Morgunblaðið - 09.03.1974, Síða 30
30 MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 9. MARZ 1974
m idro iFRÉTIIR Ml Kun« 1
Meira af efni
fyrir þá ungu
SÍÐASTLIÐNA viku starfaði með okkur á íþróttasíðu Morgunblaðsins
ungur piltur úr Réttarholtsskólanum, Pétur Guðmundsson að nafni.
Pétur fylgdist með því hvernig dagblað verður til og aðstoðaði okkur
við skrif fþróttafrétta, eins og lesendur hafa eflaust tekið eftir. Hann
skrifaði m.a. um leikina, sem fram fóru á fjáröflunarkvöldi HSl undir
stöfunum PG.
Ástæðan fyrir því, að Pétur
vildi kynnast blaðamennsku, var
sú, að hann hafði ekki áhuga á að
kynnast neinni sérstakri starfs-
grein, en vegna áhuga síns á
íþróttum, sótti hann um að fá að
komast að hjá einhverri Iþrótta-
Þessi mynd svo og stóra myndin
sýna Arna aðstoða nemendur
sfna.
síðunni. Pétur er Valsmaður, að
vísu æfir hann ekki lengur, en í
andanum er Valur félag númer
eitt hjá honum.
Pétur segist vera nokkuð
ánægður með íþróttafréttir dag-
blaðanna, en þó sé þar algjörlega
sneitt hjá einum mikilvægum
þætti— íþróttum unga fólksins.
Íþróttalífið i Réttarholtsskól-
anum er mjög fjölbreytt, en þar
er Árni Njálsson íþróttakennari.
Hér á eftir fer viðtal við Árna,
skrifað af Pétri Guðmundssyni,
nemanda hans.
Allir þeir, sem fylgzt hafa með
knattspyrnu á undanförnum
árum, þekkja hinn ágæta lands-
liðs- og Valsmann Árna Njálsson.
Árni hóf að leika með meistara-
flokki Vals árið 1952, og lék um
260 leiki með liðinu auk 23 lands-
leíkjaogmilli 140-150 leikja með
úrvalsliðum. Sem fyrirliði Vals
tók Árni við verðlaunum fyrir
Bikarkeppni KSÍ árið 1965 og ís-
landsmótin 1966 og 1967. Sína
síðustu leiki í meistaraflokki lék
Árni á móti meisturum Ungverja-
lands i Evrópubikarkeppninni í
knattspyrnu, annarri umferð, árið
1967, en það er í eina skiptið, sem
fslenzkt knattspyrnulið hefur náð
lengra en í fyrstu umferð. S.l.
sumar var Árni aðstoðarþjálfari
hins sovézka þjálfara Vals.
Árni Njálsson er iþróttakennari
að mennt. Kennslustörf hóf hann
í Breiðagerðisskólanum árið 1956
og kenndi þar til ársins 1964, að
hann hóf kennslu við Réttarholts-
skólann. Þar hefur Árni haft með
marga að gera sem síðar hafa
orðið kunnir íþróttamenn og má
nefna sem dæmi þá Ólaf Bene-
diktsson Val, og Guðjón Magnús-
son, Víkingi, en þeir voru báðir i
HM-liði íslands. Hér á eftir fer
viðtal, sem undirritaður átti við
Árna fyrir skömmu-.
1
Skóla-
fólk
hjá
Morgun
blaÓinu
l
Fyrst spurði ég Árna, hvort
honum fyndist einhverju ábóta-
vant við kennslu og aðstöðu til
íþrótta í skólum?
Árni sagði, að það væri spor
aftur á bak, að skipta íþrótta-
sölunum í tvennt eða þrennt. Þar
væri aðeins verið að þjóna
íþróttafélögunum, sem aðstöðu
hefðu í íþróttahúsunum. Mann-
virkin væru hönnuð fyrst og
fremst með það í huga, að þar
væri helzt hægt að iðka innan-
hússknattleiki. Árni sagði, að
íþróttahúsin væru fátæklega og
illa búin af tækjum og áhöldum,
sæist varla munur á þessu frá því
var fyrir mannsaldri.
Næst spurði ég Árna, hvort
kennsla íþrótta ætti að vera meiri
í skólum?
Hann sagði,'að meira en einum
tíma á dag ætti að verja til kennsl-
unnar á hverja bekkjardeild. Auk
þess taldi hann, að skóli eins og
t.d. Réttarholtsskólinn, þar sem
eru um 800 nemendur, ætti að
hafa afnot af íþróttahúsinu í 2
tima á dag, eftir að venjulegum
skólatíma lyki. Iþróttakennarar
skólans ættu þar að skipuleggja
kennslu og hafa tilsögn í sem
flestum greinum íþrótta, þar sem
leitazt væri jafnan við að fá
reynda og þekkta iþróttamenn til
að koma í heimsóknir til sýni-
kennslu og til þess að ræða við
nemendur um viðkomandi
íþróttagreinar. Árni sagði það
skoðun sína, að íþróttakennslan
væri of einhliða. Nokkrar greinar
íþrótta, einkum knattleikir, væru
kenndar, en ýmsar aðrar aldrei
Pétur Guðmundsson
sýndar og sniðgengnar. Færi
þetta þó nokkuð eftir einstökum
kennurum. þar sem þeir hefðu
svo til frjálsar hendur hvað þeir
kenndu.
Þá var Árni að þvi spurður
hvort hann yrði sovézka þjálfar-
anum til aðstoðar i sumar?
Árni kvað svo ekki verða, en
sagði, að hann hefði verið i
nokkra mánuði með honum í
fyrra og sá tími væri sér
ógleymanlegur og kvaðst hann
aldrei hafa lært eins mikið um
knattspyrnu og þá, og vildi helzt
líkja tíma þessum við knatt-
spyrnuskóla.
— Verður Valsliðið eins sterkt í
sumar og á s.l. keppnistímabili,
spurði ég Árna?
— Valsliðið verður mun
sterkara nú en í fyrra, sagði Árni,
og bætti því við, að hættulegustu
mótherjarnir yrðu Keflavík,
Fram og ÍBV.
— Er mögulegt að koma hér á
fót atvinnuknattspyrnu?
Árni svaraði því til, að engin
grundvöllur væri fyrir atvinnu
mennsku hér. Til þess að slíkt
væri til umræðu, þyrfti að gjör-
breyta öllum rekstri og starfi
íþróttahreyfingarinnar. Aftur á
móti væri æskilegt, að félögin
gætu útvegað leikmönnum sínum
allan búnað, innri sem ytri, svo og
allan beinan útlagðan kostnað.
Að lokum var Arni að því
spurður hvort knattspyrnan væri
betri nú en var, þegar hann var í
eldlínunni, og hvort erlendu
þjálfararnir myndu gera henni
gagn.
Árni sagði, að það væri erfitt að
gera slikan samanburð. Hann
teldi þó, að knattspyrnan væri
betur leikin nú. Miklu meiri
þekking væri fyrir hendi og menn
æfðu meira en áður. Ný leikkerfi
hefðu rutt sér til rúms, þar sem
varnarleikurinn skipaði hásæti.
Þetta leiddi til þess, að ekki væri
skorað eins mikið af mörkum og
einstakir leikmenn væru minna
áberandi en áður, og því oft
minna þekktir af áhorfendum.
Um erlendu þjálfarana sagði
Árni:
Erlendu þjálfararnir koma til
með að veita nýju lífi inn í knatt-
spyrnuna og gefa henni frísklegri
blæ. Eg álít, að nú sé um viss
tímamót að ræða, sem erfitt er að
sjá hver endir verður á. Fjár-
málin skipta þar miklu máli.
Samanburður á íslenzkum og er-
lendum þjálfurum í knattspyrnu
er ekki raunhæfur. Erlendu þjálf-
urunum eru greidd 150—200 þús.
kr. á mánuði, en íslenzku
þjálfurunum ekki nema 15—20
þús. kr. Það er því ekki hægt að
gera sömu kröfur til þessara
þjálfara. Ég efast um, að sú leið,
sem nú er farin við þjálfun 1.
deilar liðanna, sé ré’tt. Ég óttast,
að um tímabundna „tizku“ sé að
ræða, og að félögin verði
ómegnug að ráðast í slíkt til
lengdar — því sé aðeins tjaldað til
einnar nætur. íslenzkir þjálfarar
hafa ekki til þessa fengið hliðstæð
tækifæri og erlendu þjálfararnir,
en vert er þó að minnast þess, að
t.d. Karl G uðmundsson náði mjög
góðum árangri er hann þjálfaði í
Noregi fyrir allmörgum árum, en
þar mun hann hafa haft nokkuð
góða aðstöðu. Eg held, að ef ís-
lenzku þjálfararnir fengju
svipaða möguleika og þeir
erlendu myndi árangurinn koma.
— PG.
Innan-
félagsmót
Innanfélagsmót á vegum
Frjálsfþróttadeildar KR fer
fram í Laugardalshöllinni 9.
marz kl. 13.15. Keppnisgreinar:
Stangarstökk og kúluvarp.
Lyftinga-
námskeið
BYRJENDANÁMSKEIÐ er að
hefjast í lyftingum á vegum
lyftingadeildar KR. Kennsla
fer fram í Sænska frystihúsinu,
3. hæð, við Skúlagötu. Gengið
er inn frá Skúlagötu.
Námskeiðið hófst mánudag-
inn 4. marz og stendur yfir í
fimm vikur. Kennslustundir
verða sem hér segir: A mánu-
dögum kl. 20—22, miðvikudög-
um kl. 20—22 og á laugardög-
um frá kl. 14—16, Leiðbeint
verður í olympískri tvíþraut og
alhliða uppbyggingu með lyft-
ingaáhöldum.
FH-ingar
ráða Skota
KNATTSPYRNUDEILD FH
hefur ráðið til sín þjálfara fyrir
næsta keppnistímabil. Sá er
skozkur og heitir Patrick
Quinn. Quinn tekur til starfa
hjá FH 15. marz n.k. og vænta
FH-ingar sér mikils af honum,
en sem kunnugt er hefur FH
verið á þröskuldi 1. deildarinn-
ar tvö undanfarin ár. Quinn lék
16 ár sem atvinnumaður með
skozku liðunum Glagsow
Rangers og Hibernian, og auk
þess með enska liðinu Black-
pool. Síðustu fjögur árin hefur
hann starfað á vegum skozka
knattspyrnusambandsins sem
skipuleggjari knattspyrnunám-
skeiða og um tima sem fram-
kvæmdastjóri 1. deildar liðsins
East Fife.
Byrjenda-
námskeið
Á VEGUM Frjálsíþróttadeildar
KR fara fram æfingar fyrir
byrjendur í Baldurshaga, saln-
um undir stúku Laugardalsvall-
ar, á föstudögum kl
18.20—20.00.
Þorsteinn
skorar
ÞORSTEINN Hallgrímsson
skoraði 16 stig í leik með liði
sinu SISU, gegn Virum í 1.
deildar keppni danska körfu-
knattleiksins um helgina, og
var næst stighæsti maður leiks-
ins, sem SISU vann 82—60.
Falcon hefur forystu i 1. deild-
ar keppninni þegar 16 umferð-
ir eru búnar, er með 32 stig,
SISU er í öðru sæti með 28 stig,
en Virum í þriðja sæti með 22
stig.