Morgunblaðið - 18.12.1974, Side 33

Morgunblaðið - 18.12.1974, Side 33
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 18. DESEMBER 1974 33 Evelyn Anthony: LAUNMORÐINGINN Jðhanna v Kristjónsdóttir þýddi , 78 — Þér náðuð honum, sagði hann seinlega. — I miðri guðs- þjónustu. Oþverrinn. Hann gekk fram og rak King kinnhest. King tók fram vasaklút og þurrkaði sér um munninn. — Ef þér ætlið að halda þessu áfram er liklega bezt að ég geri yfirlýsingu, sagði hann. Nú var þessu lokið. Hann gat ekki gert sér neinar vonir um að standast þeim snúing. Hann hafði gert eins og honum hafði verið fyrirlagt. Kannski myndi honum aldrei auðnast að berja augum ibúðina sína í Moskvu, en hann gat beðið. Hans menn myndu bjarga honum út. Hann þurfti aðeins að játa að hann ræki njósnahring og hefði falið sig á bak við tímarit sitt. Og svo myndi hann neita þvi að hann hefði gert annað en hlusta á morðáætlun Huntley Cameron. Elizabeth var lykilmanneskjan. Huntley gat því aðeins flækt hann í málið að hann stefndi sínu eigin öryggi í mikinn voða. Það var aðeins Elizabeth sem gat persónulega borið vitni gegn honum. Og nú var hún stein- dauð. — Ég er reiðubúinn að gefa yfirlýsingu, endurtók hann. Það var blóð í vasaklútnum hans. Leary gaut augunum á hann og neri hnúann. — Gott, sagði hann. — Við skul- um skrifa það niður. Engra spurninga var spurt. Leary lét ekki grípa fram í fyrir / ; \ Velvakandi svarar I sima 10-100 kl. 1 0.30 — 11.30, frá mánudegi til föstudags. V__:________________________ • Síðbúnir jólasveinar Jón Pálsson Háaleitisbraut 54 hafði samband við okkur, og kvaðst hafa farið með tvær litlar dætur sínar niður á Austurvöll á sunnudaginn var til að sjá þegar tendruð voru ljósin á jólatrénu þar. Að lokinni athöfninni á Aust- urvelli sagðist Jón hafa haldið á Lækjartorg eins og fjöldi þeirra, sem á Austurvelli voru, en á Lækjartorgi var von á jólasvein- um. Er ekki að orðlengja það, að biðin eftir jólasveinunum varð þrir stundarfjórðungar, og sagði Jón, að flest börn hefðu þá verið orðin blá af kulda. Hann sagði, að dætrum sínum hefði verið orðið svo kalt þegar jólasveinarnir komu loksins, að hann hefði orðið að fara með þær heim, án þess að þær hefðu getað horft á skemmtiatriðin. Að lokum sagðist hann vera undrandi á því, að ekki hefði ver- ið séð til þess að dagskráin á Lækjartorgi hefði verið strax á eftir athöfninni á Austurvelli. % Austurstræti eins og fægt! Göngugarpur kom að máli við Velvakanda og sagðist vera orð- inn hundleiður á öllu þrasinu í dálkum hans, og þess vegna ætl- aði hann að vekja athygli á nokkru jákvæðu svona til til- honum. King talaði nokkra stund, játaði á sig njósnir, viðurkenndi þjóðerni sitt og gaf reyndar upp hið rétta nafn sitt, Alexander Turin, major i sovézka hernum. Hann nefndi nokkra minniháttar njósnara, tvo í Vestur-Þýzkalandi og einn í Frakklandi. Að þessu sögðu hafði hann ekki meira að játa. Hann lét í ljós þá ósk að þeir tækju niður orðrétta yfirlýsingu hans, svo að hann gæti siðan iesið hana og skrifað undir. En ekkert gerðist. Leary sat kyrr i stólnum sínum og saup á kaffinu og barði laust með blý- anti á borðröndina, þangað til þessi kynlega þögn fór að fara í taugarnar á King. — Ég hef sagt ykkur allt, sagði hann. — Ég fer fram á að fá að undirrita yfirlýsingu mína. Leary horfði þreytulega á hann. — Ég er ekki að ákæra yður fyrir neitt af þessu, sagði hann. — Það skiptir mig sem sé ekki nokkru máli, hvort þér eruð KGB njósnari eða Eddi King frá Minnesota. Við munum ekki sækja yður til saka fyrir njósnir, King. Aftur á móti mun ég af- henda yður lögreglunni. Fyrir morð á konu, sem hét Dallas Jay .. Hann stóð upp og gekk i áttina til dyra. Hann staðnæmdist þar og leit umöxl. — Þér fáið án efa lífstíðar- fengelsi, sagði hann hirðuleysis- lega. Tveir menn gengu til King. Hann stóð upp áður en þeir lögðu hendur á axlir honum, Hann kyngdi með nokkrum erfiðismun- breytingar. Hann sagðist ekki hafa orðið mikið var við að fólk kynni að meta þá stórkost- legu breytingu sem orðið hefði á Austurstræti hvað við- kæmi hitalögnunum góðu, en reyndin hefði orðið sú, að snjó og hálku hefði verið út- rýmt úr strætinu. Að vísu hefði það verið tilgangurinn, en árang- urinn hefði farið fram úr björt- ustu vonum að slnu mati. Hann sagðist vita til þess, að víðar væri nú gert ráð fyrir samskonar lögn- um, en enn sem komið væri virtist aðeins það opinbera hafa komið auga á þessa stórkostlegu tækni. Hann sagðist vilja benda hús- byggjendum á það að athuga hvort ekki mætti nota þessa tækni þar sem bilastæði og gangstéttir eru við hús. % Brunavarnir Gunnar Jónsson skrifar: „Kæri Velvakandi. Nú fara jólin í hönd og þar með eykst brunahætta til mikilla muna, því að þá er opinn eldúr svo að segja á hverju heimili. Þó hefur þessi hætta minnkað mikið síðan hætt var að mestu að hafa kerti á jólatrjám, en áður en farið var að nota raflýsingu í þessu skyni kviknaði yfirleitt I út frá jólatrjám á mörgum heimilum um hver jól. Þetta hefur sem bet- ur fer breytzt, þótt enn sé mikil hætta á bruna vegna kerta og annars um þessa stórhátíð. Mig langar til að þakka Bruna- málastofnun tslands alveg sér- staklega fyrir mjög svo tímabær- ar kvikmyndir, sem sýndar hafa um og allt I einu fannst honum herbergið bæði minna og dimm- ara en áður. — Ég veit ekkert um það mál, sagði hann. — Ég hef engan drep- ið. Ég drap ekki kardinálann heldur. Hann getur ekki gert mér þetta... — Enginn drap kardinálann, sagði hljóðleg og stillileg rödd að baki honum. — Þetta hefur skol- ast til hjá yður. Það var John Jackson, sem var skotinn til bana i dag. Elizabeth gekk inn I flugstöðv- arbygginguna á Kennedyflugvell- inum. Fyrir mánuði hafði hún staðið hér með Keller og beðið eftir að tengiliður hans kæmi og sækti hann. Enginn hafði birzt og þau höfðu farið saman héðan, hann hafði haldið um handlegg hennar, svo að hún reyndi ekki að laumast i burtu frá honum. Siðan voru aðeins fjórar vikur liðnar, en henni fannst sem hún hefði lifað heila mannsævi á þessum skamma tima. Þau höfðu komið hingað saman eins og persónur í grískum harmleik, eins og örlögin hefðu leitt þau saman. Hún ruddi sér braut gegnum þvöguna og hugsaði um hvort hann væri á þeim stað, þar sem þau ætluðu að hittast og farmið- arnir biðu þeirra. Hún var orðin alltof sein. Hana langaði að setjast niður og gráta af vonbrigðum. Ef hann hefði nú verið I sjónvarpi nú að undan- förnu, en einnig er ástæða til að þakka sjónvarpinu fyrir sýndan skilning á nauðsyn þess að halda þessu áróðursefni að fólki. Um leið vil ég svo taka fram, að mér finnst að gjarnan mætti sýna slíkar myndir á öðrum árstímum, því að almennt held ég að fólk geri sér ekki ljósa grein fyrir brunahættu, sem eins og kunnugt er getur stafað af ýmiss konar orsökum. Og fyrst ég er búinn að taka mér penna í hönd, þá er ekki úr vegi að hvetja fólk til að hafa slökkvitæki á heimilum sínum. Slík tæki eru ekki dýr miðað við verðmætin, sem bjargazt geta við notkun þeirra ef illa fer. Fyrir- skipað er að hafa slökkvitæki I skólum, opinberum stofnunum og á vinnustöðum, en ekki er siður nauðsynlegt að þau séu til að heimilum. Gunnar Jónsson." % Hjálpsamir unglingar. Hér fer á eftir bréf frá þakk- látri konu: „Kæri Velvakandi. Mjög er algengt að hnýtt sé í unglingana okkar. Þetta er að vlsu ekki ný bóla, því þetta mun vera lenzka á öllum tímum. Það er rétt, unglingarnir eru oft baldnir og misjafn sauður er I mörgu fé þar eins og annars staðar. Meira er svo alltaf rætt um það sem miður fer en hitt, sem vel er gert. Ég er nú svo heppin að hafa aldrei lent í tæri við óknyttaungl- gefizt upp á því að bíða og væri farinn sína leið. Ef hann hefði tekið einhverja aðra vél og hugs- aði með sér að hún hefði skipt um skoðun og ætlaði sér ekki að hitta hann hér i dag. Fólk sneri sér við og horfði á eftir henni. Hún hafði alltaf vakið eftirtekt þar sem hún fór vegna glæsileilca og fegurðar svo að hún veitti því enga athygli. Hún gekk hjá bókabúð í flugstöðinni, þar sem útvarp var opið og verið var að segja fréttir. Hún hirti ekkert um að leggja við hlustir. hún stefndi I áttina að farmiðasölunni. Hún hefði þekkt hann úr órafjar- lægð. Og nú sá hún að hann var hvergi sjáanlegur. Hún nam stað- ar andartak og barðist við að halda tárunum i skefjum. Hún mátti ekki vera sá kjáni að búast við þvi versta strax. Hann hlaut að hafa skilið eftir boð til hennar. Það var erfitt fyrir hana að kom- ast að, fólk hafði raðað sér upp tl að ná í miðana. Hún fór i röðina og skimaði þó stöðugt í allar áttir. Loks kom röðin að henni: — Tveir miðar til Mexico. Eliza- beth Cameron, sagði hún. Hún skalf frá hvirfli til ilja og varð að gripa í afgreiðsluborðið sér til stuðnings. Klukkan á veggnum á móti hennar var ná- kvæmlega tólf. Hún var klukku- tíma of sein. Hann hlaut að hafa komið og farið aftur. Nema því aðeins að hann hefði lika tafizt i umferðinni. Og auðvitað hafði hann tafist eins og hún, hann hafði sjálfsagt lagt mun seinna af stað, þar sem hann gerði sér enn inga, en hef margar og góðar sög- ur að segja af hinum, enda eru þeir í miklum meirihluta. Hér verður aðeins drepið á tvennt. í hálkunni þessa dagana lenti ég I því að festa bílinn minn við gangstétt og fékk hann ekki hreyft. Þarna var ég búin að baksa i langan tíma og ýmsir höfðu gengið framhjá, en þá komu allt í einu þrir piltar 16—17 ára og ýttu á bilinn óumbeðið þannig að ég losnaði úr prísund- inni. Siðan veifuðu þeir til min og héldu á brott áður en mér gafst tími til að fara út úr bílnum og þakka þeim. Hitt atvikið, sem ég ætla að minnast á, gerðist á götu i Austur- bænum. Lítil telpa um þriggja ára var þar á vappi ein og yfirgefin. Tveir unglingar hinumegin á göt- unni stönzuðu og virtu hana fyrir sér um hríð. Síðan gengu þeir til telpunnar og fóru að tala við hana. Ekki vissi ég, hvað þeim fór á milli, en síðan komu þeir með hana til mín og spurðu mig, hvort ég vissi, hvar hún ætti heima. Það vissi ég ekki. „Hún er villt,“ sögðu þeir, „og getur ekki sagt, hvar hún á heima. Það er ómögu- legt að skilja barnið svona eftir.“ Síðan tóku þeir hana á háhest og hófu húsvitjanir í leit að heimili hennar. Þegar ég hætti að fylgjast með þeim, höfðu þeir þegar farið i þrjú hús. Ég þykist vita, að þeir hafi feng- ið góðar móttökur, þegar þeir loks fundu heimili hennar. En mér hlýnaði um hjartaræturnar vegna hugulsemi þeirra. Þakklát kona.“ ÓKINDIN Þau elskast um nótt á baðströnd Hún leggst til sunds, en á ekki aftur- kvœmt. DJARFAR ástallfslýsingar — spenn- andi barátta manns og skepnu. METSÖLUBÓKum öll Bandaríkin. FRÁBÆRT verk Peter Benchleys, sonarsonar Robert Benchleys. kvik- myndaleikara, — rithöfundur I 3. liS, maðurinn, sem skrifaSi oft ræð- urnarfyrir Lyndon B. Johnson. STÓRFENGLEG segir Fletcher Knebel. HRÍFANDI, i samanburSi viS MOBY DICK (1851) — Washington Post. Hún neyðir mann til að halda lestrin- um ifram, hún hrifur þi. sem lesiS hafa „Gamli maðurinn og hafið" — NEW REOUBLIC. Niið i ÓKINDINA strax — það getur orðið of seint. „Skoltarnirluktust um brjóstkassann i honum. Hooper fann fyrir ægi- legum þrýstingi, eins og innyflin hefðu verið látin i pressu. Hann rak hnefann í svart auga hákarlsins, sem beit skoltunum saman og það siðasta, sem Hooper sá fyrir sér áður en hann dó. var augað, sem starði á hann gegnum ský, sem myndaðist af hans eigin blóði. ., Hann náði til hans," hrópaði Brody, „gerðu eitthvað", „Maðurinn er dauður" sagði Quint. Gefðu þér tíma — þú sleppir henni ekki fyrr en hún er búin.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.