Morgunblaðið - 10.09.1974, Side 24
24
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1974
Vildu fá
sama kaup
og þeir sem höfðu
sótt vinnuvéla-
námskeið
NOKKRIR bflstjórar Steypu-
stöðvarinnar h.f. I Reykjavfk
hættu skyndilega störfum á mið-
vikudaginn, eftir að þeir höfðu
farið fram á að vera yfirborgaðir
um 10% f eftirvinnu, en var
synjað. Báru þeir þvf við, að þetta
væri gert hjá öðrum steypu-
stöðvum.
„Það er ekki rétt, að bílstjórar
steypustöðvanna séu yfirborgaðir
almennt um 10%,“ sagði
Halldór Jónsson framkvæmda-
stjóri Steypustöðvarinnar þegar
Mbl. hafði samband við hann út
af þessu máli og hann sagði enn-
fremur, „þeir bílstjórar, sem eru
yfirborgaðir um 10% eru aðeins
þeir sem sótt hafa vinnuvélanám-
skeið. Ég sagði mönnunum 6, sem
sögðu upp, að ég skildi koma þeim
á vinnuvélanámskeið, og að þvf
loknu fengju þeir 10% yfir-
greiðslu á yfirvinnu, en þeir
neituðu. Því var mönnunum sent
bréf, og í þvf stóð að þar sem þeir
vildu ekki vinna á umsömdu
kaupi, væru ekki not fyrir þá
lengur. Mennirnir voru 6 f upp-
hafi, en nú hafa tveir séð að sér
og hafið störf að nýju. Ég vil taka
það fram að allir þessir menn eru
frábærir starfskraftar."
Þá sagði Halldór, að það hefði
ekki verið hægt að greiða þessum
mönnum 10% yfirborgunina af
þeirri ástæðu einni að þá hefðu
mennirnir verið komnir með jafn-
hátt kaup og þeir sem sótt hefðu
vinnuvélanámskeiðin. Það væri
ekki hægt að mismuna mönnum á
þann hátt.
Ennfremur sagðist hann vilja
koma því á framfæri, að frétt sú í
Þjóðviljanum, um að Geir Hall-
grfmsson, forsætisráðherra væri
hluthafi í Steypustöðinni væri
alröng. Ein 15 ár væru liðin sfðan
H. Benediktsson og Cq hefði selt
hluta sinn í Steypustöðinni og við
fáa hefði verið erfiðara að semja
um sölu á steypu en Geir þegar
hann var borgarstjóri.
Viðræðunefnd
F.F.S.Í.
Á fundi stjórnar F.F.S.t 3.
september 1974 var eftir beiðni
ríkisstjórnarinnar kosin viðræðu-
nefnd, til þess að ræða viðhorf í
efnahags og launamálum.
Kjörnir voru eftirtaldir:
Guðmundur Kjærnested forseti
Farmanna og fiskimannas.
Islands.
Ingólfur Stefánsson framkv.stj.
Farmanna og fiskimannas. Is-
lands.
Ingólfur S. Ingólfsson varaforseti
Farmanna og fiskimannas.
Islands.
Ingólfur Falsson stýrimaður
Guðlaugur Gíslason stýrimaður
Loftur Júlíusson formaður
Skipstj., og stmf. Aldan og
Daníel Guðmundsson vélstj.
Gott tíðarfar
í Dalasýslu
Hvoli, Saurbæ,
Dalasýslu í gær.
MENN hér eru heldur ánægðir
eftir sumarið og vel undir vetur-
inn búnir. Skólar eru nú að fara í
gang og allt að færast í haust-
formið. Tíðarfar hefur verið gott.
Fólk fer nú að búa sig undir
félagsstarf vetrarins, en fyrst er
að fara í göngurnar og allt i kring
um það, hauststörfin.
Laugaskóli byrjar i næstu viku
og húsmæðraskólinn að Staðar-
felli byrjar í októberbyrjun.
Skólastjóraskipti verða nú á
Laugum. Einar Kristjánsson, sem
verið hefur skólastjóri í yfir 20 ár
og unnið mikið og gott starf,
lætur niTaf embætti og við tekur
ungur maður úr Hafnarfirði, Val-
ur Óskarsson, 28 ára gamall. Er
hann boðinn velkominn til starfa. .
— séra Ingiberg. I
X-9
Eftir að hafa
KLtFIO KLETTANA,
Hf^AÐA PHIL OG MWU
5ER TIL
SKYNDIAM&
ER OKKAR EINA
VON.OG ÞAO
3TRAX! .
þAÐ þARF
A1BIRA TIL.OG
MER DETTUR
ffAQ i'HUG/
Mig hryllir við tilhugsuninni Pabbi segir, að ég hafi ekki Hann sagðist ætla að láta skrá Lýsispillur!
um, að skólinn sé að byrja. verið nógu dugleg að borða. mig f nýja námsgrein.
kOtturinn feljx