Morgunblaðið - 10.09.1974, Side 18

Morgunblaðið - 10.09.1974, Side 18
18 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1974 Úrslit og staðan Arsenal — Burnley 0:1 Carlisle — Stoke 0:2 Coventry — Manc. C. 2:2 Derby — Neweastle 2:2 Ipswich — Everton 1:0 Leeds — Luton 1:1 Liverpool — Tottenham 5:2 Middlesb.—Chelsea 1:1 Q, P. R. — Birmingham 0:1 West Ham — Sheff. Utd. 1:2 Wolves — Leicester 1:1 2. deild: Aston Villa — Orient 3:1 Blackpool — Millwall 1:0 Bristol C. — Bolton 2:1 Fulham — York 0:2 Hull — Norwich 0:0 Manch. Utd. — Notthingham 2:2 Notts County — Southampton 3:2 Oxford — Odham 1:0 Portsmouth — W.B.A. 1:3 Sheffield W. - - Cardiff 1:2 Sunderland — Bristol R. 5:1 Staðan f 1. deild: Liverpool 6 5 10 14:4 11 Ipswich 6 5 0 1 9:3 10 Manch. C. 6 4 11 11:8 9 Stoke 6 3 2 1 9:4 8 Sheff. U. 6 3 2 1 10:8 8 Éverton 6 3 2 1 8:6 8 liddlesb. 6 2 3 1 7:5 7 Carlisle 6 3 12 6:4 7 Wolves 6 2 3 1 8:7 7 Newcastle 6 2 2 2 12:12 6 Derby 6 14 1 6:6 6 Chelsea 6 2 2 2 9:11 6 Burnley 6 2 13 9:9 5 Leicester 6 13 2 8:9 5 Q,P.R. 6 13 2 4:5 5 Arsenal 6 2 0 4 6:7 4 Luton 6 0 4 2 4:7 4 Birmingham 6 12 3 6:10 4 Leeds 6 12 3 4:8 4 West Ham 6 114 5:10 3 Coventry 6 0 3 3 7:13 3 Tottenham 6 10 5 5:10 2 2. deild: Manc. Utd. 5 4 10 11:3 9 Norwich 6 2 4 0 6:4 8 Aston Villa 6 2 3 1 12:5 7 Fulham 6 3 12 9:5 7 Oxford 4 3 10 7:3 7 Blackpool 6 2 3 1 5:4 7 Notts C. 6 2 3 1 7:8 7 Sunderland 4 3 0 1 12:4 6 York 5 2 2 1 7:6 6 Hull 6 13 2 5:12 5 Bolton 4 2 0 2 6:4 4 Oldham 4 2 0 2 4:3 4 W.B.A. 4 2 0 2 4:3 4 Bristol C. 4 12 1 2:3 4 Bristol R. 4 12 1 4:6 4 Millwall .6 2 0 4 7:11 4 Orient 6 0 4 2 2:6 4 Notthingham 6 12 3 5:10 4 Southampton 6 0 3 3 8:12 3 Portsmouth 5 113 5:9 3 Cardiff 5 113 3:8 3 Sheffield W. 4 0 2 2 4:6 2 Skotland 1. deild: Clyde — Celtic 2:4 Dundee — Aberdeen 0:1 Dunfermiline — Arbroath 3:1 Hibernian — Heart 2.1 Kilmarnock — Ayr 3:0 Morton — Dumbarton 1:1 Motherwell — Airdrie 1:3 Rangers — Partick 3:2 St. Johnst. — Dundee Utd. 2:0 1. deild A-Þýzkaland: Lokomotiva L. — Vor. Frankf. 4:5 Hansa — Magdeburg 2:3 Dynamo Berl. — Karl Max Stadt 0:0 Dynamo Dresden — Zwickau 0:0. RotWeiss — Carl Zeiss 1:2 1. deild Spánn: Las Palmas — Real Betis 3:1 Espanol — Celta 2:0 Hercules — Real Murcia 2:2 Valencia — Real Madrid 1:2 Sporting — Real Zaragoza 2:0 Malaga — At. Bilbao 2:0 Real Sociedad — Barcelona 3:2 1. deild Ungverjaland: Ferencvaros — Honed 1:1 UjpestSozsa — Vasas 3:1 Zalaegerszeg — Raba 1:0 Csepel — Bekessaba 4:3 Diosgyoer — Haladas 6:2 Tatabanya — Mtk 2:0 Sýnikennsla hjá Liverpool LIVERPOOL heldur sfnu striki 1 1. deildarkeppninni 1 Englandi. Á laugardaginn var það Lundúna- liðið Tottenham Hotspur, sem var fórnarlamb bikarmeistaranna, sem skoruðu hvorki fleiri né færri en fimm mörk, þar af sami leikmaðurinn Phil Boersma þrjú. Urslit þessa leiks tryggja Liver- pool enn f forystu 1 deildinni. en Tottenham, hið fornfræga lið, verður nú að gera sér það að göðu að sitja á botni deildarinnar. I leiknum á laugardaginn sýndi Liverpool knattspyrnu meistar- anna og hreinlega lék sér að hinu slaka Tottenhamliði. Einkum og sér 1 lagi sýndi Boresma glæsi- legan leik, en hann var aðeins varamaður hjá Liverpool liðinu á sfðasta keppnistímabili, og ekki einu sinni það, er liðið lék úrslita- leikinn í bikarkeppninni. Boersma skoraði öll mörk sín í fyrri hálfleik, en hin mörk Liver- pools f leiknum skoruðu Emlyn Hughes og Ray Kennedy, en mörk Tottenhams skoruðu þeir Steve Perryman og Martin Chivers. Ipswich fylgir Liverpool sem skuggi f toppbaráttunni. A laugar- daginn sigraði liðið Everton í jöfnum og. skemmtilegum leik með einu marki gegn engu, og var þetta fyrsti leikurinn, sem Everton tapar á keppnistíma- bilinu. Mark Ipswich var skorað á 30. mínútu af Clive Woods, sem þá var nýkominn inn á í stað David Johnson, sem meiddist. Manchester City er í þriðja sæti í deildinni — gerði á laugar- daginn jafntefli við Coventry og þótti það vel af sér vikið með tilliti til þess, að Coventry hafði náð 2—0 forystu með mörkum þeirra Brian Alderson og Colin Stein. Hafði Coventry átt meira í leiknum og sýnt góða knatt- spyrnu. En sfðustu 20 mínúturnar náði Manshesterliðið sér vel á strik og tókst að jafna. Það voru þeir Rodney Marsh og Alan Oakes, sem mörkin skoruðu. Greinilegt er, að lið Stoke hefur ekki verið eins gott f mörg ár og það kemur til með að blanda sér í baráttu hinna beztu. A laugar- daginn vann Stoke öruggan sigur yfir Carlisle á útivelli. Voru aðeins liðnar sex mínútur af leik- tfmanum, er Alan Hudson skoraði fyrir Stoke og félagi hans, John Ritchie, bætti skömmu síðar um betur. Eftir mörkin tvö átti Stoke mörg upplögð marktækifæri, er ekki tókst að nýta. Englandsmeistararnir frá í fyrra, Leeds, eiga hins vegar f miklum erfiðleikum um þessar mundir og eru nálægt botninum í deildinni. A laugardaginn varð liðið að gera sér jafntefli að góðu í leik sínum við nýliðana, Luton Town, á heimavelli sfnum. Bæði mörk leiksins voru skoruð í fyrri hálfleik og varð Luton fyrra til. Skoraði Barry Butlin það mark, en Alan Clarke jafnaði fyrir Leeds skömmu síðar. Mikil bar- átta og harka var sfðan í leiknum, en marktækifæri voru hins vegar fá umtalsverð og fleiri mörk voru ekki skoruð. Fyrirfram var búizt við því, að lið Queens Park Rangers myndi verða í fremstu röð í 1» deildar- keppninni f ár, og auðvitað getur það orðið það, þótt ekki hafi byrjað vel. Á laugardaginn tapaði það fyrir Birmingham á heima- velli sínum, og komu þau úrslit nokkuð á óvart. Joe Gallagher skoraði mark Birmingham eftir slæm mistök hjá markverði Q.P.R., Richard Teale, sem lék þarna sinn fyrsta leik í marki Lundúnaliðsins. Ulfarnir urðu að gera sér jafntefli að góðu í leik sinum á heimavelli gegn Leicester. Gest- irnir náðu forystu þegar á 11. mínútu, er Keith Weller lék gegnum vörn þeirra alla leið inn í markið, en John Richards jafnaði fyrir (Jlfana á 28. mfnútu, eftir slæm mistök í vörn Leicesterliðs- ins. Burnley vann sinn fyrsta sigur yfir Arsenal á útivelli í 12 ár, og sá sigur var engin tilviljun. Burnley-liðið var mun betri aðil- inn og átti margar glæsilegar útfærðar sóknarlotur. Af og til sótti svo Arsenal, og komst þá mark Burnley oft í hættu, þar sem vörnin var ekki á verði. Eina mark leiksins skoraði Peter Noble á 76. mfnútu. EKKI NÓGU ÁNÆGÐUR Asgeir Sigurvinsson: „Ég er ekki nógu ánægður með leikinn og útkomu hans, og alls ekki nógu ánægður með sjálfan mig. Enda var ég látinn leika stöðu, sem ég hef ekki leikið síðan í 5. flokki, miðherjastöðuna. Maður nær henni ekki á tveimur æfingum. Tengiliðastaða hentar mér betur. Belgarnir léku langt undir getu f þessum leik, enda óvanir að- stæðunum. I Belgfu leikum við venjulega á mjög góðum völlum, þurrum og hörðum. Miðað við þá er Laugardalsvöllurinn mjög lélegur og erfitt að leika á hon- um.“ MIKLAR FRAMFARIR R. Goethals, þjálfari belgfska liðsins: „Mér finnst hafa orðið miklar framfarir hjá íslenzka lið- inu, síðan það lék gegn okkur í Belgíu fyrir tveimur árum. I þess- um leik fannst mér tveir menn ykkar áberandi beztir og í raun- inni góðir, nr. 6 (Jóhannes Edvalsson) og nr. 7 (Guðgeir Leifsson). Við lékum hins vegar mun lakar en við getum bezt. Bæði var völlurinn slæmur og svo vantaði nokkra góða menn í liðið vegna meiðsla, og munar mest um miðherjann, Lambert." MJÖG GÓÐUR LEIKUR Albert Guðmundsson, fyrrver- andi formaður KSl og eftirlits- maður EUFA á leiknum: „Vegna starfs míns sem eftirlitsmaður UEFA með þessum leik get ég ekki sagt mikið. Þó get ég sagt það, að þetta var mjög góður leik- ur af hálfu íslenzka liðsins, einn sá bezti, sem ég hef séð. Undir- búningurinn hefur greinilega verið góður. Að mínu mati er fs- lenzk knattspyrna á réttri leið, og ég vil nota tækifærið til að óska KSÍ og þá sérstaklega landsliðs- piltunum sjálfum til hamingju með þessa góðu frammistöðu gegn liði á heimsmælikvarða." HÉLT AÐ BOLTINN FÆRI FRAMHJÁ Þorsteinn Ólafsson markvörð- ur: „Fyrsta markið var ófyrir- gefanlegur klaufaskapur af minni hálfu, ég hélt að boltinn færi framhjá. Skotið var það laust, að ég er ekki í nokkrum vafa um, að ég hefði haft boltann, ef ég hefði hent mér eftir honum. Annars fannst mér þetta góður leikur af okkar hálfu, og að mínum mati var það okkar getu að þakka, en ekki að Belgarnir væru svona miklu lélegri en venjulega, að munurinn varð ekki meiri. Það er aldrei að vita, hvernig farið hefði, ef við hefðum fengið víti, þegar Gfsla var brugðið. Þá hefði orðið 1:1 í stað 2:0, og allt getað gerzt“. ERFITT AÐ SÆTTA SIG VIÐ MÖRKIN Ellert Schram, formaður KSl: „Mér fannst strákarnir leika mjög vel í dag, þeir börðust vel og léku af skynsemi. Miðað við gang leiks- ins hefðum við átt að fá enn betri útkomu, ég á t.d. erfitt með að sætta mig við bæði mörkin, sem Belgarnir skoruðu. En ég vil minna á, að belgíska liðið er í hópi beztu landsliða heimsins og þvf getum við vel við úrslitin unað. Ég vil ekki nefna einstaka leik- menn fslenzka liðsins, þeir börð- ust allir mjög vel og skiluðu sín- um hlutverkum eins og bezt verð- ur á kosið.“ ERFIÐUR VÖLLUR Roger Henrotay. leikmaður nr. 11: „íslenzka liðið kom mér nokk- uð á óvart með getu sinni. Við lékum langt undir getu, og tel ég, að völlurinn eigi mesta sök á því. Hann var mjög slæmur og ólíkur þeim völlum, sem við eigum að venjast. Af ykkar leikmönnum fannst mér nr. 7 (Guðgeir Leifs- son) og nr. 10 (Asgeir Sigurvins- son) beztir. Ég kannast reyndar vel við Ásgeir, þvf að við leikum saman hjá Standard Liege. Hann er frábær knattspyrnumaður og getur mun meira en hann sýndi f dag.“ GETIÐ VEL VIÐ UNAÐ T.H.C. Reynolds, welskur dómari leiksins. „Islenzka Iiðið kom mér vissulega á óvart með góðum leik sérstaklega í fyrri hálfleik. Þá náði liðið oft góðum samleiksköflum og fékk hættuleg tækifæri. I seinni hálfleik fannst mér hins vegar koma greinilega fram munurinn á atvinnumönn- um og áhugamönnum, þið voruð alltaf seinni í boltann. Ég hef heyrt um, að það hafi verið vanga- veltur um vftaspyrnu, þegar nr. 2 (Gfsli Torfason) komst inn fyrir. Ég hef engan tíma fyrir slíkar vangaveltur inni á vellinum, ég verð að dæma strax og í þessu tilfelli fannst mér ekki vera um brot að ræða. Hins vegar var um augljóst brot að ræða, þegar ég dæmdi vftaspyrnuna á tsland. Af leikmönnum Belgíu fannst mér 8 beztur, en hjá íslandi nr. 10 (Ásgeir Sigurvinsson), og svo að sjálfsögðu markvörðurinn ykkar (Þorsteinn Ólafsson), sem var frábær.“ ÁTTUM AÐ FÁ VÍTI Tony Knapp, þjálfari fslenzka liðsins: „Við áttum að fá víti, þeg- ar Gísla var brugðið f dauðafæri rétt fyrir leikslok. Þá hefði staðan orðið 1:1 og allt hefði getað gerzt, jafnvel sigurinn lent okkar megin með smáheppni. Annars get ég ekki annað en verið ánægður, strákarnir börðust mjög vel og skiluðu hlutverkum sínum eins vel og hægt er að ætlast til af þeim. Þeir eiga allir heiður skilinn og því sé ég ekki neina ástæðu til að nefna nein sérstök nöfn"

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.