Morgunblaðið - 18.12.1974, Blaðsíða 1

Morgunblaðið - 18.12.1974, Blaðsíða 1
36 SIÐUR 254. tbl. 61. árg. MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974 Prentsmiðja Morgunblaðsins. Mikil ánægja með topp- fundinn Washington 17. desember Reuter—AP. ÁRANGRl toppfundar þeirra Giscard D’Estaings Frakklands- forseta og Fords Bandaríkjafor- seta á Martiniqueeyju um helg- ina hefur verið fagnað i Banda- rfkjunum og Evrópu sem tíma- mótum f samskiptum þjóðanna. Hafa báðir forsetarnir látið f ljós ánægju sfna með fundinn og haft orð á, að til muna hafi hlýnað í samskiptunum, eftir kulda og tor- tryggni sl. ára. Blöó i Bandaríkjunum og Frakklandi skýra frá fundinum i stórum forsíðufréttum, þar sem mest áherzla er lögð á mála- miðlunarsamkomulag forsetanna um afstöðu og samskipti við oliu- framleiðslulöndin. Þá leggja blöðin áherzlu á það, að forsetarn- ir hafi eytt margs konar misskiln- ingi, sem hafi verið undirrót hinna kuldulegu samskipta um langt árabil. Blaðið Le Figaro gengur svo langt að segja í rit- stjórnargrein: „Gömlu rifrildi lokið.“ Talsmenn flestra stjórna EBE-landanna hafa fagnað sam- komulaginu og sagt, að það opni leiðir til stóraukinna vinsamlegra samskipta Bandaríkjanna og Evrópu, sem verði laus við inn- byrðis togstreitu og tortryggni einstakra ríkja. Þá er einnig mikil ánægja með samkomulag forset- anna um aó seólabankar og rikis- sjóðir geti virt gullbirgðir sínar á markaðsverði, sem er fjórfalt hærra en hið opinbera alþjóða- verð á gulli, sem er um 42 doll- arar fyrir únsuna. Fregnin um samkomulagið hafði þau áhrif, að gull hækkaði í verði um allt að 6,50 dollurum únsan í dag og gengi dollars og punds lækkaði verulega. Var gullverðið í London 189 dollarar fyrir únsuna, er mörkuðum var lokað í kvöld. Aðeíns sex dagar til jóla og börnin kunna sér ekki læti. Jólafríin eru sem óðast að byrja og Litlu jólin haldin í skólunum. Góðir gestir gista nú manna- byggðir og tók Friðþjófur þessa mynd af jólasvein- um á förnum vegi nú í vikunni i barnahópi. Það er eins og okkur sýnist á svip barnanna, að þau séu að reyna að muna allan óskalistann, sem þau voru búin að semja fyrir jólasveininn. Hvarf Stonehouse vekur mikla furðu í Bretlandi London 17. desember Reuter—AP. HVARF Johns Stonehouse, fyrr- um ráðherra í stjórn Verka- mannaflokksins { Bretlandi veld- ur mönnum miklum heilabrotum þar í landi, eftir að tvö brezk blöð skýrðu frá þvf, að tékkóslóvakfsk- ur leyniþjónustumaður, sem flúði til Vesturlanda, hafi sagt frá þvf, Grikkland: Ný stjórnarskrá lögð fram — Stassinopoulos forseti Aþenu 17. desember Reuter. Lagaprófessorinn Michael Stass- 55þúsund hung- urmorða Bangkok, 17. des. Reuter. I SKVRSLU Thailandsstjórn- ar, sem gefin var út f Bangkok f dag, segir, að 55 þúsund börn undir 5 ára aldri hafi orðið hungurmorða f landinu það sem af er þessu ári. inopoulos var i dag skipaður bráðabirgðaforseti f Grikklandi í stað Gizikis, sem sagði af sér á sunnudag. Stassinopoulos, sem er 71 árs, var rekinn úr starfi af herforingjastjórninni 1969 sem forscti rfkisráðsins, eftir að hann skipaði aftur f embætti 21 dóm- ara, sem hershöfðingjarnir höfðu svipt embætti. Forsetaembættið nú er alveg valdalaust, en í nýrri stjórnar- skrá, sem lögð verður fyrir þingið á morgun, er gert ráð fyrir, að embætti forseta verði hið valda- mesta í landinu. Vitað er, að Kara- manlis hefur sjálfur hug á að skipa það embætti, eftir að stjórnarskráin nýja hefir verið samþykkt, en flokkur hans hefur 219 þingsæti af 300 í þinginu. að Stonehouse hefði verið njósnari. Stonehouse hvarf f Flórfda fyrir rúmum mánuði, er hann fór frá hótelinu, sem hann bjó f, til að fá sér sundsprett f sjónum, að þvf er hann sagði. Leyniþjónustumaðurinn Josef Frolik skýrði frá þvi, að Stone- house hefði verið einn þriggja brezkra þingmanna, sem hefðu verið njósnarar, eða tengiliðir njósnara. Það voru blöðin The Times og Daily Mail, sem skýrðu frá þessu, og einn af þingmönnum Verkamannaflokksins, Tom Litterick, skýrði Daily Mail frá því, að það væri um það rætt I Neðri málstofunni, aó Stonehouse hefði verið á launum hjá banda- nsku leyniþjónustunni CIA. Fyrst eftir hvarf Stonehouse var talið, að hann hefði drukknað og hvarf hans flokkað undir slys. Hins vegar hefur líkinu ekki skolað á land eins og nær undan- tekningarlaust gerist við strendur Flórída. Frolik, sem flúði til Banda- ríkjanna 1969, á að hafa sagt, að Stonehouse hafi verið einn hlekkur í mjög flókinni njósna- keðju embættismanna og þing- manna í London. Hafi hann fallizt á að njósna fyrir tékkóslóvakísku leyniþjónustuna i byrjun sfðasta áratugar. Blöðin benda á, að Stonehouse gæti hafa gefið mikil- vægar upplýsingar, sé þessi stað- hæfing rétt, þvi að hann var flug- málaráðherra 1964—66 og síðar póstmálaráðherra. Stonehouse dró sig út úr ráðherrastörfum 1970 til þess, eins og hann orðaði það, að öðlast fjárhagslegt sjálf- stæði frá Verkamannaflokknum en var áfram þingmaður flokks- ins. Þásegir The Times, að brezka leyniþjónustan hafi haft Stone- house undir eftirliti s). 5 ár. Edward Heath, leiótogi Ihalds- flokksins, spurði Harold Wilson forsætisráðherra að þvi á þingi i dag, hvort hann vissi eitthvað um hvarf Stonehouse. Wilson svaraði: „Þvi miður geri ég það ekki, þó ég vildi að svo væri.“ Wilson sagði, að er þetta mál hefði komið upp 1969, hefói allur ferill Stonehouse verið kannaður mjög nákvæmlega og ekkert kom- ið i ljós, sem renndi stoðum undir Framhald á bls. 20 Milljón Bandaríkjamenn að missa atvinnu sma Washington 17. des. Reuter WILLIAM Simon fjármálaráð- herra Bandarikjanna skýrði fjár- laganefnd Bandarfkjaþings frá þvf, að cfnahagsástandið f land- inu ætti enn eftir að versna og að á næstu mánuðum myndu milljón Bandarfkjamenn til viðbótar missa atvinnuna, þannig að alls yrðu 7,5% þjóðarinnar atvinnu- laus, sem er mesta atvinnuleysi á 16 ára tfmabili. Simon sagðist ekki telja, að úr færi að rætast í efnahagsmálum fyrr en upp úr miðju næsta ári. Ráðherrann sagði hins vegar að svo virtist sem verðbólguþróunin i landinu, sem verið hefur 12% á ársgrundvelli, væri farin að hægja á sér. 1 ræðu sinni fyrir nefndinni lagði ráðherrann rík- asta áherzlu á að vara þingmenn við aó afgreiða fjárlög, sem gætu haft of örvandi áhrif á efnahags- kerfið. Sagði ráðherrann: „Við er- um nú að greiða hátt verð fyrir óábyrga efnahagsmálastefnu sið- asta áratugar og ef haldið verður áfram á söniu braut heldur reikn- ingurinn áfram að hækka.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.