Morgunblaðið - 10.09.1974, Síða 3
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1974
3
Dansflokkurinn fer á flakk
ISLENZKI dansflokkurinn, undir
stjórn Alans Carter, fer á næst-
unni f sýningarferð um Iandið og
hefjast sýningar þriðjudaginn 10.
september f félagsheimilinu
Kirkjubæ á Kirkjubæjarklaustri.
Eftirfarandi staðir verða heim-
sóttir:
Höfn f Hornafirði, Neskaup-
staður, Egilsstaðir, Húsavfk,
Akureyri, Sauðárkrókur, Blöndu-
ós, Borgarnes og Akranes. Dans-
flokkurinn sýnir m.a. „Sköpun-
ina“, sem Alan Carter hefir sam-
ið. Sólódansari með flokknum
verður Julia Claire.
Tældi mann
og rændi
ÞAÐ ER ekki ósjaldan, að rann-
sókn afbrotamála leiði til þess, að
önnur afbrotamál upplýsast. Um
helgina kom eitt. slfkt tilfelli
fyrir, rannsókn á ránsmáli leiddi
til þess, að lögreglan fann lausn á
öðrum málum.
Maður nokkur brá sér á
skemmtistaðinn í Glæsibæ á
föstudagskvöldið. Að dansleik
loknum hitti hann unga stúlku
fyrir utan, sem bað hann að keyra
sig heim. Maðurinn var til í það,
og var næsti leigubíll gripinn. Ek-
ið var sem leið liggur vestur í bæ,
og þegar þangað koin, bauð stúlk-
an manninum inn. Það var auð-
sótt mál. Þegar inn í íbúðina kom
var þar fyrir maður nokkur, og
upphófst drykkja. Þegar gest-
urinn var orðinn vel við skál hirtu
húsráðendur af honum veskið,
og yfirgaf hann fljótlega sam-
kvæmið.
Morguninn eftir uppgötvaði
hann Hvarf veskisins, en i því
Skákeinvígið
ÁKVEÐIÐ er, að einvfgið um
skákmeistaratitilinn 1974, fari
fram f þessum mánuði og mun
það hef jast 18. eða 19. september.
Þá leiða saman hesta- sína Ingv-
ar Asmundsson og Jón Kristins-
son, en þeir skildu jafnir að vinn-
ingum á skákþinginu um sfðustu
páska.
Af ýmsum ástæðum hefur ekki
verið hægt að halda einvígið fyrr
en nú. Þetta verður sex skáka
einvígi, sem háð verður í Skák-
heimilinu að Grensásvegi 46.
voru 40 þúsund krónur í pening-
um og bankabók með 30 þúsund
krónum. Gerði hann rannsóknar-
lögreglunni viðvart, og fór hún á
staðinn. Voru hjúin þá búinn að
henda bókinni, en peningunum
höfðu þau skipt bróðurlega á milli
sín, og náðust inn 23 þúsund krón-
ur, en öðru höfðu þau eytt. Þegar
lögreglan fór að líta í kríngum sig
I íbúðinni, kom í ljós, að þar stóð
sjónvarpstæki, sem stolið var úr
verzluninni Gelli hf á Vesturgötu
fyrir skömmu. Fleiri mál munu
hafa upplýst við þessa heimsókn í
íbúðina.
Það er ástæða til þess að lokum
að vara fólk við því að fara með
miklar fjárhæðir á skemmtistaði,
hvað þá bankabækur með háum
innstæðum, þvi ránsmál sem
þessi eru sífellt að færast í vöxt.
4Ö0 þúsund
og reiðhross
1 FRAMHALDI af frétt í Morgun-
blaðinu á laugardag um, að stóð-
hesturinn Náttfari hafi verið seld-
ur nýlega á 1,2 milljónir króna,
hefur seljandi hestsins viljað gera
leiðréttingu á söluverðinu. Segir
hann, að fyrir hestinn hafi verið
greiddar 400 þúsund krónur auk
þess sem nokkrir reiðhestar hafi
gengið upp í kaupin. Segir eig-
andinn fyrrverandi, að hverjum
sem er sé heimilt að meta þessa
hesta á 800 þúsund krónur, en
sjálfur telji hann það fráleitt.
Var „dauður”
undir stýri
LÖGREGLAN fékk um helgina
tilkynningu um undarlegt ökulag
bílstjóra eins uppi á Sandskeiði
Fór lögreglubíll á staðinn, og þeg-
ar þangað kom, var bfllinn kyrr
utan vegar og ökumaðurinn í þvi
ástandi, sem venjulega er nefnt
brennivínsdauði. Hann var flutt-
ur á slysadeild Borgarspítalans,
þar sem tekið var af honum blóð-
sýni. Voru þar fyrir nokkrir öku-
menn, sem lögreglan var þar með
í sömu erindagjörðum. Umrædd-
ur maður býr fyrir austan f jalL
25 millj. kr. tap á SR í ár
6 millj. kr. hagnaður 1 fyrra
TAP A sfldarverksmiðjum rfkis-
ins á yfirstandandi ári nemur
samkvæmt bráðabirgðauppgjöri
um 25 milljónum kr. Þótt ekki
séu reiknaðar með afskriftir. A
s.l. ári nam hagnaður af rekstri
verksmiðjanna 6.731.000,00 og
höfðu þá verið reiknaður fyrn-
ingar samtals kr. 48.516.900,00.
Þetta kom m.a. fram þegar reikn-
ingar verksmiðjanna voru lagðir
fram á f undi stjórnar 9. þ.m.
Tapið á þessu ári stafar af verð-
falli fiskmjöls samfara því, að
hráefnisverð var miðað við miklu
hærra verð en unnt reyndist að fá
fyrir mjölið. Einnig vegna gífur-
legrar hækkunar á öllum vinnslu-
kostnaði, svo sem olfu og öðrum
rekstrarvörum og vinnulaunum.
Allar afurðir S.R. hafa verið
seldar á tiltölulega góðu verði.
Eftir eru í birgðum aðeins um 600
Dagný fiskar vel
Siglufirði 9. sept.
SKUTTOGARINN Dagný IS kom
f dag inn með 100 tonn af fiski.
Hefur Dagný þá landað 1560 tonn-
um frá áramótum, hér heima og
erlendis. Hér er indælis veður I
tonn af þorskmjöli og 100 tonn af dag, en f nótt gerði frost, 2—3
loðnumjöli. stig.
Framhald á bls. 31 — Matthfas.
Góður árangur
arinnar á 6-land
skáksveit-
a mótinu
I stofunni stóð sjón-
varpið frá GeDi hf.
Dýrir laxar það
Bæjum 6. sept. ’74.
ÞAÐ ÞYKIR stundum dýrt
drottins orðið, en ekki sfður
getur laxinn orðið dýr, og sann-
aðist það áþreifanlega, er ný-
lega voru dregnir 2 laxar úr
Langadalsá f Langadal f Naut-
eyrarhreppi, annar fimm
punda, en hinn 11 punda, en
báðir kostuðu gripirnir 117
þúsund krónur.
Þrfr menn voru um fimm |
pundarann, en fjórir með
ellefu-pundarann, en veiði-
leyfin kostuðu samtals kr. 117
þús. hjá þessum sjö mönnum,
en aflinn ekki nema 16 pund.
Mér var tjáð, að aðeins 69
laxar væru komnir úr Langa-
dalsá nú um mánaðamótin
ágúst-sept. og svipað af bleikju
að telja, en 1971 fengust þar
580 laxar, um 400 laxar 1972, og
200 1973. Það er svo krossgáta,
sem erfitt er að ráða, hvaða
orsakir þessari trcgu veiði
valda nú.
1 gær hitti ég Kristján
Jóhannsson frá Skjaldfönn, er
hann f norðan roki og slagviðri
var að koma ofanaf háfjalli frá
að bjarga netum sfnum úr
Kaldárvatni, en það er upp á
hámúla, sem kallaður er, upp
af bænum Armúla. Var
Kristján með 6 væna og spik-
feita silunga úr netum sfnum,
en þangað, f þetta Kaldaárvatn
fór hann fyrir 3 árum með
silungsseiði, er hann slepti þar
f vatnið. Arangur þeirrar rækt-
unar virðist hafa borið marg-
faldan árangur.
—Jens.
SVO SEM kunnugt er, er lokið
6-Ianda skákkeppninni með sigri
V-Þjóðverja. Keppninni lauk
sfðastliðinn fimmtudag og hlutu
Þjóðverjarnir 21V4 vinning, en f
öðru sæti voru Danir með 16'A og
f þriðja Island með 15 vinninga,
Svfar f fjórða með sömu vinn-
ingatölu, þá Finnar með 14 og
lestina ráku Norðmenn með 14
vinninga.
Gunnar Gunnarsson, forseti
Skáksambandsins, sem var farar-
stjóri skáksveitarinnar, sagði i
samtali við Morgunblaðið í gær,
að betri hlutfallstala gagnvart
Svfum hafi ráðið úrslitum, en
íslenzka skáksveitin vann
þrívegis, en Svíar tvívegis.
I þriðju umferðinni unnu ís-
lendingar Finna með 4:2. Þetta
hafði í för með sér, að liðsmönn-
um óx baráttuhugur. A fyrstu
f jórum borðunum lauk keppninni
með jafntefli, en á tveim neðstu
hlutum við vinninga.
Hér vann, sagði Gunnar,
Guðlaug Þorsteinsdóttir, hin 13
ára gamla skákstjarna, einn sinn
athyglisverðasta sigur á skák-
mótum hér heima og erlendis.
Hún mætti sterkustu skákkonu
Finna, Tuomainen, sem er ung
kona og hefur hlotið rétt til þátt-
töku á Olympiuskákmóti kvenna,
sem hefst nú í þessum mánuði í
Suður-Ameríku.
I fjórðu umferðinni tefldu ís-
lendingar við Norðmenn og unnu
hlutu þá 3!4 vinning gegn 2'/í.t
þessari umferð vannst aðeins ein
skák, er Jónas Þorvaldsson vann
Antonsen. Þetta var bezta skák
Jónasar á mótinu. Aðrar skákir á
móti Noregi urðu allar jafnteflis-
skákir.
I lokaumferðinni mættu Islend-
ingar Svíum. Þá náðum við ekki
þeim árangri, sem við höfðum
vænzt, því að við höfðum fulla
ástæðu til bjartsýni vegna fyrri
árangurá. — En leikar fóru svo,
að Svíar hlutu fjóra vinninga, en
vió tvo. — Hér unnu þeir Björg-
vin Víglundsson og Sævar Bjarna-
son sínar skákir.
Þegar á heildarúrslitin er litið,
sagði Gunnar, tel ég, að skáksveit-
in hafi náð góðum árangri.
Athyglisverð þótti mér frábær
frammistaða Sævars Bjarnasonar,
sem hlaut fjóra vinninga af fimm
mögulegum og var þvi með 80%
vinningshlutfall. — Ég spái því,
að mér réttri þjálfun og góðri
ástundun ætti Sævar að geta náð
verulegum skákárangri.
Kunnastur þeirra skákmanna,
sem þátt tóku í þessu móti, var
Þjóðverjinn Robert Hiibner.
Hann er talinn meðal 10 beztu
skákmanna heims. Honum mætti
Ingvar Ásmundsson í fyrstu um-
ferð. Htibner tókst ækki að kné-
setja Ingvar, sem i mjög spenn-
andi skák náði jafntefli í 55 leikj-
um. Þetta hafði eðlilega góð
áhrif, og i hópnum ríkti leikgleði
og góður Iiðsandi, sagði Gunnar
að lokum.
Akveðið var, að næsta 6-landa-
mót skuli fram fara næsta sumar i
V-Þýzkalandi, er þeir áttu einmitt
hugmyndina að keppni þessari
árið 1970. Þetta er annað skíptið,
sem Island sendir skáksveit til
þátttöku, og Island ætlar að vera
með næsta sumar, sagði Gunnar
Gunnarsson i þessu samtali.
3*>Ííti í,ítjíí?i*‘íi