Alþýðublaðið - 12.10.1930, Side 4
▲EÞyÐOÐ&AÐIÐ
4
Gððar og ódýrar vornr.
Nokkur sett Karlmannsfatnaðar verða seld með sérstaklega
tágu verði, nokkur stykki Kvenregnkápur frá kr. 19,50, Vetrar-
kápur á konur, nokkur stykki frá kr. 16,90. Telpuvetrarkápur
afar-ódýrar. Kvenkjólar úr silki seljast afar-ódýrt, Morgunkjól-
ar frá 3—5 krónum. Náttkjóíar, stórt úrval, frá 3 krónum. Kven-
buxur frá kr. 1,35. Kvenbolir frá kr. 1,25. Silkinærfatnaður,
stærsta úrval í borginni. Sængurveraefnið bláa og bleika, 4,95
í verið. Stóru Koddaverin til að skifta í tvent, gjafverð. Það,
sem eftir er af silfurplettvöru, á að seljast upp fyrir lítið verð.
Komið og kaupið mikið fyrir litla peninga.
Klöpp,
Laugavegi 28.
Sími 1527.
Samvinmifélag fiskveiðibænda
f Vatnsleysustrandai hreppi.
Nýlega hefiir verið stof nað sam-
vinnufélag fiskveiðibænda í
Vatnsleysustrandarhreppi í Gull-
bringusýslu (Vatnsleysuströnd og
Vogum) í þeim tilgangi að koma
á fót skipulagsbundinni samvinnu
meðal félagsmanna í fiskveiðum,
verkun og sölu á fiski og fisk-
áfurðum og um imnkaup á veið-
arfærum og öðru þvi, er að fisk-
veiðum og fiskverkun lýtur og
þeir þurfa á að halda, enn fiemur
til að koma á samvinnu um
byggingu og starfrækslu íshúss,
veiðarfæragerð, lýsisbræðslu,
fiskimjölsgerð, og í öllum öðrum
Kveðjuhljómleikar
Einars Markans verðla í dag
kl. 3 í Nýja Bíó.
Ristir djúpt.
„Morgunblaðfið“ segir i gær, að
„Dettifoss“ sé 235 fet á lengd og
236 fet á dýpt, þ. e. að hann risti
einu feti dýpra en hann er lang-
ur. Þetta mun þykja ótrúlegt, og
varla kemur þetta af stað neinum
grun urn, að ritstjórar „Morgun-
blað)sins“ risti dýpra en haldið
hefir verið til þessa.
Danzskóli Rigmor Hanson
byrjar á morgun í salnum í
Varðarhúsinu, eins og auglýst er
hér í blaðinu. Hún kom heim
með ,,Dettifossi“ beina leið frá
Lundúnum. Hún kennir nýjustu
samkvæmisdanzana í danzskóla
sinuni og heima í einkastundum.
Mentaskólinn á Akureyri.
Steindór Steindórsson náttúru-
fræðingur hefir verið settur kenn-
ari við skólann.
Kennarar við barnaskóla.
Valdimar Össurarson hefir ver-
ið settur kennari við barnaskól-
iðnaðargreinum, er sianda í sam-
bandi við sjávarútveg, samkvæmt
þvi, sem segir í samþyktum fé-
lagsins. Enn fremur er tilgangur
félagsins að vinna að umbótum
á veiði- og sölu-aðferðum, auk-
inni vöruvöndun og sem full-
komnastri hagnýtingu aflans.
Félagið safnar fé í tryggingar-
og rekstursrsjóði.
Framkvæmdastjóri félagsins er
Árni Klemenz Hallgrímsson í
Ausiurkoti i Vogum.
Samþyktir félagsins voru gerð-
ar 20. júlí s. 1. Heitir það Ot-
gerðarfélag Vatnsleysustrandar.
ann í Sandgerði, Gunnlaugur
Jónsson skipaður kennari við
barnaskólann á Akranesi og Guð-
jón Hallgrímsson settur kennari
þar, Kriistín Jóhannesdóttir sett
kennari viö barnaskólann' í Filatey
á Breiðafirði, Sigurður Heiðberg
skipaður kennari við heiman-
gönguskólann í Tólknafirði, Þor-
leifur Bjarnason settur kennari
við barnaskólann á Suðureyrivið
Súgandafjörð, Hannibal Valdi-
marsson skipaður kennari við
barnaskólann í Súðavík, Gunn-
laugur Halldórsson skipaður
kennari við heimangönguskólann
á Svalbarðsströnd í Suður-Þing-
eyjarsýslu,' Eiinarína Guðmunds-
dóttir sett kennari við barnaskól-
ann á Eskifirði og Hjörtur L.
Jónsson (ekki Hjörtur Ólafsson)
isettur kennari við barnaskólann
í Grindavik. /
Gagnfcæðaskólian í Vestmanna
eyjum.
Þorsiteiinn Þ. Víglundarson hefir
verið settur skólastjóri gagn-
fræðaskólans.
Manntal á aö fara fram um
landið alt 2. dezember í haust.
Vilji verkatnanna.
Að eins Alpýðusamband íslanðs.
Á fundi verkamannafélagsins
„Dagsbrúnar“ í gærkveldi var
samþykt með miklum atkvæða-
mun tillaga félagsstjórnarinnar,
sem birt var hér í blaðinu í
fyrra dag, gegn, stofnun sérstaks
verklýÖssambands.,
Ivað er að frétta?
Tagararnir. Afli „Sindra“, sem
kom af ísfiskveiðum í gærmorg-
un, var 700 körfur. — Enskur
togari kom hingað í gær til að
fá vistir.
Skipafréttir. „Esja“ var væntan-
leg til Hornafjarðar kl. 10 í
morgun. „Suðurland" kom í gær
úr Borgarnessför. — Skip, sem
nýlega kom með timbur til Árna
Jónssonar, fór aftur í gær.
Isfisksala. ,,Skallagrímur“ seldi
afla sinn í Englandi á miðviku-
daginn fyrir 970 sterlingspund.
Hann er á heimleið.
Hfúskapur. 4. þ. m. voru gefin
saman í hjónaband ungfrú Ingi-
björg Jónsdóttir og Lúðvík
Bjarnason verzlunarmaður. Séra
Friðrik Hallgrímsson gaf þau
saman.
Hjálprœdisherinn. Samkomur i
dag: Helgunarsamkoma kl. 101/2
árd. Sunnudagaskóli kl. 2. Úti-
samkoma á Lækjartorgi kl. 4.
Barnasamkoma kl. 6. Hjálpræðis-
samkoma kl. 8. E. W. Roe kapt.
stjómar. Strengjasveitin og lúðra-
flokkurinn aðstoða. Allir vel-
komnir.
Hornbjargsvitinn. Kveikt var á
honurn 26. f. m. !
Uppsetning vidtœkja. Ríkisút-
varpið hafði fyrirhugað að stofna
til námskeiðs nú í haust, þar
sem uppsetningamenn viðtækja
gætu fengið ókeypis tilsögn í
uppsetningu tæk|ja, jmeðferð og
helztu viðgerðum. En er til fram-
kvæmda skyldi koma, þótti eigi
hyggilegt að fastbinda ákveðinn
tíma til þes&arar tilsagnar, vegna
óhentugra skipafer'ða, óþæginda
og kostnaðar fyrir hlutaðeigandi
menn við að sækja slíkt náms-
skeið. Nú hefir aftur á móti
verið ákveðið, að þeir menn, sem
hafá í hyggju að annast upp-
setningar og viðgerðir viðtækja,
fái, í haust og framvegis ókeypis
tilsögn, í framangreindum efnum,
er þeir eiga ferð til Reykjavíkur
eða gera sér ferð í þeim til-
gangi. Tilsögnina annast Við-
tækjaverzlun ríkiisins, og ber
mönnum að snúa sér til fram-
kvæmdastjóra hennar, herra
Sveins Ingvarssonar í Lækjargöíu
10, Reykjavík. (FB.)
Hjónaband. I gær voru gefin
saman í hjónaband Guðlaugur
/Einarsson bifreiðarstjóri og ung-
frú Katrín Regina Frimannsdóttir.
Heimili þeirra er a'ð Vesturgötu
51C. Séra Jón Árnason gaf þau
saman.
7
dagar
eru í hverri viku, og hver
dagur kostar peninga. Ef
pér kaupið vöruryðari VÖRU
HÚSINU 6 daga vikunnar,
pá getið pér 7. daginn skemt
yður fyrir pá peninga, sem
pér hafið grætt á pvi að
verzla við VÖRUHÚSIÐ.
Komið því nú þegar og skoð-
ið okkar fallega úrval af alls
konar
‘klæðnaði
bæði fyrir fullorðna og börn,
og þér munuð s.annfærast um,
a'ð við bjóðum yður góðar
vörur fyrir saningjarnt verði
NB. Síðústu dagana höfum við
fengið mikið og smekklegt
úrval af
karlmannafrökkum og
karlmannafötum.
Komið og skoðið vörurnar.
Það kostar ekkert.
Llfor og h]ortn
ódýrnst.
KLEIN,
Baldursgötu 14, Sími 73.
m* Sendisvein vantar.
G. Bfapnason & Fjeldsted
Orgelkensla. Eins og að
undanföinu kenni ég undirritaður
orgelspil. Lárus Jónsson, Kirkju-
vegi 19, Hafnarf rði.
MUNIÐ: Ef ykkur vantar hús-
gögn ný og vönduð — einnig
notuð —, þá komið í fornsöluna,
Aðalstræti 16, sími 1089 eða 1738.
Fransmenn ðrnkkna.
Þrjátíu franskir fiskimenn
drukknuðu við Morbihan-strönd-
ina 23. f. mán. Það var ofviðlri
þann dag, er skall á skyndilega.
Ritstjóri og ábyrgðarmaður:
Haraldur Guðmundsson.
Alþýðuprentsmiðjan.