Morgunblaðið - 18.12.1974, Blaðsíða 24

Morgunblaðið - 18.12.1974, Blaðsíða 24
24 MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974 Matthías Á. Mathiesen fjármálaráðherra: Fjárlagafrumvarpið endur- speglar þróun efnahagsmálamia ANNARRI umræðu um fjárlagafrumvarpið fyrir árið 1975 var framhaldið í Sameinuðu Alþingi síðdeg- is á mánudag. Matthías Á. Mathiesen fjármálaráð- herra gerði þar m.a. grein fyrir hækkunum á fjár- lagafrumvarpinu og sagði, að frumvarpið hlyti að bera keim af þróun efna- hags- og fjármála á þessu ári. Ráðherrann sagði, að ekkert væri eðlilegra en menn réiknuðu út hlut- fallslega hækkun frum- varpsins miðað við fjárlög þessa árs, en þá yrðu menn að gera sér grein fyrir þeim forsendum, sem það hefði verið reist á. Nefndi hann sem dæmi, að niður- greiðslur úr ríkissjóði hefðu þegar farið 120% fram úr því, sem gert hafi verið ráð fyrir í fjárlögum. Geir Gunnarsson (K) mælti fyr- ir minnihluta fjárveitinganefnd- ar. Hann sagði að skattheimta rik- isins, samkvæmt framlögðu fjár- lagafrumvarpi, framkomnum og fyrirsjáanlegum breytingartillög- um við það, myndi hækka um 17—18 milljörðum kr. frá núgild- andi fjárlögum. Fjárlög 1975 myndu hækka um a.m.k. 60% frá fjárlögum yfirstandandi árs, eða í einu lagi um hærri fjárhæð en sem nemur öllum fjárlögum árs- ins 1972. Þetta væru fyrstu fjár- lög nýs fjármálaráðherra, sem á sl. vetri hefði talið ekki einungis framkvæmanlegt, heldur auðveit viðfangs að skera niður ríkisút- gjöld þess árs um 4.500 milljónir. Hann stæði síðan að methækkun fjárlaga i þingsögunni. Hann sagði að hvergi i fjárlagafrum- varpinu öriaði á aðgát eða sparn- aði í rekstrarliðum. Jón Ármann Héðinsson (A) vís- aði til málflutnings Geirs Gunn- arssonar, sem hefði í aðalatriðum mælt fyrir munn þeirra allra, er skipuðu minnihluta fjárveitinga- nefndar. Hann gerði sérstaklega að aðfinnsluefni: niðurgreiðslur Geir Gunnarsson. landbúnaðarafurða, fjáröflun til vegagerðar á landsbyggðinni með happdrættisskuidabréfum, hækk- un fjárlaga í heild og einstakra liða. Hann kvað fjárlögin þó enn eiga eftiraðhækka, frá því sem nú væri sýnt, enda lægju fyrir ýmsar sanngjarnar og eölilegar beiðnir frá ýmsum aðilum, sem nauðsyn bæri til að verða við. Karvel Pálmason gat þess, að fulltrúar stjórnarflokkanna í fjár- veitinganefnd hefðu í raun réttri gefist upp við þann niðurskurð framkvæmda, sem rikisstjórnin hefði boðað, en eigi að siður myndi stórkostlegur niðurskurð- ur eiga sér stað í þessum efnum. Nefndi þingmaðurinn m.a. hversu brýna nauðsyn bæri til að auka fjárveitingar til hafnarmála og hafnarmannvirkja. Þá sagði hann, að það væri fjarstæða ein að halda niðri framlögum til félagasamtaka eins og nú hefði verið gert.Aldreihefði verið tekið jafn lítið tillit til óska fjárveit- inganefndarmanna um hækkanir. Matthías A. Mathiesen fjár- málaráðherra sagði, að ljóst væri við afgreiðslu þessa frumvarps, að allar aðstæður væru með sér- stökum hætti, og þess vegna vildi hann leggja áherslu á, að vinna við frumvarpið hefði hafist í und- irnefnd áður en þing kom saman til þess að auðvelda afgreiðslu þess, en nú hefði verið um óvenju stuttan tíma að ræða, þar sem Alþingi hefði komið svo seint saman, sem raun bar vitni um. Þá vék ráðherrann að þvi, að stjórn- arskiptin í sumar hefðu haft áhrif á það, hversu siðbúnar fjárlagatii- lögurnar voru frá ráðuneytunum. Hann sagðist vera reiðubúinn til samstarfs við fjárveitinganefnd. Ljóst væri, að á undanförnum ár- um hefðu mjög síðbúnar tillögur tafið afgreiðslu mála í nefndinni. Fjármálaráðherra vék að því, að menn hefðu gert margs konar samanburð á fjárlögum 1974 og þessu fjárlagafrumvarpi. Ljóst væri, að þetta frumvarp væri hæsta fjárlagafrumvarp, sem lagt hefði verið fram. Að vísu væru það ekki ný sannindi, að fjárlög hækkuðu verulega milli ára, en þetta ógnarstökk væri algjörlega óeðlilegt með tilliti tii fjárlaga- gerðar á undanförnum árum. En orsökin fyrir þessu lægi þó í aug- um uppi. Fjárlagafrumvarpið bæri jafnan keim af þróun efna- hagsmála líðandi árs. Þróun efna- hagsmála á þessu ári hefði verið algjört einsdæmi. Við hefðum ekki einvörðungu slegið Islands- met I verðbólgu, heldur Evrópu- met. Menn gætu svo spurt sjálfan sig, hverjir hefðu slegið það met. Fjármálaráðherra gat þess síðan, að ljóst hefði verið þegar við afgreiðslu fjárlagafrumvarps- ins í fyrra, að margir iiðir hefðu verið vanáætlaðir. Nefndi hann sem dæmi niðurgreiðslurnar. 1 fjárlögum þessa árs væri gert ráð fyrir 1.500 millj. kr. til niður- greiðslna. Þegar þessi liður hafi verið samþykktur hefði öllum verið ijóst, að niðurgreiðslurnar myndu nema talsvert hærri upp- hæð, þó að þá hafi ekki verið séð fyrir sú hækkun sem á varð í kjölfar bráðabirgðalaganna í maí. Niðurstaðan væri líka sú, að þessi liður hefði farið fram úr áætlun sem næmi 120%. Alls myndu niðurgreiðslur á þessu ári kosta ríkissjóð 3.316 millj. kr. Ekkert væri við það að athuga þó að menn reiknuðu út hækkun fjár- lagafrumvarps miðað við fjárlög yfirstandandi árs, en þá yrðu menn að gera sér grein fyrir því, á hvaða forsendum viðmiðunar- tölurnar væru reistar. Þá vék fjármálaráðherra að gagnrýni stjórnarandstöðunnar og sagði, að þar væri i einu orðinu talað um, að ekki mætti hækka rekstrargjöld en í hinu, að fram- kvæmdir mættu ekki dragast saman. Þá væri gagnrýnt hversu fjárlögin hefðu hækkað en um leið bornar fram ásakanir vegna þess, að ekki væri nægjanlegu fjármagni veitt i einstakar fram- kvæmdir. Þannig ræki sig hvað á annars horn. Ráðherrann gerði grein fyrir helstu hækkunarliðum frum- varpsins og spurði hvað stjórnar- andstaðan treysti sér til þess að skera niður af þeim. Laun hefðu Matthfas A. Mathiesen fjármála- ráðherra. hækkað um 2300 milljónir kr., niðurgreiðslur um 2100 millj. kr., bætur almannatrygginga um 3200 millj. kr. og markaðir tekjustofn- ar um 2900 millj. kr. Hér væri um lögbundnar hækkanir að ræða, er samtals næmu 10.500 millj. kr. eða 70% heildarhækkunarinnar. Rekstrargjöld hefðu hækkað um 63,5% og sú hækkun byggðist á 64% hækkun verðlags á þessu ári. Hér væri því um að ræða afleið- ingar þeirrar þróunar i efnahags- og fjármálum, sem átt hefði sér MMnci Sérkennslumál afbrígðilegra barna 1 GREINARGERÐ með þings- ályktunartillögu Sigurlaugar Bjarnadóttur (S) og fjögurra annarra þingmanna Sjáifstæðis- flokksins um sérkennslumál af- brigðilegra barna og sérmenntun kennara á því sviði segir m.a.: „Hin nýju grunnskólalög, sem gert er ráð fyrir að komi til fram- kvæmda á næstu 10 árum, bera það á ýmsan hátt með sér, að viiji er fyrir hendi til að koma til móts við breytta þjóðfélagsháttu og nýjar þarfir skólakerfisins. Öneitanlega hefðu þau þó mátt gera fyllri skil vanda þeirra nem- enda, sem haidnir eru einhverri vöntun, andlegri eða líkamlegri. Væntanlega mun reglugerð með lögunum geta bætt það upp. En einmitt með tilliti til hins óvenju- lega langa gildistökutima laganna þykir flutningsmönnum þessarar tillögu ástæða til að vekja sér- staka afhygli á þessum þætti skólafræðslunnar, til þess að ekki verði lengur gengið fram hjá honum við framkvæmd fræðslu- iaga, — og þá sérstaklega með grunnskóla landsbyggóarinnar í huga. Fræðsluyfirvöld Reykjavíkur- borgar hafa á undanförnum árum haft frumkvæðí um ýmsar nýj- ungar, sem lúta að auknum stuðn- ingi og aðhlynningu þeirra nem- enda, sem einhverra orsaka vegna eru hjálparþurfi. Á fræðsluskrif- stofu borgarinnar starfar sér- stakur sérkennsiufulltrúi, sem i samráði og samvinnu vió fræðslu- ráð og skólastjóra borgarinnar skipuleggur og leiðbeinir um hinar ýmsu greinar sérkennslu og aðrar ráðstafanir vegna bág- staddra barna. Uti á landsbyggðinni verður annað uppi á teningnum. Má óhikað segja, að utan Stór- Reykjavíkursvæðisins ríki ófremdarástand á þessu sviði skólamála. Munu þess mörg dæmí, að fólk, búsett úti á landi, hefur neyðst til að flytjast búferl- um hingað suður til að sjá börn- um sínum fyrir fræðslu og með- ferð við þeirra hæfi. Skylt er að geta þess, að þessi mál hafa verið og eru í athugun innan menntamálaráðuneytisins, en þær athuganir og aðgerðir, ef hægt er að nota það orð, hafa því miður hingað til verið alitof handahófskenndar og í lausu Iofti, þrátt fyrir góðan vilja starfs- manna ráðuneytisins. Þessi mál þarf að taka föstum tökum og til þess þarf ákveðinn aðila innan ráðuneytisins, eða í nánu sam- bandi við það, hæfan sérmennt- aðan mann, sem geti beitt sér að því að skipuleggja og samræma aðgerðir á þessu sviði og um leió verið til aðstoðar og ráðuneytis skólastjórum og fræðsluráðum úti á landsbyggðinni, sem í dag eiga í ekkert ákveðið hús aó venda í þessum málum. F’yrr á þessu ári fór fram á vegum ráðuneytisins athugun á sérkennsluþörfinni utan Stór- Reykjavíkussvæðisins. Heim- sóttir voru 60 skólar vestan-, austan- og norðanlands, upplýs- inga aflað um hjálparkennslu og nemendur athugaðir eftir þvi sem tími og aðstæóur leyfóu, jafn- framt gefnar ráðleggingar um meðferð þeirra og kennslu. Sérfræðingur sá, dr. Arnór Hannibalsson sálfræðingur, sem athugun þessa gerði, lætur þess getið í upphafi skýrslu sinnar til ráðuneytisins, að hann geri ekki verkefninu nein skil, sem gagn sé í, svo naumur tími sem honum var til þess ætlaður, og ekki telur hann horfur á, að áframhald verði á störfum hans fyrir ráðuneytið. Allt um það verður þó að telja skýrslu Arnórs, svo langt sem hún nær, gagnlega sem byrjunarskref í rétta átt. Hún gefur v.ísbendingu um það, sem raunar var vitað áður, að hér er um umfangsmikið vandamál að ræða, sem yfirstjórn fræðslumála ber skylda til að beita sér að af aivöru með öllum tiltækum ráðum. Skýrsla þessi leiðir i ljós, að af þeim 60 skólum, sem heimsóttir voru, höfóu 18 einhverja — meiri eða minni — hjálparkennslu með höndum. Náði hún til 313 nem- enda, en heildarnemendafjöldi þessara 18 skóla var 4468. Hjálparkennslunemendur voru þannig, miðað við þessar tölur, um 7%. 1 sjávarplássi einu er skóli með 44 nemendur. Af þeim þyrftu 8 nemendur aukatilsögn eða sér- meðferð, en engin tök eru þarna á að veita neitt slikt. Til þess vantar kennara. í öðru sjávarplássi með 151 nemanda i skóla þyrftu 21—24 hjálparkennslu við, en engu slíku er þarna tii að dreifa — og þannig mætti lengi telja. Af tilgreindum orsökum náms- erfiðleika er lestregða hvað al- gengust, en margar aðrar koma til, svo sem sjóngallar, heyrnar- skerðing, málgallar, skriftar- örðugleikar, stafablinda, sein- þroski, taugaveiklun, erfiðar heimilisástæður og vanræksla í uppeldi. Hér er við margvíslegan vanda að fást, — vanda, sem verður þvi erfiðari úrlausnar, því seinna sem hann er uppgötvaður á skólaferl- inum. Áhugi og góður vilji al- mennra kennara og skólastjóra hrekkur hér hvergi nærri til að ná viðunandi árangri i því björg- unar- og hjálparstarfi, sem hér þarf að koma til. Sérstofnanir hér í Reykjavík eða úti á landi eru ekki lausnar- orðið i þessu máli, þótt nauðsyn- legar séu fyrir þann hóp barna, sem eru það mikið afbriðileg líkamlega og/eða andiega, að þeim verður ekki sinnt að gagni með stuðningi eða sérmeðferð i hinum almenna skóla. Innilokun barns, sem haldið er einhverjum annmarka eða vöntun, á sér- stofnun og aðskilnaður þess frá fjölskyldu og heimili, eðlilegu umhverfi og heilbrigðum félögum er neyðarúrræði, sem nú er al- mennt hafnað, ef annar kostur er fyrir hendi. Stefnan hlýtur að vera — og er sú, að sérkennslu- þjónustan flytjist út í almenna skólakerfið og út um landið allt að svo miklu leyti sem mögulegt er. 1 ýmsum skólahéruðum úti um sveitir landsins hafa verið reyndar nýjar leiðir í þessum mál- um með athyglisverðum árangri I formi farkennslu, skiptikennslu og námskeiðahalds. En það er fremur undantekning en regla og án þess að nokkrar samræmdar aðgerðir stjórnvalda hafi komið til. Siðasta málsgrein tillögunnar beinist að menntun sérkennara við Kennaraháskóla Islands. Hiklaust má telja, að skortur á menntuðum sérkennurum sé hvað stærsti þröskuldurinn í vegi fyrir því, að okkar sérkennslumál komist í viðunandi horf. Kennara- háskóli Islands hefur því miklar skyldur að rækja i þessu sam- bandi og er þess að vænta, að endurskoðun sú, sem nú stendur yfir á kennsluháttum hans og námsfyrirkomulagi, leiði til réttr- ar þróunar og úrbóta í þessum málum. Það er skoðun okkar, flutnings- manna þessarar tillögu, að lagfær- ing á sérkennslumálum lands- byggðarinnar sé mikilvægur þáttur i aðgerðum sem miða að byggöajafnvægi. Það er fleira en skuttogarar og hraðfrystihús, sem skiptir máli fyrir fólk dreif- býlisins. Þvi er áríðandi, að yfir- stjórn menntamála geri hér sam- stillt átak til úrbóta án tafar. Markmið skólans er aó koma hverjum nemanda til manndóms og þroska, gera hann að sjálf- bjarga einstaklingi i lifsbarátt- unni. 1 ósk okkar og viðleitni til að ná því markmiði megum við sist gleyma þeim, sem helst eru hjálparþurfi.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.