Morgunblaðið - 10.09.1974, Síða 31
31
MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 10. SEPTEMBER 1974
— Watergate
Framhald af bls. 1
Forks í Norður-Dakóta
bárust fréttir af viðbrögð-
um — ekki aðeins í orði
heldur á borði. Kirk Smith
dómari þar í borg lét í dag
lausa tvo fanga, sem hann
hafði dæmt í fangelsi, —
annan fyrir ölvun, hinn
fyrir umferðarafbrot —,
vegna náðunar Nixons.
Sagði Smith, að hann
hygðist náða alla, sem
kæmu fyrir réttinn í Grand
Forks. „Ég gerði þetta
fyrir fangana, sem sitja í
fangaklefanum sínum og
velta því fyrir sér hvers
vagna þeir séu þar.“ Áður
höfðu komið fram hörð við-
brögð við náðuninni, er
Jerald Terhorst, blaðafull-
trúi Fords forseta og náinn
vinur hans, sagði af sér
vegna hennar, af því að
„samvizka mín bauð mér
það.“
Eftir að Ford hafði skýrt frá
ákvörðun sinni um náðun I sjón-
varpsávarpi, gaf Richard Nixon
yfirlýsingu, þar sem hann
þakkaði Ford þessa „samúðarríku
ákvörðun", kvaðst gera sér grein
fyrir því, að hann hefði brugðizt
rangt við Watergate-málinu, og
sagði eingin orð geta tjáð sorg
sína og eftirsjá vegna þess hugar-
angurs, sem máiið hefði valdið
bandarfsku þjóðinni. Texti yfir-
lýsingar Nixons birtist I heild á
bls. 30 í blaðinu I dag.
Viðbrögð við náðuninni skipt-
ust sem fyrr segir mjög i tvö horn.
Mike Mansfield, leiðtogi demó-
krata í öldungadeildinni, sagði:
„Watergate er ekki að baki eins
og margir héldu, heldur enn einu
sinni því miður beint frammi fyr-
ir okkur.“ Peter Rodino, formað-
ur dómsmálanefndar fulltrúa-
deildarinnar, sem einnig er demó-
krati, gagnrýndi einnig ákvörðun-
ina. Edward Brook, öldungadeild-
arþingmaður, sem var fyrsti repú-
blikaninn, sem krafðist afsagnar
Nixons á sínum tíma, sagði náðun-
ina vera „að mínum dómi alvarleg
rnistök." Þá herma dagblöð í
Bandaríkjunum, að starfsfólk
Watergate-saksóknarans, Leon
Jaworskis, sem var f miðri gaum-
gæfilegri rannsókn á málum Nix-
ons er Ford náðaði hann, sé mjög
vonsvikið vegna hennar.
Einnig barst Hvfta húsinu mik-
ill fjöldi sfmskeyta og símhring-
inga f dag og í gær, og segja
starfsmenn þess, að flest þeirra
hafi verið á móti náðuninni. En
flestir repúblíkanar virtust telja,
að Ford hefði tekið rétta ákvörð-
un eins og komið var málum, þar
eð ekki hafði verið unnt að setja
réttlát réttarhöld yfir forsetanum
fyrrverandi vegna þess mikla um-
tals, sem mál hans hefur hlotið,
t.d. yrði erfitt að skipa kviðdóm,
— auk þess sem því fyrr sem
Watergate-málið væri til lykta
leitt, því betra. Þanníg sagði Nel-
son Rockefeller, varaforsetaefni
Fords, að náðunin væri merki
„samvizkusemi, samúðar og hug-
rekkis".
I sjónvarpsávarpi sínu sagði
Ford, m.a.: „Samvizka mín býður
n>ér sannariega og greinilega að
framlengja ékki þennan vonda
draum; að hefja ekki aftur þanix
kafla, sem lokið er. Samvizka mfn
segir mér, að aðeins ég sem for-
seti hafi stjórnarskrárlegan rétt
til þess að loka og innsigla þessa
bók. Einnig sagði Ford: „Það er
almennt vitað, að alvarlegar ásak-
anir og ákærur hanga sem sverð
yfir fyrrverandi forseta okkar og
ógna heilbrigði hans þegar hann
reynir að endurskipuleggja líf
sitt.“
Náðun Nixons bannar alla sak-
sókn á hendur honum fyrir glæpi,
sem hann kann að hafa framið í
forsetatíð sinni, en hins vegar
leysir hún hann ekki undan sak-
sókn í einkamálum, né heldur þvf
að bera vitni í málum Watergate-
sakbominga. Þá var ákveðið fyrir
náðunina, að alríkisstjórnin yfir-
tæki skjöl Nixons, og hljóðritanir,
en hljóðritanirnar á að eyðileggja
innan 5—10 ára, eða fyrr ef Nixon
deyr innan 5 ára.
— Fólkið svaf
Framhald af bls. 2
mjög I brún þegar þeir vökn-
uðu um morguninn og sáu út-
ganginn á fbúðinni, en blóð var
um hana alla, þvf þjófurinn
hafði skorið sig við innbrots-
tilraunirnar. Saknaði fólkið
smáhluta svo sem kveikjara,
myndavélar, ferðaútvarps og
fleira.
Lögreglan hóf fljótt leit að
þessum bfræfna innbrotsþjófi
og fann hann sfðdegis f gær.
Var unnið að þvf f gær að safna
saman hlutunum, sem farið
höfðu vfða. Maður þessi mun
vera einn af svonefndum góð-
kunningjum Iögreglunnar.
— 25 milljónir
Framhald af bls. 3.
Óseldar birgðir af loðnumjöli I
landinu eru nú rúmlega 20.000
tonn, af þorskmjöli um 11.000
tonn og af karfamjöli 1.000 tonn.
Auk þess munu óseld um 1.000
tonn af hvalmjöli.
Framleiðsla af fiskmjöli er
áætluð um 90.000 tonn á þessu
ári. Verðlag hefur farið hríðlækk-
andi allt frá byrjun þessa árs og
aðeins smávægilegt magn verið
selt frá því í apríl s.l.
Síðustu sölur á þorskmjöli voru
$ 4.60 fyrir proteineiningu í tonni
cif. en hæstu sölur á þorskmjöli á
s.l. ári voru $ 10.20 proteinein-
ingin.
— Fjórðungsþing
Framhald af bls. 4
urskoðunar vegna almennrar
óánægju sveitarstjórnarmanna og
að þeirristofnunverðiskiptupp í
deildir, sem starfi hver í sínum
landshluta; að reist verði stjórn-
sýslu og þjónustumiðstöð á fsa-
firði, að sérfræðileg læknisþjón
usta verði aukin í fjórðungnum;
að gerð verði byggingaráætlun
fyrir Vestfirði vegna vöntunar á
— Laxveiði
Framhald af bls. 32
móti vegna mikilla þurrka.
Heildarveiðin f Laxá f Aðaldal
f sumar var um 2000 Iaxar, og
rúmlega 100 laxar 20 punda og
yfir og þar af 15—20 frá
25—32 pund. Og svo gerði hún
sér Iftið fyrir og Iauk veiði-
tfmabilinu með enn einum 30
pundaranum.
Ljósmynd Mbl. — ihj.
I
Enginn kemst
hjá æfingu
SÍ hSPin viii ta!a erlend tungumál.
Æfinguna færðu hjá okkur.
Hin vinsælu kvöldnámskeið fyrir fn'^una hefj-
ast eftir rúma viku.
síirí ", ÖÖ04 og 11109
Málaskólinn Mímir
Brautarholti 4.
íbúðarhúsnæði og að stjórnar-
mönnum Sambands íslenzkra
sveitarfélaga verði fjölgað úr 5 í
7.
Mesta athygli vekur etv. sam-
þykktin um hafnarmál, en þar
segir m.a.: „Svo almennar eru
þessar kvartanir orðnar (um
starfsemi Hafnarmálastofnunar),
að hvorki Hafnarmálastofnunin
né þeir, sem hún á að þjóna, geta
lengur við unað. Eitt brýnasta
verkefnið í hafnarmálum lands-
ins er því að taka starfsemi Hafn-
armálastofnunarinnar til gagn-
gerrar endurskoðunar og gera
þær breytingar á henni, sem þeir,
er þjónustunnar eiga að njóta,
geti verið ánægðir með. Við slfka
endurskoðun á starfsháttum verð-
ur að gera þá kröfu að stofnun-
inni verði skipt upp í deildir, sem
starfi út um land, f nágrenni við
þau verkefni, sem leysa þarf.“
— Viðræðurnar
Framhald af bls. 32
felld niður og að gerðar verði
einhverjar ráðstafanir til verndar
kjörum hinna lægstlaunuðu."
Jónas sagði, að BHM væri algjör-
lega á móti svokölluðu vísitölu-
þaki.
Jónas sagði, að ef það væri
meiningin að taka vísitöluna úr
sambandi um langan tfma, þá
fyndist flestum og þar á meðal
BHM farið æði langt niður, þar
sem þegar er komin kjaraskerð-
ing, sem nemur 15,5%, þannig að
innan skamms tfma eru menn
komnir með sömu kjör og giltu
fyrir síðustu samninga. „Ef fara á
langt niður fyrir það,“ sagði
Jónas Bjarnason, „þá lýst mér
heldur illa á þetta.“ Jónas kvað og
það verða mesta vandamálið að
finna fólkið með þessi lágu laun,
sem bæta þyrfti. Ymsir hópar
fólks fylltu og stækkuðu þessa
tölu láglaunafólks, fólk, sem ef til
vill væri að læra og biða eftir því
að fara í einhverja aðra atvinnu-
grein og kvaðst Jónas búast við
því, að aðalágreiningsmálið yrði
að finna fólkið, sem brýnast
þyrfti þessara varnarráðstafana
við.
— Vandamálin
Framhald af bls. 14
innan ákveðinna takmarka.
Stefna hans er ekki eins
hörð nú eins og hún var
áður fyrr, þegar hann
heimtaði full yfirráð Araba
yfir Jerúsalem (allri borginni)
og bundinn væri endi á líf
Ísraelsríkis.
Það er enginn vafi á því,
að meiri trúarhiti mótar af-
stöðu Saudiarabíumanna til
þessa viðkvæma ‘og hættu-
lega vandamáls en nokkurrar
annarrar Arabaþjóðar. Múha-
meðstrú gegnir veigamiklu
hlutverki hér.
Stuttu áður en ég átti
viðtal við konunginn var ég
viðstaddur morgunáheyrn
þar sem ulemar (aðal prest-
arnir) vottuðu virðingu sína
klæddir sem vopnaðir Bedú-
ínar, varðmenn með gull-
brydduð sverð gengu um og
hinn gamli blindi rektor
Múhameðsháskólans í
Medina sat þögull við hlið
konungs síns.
Samt vekur það mikla
undrun, að trúarbrögð skuli
hafa svo mikil áhrif á stjórn-
málalegt mat á valdajafn-
væginu og jafnvel á mat á
hinu viðkvæma Watergate-
máli Bandaríkjanna. Þó að
það hljómi undarlega í eyrum
Bandaríkjamanna, þá er
skilningur Saudiarabíu á
Watergatemálinu þýðingar-
mikill, því að þetta afskekkta
land hefur mikil völd vegna
orku sinnar og fjárhagslegrar
stöðu. Það er hugsanlegt, að
hann hafi áhrif á sögu
Bandaríkjanna I sama mæli
og Faisal er sannfærður um,
að ísrael hafi áhrif á stefnu
Rússa — og Araba.
(Grein þessi er skrifuð áður
en Nixon sagði af sér).
At hverju ekki að kaupa vandað?
SIOUX
er í sérflokki.
Skósalan, Laugaveg 1.
HIRBFOCO
Krani fyrir
kraftblokkina
Hiab-Foco býöur útgeröarmönnum sérstakan krana fyrir kraftblakkir.
Hiab-Foco kraninn gjörbreytir vinnuaöstööu og möguleikum um borö.
Einföld stjórnun og ótrúleg lyftigeta.
Leitiö tæknilegra upplýsinga hjá sölumönnum Veltis h. f.
VELTIR HF
SUÐURLANDSBRAUT 16. SÍMI 35200