Alþýðublaðið - 11.08.1920, Síða 3
ALÞYÐUBLAÐIÐ
3
•: :: Vanti yður bifreið, þá gjörið svo vel að hringja
Njála
Og
Jónas Hallgrímsson,
Við lesum ósköpin öll og töl-
um um alt milli himins og jarðar.
'Og þetta skyldi engan undra, því
við fetum okkur eftir dagblaða-
dálkum, stiklum yfir almennar
bækur og þjótum yfir listaverka-
lista. Fróðleikurinn er mikill, þekk-
ingin minni og mentunin minst.
Það er einskis manns meðfæri
að þurausa mentalindir heimsins
og flestir velja þá það ráðið, að
glugga í yfirborðið. En mentun er
skilningur og flýtur ekki ofan á.
Þeir, sem hennar leita verða að
kafa djúpt, en oft nægir þeim að
kafa örfáar lindir, því flestar eiga
þær sameiginleg upptök. Góð bók
marglesin er manninum meira
virði en margar bækur einlesnar,
því eins og það er einkenni þess
sem illa er sagt, að heil hersing
ómyndugra orða lokast um litla
hugsun eða lítilfjörlega tilfinningu,
eins er það einkenni þess, sem
vel er sagt, að sérhver setning
opnar aðdáunarheima og þeir
verða ekki kannaðir í einu and-
artaki.
Við íslendingar erum það heppn-
ir að eiga slíkar bækur og þeirra
verk er það, að við teljumst ment-
uð þjóð. Njálu veit ég bezt skrif-
aða og kvæði Jónasar best orki
En hvað eru þeir margir, sem í
þessar bækur hafa sótt alt það,
sem sótt verður? Margir lesa Njálu
á hverju ári og þeim ber saman
um það, að hún sé betri við fimta
lestur en fyrsta, betri við fimtánda
en fimta. Og það er engin furða,
því sígilt listaverk vex með þroska
lesandans og verður aldrei tæmt.
Menn kannast við margt, vita
færra og skilja fæst. Þeir gera alt
á hlaupum, hafa ekki tíma til neins.
Þeir hafa hlaðið sig skyldum —
aðallega við sjálfa sig — og þeim
eru þeir altaf að gegna. Vitanlega
er þetta heimska, en það verður
varla hjá henni komist. En þó
Svona sé, þá úir og grúir hver
einasti dagur af auðum stundum
°g menn láta sér leiðast. Sumir
«*u hygnir og hafa með sér bók
t'l að grípa í, og auðu stundirnar
VerQa auðugastar.
En við eigum enga handhæga
útgáfu af listaverkum okkar og
höfum því afsökun. Vill ekki ein-
hver bókaútgefandinn losa okkur
við hana? Vill hann ekki vinna
sér og öðrum þægt verk og gefa
út smekldega vasaútgáfu af Njálu
og kvæðum Jónasar? Z
Vakna þu, sem sefnr!
Það þarf að gera vistlegra í
kirkjum vorum. Kalt ér á vetrum
svo menn skjálfa og veikjast. Of
heitt er á sumrum í kirkjunum
við viss tækifæri, og óloftið er
óþolandi. Þarna vottar fyrir stjórn-
leysi! —
Einhverjir eiga víst að sjá um
að vistlegt sé í kirkjunum.
Töluvert fé þarf til þess að hita
vel kirkjurnar, en það tjáir ekki
að horfa í það. Heilsa manna er
dýrmæt. —
Það ætti söfnuðinum að vera í
lófa lagið, að hafa góða loftræst-
ingu í kirkjum. Margir gluggar
eiga að vera á hjörum á báðum
hliðum kirkjunnar. Og glugga
þessa á að hafa opna þegar þörf
gerist, og lokaða þegar við á.
Helst af öllu ætti að hafa
þrennar til fernár dyr á kirkjunni.
Það er hentugt þegar eldsvoða
ber að höndum. En í sumarhita,
þegar margt er í kirkju, ættu allar
dyr að standa opnar og gluggar
einnig.
Safnaðarmenn eiga að taka að
sér til skiftis að sjá um að „guðs-
húsið" sé vistlegt og undirbúið
eins og við á í það og það
skiftið.
Hverjir annast það í dómkirkj-
unni að vísa til scetis, opna glugga
eða loka peim, opna hurðir eða
loka peim eftir hæfi?
Það lítur út fyrir að ekkert sé
um þetta hugsað. Þetta verk á
ekki að ætla einum manni, held-
ur mörgum. Sóknarnefnd eða
safnaðarnefnd á ekki að vera að-
eins til málamynda, eins og of
margar nefndir eru hjá oss. Vilja
réttir hlutaðeigendur athuga þetta
og fleira, sem ekki er nefnt hér,
viðvíkjandi kirkjunum, upphitun
þeirra, loftræstingu, hreinlæti og
\
í síma 716 eða 880. :: ::
fegurð — innan veggja og utan?
— Ekki einhverntíma, heldur nú
þegar.
Amicus.
Baðker úr gulli.
Rússneski prinsinn og franska frúini
Um þessar mundir vekur mál
eitt, milli rússnesks prins að nafni
Eliseieff og franskrar konu, Mlle
Brésil, mikla athygli í París.
Frinsinn hafði, með samningi, heit-
ið ungfrú Brésil nokkrum tugum
þúsunda franka í árlegar tekjur,
en svo brást loforðið, er til efnd-
anna kom. En ungfrúin hafði £
sínum höndum verðmikla innan-
stokksmuni, er prinsinn átti; meðal
annars baðker eitt úr skfru gulli,
er kostar um hundrað þús. franka.
Heimtar Mlle Brésil að sér séu
dæmdir munirnir upp í launinl
en prinsinn er orðinn leiður á
henni og vill þá náttúrlega losna
við allar fjárframlögur og halda
munurn sfnum.
líæjarmóriim.
Hver er ástæðan til þess, að
bæjarmórinn er nú svona gífurlega
settur upp? Hefir kaup þeirra sem
að honum vinna hækkað um svona
margar prósentur síðan í fyrra? —
Eða gengur bærinn á undan í okri
og uppskrúfun. Kolaverðið er nú
allsæmilega hátt hér í bæ, en þó
munu áhöld um, hvort ekki er
betra að kaupa þau, en móinn nú.
J.
Ungnr frægnr hershöfðingi,
Tongachewski.
Samkvæmt skeytum Bolsivíka
tii Parfs, heitir sá Tougachewski
sem stjórnar innrásinni í Pólland.
Það var hann sem í broddi fylk-
ingar i. herdeildar Rússa réði
niðurlögum þeirra Koltschaks og
Denikins.
Hann er að eins 27 ára að aldri.