Morgunblaðið - 10.09.1974, Qupperneq 17
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1974
17
; á EM í Róm. Sovétmaðurinn Borzov (nr. 828) kemur að marki sem
tea frá Italfu (nr. 612), en Mennea vann svo sigur f 200 metra hlaupinu.
ieler frá Vestur-Þýzkalandi og lengst til vinstri er Christer Garpelborg
v tognaði f þessu hlaupi og gat þvf ekki keppt f 200 metra hlaupinu, né f
ætlar hann sér ekkert minna en
sigur.
1500 m hlaup
KLAUS Peter Justus, 23 ára
kennari frá Austur-Berlín, vann
óvæntan sigur í 1500 metra hlaupi
Evrópumeistaramótsins. Það var
ekki fyrr en að 2 metrar voru
eftir í markið, að Justus tók I
fyrsta skipti forystu í hlaupinu,
og allt til þess að endasprettur
þess hófst, hafði enginn tekið eft-
ir honum, og þá sennilega sizt
keppinautar hans.
Það voru Norðurlandabúarnir
Gunnar Ekman frá Svíþjóð, Tom
B. Hansen frá Danmörku og
Olympíusigurvegarinn frá
MUnchen, Pekka Vasla frá Finn-
landi, sem voru lengst af áberandi
í þessu hlaupi. Skiptust þeir Ek-
man og Vasala oftast á um foryst-
una, en Hansen hélt sig nálægt
þeim. Þegar bjallan hringdi og
einn hringur var eftir, freistaði
Ekmann þess að hrista keppi-
nauta sfna af sér, en Tom Hansen
var ekki á því og fór fljótlega
framúr Ekman, ásamt Rolf Gysin
frá Sviss. Þegar svo endasprett-
urinn hófst fyrir alvöru, tók
Daninn forýstuna, og sigur-
inn blasti við honum. En á
meðan á baráttu kappanna stóð,
fikraði Justus sig æ framar í
röðinni. Hljóp hann síðustu
beygjuna utan á og skref fyr-
ir skref nálgaðist hann Han-
sen, sem uggði greinilega ekki að
Danmörku, þegar læknastúdentinn
kinu, og má geta þess til gamans, að
10 sfður um afrek Törrings og feril
rengur. Danir geta Ifka verið stoltir
silegt og nýtt Norðurlandamet, 2,25
rörring og silfurverðlaunahafanum
eppnina, og er vfst augljóst að sjá,
sér, og varð að sjá á eftir Þjóð-
verjanum í markið á undan sér.
Þeir Vasala og Ekman áttu engin
svör við endaspretti sumra keppi-
nauta sinna, og varð Olympfu-
meistarinn að láta sér nægja
sjötta sætið, en Ekman varð ní-
undi.
5000 m
hlaup
ÞEGAR 5000 metra hlaupið hófst
í Róm á sunnudaginn, tók lítill og
grannvaxinn Breti, Brendan
Foster að nafni, strax forystuna
og fór allgeyst. Foster þessi, sem
er 26 ára að aldri, er þekktur
langhlaupari og þá ekki sízt eftir
að hann hlaut silfurverðlaun á
Samveldisleikunum í febrúar s.l.,
þá setti hann brezkt met í þessari
vegalengd, 13:14,60 mín. Þó svo
að Foster virtist ákveðinn í að
hafa forystu í hlaupinu, áttu
menn tæpast von á því, að hann
sigraði, þar sem í hópi keppinauta
hans voru m.a. Lasse Viren frá
Finnlandi, sem hlaut gull í 5000
og 10.000 metra hlaupum á
Olympíuleikunum í MUnchen, og
Manfred Kuschmann frá Austur-
Þýzkalandi, sem sigraði í 10.000
metra hlaupinu á Evröpu-
meistaramótinu.
Þegar hlaupið var rúmlega
hálfnað, gerðu keppinautar
Fosters tilraun til þess að fara
framúr honum, en það kom fyrir
ekki. Bretinn þráaðist við og
bætti alltaf heldur meira við en
keppinautar hans. Hið sama var
uppi á teningnum, þegar enda-
spretturinn hófst. Forster
reyndist hafa næga orku í poka-
horninu og stóðst hverja atlögu.
Kom hann fyrstur í markið, vel á
undan Kuscmann, sem bætti nú
silfurverðlaunum í safn sitt, og
Lasse Viren, sem hreppti þriðja
sætið.
Eftir að sigur var unninn, hljóp
Foster heiðurshring og var þá
ákaft fagnað af löndum sínum, en
hópur manna hafði komið frá
Bretlandi í þeim tilgangi einum
að sjá Foster hlaupa. Þá var
Foster líka sérstaklega vel fagnað
af hópi Finna í áhorfendastúk-
unni, sem kunnu greinilega að
meta kraft og seiglu hans, jafnvel
þótt landi þeirra hefði orðið að'
bíða lægri hlut í viðureigninni.
1500 m hlaup
kvenna
Það eina, sem kom á óvart f
1500 metra hlaupi kvenna, var, að
norska stúlkan Greta Andersen
skyldi hreppa þar bronsverðlaun.
Andersen hafði staðið sig mjög
vel f undanrásunum og sigrað f
sínum riðli, en flestir töldu, að
hún ætti litía möguleika í úrslita-
hlaupinu, enda hefur hún ekki til
þessa verið í allra fremstu röð.
Sigurvegari í hlaupinu varð
Gunhilde Hoffmeister frá Austur-
Þýzkalandi, sem bætti Evrópu-
meistaramótsmetið um röskar 6
sekúndur. Hoffmeister átti fyrir
silfur frá Evrópumeistaramóti,
þar sem hún varð önnur í
Helsinki 1971.
Ludmila Bragina, — sem hlaut
gull f þessari grein á Olympíuleik-
unum í Múnchen 1972, varð að
bíta í það súra epli að komast ekki
einu sinni í úrslit í hlaupinu.
Spjótkast
í spjótkastskeppni Evrópu-
meistaramótsins í Róm var loks-
ins runnin upp stóra stundin í lífi
Finnans Hannu Siitonen. Um ára-
bil hefur hann verið í fremstu röð
spjótkastara í heiminum, en eigi
að sfður hafði honum aldrei
heppnast að vinna til verðlauna á
stórmótum. Á EM 1971 og á
Olympíuleikunum f Múnchen
1972 hafði Siitonen haldið þriðja
sætinu allt fram til síðustu um-
ferðar, en þá var þvf rænt af
honum með örfáum sentimetrum.
í keppninni sýndi Siitonen hins
vegar mikið öryggi. Tók snemma
forystu í keppninni og jók hana
verulega, er á leið.
Meðal keppenda í spjótkastinu
var heimsmethafinn og Olympíu-
meistarinn Klaus Wolfermann
frá Vestur-Þýzkalandi, sem náði
beztum árangri í undankeppn-
inni, og hinn gamalkunni Sovét-
maður Janis Lusis, sem nú stefndi
að því að hreppa Evrópumeistara-
titilinn í þesari grein f fimmta
skiptið í röð, en slíkt hefði verið
einsdæmi. En þessir tveir kappar
urðu að sætta sig við sjötta og
sjöunda sætið í keppninni, urðu á
eftir spjótkösturum, sem miklu
minna eru þekktir, eins og t.d.
Norðmanninum Terje Thorslund,
sem krækti þarna í bronsverð-
laun, löndum sínum til óumræðin-
legrar gleði.
Hástökk
kvenna
Tii þess að sigra í hástökks-
keppni Evrópumeistaramótsins í
Róm þurfti a-þýzka stúlkan Rose-
marie Witschas að setja nýtt
heimsmet. Það gerði hún lfka —
stökk 1,95 metra og bætti þar með
metið, sem Yordanka Blagoeva
frá Búlgariu setti haustið 1972.
Hástökkskeppnin var annars
mjög jöfn og skemmtileg, en
feiknalega langdregin. Allt frá
byrjunarhæðinni 1,70 metrar,
kom það hvað eftir annað fyrir, að
stúlkurnar fóru ekki yfir fyrr en í
þriðju tilraun, jafnvel þær, sem
urðu mjög framarlega í keppn-
inni. Eigi að síður fylgdust áhorf-
endur með keppninni af lifandi
áhuga, sérstaklega Italir, sem
bundu miklar vonir við Söru
Simeoni, sem kom mjög á óvart og
hreppti bronsverðlaunin með þvf
að stökkva.1,89 metra. Þess má
svo til gamans geta, að allar stúlk-
urnar, sem lengst komust í há-
stökkinu, notuðu hinn svokallaða
Fosbury-stíl.
Boðhlaupin
Á ýmsu gekk f boðhlaupunum
fjórum á Evrópumeistaramótinu í
Róm á sunnudagskvöldið. Eitt
glæsilegt heimsmet leit þá dags-
ins ljós. Kvennasveit Austur-
Þýzkalands hljóp 4x100 metra
boðhlaup á 42,51 sek. og bætti
eigið heimsmet um meira en eina
sekúndu, en það var 42,60 sek.
Þykir þetta næstum ótrúlegur
árangur, en skiptingar sveitarinn-
ar voru gjörsamlega gallalausar,
og út úr þeim náðist bezta hugsan-
leg nýting. Það voru þær Doris
Maletzki, Renate Stecher, Christ-
ina Heinih og Barbel Eckert, sem
hlupu þennan stórkostlega sprett.
í 4x400 metra boðhlaupi
kvenna var hins vegar miklu
meiri barátta. Lengi vel mátti
ekki milli sjá a-þýzku sveitarinn-
ar og þeirrar finnsku, en báðar
sveitirnar hlupi mjög vel. Fimm
fyrstu sveitirnar f hlaupi þessu
náðu betri tíma en meistaramóts-
met A-Þýzkalands f rá 1971 var.
í 4x100 metra boðhlaupi karla
var mikil barátta og allar sveit-
irnar átta í úrslitahlaupinu hlupu
á betri tíma en 40 sek. Til að byrja
með virtist sem baráttan myndi
standa milli Sovétríkjanna og A-
Þýzkalands, en þegar á þriðja
sprettinn var komið, blönduðu
Frakkar og ítalir sér i baráttuna
og á lokasprettinum var keppnin
milli þeirra. Var það meistarinn í
200 metra hlaupi, Mannea, sem
færði ítölum silfurverðlaun f
hlaupi þessu með glæsilegum
spretti sínum, en Frakkarnir, sem
áttu mjög jafna og vel samæfða
sveit, sigruðu.
Ekki var baráttan minni í 4x400
metra boðhlaupinu, og þegar á
sfðasta sprettinn kom, var enn
óhugsandi að segja fyrir um úr-
slitin. Bretarnir komu fyrstir í
mark, V-Þjóðverjar urðu í öðru
sæti og Finnar í þriðja. Þegar
úrskurður dómara kom, var kveð-
ið á um, að Finnar hefðu gert
hlaup sitt ógilt og Frakkar ættu
því að fá bronsverðlaunin.
Þennan dóm kærðu Finnarnir og
eftir að hafa skoðað kvikmynd af
hlaupinu aftur og aftur, komust
dómararnir að raun um, að þeir
hefðu haft rangt fyrir sér, og
skiptingar Finnanna hefðu verið
löglegar. Hlutu Finnar því verð-
launin, sem voru sýnd veiði en
ekki gefin fyrir Frakkana.
Maraþon-
hlaup
Að venju var maraþonhlaupið
síðasta keppnisgreinin á Evrópu-
meistaramótinu. 31 keppandi
lagði af stað í hlaupinu, og áður
en þeir yfirgáfu Olympíuleik-
vanginn, hafði Sovétmaðurinn
Anatoli Strezlezh tekið forystuna.
Forráðamenn mótsins þóttust
vissir um, að hlaupararnir myndu
ekki allir ná til marksins, enda
gífurlegur hiti, og fylgdu því
sjúkrabílar hlaupurunum alla
leið. Fór svo, að þeirra varð þörf,
þar sem 7 hlauparar urðu að
gefast upp, sumir illa á sig
komnir.
Það var Bretinn Ian Thompson,
sem varð öruggur sigurvegari f
hlaupinu, svo sem reyndar margir
höfðu talið líklegt fyrirfram, en
Thompson hefur náð langbeztum
tíma maraþonhlaupara í ár. Þótti
árangur hans í hlaupi þessu, 2
klst. 13 mín. 18,75 sek., frábær
miðað við aðstæður. Annar í
mark varð svo A-Þjóðverjinn Eck-
hard Lesse, sem hafði lítið látið á
sér bera, unz hlaupið var rúmlega
hálfnað, og Þronsverðlaunin
hreppti hinn gamalkunni hlaup-
ari Gaston Roelants frá Belgfu. Sá
er búinn að vera í fremstu röð í
langhlaupum í áraraðir og áttu
fæstir von á því, að hann mundi
blanda sér i baráttuna. Frekar
var álitið, að landi hans, Lismont,
sem varð Evrópumeistari 1971,
mundi hreppa verðlaun, en Lis-
mont þoldi illa hinn mikla hita,
sem var meðan á hlaupinu stóð,
og varð að gefast upp.
4x400 metra boðhlaup karla: Sveit Bretiands 3:03,3
Sveit V-Þýzkalands 3:03,5
Sveit Finnlands 3:03,6
Sveit Frakklands 3:04,6
Sveit A-Þýzkalands 3:05,0
Sveit Hollands 3:06,3
Sveit Svfþjóðar 3:12,6
Þrístökk:
V. Saneyev, Sovétr. 17,23
C. Corbu, Rúmenfu 16,68
A. Sontag, Póllandi 16,61
J. Drehmel, A-Þýzkalandi 16,56
M. Joachimowski, Póll. 16,53
L. Gora, A-Þýzkal. 16,42
J. Vycichlo, Tékkóslv. 16,37
N. Sinichkin, Sovétr. 16,17
P. Kuukarjarvi. Finnl. 16,12
A. Kathiniotis, Grikkl. 15,99
Hástökk kvenna:
R. Witschas, A-Þýzkal. 1,95
M. Karbanova, Tékkóslv. 1,91
S. Simeoni, ttalfu 1,89
R. Kirsa, A-Þýzkal. 1,89
M. Huebnerova, Tékkóslv. 1,86
G. Filatova, Sovétr. 1,86
U. Meyfarth, V-Þýzkal. 1,83
M. Mracnova, Tékkóslv. 1,83
M. Derbourse, Frakkl. 1.83
Maraþonhlaup:
I. Tompson, Bretl. 2:13:18,8
E. Lesse, A-Þýzkal. 2:14:57,4
G. Roelants, Belgfu 2:16:29,6
B. Plain, Bretl. 2:18:02,2
J. Reveyn, Belgfu 2:19:36.4
F. Szekeres, Ungverjl. 2:20:12,8
G. Cindolo, ttalfu 2:20:28,2
N. Cusack, trlandi 2:22:05,0
P. Lieiviska, Finnl. 2:22:45,6
Y. Laptev, Sovétr. 2:23:15,6
P. Cauputo, ttalfu 2:24:06,0
D. Mc Dald, Irlandi 2:25:07,8
Spjótkast:
H. Siitonen, Finnlandi 89,58
W. Hanisch, A-Þýzkal. 85,46
T. Thorslund, Noregi 83,68
N. Grebnjev, Sovétr. 83,66
K. Wolfermann, V-Þýzkal. 83,36
J. Lusis, Sovétrfkjunum 83,06
M. Nemeth, Ungverjal. 81,06
L. Koski-Vahálá, Finnl. 79,92
50 kílómetra ganga:
Tugþraut
R. Skowronek, PÓII. 8.207
Le Roy, Frakkl. 8.146
G. Ktatschmer, A-Þýzkal. 8.132
L. Litvinenko, Sovétr. 8.122
R. Catus, PÓII. 7.920
P. Anders, Sviss 7.863
100 metra grinda-
hlaup kvenna:
A.Ehrhardt, A-Þýzkai. 12v66
A. Fiedler, A-Þýzkal. 12,89
T. Nowak, Póll. 12,91
V. Stefanescu, Rúmenfu 13,04
G. Berend, A-Þýzkal. 13,14
Sleggjukast:
A. Spiridonov, Sovétr. 74,20
J. Sachse, AÞýzkal. 74,00
R. Theimer, A-Þýzkal. 71,62
V. Dmitrienko, Sovétr. 71,18
U. Beyer, V-Þýzkal. 71,04
M. Huning, V-Þýzkal. 70,58
H. Kangas, Finnl. 70,04
3000 metra
hindrunarhlaup:
B. Malinowski, PÓII. 8:15,0
A. Garderud, Svíþj. 8:15,4
M. Karst, A-Þýzkal. 8:18,0
F. Fava, ttalfu 8:19,0
H. Wehrli, Sviss 8:26,2
G. Cefan, Rúmenfu 8:26,2
G. Frahmcke, V-Þýzkal. 8:26,6
Höhne, A-Þýzkal. 3:59,05,3
O. Barch, Sovétr. 4:02,38,8
P. Selzer, A-Þýzkal. 4:04,28,4
V. Visini.ttalfu 4:05,43,6
V. Soldatenko, Sovétr. 4:09,31,6
110 metra grindahlaup:
G. Drut, Frakkl. 13,40
M. Wodzynski, Póll. 13,67
L. Wodzynski, Póll. 13,71
T. Munkelt, A-Þýzkal. 13,72
1500 metra hlaup:
K. Justus, A-Þýzkal. 3:40,6
T. Hensen, Danm. 3:40,8
T. Wessinghage, V-Þýzkal. 3:41,1
H. Scharn, Holl. 3:41,3
V. Pantelei, Sovétr. 3:41,4
P. Vasala, Finnl. 3:41,5
4x100 metra boðhlaup karla:
Sveit Frakklands 38,69
Sveit ttalfu 38,88
Sveit A-Þýzkal. 38,99
Sveit Sovétrfkjanna 39,03
4x100 metra boðhlaup kvenna:
Sveit A-Þýzkalands 42,51
Sveit V-Þýzkalands 42,75
Sveit Póllands 43,48
4x400 metra boðhlaup kvenna:
Sveit A-Þýzkalands 3:25,2
Sveit Finnlands 3:25,7
Sveit Sovétríkjanna 3:26,1
5000 metrahlaup:
B. Foster, Bretl. 13:17,2
M. Kuschmann, A-Þýzkal. 13:24,0
L. Viren, FÍnnlandi 13:24,6
J. Hefrmens, Holl. 13:25,6
I. Floroiu, Rúmenfu 13:27,2
A. Kvalheim, Noregi 13:27,2
S. Hoffmann, Tékkóslv. 13:29,0
1500 metra kvenna: hlaup
G. Hoffmeister, A-Þýzkal. 4:02,3
L. Tomova, Búlgarfu 4:05,0
G. Andersen, Noregi 4:05.2