Morgunblaðið - 10.09.1974, Side 1
170. tbl. 61. árg.
ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1974
Prentsmiðja Morgunblaðsins.
Miklar deilur vegna ákvörðunar Fords um náðun Nixons:
„Watergate-sárin opnuð á ný”
Washington, Pittsburgh,
Grand Forks,
9. september
AP — Reuter — NTB
% SÁ vinnufriður og
almenna vinsemd, sem
Gerald Ford Bandaríkja-
forseti hefur hlotið frá
þjóð sinni þær fyrstu vik-
ur, sem hann hefur verið
forseti, eru nú að því er
stjórnmálaskýrendur telja,
úti. Ákvörðun Fords, sem
hann skýrði frá á sunnu-
dag, um að veita Richard
M. Nixon, fyrrverandi for-
seta, „algjöra og endanlega
náðun“ frá þeim glæpum,
sem hann kann að hafa
framið í stjórnartíð sinni
sem forseti, hefur valdið
gifurlegum deilum bæði
meðal þings og þjóðar.
Telja sumir, að nú hafi
„Watergate-sárin verið
opnuð á ný“.
0 Vegna hins mikla
fjaðrafoks, sem náðunin
hefur valdið, ákvað Ford í
kvöld að fresta því um
„óákveðinn tíma“ að taka
ákvörðun um hvernig fara
skuli með mál þeirra, sem
komið hafa sér undan her-
þjónustu í Víetnam, en
Ford hugðist skýra frá
þeirri ákvörðun á morgun.
Og er Ford kom í dag til
ræðuhalda í borginni Pitts-
burgh söfnuðust meir en
500 manns með mótmæla-
spjöld þar saman. Á spjöld-
unum stóðu slagorð eins og
„Hveitibrauðsdögunum er
lokið“ og „Það eru lög,
ekkert réttlæti. Náðið alla
glæpamenn“.
0 Þingmenn í Banda-
ríkjunum skiptust í tvo
hópa, en ekki virtust þeir
markast verulega af flokks-
línum, þótt fleiri
repúblikanar virtust styðja
ákvörðun forsetans en
demókratar. Héldu sumir 1
því fram, að með ákvörðun
sinni hefði Ford komið í
veg fyrir, að almenningur
fengi nokkurn tíma að
komast að hinu sanna í
Watergate-málinu, og aðrir
lögðu mesta áherzlu á, að
þetta væri áfall fyrir laga-
legt jafnrétti, þar eð ýmsir
af helztu samstarfsmönn-
um Nixons og aðrir starfs-
menn stjórnar hans sætu
annaðhvort þegar á bak við
lás og slá eða ættu harða
refsingu yfir höfði sér, á
meðan æðsti yfirmaður
þeirra fengi algera náðun.
Einn skeleggasti gagnrýn
andi náðunarinnar varSam
Ervin, sem var formað-
ur Watergate-rannsóknar-
nefndarinnar. Hann kvað
hana vera „óráðlega, ekki í
samræmi við góða stjórn
og gefa slæmt fordæmi
fyrir framtíðina“.
0 Og frá bænum Grand
Framhald á bls. 31
GERALD FORD
UNDIRRITAR
NÁÐUNINA
SÍÐASTLIÐINN
SUNNUDAG.
Uppreisnarmenn reiðu-
búnir tíl viðræðna
Lourenco Marques
9. september AP-Reuter-NTB
□ — Sjá grein á bls. 30. — □
• UPPREISNARMENNIRNIR I
Mozambizue, sem eru undir for-
ystu hvftra manna, lýstu þvf yfir f
kvöld, að þeir væru reiðubúnir til
viðræðna við Frelimo, frelsis-
hreyfingu blökkumanna, sem
samkvæmt samningum við Port-
úgalsstjðrn fyrir helgina, átti að
taka við stjðrn nýlendunnar, en
sá samningur var einmitt undir-
rðt uppreisnarinnar. Að kvöldi
dags mikillar spennu og ofbeldis-
verka f hafnarborginni Beira og
höfuðborginni Lourenco
Marques, sagði útvarpsstöðin f
höfuðborginni, sem er á valdi
uppreisnarmanna: „Hreyfingin
fyrir frjálsu Mozambique heilsar
Frelimo og er reiðubúin til að
ræða framtfð Mozambique við
hana, — á jafnréttisgrundvelli."
Þessi útvarpssending kom f kjöl-
far funda milli leiðtoga upp-
Grönduðu skaeru-
liðar þotunni?
Aþenu, Beirut, París
9. september — AP
FLUGVFL úf 6. flota
Bandaríkjanna kom á
mánudag ííl AJ??nu með lík
17 þeirra, sem fórust með
TWA Boeing flugvél á
Eyjahafi á mánudag. Talið
er, að alls hafi 88 manns
farizt með vélinni. Rann-
sóknarnefnd hefur komið
frá Bandaríkjunum til að
kanna flak flugvélarinnar,
sem fannst um 90 km úti af
strönd Grikklands.
Hópur, sem kallar sig unga
þjóðernissinna, sem berst fyrir
frelsun Palestínu, hefur lýst sök á
hendur sér. Segir hópurinn, að
°’á'fsmorðsdeild
einn félaga ui ________
hans hafi verið um borð með
sprengju, sem sprakk um það bil
er flugvélin var að fara út úr
grískri lofthelgi á leið sinni frá
Tel Avív til Los Angeles. Segir
hópurinn, að félagi þeirra hafi
farið um borð i vélina, þegar hún
millilenti i Aþenu.
Frelsishreyfing Palestínu, sem
eru viðurkennd samtök hefur lýst
því yfir, að hópurinn, sem segist
bera ábyrgð á flugslysinu, sé ekki
til, heldur sé um að ræða lygar
Gyðinga i því skyni að sverta Pal-
estinuaraba. Sagði talsmaður í
viðtali við fréttastofnns V»áíi,
— Diir.«stfnumenn reka, að Pal-
sem i ______
* "O.
estínu-skæruliðar hafi hvergi na-
lægt flugvélinni komið.
Flugmaður á farþegaflugvél
segir, að hann hafi séð þegar
TWA-þotan hrapaði og sagði
hann, að reykur hefði staðið aftur
úr einum hreyflinum.
reisnarmanna og tveggja sendi-
manna de Spinola, forseta
Portúgal.
Héldu sendimennirnir á
brott í kvöld, en upp-
reisnarmenn kváðust bíða
viðbragða de Spinola. Hafa
þeir enn á valdi sínu mikil-
væga staði í höfuðborginni,
en portúgalskar hersveitir
hafa fengið skipanir um að
halda inn í höfuðborgina til
þess að koma á reglu. Sagði
Amora Machel, leiðtogi
Frelimo, í kvöld, að skæru-
liðasveitir hreyfingarinnar
og portúgölsku hersveit-
irnar í landinu hefðu nú
sameinazt og tekið sér
stöðu í öllum helztu borg-
um landsins, og hygðust
berja á bak aftur alla
„afturhaldsseggi."
Þá bárust fréttir af því,
að sameinaðar sveitir þess-
ara aðila hefðu hafið eftir-
lit með þeim lestum, sem
kæmu til Mozambique frá
1\iT «...1 * *» 1 Kr»co «-»A 1- — P —
maiawi, Lii pcðð • du naia
hendur í hári allra hugsan-
>»»ara hvítra sjálfboðaliða,
. —^annirnir
en uppreisnan..^.
höfðu lýst eftir slíkum liðs-
styrk. Hermdu lausafréttir
frá grannríkinu Suður-
Afríku, að herskáir hvítir
málaliðar væru að búa sig
undir að koma uppreisnar-
mönnunum til hjálpar.
Fyrr í dag brutu portú-
galskar hersveitir mót-
mælaaðgerðir hvítra
manna í Beira á bak aftur,
og sprungu handsprengjur
með þeim afleiðingum, að
tugir manna særðust, og
óstaðfestar fréttir hermdu,
að um 30 manns hefðu beð-
ið bana.
Urslit
í dag?
Kaupmannahöfn
9. september — NTB
POUL Hartling, forsætisráð-
herra Danmerkur, ákvað I
kvöld eftir tveggja tfma lang-
an fund með fulltrúum fimm
stjórnmálaflokka, að kalla
þingmenn þessara flokka
nema kommúnista á fund fyrri
partinn á morgun, þriðjudag,
til þess að komast að þvf hvort
samstaða næst um efnahags-
og skattatillögur rfkisstjórnar-
innar. Eftir fundi einstakra
flokka mun Hartling hefja við-
ræður með þeim flokkum, sem
r.æsí star.da tillögum stjörnar-
innar. Það vakti mesta athygli
í kvöld, að Hartling hefur boð-
ið Framfaraflokki Mogens
Glistrup til fundanna á morg-
«n. og þykir það benda til, að
-■«Ast samstaða með
ekki hafi n....... -
Jafnaðarmannaflokki ju.h.
ens.