Morgunblaðið - 10.09.1974, Side 30
30
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1974
Evel Knievel við skotpallinn, skömmu áður en hann lagði upp f stökkið
mikla.
Knievel lenti í
giánni en lifði
Twin Falls, Bandarikjunum
9. september — AP.
BANDARÍSKA ofurhuganum
Evel Knievel mistókst í gær að
stökkva yfir Snákagjá f sér-
smíðaðri eldflaug sinni. En
iifandi slapp hann, 700 milljón
krónum ríkari.
þyrlu, alveg ómeiddur, en
Knievel var þó ekki á þvi að
endurtaka tilraun sfna. En áhorf-
endur kölluðu sýninguna nútfma
sirkus og vissulega virðist
Knievel vera bezt launaði sirkus-
listamaður f heimi.
Lissabon — AP
SÚ stefna stjórnar Antonio
de Spinola, herforingja, að
veita nýlendum Portúgala
í Afríku sjálfstæði, hefur
mætt hraðri andstöðu
hvítra íbúa Angóla og Mos-
ambique. í báðum löndum
hafa innflytjendur gert
uppreisn og kallað Spinola
svikara og segja samninga
hans við afrískar skæru-
liðahreyfingar „glæp gegn
portúgölsku þjóðinni".
Á Spinola því við lík vandamál
að strfða og De Gaulle fyrir 12
árum þegar hann batt enda á
frönsk yfirráð í Alsír gegn vilja
1,5 milljóna franskra fbúa.
Angóla og Mosambique hafa
verið undir stjórn Portúgala í
meir en 4 aldir. Hvítir innflytj-
endur eru um ein milljón, en þeir
hafa haft öll völd f sínum höndum
þó að afrfski meirihlutinn telji
um 13 milljónir.
Hvftir íbúar hafa sameinazt í
„Þjóðarsamtökum Mosambique" í
þvf skyni að viðhalda yfirráðum
hvítra f landinu. Hafa þeir gengið
í lið við vonsvikna herforingja,
sem undanfarin 10 ár hafa barizt
gegn skæruliðum í nýlendunni,
og kalla sig „Dreka dauðans". 1
Angóla hefur svipuð hreyfing,
sem kallar sig „Byltingarfylkingu
Angóla“, hvatt til stofnunar sjálf-
stæðs ríkis með minnihlutastjórn
hvítra, að fordæmi Ródesfu.
Þriðjungur hinna 200 þúsund
íbúa höfuðborgar Mosambique,
Lourenco Marques, eru hvítir.
Þar sem borgin er staðsett, syðst í
landinu, með minna en klukku-
stundar akleið frá landamærum
Suður-Afrfku, hefur lítið orðið
vart við athafnir skæruliða. Hvít-
ir fbúar eru því mjög reiðir yfir
samkomulagi Spinola við Frelimo
um að nýlendan fái sjálfstæði.
1 Angóla eru hvítir menn um
tíundi hluti afheildaríbúafjöldan-
um. Skæruliðahreyfingin þar í
landi er klofin vegna ættbálkarigs
og því hafa samningaviðræður
um sjálfstæði Angóla enn ekki
hafizt.
Nú óttast margir, að hvítir fbú-
ar landanna láti til skarar skríða
að dæmi franskra manna í Alsír
og stofni jafnvel sjálfstæð rfki.
Vekur það ugg hjá mörgum, þar
sem portúgalskir hermenn, sem
barizt hafa í löndunum tveim, eru
orðnir stríðsþreyttir og vilja
framar öllu komast heim. Því er
ólíklegt að Portúgalir hafi getu
til að grípa inn í til að tryggja
yfirráð innfæddra líkt og franska
stjórnin gerði f Alsír.
Yfirlýsing Nixons:
,Ég gerði rangt.
Eftirfarandi er texti þeirrar
yfirlýsingar, sem Richard Nix-
on gaf út eftir að tiikynnt var,
að Ford forseti hefði gefið hon-
um upp sakir:
„Mér hefur verið tjáð, að
Ford forseti hafi veitt mér al-
gjöra og endanlega náðun frá
öllum ákærum, sem kynnu að
verða lagðar fram vegna að-
gerða minna á þeim tfma, sem
ég var forseti Bandarfkjanna.
Um leið og ég móttek þessa
náðun, vona ég, að þessi samúð-
arrfka ákvörðun muni leggja
sitt að mörkum til að létta
fargi Watergate af bandarfsku
þjóðinni.
Hérna f Kalifornfu er viðhorf
mitt til Watergate gjörólfkt
þvf, sem það var, er ég var f öllu
umtalinu miðju, og átti enn yf-
ir höfði mér allar hinar dag-
legu kröfur, sem forsetaemb-
ættið ieggur á mann.
Þegar ég Ift til baka á það,
sem f huga mér er enn flókið og
ruglandi völundarhús atburða,
ákvarðana, álags og einstakl-
inga, sé ég eitt atriði greini-
lega, og það er, að ég gerði
rangt f að bregðast ekki af
meiri ákveðni og hreinskilni
við Watergate-málinu, einkum
þegar það var orðið að réttar-
farsrannsókn, og hafði vaxið
frá þvf að vera pólitfskt
hneyksli f þjóðarharmleik.
Engin orð fá lýst hversu
innilega ég sé eftir og þjáist
vegna þeirrar örvæntingar, sem
mistök mfn f Watergate-málinu
hafa valdið þjóðinni og forseta-
embættinu, — þjóð, sem ég
elska svo djúpt, og embætti,
sem ég ber svo mikla virðingu
fyrir.
Ég veit, að margt réttsýnt
fólk telur, að aðgerðum mfnum
f Watergate-málinu hafi vfsvit-
andi verið ætlað að þjóna eigin-
hagsmunum mfnum og verið
vfsvitandi ólöglegar. Eg skil nú,
að mfn eigin mistök og rangar
ákvarðanir hafa styrkt þá skoð-
un. Þessi byrði er þyngst allra.
Það, að sú leið, sem ég valdi
til þess að taka á Watergate-
málinu, var ranga leiðin, er
byrði, sem ég mun bera sér-
hvern dag það sem eftir er ævi
minnar.“
Nixon og metsölubókin.
New York 9. september
—AP
IRVING Larzar, kunnur um-
boðsmaður rithöfunda, sagði í
gær, að Richard Nixon, fyrrum
Bandaríkjaforseti, hefði gefið
sér umboð til að semja um
útgáfuréttinn á endurminn-
ingum Nixons, og væri gert ráð
fyrir a.m.k. 2 milljónum doll-
ara í fyrirframgreiðslur.
Lazar, sem hitti Nixon um
mánaðamótin, sagði, að Nixon
vildi alls ekki draga sig í hlé;
hann vildi halda áfram að
leggja sitt af mörkum „í þágu
friðarins". Nixon hafi verið
ágætlega á sig kominn and-
lega, og alls ekki verið niður-
dreginn. „Ég held, að hann
muni segja eina af merkustu
sögum allra tíma. Hann er nú
einu sinni sá maður, sem virki-
lega veit hvað gerðist í Water-
gate-málinu. Bók hans verður
opinská og heiðarieg um at-
burði Watergate,“ sagði Lazar,
en kvaðst ekki vita hvenær
Nixon hæfi ritun bókarinnar.
Lazar er m.a. umboðsmaður
Vladimir Nabokov, Francoes
Sagan og Arthur Schlesinger
jr.
Einhliða útfærsla
óviturleg.
Bergen 9. september —NTB
KNUT Vardal, fiskimálastjóri
Noregs, segir f samtali við
blaðið Bergens Tidende f dag,
að Norðmenn ættu að fara var-
lega í landhelgismálum og
gæta þess að koma ekki með
grófar yfirlýsingar, sem síðar
kynni að reynast örðugt að
standa við. Tekur Vardal í við-
talinu eindregna afstöðu gegn
því, að Noregur færi landhelgi
sfna út einhliða áður en reynt
hafi verið að ná samkomulagi
eftir samningaleiðinni.
Ibsen stolið.
Skien 9. september —NTB
FRUMÚTGÁFU af bókum
Henrik Ibsens, svo og hinni
verðmætu bók „Harrison’s
History of London", hefur
verið stolið úr bókasafni
Ibsenshússins í Skien. Var inn-
brotið framið aðfararnótt
laugardags, en bókunum var
stillt út I glerkassa, sem brot-
inn var mélinu smærra.
Hvítir gera uppsteyt
í nýlendum Portúgala
Meir en 30 þúsund manns
greiddu 25 dali til að fá að sjá með
eigin augum þegar Knievel stykki
sitt stærsta stökk, en hann er
þekktur fyrir alls kyns hopp sín á
mótorhjólum. Meir en ein milljón
manns horfði á Knievel stökkva í
sjónvarpi. Ofurhuginn hafði áður
tryggt sér 60% af hagnaði af
sjónvarpssendingum frá stökk-
inu.
Snákagjá er 1450 metra breið
og 182 metra djúp. Samkvæmt
áætlunum átti eldflaugin, himna-
hjól X2, að komast f 912 metra
hæð á 560 km hraða á klukku-
stund. 1 hámarkshæð áttu fallhlíf-
ar að opnast til að tryggja þægi-
lega lendingu.
En svo virðist sem hraðinn hafi
verið of mikill, að minnsta kosti
tókst Knievel ekki að stjórna fall-
hlífunum. Þær opnuðust næstum
strax og eldflaugin hafði sleppt
skotpallinum og fengu áhorf-
endur að sjá hana sfga rólega
niður á gjána.
Þangað var þessi bandariski
ævintýramaður síðan sóttur af
Parfs 9. september — NTB:
Fjármálaráðherrar sex fremstu
iðnaðarlanda hafa orðið sammála
um að samræma efnahagsmála-
stefnu sfna f þvf skyni að berjast
gegn verðbólgunni, án þess að
dregið verði úr millirfkjavið-
skiptum og atvinnu, að þvf er
fjármálaráðherra Frakka, Jean-
Pierre Fourcade, sagði f gær.
Fourcade lagði áherzlu á, að
einstök rfki héldu samt sem áður
áfram baráttu sinni gegn verð-
bólgu.
Fjármálaráðherra Frakklands,
Vestur-Þýzkalands, Bretlands,
Bandarfkjanna, ttalfu og Japans
komu saman f grennd við Parfs á
laugardag og sunnudag til að
ræða verðbólguvandann og
vandamál samfara hækkandi
olfuverði. Stjórnendur seðla-
banka rfkjanna voru einnig til
staðar, en eftir fundinn fóru þeir
til Basel f Sviss, þar sem þeir ætla
að halda eigin fund.
Sagði franski fjármálaráðherr-
ann, að ráðherrarnir hefðu verið
sammála um að tryggja bæri
meiri dreifingu á þeim miklu
tekjum, sem olfuútflutningslönd
nú nytu. Sagði hann jafnframt, að
þeir hefðu ákveðið að reyna að
gera efnahag landa sinna óháðari
olfu f framtfðinni.
Fjármagnsmarkaðurinn var
einnig til umræðu og urðu ráð-
herrarnir sammála um, að seðla-
bankarnir yrðu að auka eftirlit
með flutning fjármagns landa á
milli.
Andstæðingar hvftu uppreisnarmannanna — leiðtogar Frelimo. A myndinni er forseti hreyfingarinnar,
Ndugu Samora Machel, að ávarpa blaðamenn.
Samræmd stefna
gegn verðbólgu