Morgunblaðið - 17.08.1974, Blaðsíða 7
MORGUNBLAÐIÐ, LAUGARDAGUR 17. ÁGÚST 1974
7
MATSEDILL
VIKUNNAR
Umsjón:
Unnur Tómasdóttir
matrei'ðslukennari
Mánudagur
Gufusoðinn fiskur með eplum og lauk,
hrátt salat,
jarðaberjajúgurð.
Þriðjudagur
Kjöt með grænmeti,
rababarasúpa.
Miðvikudagur
Ýsubuff,
hrátt salat,
grænkálssúpa.
Fimmtudagur
Glóðarsteiktar pylsur,
hrátt salat,
hrfsgrjónavellingur með eplum.
Föstudagur
Buff með fleski (sjá uppskrift)
hrátt salat,
rauðgrautur.
Laugardaugr
Sumar-eggjakaka, (sjá uppskrift)
hrátt salat,
rauðgrautur afg.
Sunnudagur
Bakaðar kótelettur, (sjá uppskrift)
hrátt salat,
sveskjuábætirmeð kremi, (sjá
uppskrift).
Buff með fleski
500 g kjöthakk, * 6—12 snéiðar flesk,
(aftir stærð) * 100 g feitur ostur. *
Til steikingar * 2 msk. smjör e. smjörl.
Kjötið er hrært lítillega með kryddi,
mjöli og ívætu. Búin eru til stór og þykk
buff. 1—2 flesksneiðum er vafið um
hverja buffsneið og þær festar með
pinnum. Buffsneiðunum er raðað í
velsmurt eldfast fat, látið inn í heitan ofn
í 20—25 min. Osturinn er skorinn í þykkar
sneiðar. Þegar steikingartíminn er
hálfnaður eru ostsneiðarnar lagðar yfir
buffsneiðarnar og fatið látið inn í ofninn
aftur. Borið fram með soðnum kartöflum
og hráu salati.
Sumareggjakaka
1 lítið blómkálshöfuð, * 400 g. grænar
baunir, * 400 g litlar gulrætur, * 1—2
msk. smjörl. * 3 egg, * 3 msk. rjómi eða
rjómabland, * salt, pipar.
Blómkál, gulrætur (í sneiðum) og
baunir eru soðin hvert í sínu lagi og
haldið heitu. Eggjarauðurnar hrærðar og
rjómanum blandað í þær. Eggjahvíturnar
stífþeyttar og þeim blandað saman við
ásamt salti og pipar. Eggjakakan er steikt
á pönnu við fremur hægan hita og henni
siðan hvolft á heitt fat. Blómkálinu raðað
ofan á hana og hinu grænmetinu í kring.
Að sfðustu er bræddu smjöri hellt yfir allt
saman.
Bakaðar kótelettur
700 g kjöt, (vöðvi) *■ egg og brauðmylsna,
*75gsmjörl.*
Jafningur:
25 g smjör e. smjörl., * 25 g hveiti, * l'A dl
rjómi e. mjólk, * u.þ.b. 200 g sveppir, *
1—3 eggjarauður ef vill.
Búinn er til góður sveppajafningur.
Kældur. Ef eggjarauður eru notaðar er
þeim hrært út i, einni í senn, hrært er vel í
á milli. Kjötið er skorið i jafnar, stórar
sneiðar, sem eru barðar, þeim er velt upp
úr eggi og brauðmylsnu og steiktar
móbrúnar á annarri hliðinni. Raðað jafn-
óðum í ofnskúffu þannig að brúnaða hlið-
in snúi upp Kryddað. A hverja Kótelettu
er sett 1 msk. af jafningnum, þar á er
stráð brauðmylsnu. Smjörinu, sem er á
pönnunni, er hellt í skúffuna. Bakað i
heitum ofni, þar til það er brúnt.
Sveskjuábætir með kremi
150 g sveskjur, * vatn og sykur, * 2 egg, *
1 msk. sykur, * safi úr sítrónu, * 3 blöö
matarlím, *!4 dl vatn, * 1 dl sveskjusafi, *
2 dl þeyttur rjómi, *
Sveskjurnar eru lagðar í bleyti yfir nótt
i vatni með sykri og soðnar í því, þar til
þær eru vel meyrar. Settar í skál. Matar-
límið lagt i kalt vatn og látið renna. Eggin
aðskilin. Rauðurnar hrærðar með sykrin-
um og hviturnar þeyttar. Sveskju- og
sítrónusafinn látinn út í matarlímið,
þegar það er runnið. Því hrært út í eggja-
rauðurnar. Þegar þetta byrjar að þykkria,
er hvítunum blandað í. Sett yfir
sveskjurnar í skálinni. Skreytt með
þeyttum rjóma og sveskjum.
Með kvöldkaffinu
Itölsk pizza
175 g hveiti, * !4 tsk. salt, * 1 dl salatolía,
* 'á dl mjólk,
Blandið saltinu saman við hveitið, hnoð-
ið salatolíu og mjólk saman við. Fletjið
deigið út að þvi búnu, og klæðið tertumót
með þvi. Látið fyllingu á (sjá hér að
neðan). Bökunartími um 30 mín., ofnhiti
200°. Bezt er að hafa mikinn undirhita.
Einnig er gott að baka deigið í mótinu i 10
mín., áður en fyllingin er látin í.
Hér eru 3 mismunandi fyllingar:
1. 4 tómatar skornir I sneiðar. Leggið
þar yfir 150 g af skinku og efst 150 g af
niðursneiddum osti.
2. Um 150 g soðið eða steikt brytjað kjöt
eða skinka, 1 dl tómatsósa og rifinn ostur
efst.
3. Brúnið 200 g saxað nautakjöt í smjör-
líki, og blandið 1 dl af tómatsósu, 'A tsk.
salti og !4 tsk. pipar saman við. Leggið
tómatsneiðar og rifinn ost yfir.
Ung kona með eitt barn, óskar eftir ráðs- konustöðu frá septemberbyrjun. Uppl. í síma 93-7151, helzt á kvöldin. Stúlka óskast strax til skrifst. og afgreiðslustarfa hjá heildverzlun. Þær sem áhuga hafa sendi nafn og símanr. til Mbl. fyrir 20 ág. merkt ..Heildverzlun 4001 "
Bíll, Hunter Grand Luxe sjálfskiptur, litið ekinn, til sölu. Upplýsingar öðru hvoru næstu daga, og kvöld. Síma 23444. VW árgerð 1 966 Fastback ógangfær er til sölu og sýnis að Blönduhlíð 5 eftir hádegi. Sími 14404.
, Ibúð óskast Alþíngismaður utan af landi óskar eftir fjögurra herb. íbúð. Uppl. i sima 81 643. Keflavík Til sölu 4ra herb. íbúð við Suður- götu. Upplýsingar i síma 92-261 8 á kvöldin.
Til sölu barnabílstóll, skermkerra, burðar- rúm, göngugr., toppgr. á VW einnig tækifærisföt nr. 40 — 42, herrajakkaföt og barnaföt. S: 84223. Húshjálp Barngóð og reglusöm stúlka óskast á heimili, '/2 eða allan dag- inn. Gott kaup og húsnæði. Gjörið svo vel og hringið í síma 28532 i kvöld og næstu kvöld.
Tveggja herbergja ibúð óskast fyrir reglusöm systkini utan af landi, sem eru í framhalds- skólum. Upplýsingar i síma 33449 milli kl. 5 og 8. Tannlækningastofan verður opnuð aftur eftir sumarleyfi mánudag 19. ágúst. Úlfar Helgason, tannlæknir.
Bílkrani óskast Bilkrani óskast til kaups, þarf að vera 2'/2 tonn. Upplýsingar i síma 99-1 399, Sel- fossi. Philco-Duomatic þvotta- vél (amerisk) með innbyggðum' þurrkara til sölu. Uppl. i sima 10406.
Nýlenduvöruverzlun til sölu á góðum kjörum. Er í leiguhús- næði til 4ra ára. Góð tæki og vel seljanlegur lager. Uppl. i síma 42507 eftir kl. 7 á kvöldin. Peugeot 504 ’72 óskast eða módel 71. Einnig kemur til greina 404 '72 eða ’7 1. Peugeot '6 7 station til sölu á sama stað. Upplýsingar í síma 301 32.
GULLALMUR - EIK
HNOTA - TEAK
Klapparstíg 1, Skeifan 1 9
símar: 18430 — 85286.
Ofnhitastillarnir frá
DANFOSS spara heita
vatnið.
Sneytt er hjá ofhitun og
hitakostnaðurinn lækkar,
þvf DANFOSS ofnhitastill-
arnir nýta allan "umfram-
hita” frá t.d. sól, fólki,
Ijósum, eldunartækjum
o. fl.
Herbergishitastiginu er
haldið jöfnu meö sjálfvirk-
um DANFOSS hitastill-
tum lokum.
DANFOSS sjálfvirka
ofnloka má nota á hita-
veitur og allar gerðir
miðstöðvarkerfa.
RAVL ofnhitastillirinn
veitir aukin þægindi
og nákvæma stýringu
herbergishitans, vegna
þess að herbergishitinn
stjórnar vatnsmagninu,
sem notað er.
Ef höfuðáherzla er lögð
á að spara heita vatnið,
skal nota hitastillta
FJVR bakrennslislokann,
þá er það hitinn á frá-
rennslisvatninu, sem
stjórnar vatnsmagninu.
DANFOSS sjálfvirkir þrýst-
ingsjafnarar, AVD og
AVDL, sjá um að halda
jöfnum þrýstingi á öllum
hlutum hitakerfisins,
einnig á sjálfvirku
hitastilltu ofnlokunum.
LáticT
Danfoss stjóma
hðtanum