Morgunblaðið - 17.08.1974, Blaðsíða 5

Morgunblaðið - 17.08.1974, Blaðsíða 5
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. AGÚST 1974 5 Umgerð sem fylla þarf út í Segir Már Elísson um 200 sjómílna hugmyndina á hafréttarráðstefnunni MÁR Elísson, fiskimálastjóri, er nýkominn heim frá Caracas í Venesuela, þar sem hann sat haf- réttarráðstefnu Sameinuðu þjóð- anna. Verkefni ráðstefnunnar eru æði umfangsmikil. Þar er ekki einvörðungu fjallað um land'- helgismálefni. Hafréttarreglur eru þar í heild til meðferðar. Ráð- stefnunni er skipt í undirnefndir, sem hver um sig fjallar um ákveð- in verkefni. Már Elísson sat f þriðju nefnd, sem hefur m.a. til meðferðar réttarreglur um verndun hafsins og vísindalegar rannsóknir. Hann greinir hér frá helstu sjónarmiðum og viðfangs- efnum ráðstefnunnar. — Fyrst svaraði Már þeirri spurningu, hverngi horfur væru á samkomulagi þeirra mörgu þjóða, er þarna sitja á rökstólum. — Þegar ég fór frá Caracas, var útlitið sannast sagna ekki sérlega bjart. En á það er að líta, að horfur eru sjaldnast góðar í miðj- um samningum. Ef menn hafa gefið sér ákveðna lokadagsetn- ingu, er oftast nær deilt fram á síðustu stundu. Þó að ekki hafi þokazt verulega áleiðis í átt að samkomulagi, hafa línurnar í þessum efnum skýrzt til mikilla muna. — Þá svaraði Már þeirri spurn- ingu, hvað hafi raunverulega haft mesta þýðingu fyrir Islendinga af því, sem þegar væri fram komið á ráðstefnunni. — Það mikilvægasta frá okkar sjónarhóli er tvímælalaust yfir- lýsingar stórveldanna, þar sem þau fallast á hugmyndina um 200 sjómílna lögsögu. En við verðum að gera okkur grein fyrir því, segir Már, að 200 sjómílna hug- myndin er aðeins umgerð, sem fylla þarf út í. Sumar af þessum tillögum eru okkur ekki hag- kvæmar. — Að hvaða leyti geta tillögur um 200 sjómílna lögsögu verið okkur óhagstæðar? — Eg held, segir Már, að það hafi skýrt komið fram I yfirlýsing- um Austur-Evrópuþjóðanna og Breta t.d., að þeir vilja fallast á 200 sjómílna lögsögu, gefa okkur 200 mílur, ef þeir fá svo beint eða óbeint I gegnum svæðastofnanir ítök I þvl, hvernig auðlindalögsag- an verður nýtt. Inn I þá mynd koma svæðasamtökin, sem þeir vilja gefa ákveðin völd til þess að ákveða aflahámark og hafa á hendi ráðgjöf um skiptingu aflamagnsins. Þá er það þeirra sjónarmið, að þessar stofnanir eigi að hafa úrskurðarvald, ef deilur rísa. Við höfum ekki verið hrifnir af slíkum hugmyndum. Að því leyti eru þessar hugmyndir okkur I óhag, þó að þær fjalli um 200 mllna lögsögu. Þó hygg ég, að óhætt sé að segja, að þessi mál- efni hreyfist I rétta átt. — Hvaða ljón eru helzt I vegin- um fyrir samkomulagi? Már svar- ar þeirri spurningu með nokkrum orðum: — Við verðum að átta okkur á, að hér er um flókið viðfangsefni að ræða. Það skortir oft á, að menn geri sér glögga grein fyrir því og sundurgreini vandamálin. Aðstæður allar eru svo breytileg- ar eftir heimshlutum, að útilok- að er að tala um einkarétt hvers strandríkis til 200 mílna auðlinda- lögsögu. I öllum tilvikum að því er fiskveiðar varðar. Víða eru að- stæður með þeim hætti, að sama veiðisvæðið liggur að mörgum rfkjum. I þvl sambandi má t.d. nefna Norðursjóinn, Karabíska- hafið, Guíneuflóann, Persaflóa, Bengalflóa og raunar fleir svæði. Norðmenn veiða I Norðursjónum, en I Barentshafi verða þeir af landfræðilegum ástæðum að leita samninga við Sovétríkin. Þegar á þessar staðreyndir er litið, er ljóst, að reglurnar um 200 sjómilna auðlindalögsögu verða að vera margskonar. Einkaréttur- inn gildir ekki I öllum tilvikum. — Már svarar því næst spurn- ingunni um það, hvaða rfkjum tslendingar hafi átt samleið með á ráðstefnunni: — Við höfum haft samráð við fjölmargar þjóðir. I því sambandi má nefna, að við höfum átt sam- leið með þjóðum eins og Kanada, Nýja-Sjálandi og Ástralíu. Þessar þjóðir gera ráð fyrir því, að þær muni leyfa öðrum þjóðum að taka þátt I nýtingu fiskistofnanna, en undir sinni eigin stjórn. Að öðru leyti tefla þær fram svipuðum sjónarmiðum og við varðandi sjálfa Iögsöguna. Við höfum hins vegar ekka viljað ljá máls á þvi að skuldbinda okkur til að hleypa öðrum þjóðum inn I lögsögu okkar, jafnvel þó að við hefðum stjórn veiðanna með höndum. Þau ríki, sem lýst hafa yfir fylgi við 200 mílna hugmyndina, kvarta gjarnan um það, að hörðustu rfk- in hafi ekkert látið undan I kröfu- gerð sinni til þess að koma til móts við þau I væntanlegu sam- komulagi. Þessi ríki, bætir Már A ÁRSFUNDI Betel-elliheimilis stofnunarinnar I Kanada I sumar var samþykkt að stofna nýtt Bet- el-heimili með herbergjum og að- stöðu fyrir 60—70 aldraða Vestur- tslendinga. Verður leitað tand- rýmis fyrir hið nýja heimili I Winnipeg, þar sem fjöldi aldr- aðra Vestur-Islendinga hefur eytt ævikvöldi sfnu og kýs að dvelja,aó þvf er segir I Lögbergi-Heims kringlu. Gerir nefndin sér vonir um, að heimilið verði komið upp I árslok 1975 eða snemma á árinu 1976. En skilyrði þess, að hafizt verði handa, er, að nægilega mik- ið berist fyrirfram af beiðnum um dvalarvist þar, samkvæmt reglum, sem sjúkrahúsanefnd Manitoba hefur sett. Betel-stofnunin á sér langa sögu og merkiléga I Manitoba- fylki. Heimilið á Gímli var fyrsta elliheimilið I Manitoba, stofnað af litlum éfntfm fýrlr 62 árúm. Það er nú notalegt og glæsilegt heim- við, vilja fá fram yfirlýsingu um, að þau ríki, er ekki geta sjálf nýtt fiskistofnana á sinum eigin mið- um, heimili öðrum þjóðum að- gang þar að. — Þá inntum við Má eftir af- stöðu Afríkjuríkjanna og annarra nýfrjálsra ríkja. — I þessu sambandi má segja, að sum strandríki og þá sérstak- lega Afrikurfkin og tvö til þrjú ríki í Suður-Amerfku geri lítinn greinarmun á auðlindalögsögu og svo sjálfri landhelginni. Þar er komið að þeim vanda, sem alþjóð- legar siglingar hafa í för með sér. Mörg ríki, sérstaklega stórveldin og eins minni þjóðir eins og Norðurlandaþjóðirnar, fallast ekki á, að einstakar þjóðir geti sett sér reglur um siglingar skipa Félanslíf Nýtt elliheimili fyr- ir V-íslendinga ili. Tvær nýjar álmur verða vígð- ar þar í haust. Arið 1966 var byggt annað elliheimili, í bænum Sei- kirk í Manitoba. Tilraunastöðin á Möðruvöllum I FRÉTT, sem birtist f Mbl. 15. ágúst um flutning Tilraunastöðv- arinnar frá Akureyri að Möðru- völlum, var rétt hermt, að verið er að Ijúka flutningi tilraunastöðvar Rannsóknastofnunar landbúnað- arins þangað. Um aðra starfsemi varð nokkurt mishermi. Dr. Björn Sigurbjörnsson hafði sagt að nú væri verið að ræða möguleika á að flytja sem mest af starfsemi land- búnaðarrannsókna og jafnvel leiðbeiningaþjónustuna í Eyja- firði að Möðruvöllum, en engin ákvörðun hefði verið tekin um þetta. Jóhannes Sigvaldason er forstöðumaður Rannsóknastofu Norðurlands. K.F.U.M. á morgun Almenn samkoma að Amtmanns- stig 2B kl. 20.30. Séra Frank M. Halldórsson talar. Allir velkomnir. Hjálpræðisherinn Sunnudagur kl. 11.00 helgunar- samkoma. kl. 16.00 útisamkoma á Lækjar- torgi. Kl. 20.30. hjálpræðissamkoma. Kapteinn Knut Larsen talar. Flokksforingjarnir Daníel Óskars- son og frú stjórna. Velkomin. Samtök astma- og ofnæmissjúklinga Viðeyjarferð verður farin, sunnu- daginn 18.8., ef veður levfir. Messað verður i Viðeyjarkirkju kl. 2. Árni Óla leiðsögumaður. Ferðafélagsferðir SUNNUDAGUR 18. ágúst. Kl. 9.30. Móskarðshnúkar — Svínaskarð. Verð kr. 600.— Kl. 13.00. Fjöruganga við Hval- fjörð. Verð kr. 400.— Farmiðar við bilinn. MIÐVIKUDAGUR 21. ágúst. Kl. 8.00. Þórsmörk. SUMARLEYFISFERÐIR. 20.—25. ágúst. Hrafntinnu- sker — Eldgjá — Breiðbakur. 22.—25. águst. Norður fyrir Hofsjökul. Ferðafélag (slands Öldugötu 3, Simar 19533 og 1 1 798. K.F.U.K. — Vindáshlíð Kvennaflokkurinn hefst 20. ágúst. Gleymið ekki að tilkynna þátttöku til aðalskrifstofunnar, Amtmanns- stig 2B. Suðurnesjafólk Almenn guðþjónusta kl. 2 á morg- un Svavar Guðmundsson syngur Allir velkomnir. Fíladelfía Keflavik. Heimatruboðið Almenn samkoma að Óðinsgötu 6A á morgun kl. 20.30. Allir velkomnir. innan 200 mílna auðlindalögsög- unnar. — En hver hefur þá verið af- staða íslands f þessu tilliti? — Islenzka sendinefndin tók þátt f að semja málamiðlunartil- lögu um þetta efni. Hún var til umræðu daginn áður en ég hélt heim. En f þeim umræðum mælti enginn fulltrúi gegn tillögunni, en hafa verður í huga, að mörg ríki höfðu þá ekki skýrt afstöðu sfna. Því má svo bæta við að lok- um, segir Már, að mörg ríki óttast, að settar verði of strangar reglur um vísindalegar rannsóknir, ef einkaréttur strandrfkisins verður of vfðtækur. Þess vegna vilja menn ná samkomulagi um ákveðnar alþjóðlegar lágmarks- Már Elfsson reglur til þess að tryggja, að vis- indalegar rannsóknir geti farið óhindrað fram. NYKOMIÐ margar viðar- PANEL-KROSSVIÐUR — tegundir. VIÐARÞILJUR — koto, gullálmur, oregon pine. HEINOLA-LOFTPLÖTUR OG — ÞILJUR GIPSONIT-ÞILPLÖTUR — 9 og 1 3 mm. PÁLL ÞORGEIRSSON & CO. Ármúla 27. — Srmar 86-1 00 og 34 000. Ótrúlega Idgt verö gœöi BARUM BREGST EKKI simi 1158 EINKAUMBOÐ: TEKKNESKA BIFREIDAUMBODID A ISLANDI SOLUSTAOIR: Hjólbarðaverkstæðið Nýbarði, Garðahreppi, simi 50406. Skodabúðin, Kópavogi, simi 47606. Skodaverkstæðið á Akureyri h.f. simi 12520. Varahlutaverzlun Gunnars Gunnarssonar, Egilsstöðum, Lögtak Eftir kröfu tollstjórans i Reykjavík og að undan- gengnum úrskurði verða lögtökin látin fram fara án frekari fyrirvara, á kostnað gjaldenda en ábyrgð ríkissjóðs, að átta dögum liðnum frá birtingu þessarar auglýsingar, fyrir eftirtöldum gjöldum: Áföllnum og ógreiddum skemmtanaskatti og miðagjaldi, svo og söluskatti af skemmtunum, vörugjaldi af innlendri framleiðslu, skipulags- gjaldi af nýbyggingum, söluskatti fyrir apríl, maí og júní 1 974, svo og nýálögðum viðbótum við söluskatt, lesta-, vita- og skoðunargjöldum af skipum fyrir árið 1974, gjaldföllnum þunga- skatti af dísilbifreiðum samkvæmt ökumælum, almennum og sérstökum útflutningsgjöldum, aflatryggingasjóðsgjöldum, svo og trygginga- iðgjöldum af skipshöfnum ásamt skráningar- gjöldum. Borgarfógetaembættið íReykjavík, 14. ágúst 1974. Verzlunarhúsnæði óskast á góðum stað í miðbænum Tilboð sendist til: Auglýsingadeildar Morgunblaðsins, mekt: „Miðbær, — 1370."

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.