Morgunblaðið - 10.09.1974, Blaðsíða 23

Morgunblaðið - 10.09.1974, Blaðsíða 23
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1974 23 Sjálfstæðishúsið Viðskiptahagsmunir Grundvöllur fyrir útflutn- FALLEGT, NÍÐSTERKT OG AUÐVELDAST AÐ ÞRÍFA EGILL ÁRNASON H.F SKEIFUNNI 3 — SÍMI 82111 * xsmíz - iM 1 » ' og stefnan í utanríkismálum Starfshópur sambands ungra sjálfstæðismanna um viðskiptahagsmuni og stefnuna í utanrikismálum heldur næsta fund sinn miðvikudaginn 1 1. september. Gestur fundarins verður Jón Skaftason alþingismaður. Rætt verður um viðskiptahlið íslenzkrar utanríkisstefnu. Fundurinn er haldinn i Galta- felli og hefst kl. 20.30. Mikil aðsókn er að skólanum, og s.l. vetur voru þar 38 nemendur við nám. í skólanurh eru þrír bekkir og eru nem- endur teknir inn annað hvert ár Mjög hefur aukizt, að stúlkur stundi garð- yrkjunám, og voru þær 1 7 talsins s.l vetur. Til samanburðar um fjölgun nem- enda í garðyrkju skal þess getið, að fyrir aðeins 10 árum voru nemendur i skólanum um 1 5 talsins. Auk þess sem skólinn sér um að útskrifa garðyrkjumenn, hefur starf- semin miðazt við fræðslu og endur- menntun, bæði fyrir garðyrkjumenn og almenning. Um þessar mundir er i undirbúningi útgáfustarfsemi, sem skiptist i fjóra flokka lausblaða, sem ætlazt er til að verði safnað saman I möppu jafnóðum og blöðin koma út, þannig að með timanum verði um að ræða ýtarlegt uppsláttarrit. Útgáfa þessi skiptist sem fyrr segir i fjóra flokka, — ræktun grænmetis, blómaræktun, skrúðgarða- ræktun og almennt fræðsluefni. Er ætl- unin að menn eigi þess kost að gerast áskrifendur að einúm flokki eða fleir- um, eftir því sem þeir kjósa sjálfir. Þá hefur sú nýbreytni verið tekin upp að halda tveggja daga námskeið fyrir almenning, og hefur það verið gert I samvinnu við kvennasamtök. Aðsókn að námskeiðunum hefur verið meiri en hægt hefur verið að anna, og dagana 11. og 12. september n.k. verður næsta námskeið af þessu tagi haldið Það, sem einkum er kennt á þessum námskeiðum, er ræktun græn- metis, ræktun blóma, meðferð þeirra og blómaskreytingar, skrúðgarðarækt- un. og annað, sem ætla má, að fólk hafi gagn af I sambandi við heimili sln. ingi íslenzkra blóma, Dagana 31. ágúst og 1. sept. s.l. gekkst Garðyrkjuskóli rtkisins fyrir fræðsluhelgi, þar sem aðallega var fjallað um ræktun blóma til afskurð- ar. Af þessu tilefni var fenginn hingað danskur garðyrkjuráðunautur, Andreas Bjerggaard, en hann er sár- fræðingur í þessari grein garðyrkju. Blm hitti að máli þá Grétar Unn- steinsson, skólastjóra Garðyrkjuskóla ríkisins, og Bjerggaard, og voru þeir sammála um, að þessi fræðsluhelgi hefði tekizt með afbrigðum vel, en I henni tóku þátt um 40 garðyrkjumenn og -bændur. Bjerggaard kynnti nýjar tegundir blóma, sem hentug eru til afskurðar. auk þess sem hann gerði grein fyrir nýjum aðferðum við ylræktun. [ viðtalinu kom fram, að Bjerggaard álítur ylræktun eiga mikla framtíð fyrir sér hérlendis, ekki sízt vegna þess, að hækkun olíuverðs hefur haft i för með sér mikla erfiðleika og kostnaðarauka fyrir garðyrkjumenn I þeim löndum, sem mest rækta af blómum til útflutn- ings. Kvaðst hann telja, að markaður gæti verið mikill erlendis fyrir blóm af ýmsum tegundum, þar sem fsland ætti að vera vel samkeppnisfært hvað snert- ir verð á blómum. Hérlendis er fer- metrarými I gróðurhúsum á hvern Ibúa aðeins 0.6—7 fermetrar á hvern Ibúa, en i Danmörku eru 1.3 fermetrar á hvern ibúa. Þá kom fram, að Danir eiga heims- metið i kaupum á afskornum blómum, en næst þar á eftir kemur Vesturþýzka- land. Við spurðum Bjerggaard hvaða teg- und afskorinna blóma væri vinsælust i heimalandi hans, og sagði hann, að rósir hefðu vinninginn, og hefði svo verið lengst af. Þó væru aðrar tegundir nú að vinna á, og mætti þar til dæmis nefna nellikur og crysantemum, en Hér eru þátttakendur f fræðsluhelgi Garðyrkjuskólans I HveragerSi um slSustu helgi. ÞriSji frá hægri er skólastjórinn, Grétar Unnsteinsson, en honum til hægri handar stendur frú Bjerggaard, eiginkona Andreas Bjerggaard, danska ráðunautsins, sem hingað kom til aS halda fyrirlestra, og stendur hann viS hliSina á konu sinni. með breyttri og fullkomnari tækni væri nú mögulegt að hafa þessar tegundir á boðstólum svo að segja allan ársins hring. STARFSEMI GARÐYRKJUSKÓLANS Við inntum Grétar eftir starfsemi Garðyrkjuskóla rikisins i Hveragerði. Hann sagði, að nú væru liðin 35 ár síðan skólinn tók til starfa, en jafnframt er nú liðin hálf öld siðan fyrsta gróður- húsið var tekið i notkun hérlendis. PARKET

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.