyti tekið undir með Sigríði, en gæti það verið, að frjáls álagning væri á blómum hérlendis? Messur á morgun Dómkirkjan. Messa kl. 11 árd. Sr. Þórir Stephensen. Föstumessa kl. 2. Litania sungin. Passíusalmar. Sr. Óskar J. Þorláksson. Barna- samkoma kl. 10.30 í Vesturbæjar- skólanum við Öldugötu. Pétur Þórarinsson stud. theol. talar við börnin. Séra Óskar J. Þorláksson. Laugarneskirkja. Messa kl. 2 siðd. Barnaguðsþjónusta kl. 10.30. Séra Garðar Svavarsson. Hallgrimskirkja, Barnaguðsþjón- usta kl. 10 árd. Guðfræðistúdent- ar. Messa kl. 11. árd. Séra Páll Pálsson predikar. Sr. Jakob Jóns- son. Neskirkja. Barnasamkoma kl. 10.30. Séra Frank M. Halldórsson Guðsþjónusta kl. 2. Munið fórnar- viku kirkjunnar. Séra Jóhann S. Hlíðar. Fíladelfía í Keflavík. Guðsþjón- usta kl. 2. Sunnudagaskólarnir í Njarðvík og Keflavík kl. 11 árd. Kársnesprestakall. Barnasam- koma i Kársnesskóla. Guðsþjón- usta í Kópavogskirkju kl. 11. Séra Arni Pálsson. Digranesprestakall. Barnaguðs- þjónusta í Víghólaskóla kl. 11. Guðsþjónusta í Kópavogskirkju kl. 2 síðd. Séra Þorbergur Kristjánsson. Arbæjarprestakall. Æskulýðs- og fórnarvika kirkjunnar. Barna- samkoma kl. 10.30. Æskulýðs- guðsþjónusta kl. 2 í Arbæjar- skóla. Ungt fólk aðstoðar. Kvöld- vaka Æskulýðsfélagsins i skólan- um kl. 8.30. Fjölmennið og styðjið hjálpastarf kirkjunnar fyrir nauðstadda i Eþíópiu. Sr. Guð- mundur Þorsteinsson. Fíladelfía Reykjavík. Safnaðar- guðsþjónusta kl. 2 síðd. Almenn guðsþjónusta kl. 20. Einar Gísla- son Breiðholtsprestakall. Sunnudaga- skólarnir kl. 10.30. Guðsþjónusta í Fellaskóla kl. 2 síðd. Séra Lárus Halldórsson. Bænastaðurinn Fálkagötu 10. Sunnudagaskóli kl. 11 árd. Sam- koma kl. 4. Þórður M. Jóhannes- son. Grensásprestakall. Guðsþjónusta í tilefni af æskulýðs- og fórnar- viku kirkjunnar kl. 11. árd. Æsku- lýðskór KFUM & K flytur söng- bálkinn Eþíópía eftir séra Hauk Ágústsson. Útvarpað verður frá athöfninni. Sr. Halldór S. Gröndal. Dómkirkja Krists, konungs i Landakoti. Lágmessa kl. 8.30 ár- degis. Hámessa kl. 10.30 árd. Lág- messa kl. 2 síðd. Langholtsprestakall. Barnasam- koma kl. 10.30 árd. Sr. Arelíus Níelsson. Guðsþjónusta kl. 2 síðd. — Ræðuefni: Trúa menn enn á kraftaverk? Sr. Sigurður Haukur Guðjónsson. Óskastundin kl. 4 síðd. Sigurður Haukur Guðjóns- son. Háteigskirkja, Lesmessa kl. 9.30 árd. Barnaguðsþjónusta kl. 10.30 árd. Séra Arngrímur Jónsson. Messa kl. 2 síðd. Séra Jón Þor- varðsson. Fríkirkjan Reykjavik. Barnasam- koma kl. 10.30. Guðni Gunnars- son. Messa kl. 2 siðd. Séra Þor- steinn Björnsson. Fríkirkjan Hafnarfirði. Barna- samkoma kl. 10.30. árd. Guðs- þjónusta kl. 2 síðd. Ungt fólk að- stoðar. Aðalfundur safnaðarins eftir messu. Sr. Guðmundur Ósk- ar Ólafsson. K irk j u vogskirk j a. Fórnarvikan. Guðsþjónusta kl. 2 síðd. tekið við gjöfum til Konsó. Séra Jónas Gíslason. Bústaðakirkja. Barnasamkoma kl. 10.30 árd. Guðsþjónusta klukk- an 2 siðd. — Opið hús í Æskulýðs- heimilinu frá kl. 8.30 siðdegis. — Séra Ólafur Skúlason. Keflavíkurkirkja. Messa kl. 5 siðd. Barnaguðsþjónusta kl. 11 árd. Séra Björn Jónsson. Vtri-Njarðvíkursókn. Skátamessa í Stapa kl. 2. Séra Björn Jónsson. Framhald á bls. 23.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.