Morgunblaðið - 05.02.1975, Síða 13
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRUAR 1975 13
Sjötugur í dag:
Sr. Jón Auðuns fyrr-
verandi dómprófastur
Kveðja frá Dómkirkjunni.
I dag, miðvikudaginn 5. febrúar
1975, er sr. Jón Auðuns fyrrv.
dómprófastur sjötugur.
Slikur dagur hlýtur að marka
timamót í ævi hvers manns, er
nær þessum aldri, og hann er
vinum og velunnurum jafnframt
tilefni hugleiðinga um liðna tíð,
um þann tíma, er leiðir hafa legið
saman og spor stefnt til sömu
áttar. Mörgum verður slíkur dag-
ur gjarnan sjónarhóll, þar sem líf
þeirra, sem á vegamótum standa,
líður fyrir sjónir. Atburðirnir eru
margir, sem skera sig úr, skilja
eftir sin merki, sem setja svip á
lífið í kring, en líka sinn ilm, í
likingu talað, þau hughrif, sem
skapa þakklætið og hugarhlýjuna,
hin andlegu bönd, sem tengja sál
við sál.
Þegar ég stend á slikum sjónar-
hóli í dag, þá leitar hugur minn
miklu lengra aftur en sem svarar
þeim tima, er leiðir mínar og for-
vera míns hafa legið saman I
starfi við okkar ástsælu Dóm-
kirkju. Ég minnist fyrst áranna,
sem Frjálslyndi söfnurðurinn
starfaði, og þá heyrði ég líka oft
talað um sr. Jón Auðuns sem rit-
stjóra Morguns og forseta Sálar-
rannsóknarfélags Islands. Þessi
tvö nöfn túlka tvær þær stefnur,
sem hvað mestum hræringum
hafa valdið í andlegu lífi Is-
lendinga s.l. hálfa öld. Sr. Jón
Auðuns hefur verið i forystusveit
þeirra beggja, og enn í dag er til
hans horft sem áhrifamanns á
þessu sviði.
Þegar sr. Jón var kosinn prest-
ur við Dómkirkjuna 1945, var
hann kosinn sem fulltrúi þeirrar
stefnu, er kýs frjálshuga túlkun
kristinna kenninga. I þeim anda
hefur hann og starfað innan
kirkju sem utan. Hann hefur
prédikað siðferðilega ábyrgð ein-
staklingsins, og ómyrkur í máli
hefur hann bent á þær veilur
samtíðarinnar, sem, að hans dómi,
hafa verið hættumerki um, að
þjóð eða kirkja felldu á sig fjötra
i einhverri mynd, ekki síst með
því að stiga spor aftur á bak eða
með því að víkjast undan merkj-
um vestrænnar menningar. —
Það hefur aldrei verið logn i
kringum sr. Jón Auðuns, heldur
hræring og lif.
Mjög sterkur dráttur í þeirri
mynd, sem kirkjugestir eiga af sr.
Jóni, er hin djúpstæða sannfær-
ing og sá fagnaðarríki boðskapur,
sem hann hefur svo sterklega
flutt á hreinu og fögru máli um lif
eftir líf, um upprisu og óendan-
lega möguleika mannssálarinnar
á nýjum brautum handan við
móðuna miklu. Hvort heldur
hefur verið í prédikunarstóli eða
við likbörur, þá hefur rödd sr.
Jóns Auðuns hljómað sterkt og
skýrt um þessi mál. Og hann
hefur með miklum skarpleika sin-
um og andlegum hæfileikum öðr-
um átt mjög sterkan þátt i að
móta þá lífsskoðun, sem islenska
þjóðin á um þessi mál í dag. — Ég
geri mér þess fulla grein, að hér
eru fullyrtir stórir hlutir, en við
þetta er auðvelt að standa.
Störf sr. Jóns Auðuns að kirkju-
málum eru margþætt, önnur en
þau, sem ég hef þegar minnst á.
Frikirkjan í Hafnarfirði naut
þjónustu hans lengi. Hann var
prófastur i fjölmennasta prófasts-
dæmi landsins í rúma tvo áratugi
og prófdómari við Guðfræðideild
Háskóla Islands hefur hann verið
i aldarfjórðung. Hann hefur setið
á kirkjuþingi, og ótaldar eru þær
kirkjulegu nefndir, sem hann
hefur átt sæti i.
En utan kirkju hefur hann
einnig unnið hin merkustu störf.
Þjóðminjasafnið og Listasafn
Einars Jónssonar hafa bæði notið
starfs hans og næmrar fegurðar-
tilfinningar. Rauði krossinn á
honum mikið að þakka og fjöl-
mörg mannúðarfélög önnur. Og
það er áberandi um öll þessi störf,
að sr. Jón hefur ekki bara komið
þar við og fengið nafn sitt skráð á
bók, heldur .er yfirleitt margra
ára starf aö baki, unnið í þágu
þess málefnis, sem var manninum
kært, því ekkert hefur verið mín-
um ágæta vini, sr. Jóni, fjær skapi
en hálfvelgja og áhugalausir
starfsmenn.
Nú er tæp tvö ár, siðan sr. Jón
lét af embætti sem dómprófastur
og dómkirkjuprestur. Heilsu-
brestur olli þvi, að hann kaus að
kveðja söfnuð sinn nokkru fyrr
en hámarksaldri embættismanns
var náð. Hann og hans ágæta
kona, frú Ðagný, sem nú hefur
staðið við hlið hans í nær fjóra
áratugi, hafa búið um hið fagra
heimili sitt í prýðilegu umhverfi,
þar sem þau njóta þess þakklát,
sem lifið hefur gefið þeim, þar
sem þeirra góði hugur, léttleiki og
persónutöfrar umvefja vini
þeirra. Þakklátir hugir okkar,
sem þess höfum notið, samgleðj-
ast þeim í dag og árna þeim allra
heilla.
Þegar reynt er að rýna til fram-
tíóar af sjónarhóli dagsins, þá
skyggir Skuld fyrir sjón. En eitt
er vist, að i sr. Jóni Auðuns eigum
við, meðan Guð leyfir okkur að
njóta hans hér, þann mann, sem
ætið vill benda samtíð sinni
áfram og hærra á andlegri þroska-
braut, til aukins víðsýnis um
menn og málefni. Hann hefur oft
tekið undir orð sr. Matthíasar:
„Trúðu frjáls á Guð hins góða,
Guð er innst f þinni sál.
Guð er Ijós og lyfting þjóða;
lærðu Drottins hávamál.
Hugsa mest um, hvað þú ert,
hræsnislaus og sannur vert;
rfstu upp og rektu á flótta
rökkurvofur þrældómsótta.
Hver er Iffsins sælan sanna,
sigur þess og aðalmið?
Það er framsókn frumherjanna,
frelsissporið upp á við;
Það er vitsins blóðug braut,
brotin gegnum hverja þraut,
sigurleið hins sannleikssterka,
sigur gæsku og kærleiksverka.44
Slíkrar vegsögn hefur Dóm-
kirkjusöfnuðurinn notið af hans
hendi, einnig allir þeir aðrir, sem
flokk hans hafa fyllt. I nafni
safnaðarins vil ég þakka það hér í
dag. Við þökkum þeim sr. Jóni og
frú Dagnýju báðum allt þeirra
ágæta starf. Við biðjum Guð að
blessa þau og gefa þeim enn sem
besta og auðnurikasta daga.
Þórir Stephensen.
Billjard-borð
Til sölu vandað bílljardborð gerð S-Sörensen, sex mánaða gamalt.
Borðinu fylgja 1 5 kúlur tölusettar og köflóttar, þrjár kúlur, tvær hvitar
og ein rauð. Borðið er 1 13 x 203 cm. minnsta mál 90 x 150 cm.
Keilur, krítar, kjuðar og fl. fylgja. I borðinu er 1 56 tommu þykk
marmaraplata. Tilboð óskast sent Mbl. merkt: 6577 fyrir 1 5. febrúar.
Förum nýjar leíðir
Ferðamiðstöðin hf. er nýleg ferðaskrifstofa og fer nýjar leiðir.
Meðal helstu áfangastaða okkar eru: Agadir, Malta, Tunis Bulgaría og Istanbul.
Flestar ferðir eru um London og mögulegt er að dveljast þar í einn
eða fleiri daga. Við ferðumst oftast með reglulegu áætlunarflugi.
BEINT LEIGUFLUG TIL MÖLTU
í JÚLÍ ÁGÚST OG SEPTEMBER.
Verðið er. frá kr. 39.000.00 og þeir sem staðfesta pöntun
fyrir 15. febrúar fá 5% afslátt.
Ferðamiðsföðin hf.
FERÐASKRIFSTOFA Aðalstræti 9 — símar 11255 — 28133 — 12940
BROTTFARARDAGAR 1975
Áfangastaðir febr. marz apríl maí júní júlí ágúst sept.
Malta (beint flug) 6,23 6,25 8
Malta (um London) 1,22 13 3,24 12,26 9,23 6
Tunis (um London) 18 d. 26 3
Spánn (Benidorm) og London 15 d. 22 30
Morocco (Agadir) (um London 16 d. 12
Bulgária (Burgas) millilent í London 16 d. 16