Morgunblaðið - 17.07.1974, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ. MIÐVIKUDAGUR 17. JULl 1974
7
Kjamorkufriður
við Miðjarðarhaf?
ÞEGAR Nixon forseti lofaði
að selja Egyptum og ísraels-
mönnum kjarnorkuofna —
sem var athyglisverðasta
skuldbinding hans í ferðinni
til landanna fyrir botni Mið-
jarðarhafs — þá var hann að
nokkru leyti að framfylgja
stefnu, sem Eisenhower
fyrrv. forseti og ráðgjafi hans
í kjarnorkumálum mótuðu
árið 1967, á valdatíma
Lyndon Johnson.
Síðarnefnda stefnan
miðaði að því að auðvelda
frið, með því að rækta hin
hrjóstrugu landamærasvæði
milli Egyptalands og ísraels
(og lengst í suðri) milli
Jórdaníu og ísraels. Að-
ferðin, sem þeir mæltu með,
til þess að ná þessu marki,
var að setja niður þrjú kjarn-
orkuver á þessum landsvæð-
um og framleiða næga orku
til þess að hægt væri meðal
annars að vinna mikið magn
af ósöltu vatni úr sjó til þess
að veita á eyðimörkina.
Lewis Strauss aðmíráll
gerði drög að áætlun þessa
efnis strax eftir sex daga
stríðið í jún! 1967, þegar
Israelsmenn unnu sigurá ná-
grönnum sínum, Aröbum.
Strauss sendi forsetanum
fyrrverandi þessi drög að
áætlun strax þann 23. júní
'67 til heimilis hans í Gettys-
burg.
Eisenhower gerði sér
þegar grein fyrir því, að þessi
áætlun fól í sér möguleika á
að koma á friði. Hann vakti
athygli Johnsons, þáverandi
forseta, á henni, bæði í eigin
persónu og með aðstoð
Llewellyn Thompsons, sendi-
herra, sem hafði verið falið
að gefa honum skýrslur um
samtal Johnsons við sovézka
forsætisráðherrann Kosygin,
sem fram fór í Glassboro,
New Jersey. Hann stakk upp
á því, að Johnson ræddi
þetta mál við Kosygin. En
það lítur út fyrir, að það hafi
ekki verið gert.
Niðurstaðan, sem Eisen-
hower komst að eftir að
hafa athugað áætlun
Strauss, var sú, að hún yrði
áþreifanlegur ávinningur
fyrir bæði Araba og ísraels-
menn, og að þá yrðu úr sög-
unni undirstöðuatriði spenn-
unnarmilli þeirra. Þeirfengju
ekki aðeins ný orkuver,
heldur einnig stórkostlegt
magn af fersku vatni á land-
svæði, sem síðan gæti orðið
heimili hinna óhamingju-
sömu Palestínu-Araba.
Eisenhower minntist friðar-
tilraunarinnar 1955, þegar
hann sendi Eric Johnston til
Mið-Austurlanda í könnunar-
ferð, þegar hann sagði við
mig (10. júlí, 1967): „Þetta
lætur áætlun Johnsons líta út
eins og smáhól við hliðina á
fjalli."
Eins og Eisenhower
fannst, þá eiga Bandaríkin að
eiga frumkvæðið í að takast á
við hinn „raunverulegu
vandamál" þessa svæðis,
vatnsskortinn og flótta-
mannavandamálin. Það var
þörf fyrir tvö eða þrjú kjarn-
orkuver til þess að fram-
kvæma þessa hugmynd, að
framleiða 750—1000
milljón gallona af fersku
vatni daglega. Hann bætti
við: „Þeim mun stærri, sem
kjarnorkuverin eru, þeim
mun hagstæðari eru þau fjár-
hagslega. Þetta vatn munai
kosta meira en vatnið fyrir
New York borg, en það er
ódýrt fyrir land, sem hefur
ekkert vatn. Og Sýrland,
Jórdanía, ísrael og Egypta-
land myndu hafa svo mikið
gagn af þessari áætlun, að
fólkið í þessum löndum
myndi ekki leyfa ríkisstjórn-
um sínum að neita þátttöku."
Því miður, þá var þeim
aldrei opinberlega gefið tæki-
færi á því. Eftir því sem ég
kemst næst, kastaði Johnson
frá sér hugmyndinni. Þó
Eisenhower-Strauss áætlunin
gerði ráð fyrir tveimur kjarn-
orkuverum við Miðjarðar-
hafið (á hlutlausa svæðinu
milli ísrael og Egyptalands)
og því þriðja við Akaba-flóa
(en að honum eiga bæði ísra-
el og Jórdanía land) þá varð
þessi áætlun að engu.
Áætlunin gerði ráð fyrir
sameiginlegum fjárfram-
lögum frá Bandaríkjastjórn
og einkaaðilum, sem myndu
mynda hlutafélög, til þess að
byrja á framkvæmdum jafn-
vel áður en búið var að semja
um landamæri ríkjanna, sem
hlut áttu að máli Þessi áætl-
un hefði veitt þessu land-
svæði rúmlega tvisvar
sinnum meira vatnsmagn
heldur en vatnsveitukerfi
Jórdanárinnar, og fram-
kvæmd hennar hefði veitt öll-
um hinum aðgerðalausu
Arabaflóttamönnum atvinnu.
Því miður fékk þessi hug-
myndaríka áætlun ekki náð
fyrir augum ríkisstjórnar og
Hvíta hússins árið 1 967.
Nixon-Kissinger stefnuna
hefur forsetinn að mestu
markað (hann var raunar
varaforseti Eisenhowers) og
hún mun verða lífvænlegur
en síðbúinn staðgengill fyrri
hugmyndarinnar, sem dó í
fæðingu. Hún er í höfuðatrið-
um sú sama — miðar að þvi
að hjálpa og friða bæði Araba
og ísraelsmenn, og einnig að
því að skapa mannlegri og
betri efnahagslega aðstöðu
til að grundvalla frið á.
Engar skuldbindingar
virðast hafa verið gerðar um
landsvæði Jórdaníu og ísra-
els við Akabaflóa. Maður
getur heldur ekki ennþá
tengt formlega hina tvo hluta
áætlunarinnar — hinn ara-
bíska og hinn ísraelska — né
rannsakað til hlítar fjármögn-
unarvandamálin og efna-
hagsflækjuna. Samt sem
áður ræddu Nixon og ísra-
elskir ráðamenn í smáatrið-
um möguleikann á þvi að
eima vatn með kjarnorku, og
sömuleiðis ræddi forsetinn
málið á breiðum grundvelli
við Sadat Egyptalandsfor-
seta.
Áætlun Nixons og Kiss-
ingers miðar greinilega að
þvi að skapa nauðsynlegar
stjórnmálalegar og mann-
legar aðstæður til friðar áður
en þeir leggja fjárhagslegan
grundvöll; og það getur
reynzt hyggilegt. Allavega er
markmiðið hið sama: varan-
legur friður í MiðAusturlönd-
um og (eins og Strauss sagði
í fyrstu áætluninni): Byrjun á
nýju lífi í landi hinnar elztu
menningar."
(ÞýS: J.Þ.Þ.)
Sá sem vill eignast vel með farinn Saab 96. Hringi í síma 41 888. íbúð til leigu 4ra herb., teppalögð við Háaleitis- braut. Tilboð sendist afgr. Mbl. merkt „Góður staður — 5285”.
Hewlett—Packard 45 Til sölu ný HP—45 vasatölva. Mjög hagstætt verð. Simi: 19086. íbúð 1 — 2 — 3 ja herb. á 1. — 2. hæð í austurbænum óskast strax til leigu, ein í heimili. Upplýsingar í sima 1 61 04 milli kl. 4 — 6
Spariskírteini Er kaupandi að verðtryggðum spariskírteinum rikissjóðs að upp- hæð nokkur hundruð þúsund krónur. Tilboð sendist Morgunblaðinu merkt: „Spariskírteini 5284”. Ibúð óskast. Námsmaður óskar eftir 2ja — 3ja herb. íbúð til áramóta. Tvennt í heimili. Upplýsingar i sima 1 2745 eftir kl. 19.00.
Einkamál. Reglusamur ungur maður óskar eftir að kynnast stúlku á aldrinum 22 — 35 ára með sambúð i huga. (Má eiga börn.) Á ibúð og er i góðri atvinnu. Tilb. sendist Mbl. merkt „Traustur — 5286". Vantar húsnæði fyrir 500 — 1000 hænur í nágr. Rvikur og fyrir 2—4 hesta i haust. Svar óskast sent Mbl. fyrir föstudag merkt: „Húsnæði 5283”.
Til sölu Citroen D super árg. '71 Sparneytinn bíll. Vinrauður. Ekinn 60 þús km. Bill i toppstandí. Einn eigandi. Skoðaður '74. Skipti koma til greina á ódýrari. Uppl. iS. 20160 — 37203. íbúð til leigu 3ja — 4ra herb. við Hvassaleiti. Tilboð er greini fjölskyldustærð og greiðslumöguleika leggist inn á Mbl. eigi síðar en föstudag 19. júli merkt „5288".
Til sölu Opel station '63 og Hilman imp '63. Einnig er til sölu á sama stað góður vatnabátur. Upplýsingar i síma 51 006. Til sölu bandslýpuvél, full stærð. Uppl. i sima 93 — 6271.
Til sölu Kæliskápur tviskiptur, 50 litra suðupottur og BPH þvottavél eldri gerð. Simi 50960 eftir kl. 19 daglega. 3. —4. herb. ibúð óskast til leigu, þrennt fullorðið i heimili. Mikil fyrirframgreiðsla. Nánari upplýsingar i sima 1 5959, frá kl. 9 — 5.
Bíll til sölu. Rambler american station árg. '65. Fallegur bíll. Uppl. í síma 41 388. Trilla til sölu 2.75 tonna með nýjum dýptarmæli, stýrishúsl, lúkar, allt í mjög góðu ástandi. Upplýsingar i sima 40863.
Keflavík — Suðurnes Tannlæknastofan Tjgrnargötu 7, verður lokuð frá 16. júli — 12. ágúst. Garðar Ólafsson, tannlæknir. Óskum að ráða offsetprentara (pressumann). Prentsmiðja Guðjóns Ó, Langholtsveg 111.
Bátar til sölu
218 tonna stálskip í framúrskarandi góðu
ástandi.
70 tonna eikarbátur endurbyggður.
8 tonna nýr eikarbátur.
Mjög hagstæð kjör.
Guðmundur Ásgeirsson,
Vélabókhalds og viðskiptaþjónustan,
sími 9 7-7177, Neskaupstað.
Öllum þeim, sem tóku þátt i leitinni að Reyni Dagbjartssyni, sem
fórst af slysförum 2. júní þökkum við af alhug. Viljum við þar nefna
Slysavarnarfélag fslands. slysavarnardeildirnar á Akranesi og i Borgar-
fjarðar og Mýrarsýslum. Einnig vini og venslafólk og alla aðra sem þar
lögðu fram liðsinni sitt. Ykkur öllum biðjum við guðs blessunar og
farsældar i starfi.
Sigríður Kristjánsdóttir, Dagbjartur Majasson,
Björk Dagbjartsdóttir, Sólveig Hauksdóttir,
Sólveig Kjartansdóttir, Haukur Jóhannsson.
Citroen
Dyane '74
ekinn 2700 km. er til sýnis og sölu í dag.
Globusr
Lágmúla 5, simi 81555.