Morgunblaðið - 05.02.1975, Side 17
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRUAR 1975
17
Jónas Kristjánsson
Akureyri — Minning
Þriðjudaginn 4. þ.m. var jaró-
sunginn frá Akureyrarkirkju Jón-
as Kristjánsson fyrrum mjólkur-
samlagsstjóri, sem lézt 27. jan. sl.,
nýorðinn áttatíu ára.
Kynni okkar Jónasar voru ekki
löng, í rauninni aðeins fáein ár.
En hin miklu störf sem hann
vann að stofnun og viðgangi
Minjasafnsins á Akureyri og
minjavörzlu þess, verðskulda, að
ég minnist hans með fáum orðum
nú þegar hann er allur.
Jónas fæddist 18. janúar 1895
að Víðigerði i Hrafnagilshreppi í
Eyjafjarðarsýslu. Foreldrar hans
voru bóndinn þar Kristján Hann-
esson og kona hans Hólmfriður
Kristjánsdóttir. Víðigerði var þá
smábýli og þau hjónin fátæk, en
gaman hafði Jónas að segja frá
því á síðari árum, hvernig hjáleig-
an hefði vaxið að kalla höfuðból-
inu yfir höfuð, en bróðir hans, og
síðar bróðursonur, sem þar tóku
við búi, efldu jörðina mjög og
komu þar upp miklum búskap á
nútímavísu. Það þótti Jónasi vænt
um, svo mikil itök sem landið og
landbúnaðurinn áttu í honum.
Jónas Kristjánsson varð bú-
fræðingur frá Hvanneyri 1914, en
siðar fór hann til framhaldsnáms
í Danmörku og nam þar við mjólk-
ursamlagsskóla og lagði þar með
grundvöllinn að ævistarfi sinu, en
forstjóri Mjólkursamlags KEA
var hann frá stofnun þess 1928 og
fram um sjötugsaldur. Mörg fleiri
störf vann hann tengd landbún-
aði, var lengi í stjórn Ræktunar-
félags Norðurlands og Búnaðar-
sambands Eyjafjarðar, og hin síð-
ustu ár annaðist hann bókhald
tilraunabúsins að Grísabóli.
Þekkti ég raunar litt til starfa
hans fyrir landbúnaðinn, en það
hygg ég, að bændur i Eyjafirði
hafi metið Jónas mikils, enda
sýndu þeir honum mikinn þakk-
lætisvott er hann lét af störfum
við Mjólkursamlagið.
Jónas Kristjánsson var orðinn
gamall maður er við kynntumst,
en hann var forvígismaður stofn-
unar Minjasafnsins á Akureyri og
i stjórn þess og stjórnarformaður
mörg hin siðari ár. Átti ég því oft
samskipti við hann og hafði ég
ekki lengi talað við Jónas í fyrsta
skipti er ég fann glöggt hinn gif-
urlega áhuga hans á framgangi
Minjasafnsins og kynntist hinni
þrotlausu elju, sem hann sýndi í
störfum fyrir safnið.
Það má heita, að fyrsta verk
mitt væri í hvert sinn sem ég kom
til Akureyrar að hitta Jónas. Það
var alltaf ánægjulegt að ræða við
hann, fara með honum inn í
Minjasafnið, skoða hvað nýtt
hefði bætzt við, fylgjast með
flutningi og endursmið kirkjunn-
ar gömlu, kynnást undirbúningi
að stækkun safnsins og heyra
hugmyndir hans að enn frekari
útvikkun þess og fjölgun bygg-
inga á safnsvæðinu. Hann var að
visu ekki einn í ákvörðunum sin-
um eða vinnu fyrir safnið, en mik-
il og góð samvinna var með hon-
um og öðrum i stjórninni svo og
safnverðinum, sem daglegar
framkvæmdir hvíldu á. En fjár-
tER FRAMKVÆMDASTOFNUNIN
„ÓSKABARN"
SJÁLFSTÆOISFLOKKSINS7
Heimdallur S.U.S. heldur almennan
félagsfund um Framkvæmdastofnun
ríkisins.
Fundurinn verður haldinn að
Hótel Esju, 2. hæð miðvikudaginn
5. febrúar n.k. kl. 20.30.
Framsögumenn verða þeir Sverrir
Hermannsson alþingismaður og
Þorsteinn Pálsson blaðamaður.
Munu þeir að loknum framsöguerindum
svara fyrirspurnum fundarmanna.
Allir velkomnir. Stjórnin
reiður safnsins sá Jónas um, eggj-
aði aðstandendur þess til fram-
kvæmda og fékk oft meiru áork-
að, en búaxt hefði mátt við að
óreyndu. Áhugi hans á safninu og
viðgangi þess var aðdáunarverður
og virtist aldrei dvina, þótt árin
færðust yfir og heilsan væri
brostin hin siðari árin.
Konu sina, Sigríði Guðmunds-
dóttur, missti Jónas 1958. Ég
kynntist henni aldrei, en glöggt
mátti merkja, að Jónas tregaði
hana mjög, þótt hann talaði fátt
um. Hann talaði í rauninni fátt
um eigin hagi, en hin síðari árin
var hann áreiðanlega nokkuð ein-
mana, þar sem hann bjó einn í
húsi sínu að Skólastig 7, ásamt
bróðurdóttur sinni, en dóttir
hans, Sólveig, er búsett í Amer-
íku, og sonurinn, Hreinn, í
Reykjavik. Það voru áreiðanlega
miklir sólardagar i lifi Jónasar,
þegar dóttir hans og dótturdætur
dvöldust nokkrar vikur á Akur-
eyri fyrir tveimur árum, eða þeg-
ar hann dvaldist vestra timakorn
hjá þeim.
Heimili Jónasar stóð mér ævin-
lega opið þá er ég kom til Akur-
eyrar. Gisti ég þar margar nætur
og naut margvíslegrar fyrir-
greiðslu hans. A Skólastig 7 var
allt í sömu skorðum og þá er kona
hans var á lifi, heimilið vandað og
fallegt og höfðingsblær á öllu.
Skemmtilegt var að sitja þar með
Jónasi og ræða hugðarefnin, hvað
verið var að framkvæma fyrir
safnið eða hvað var á prjónunum,
heyra Jónas segja frá ýmsu því,
sem hann hafði kynnzt, mönnum
og málefnum. Hann var mikill
Islendingur og unni landinu,
hinni gömiu, rótgrónu menningu
sveitanna og landbúnaðinum, sem
hann starfaði fyrir alla tíð.
Við fórum saman nokk'rar ferðir
um nágrannasveitirnar. Hann var
þar alls staðar þrautkunnugur og
þótti mér gott að hafa hann að
förunaut, enda lagði hann oft á
tíðum til fararskjótann. Var þá
feróinni heitið ýmist fram í fjörð
eóa út með firði, en þar þekkti
hann hverja þúfu og gat sagt deili
á hverju því, sem fyrir augu bar.
Siðustu árin var heilsa Jónasar
brostin og varð hann oft að liggja
á sjúkrahúsi. Sl. sumar, er ég var
síðast á ferð þar nyrðra, var hann
mjög lasburða en áhuginn var
enn hinn sami á byggingarmálum
Minjasafnsins og framgangi þess.
Þetta var honum efst í huga og
átti hann enda enn eftir að vinna
Framhald á bls. 25.
£3 Helgafell 5975257 VI. —2.
1.0.0.F. 7 = 1 56258Vi =
I.O.O.F. 9 = 1 56258’/! =
RMR-5-2-20-VS-MT-HT
Kvenfélag óháða
safnaðarins
áriðandl fundur Kirkjubæ i kvöld
kl. 8.30.
Kristniboðssambandið
Fórnarsamkoma verður i kristni-
boðshúsinu Betanía, Laufásvegi
13, i kvöld kl. 20.30. Gunnar
Sigurjónsson cand. theol talar. All-
ir velkomnir.
Góðtemplarahúsið
Hafnarfirði
Félagsvistin í kvöld, miðvikudag
5. febrúar. Verið velkomin.
Fjölmennið.
□ GLITNIR 5975257 — 1
Félagslíf
Frá Golfklúbbi Reykjavikur: Innan-
hússæfingar verða á fimmtudags-
kvöldum frá kl. 8.30 —10.30 og
hefjast 6. febrúar i leikfimissal
laugardalsvallar. (undir stúkunum)
Fólk er beðið um að hafa með sér
inniskó eða strigaskó. Notaðir
verða eingöngu léttir æfingabolt-
ar. Nýir félagar eru velkomnir og
fá þeir tilsögn hjá klúbbmeðlim-
um.
Stjórnin.
Hörgshlið
Almenn samkoma. — Boðun
fagnaðarerindis i kvöld, miðviku-
dag kl. 8.
Farfuglar
Munið spilakvöldið i kvöld.
Árnesingamót
verður að Hótel Borg n.k. laugar-
dag. Miðasala að Hótel Borg og
hjá Lárusi Blöndal á Skólavörðu-
stig.
FERÐAFELAG
ÍSLANDS
Eyvakvöld —
Myndakvöld,
í Lindarbæ (niðri) í kvöld (miðviku-
dag) kl. 20.30. Jóhðnn Sigur-
bergsson sýnir.
Ferðafélag íslands.
Frá Sálarrannsóknarfélagi
íslands
Félagsfundur verður haldinn mið-
vikudaginn 5. febrúar kl. 20.30
að Hallveigarstöðum.
Dagskrá:
Sigvaldi Hjálmarsson, indverskir
meistarar.
Stæráir 137 til 290 litra.
Frysti - kæliskápur
frá Bauknecht
tveir skápar í einum
Tekur ekki meira rúm en
venjulegir kæliskápar.
Alsjálfvirk affrysting i kæli-
rúmi.
Samband islenzkra samvinnufélaga
VÉLADEILD
Ármúla 3 Reykjavik simi 38900
Hægri eða vinstri opnun eftir
vali.
Ódýr í rekstri.
L 3 stærðir fyrirliggjandi.
(Bauknecht
veit hvers konan þarfnast