Morgunblaðið - 05.02.1975, Qupperneq 27
MORGUNBLAÐIÐ, MIÐVIKUDAGUR 5. FEBRUAR 1975 27
| ÍÞBdTIAFRÉTIIR MORGIiBlABSI NS |
1
Skotgræðgi skynseminni sterkari
Frá Sigtryggi Sigtryggssyni,
fréttamanni Mbl. á NM f Dan-
mörku.
Það var ekki tilþrifamikill
handknattleikur sem lið Islands
og Færeyja buðu um 500 áhorf-
endum upp á í gærkvöldi í Greve-
hallen í Kaupmannahöfn, en þá
fór þar fram leikur liðanna í
Norðurlandamótinu í handknatt-
leik. Við því var varla að búast.
Islendingar hafa aldrei náð að
sýna sitt bezta þegar þeir keppa
við lið sem eru snöggtum lélegri
en þeir sjálfir, og taka ber einnig
með í reikninginn að þetta var
annar leikur Færeyinganna sama
daginn — í gærmorgun kepptu
þeir við Svía og töpuðu fyrir þeim
15—26.
Orslitin í leiknum í gærkvöldi
urðu 10 marka sigur tslands
27—17, eftir að staðan hafði verið
15:7 í hálfleik. Var reyndar um
allþokkalegan leik að ræða í fyrri
hálfleiknum, ef það er undan-
skilið að Færeyingarnir héldu
knettinum mjög mikið, og freist-
uðu þess að draga niður hraðann í
leiknum í þeirri von að þeir
slyppu með sem minnstan marka-
mun. I seinni hálfleiknum var
hins vegar oft um hreina leik-
leysu að ræða. Færeyingarnir
voru þá greinilega orðnir ör-
þreyttir, og íslendingarnir léku
stundum eins og þeir væru byrj-
endur i handknattleik. Þegar á
heildina er litið verður þó ekki
annað sagt en að þetta hafi verið
öllu skárri leikur en þegar lið
þessara þjóða mættust síðast, I
Reykjavík s.l. haust, en þá sigr-
uðu tslendingarnir 28—20.
En það verður ekki af Færey-
ingunum skafið, að þeir gerðu
öðru hverju hina skemmtilegustu
hluti f þessum leik. Æfðar leik-
fléttur þeirra gáfu þeim mörk, og
fengu þeir þá óspart klapp fyrir
hjá áhorfendum sem flestir voru
á þeirra bandi.
Augljósasti galli i leik íslenzka
liðsins var hin yfirgengilega skot-
græðgi leikmannanna. Sóknirnar
voru ekki búnar að standa nema
nokkrar sekúndur þegar reynt
var að skjóta, og stundum var
ákafinn svo mikill að maður hélt
að gera ætti tvö mörk í hverju
upphlaupi. Þarna áttu margir sök,
misjafna þó. Þannig var skotanýt-
ing Viðars, Ölafs Jónssonar og
Harðar Sigmarssonar bærileg, en
hins vegar afleit hjá þeim Axel og
sérstaklega Pálma Pálmasyni,
sem reyndi mikið i leiknum með
litlum árangri. Fór hann t.d.
fimm sinnum inn úr vinstra horn-
inu án þess að honum tækist að
skora.
Beztir í íslenzka liðinu i þessum
leik voru markverðirnir Ólafur
Benediktsson, sem var inná í fyrri
hálfleik, og Gunnar Einarsson, en
báðir vörðu þeir oft með ágætum.
Þá var Ölafur Jónsson einnig
góður, þótt línumannshlutverkið
virðist ekki hæfa honum sem
skyldi. Hörður Sigmarsson kom
einnig vel frá leiknum og Bjarni
Jónsson var sterkur i vörninni.
I liði Færeyinganna bar einn
leikmaður af. Sá var markvörður-
inn Finn Bærentsen, sem bjarg-
aði hreinlega liði sínu frá stór-
skelli með glæsilegri markvörzlu
oft á tíðum. Aðrir umtalsverðir
leikmenn í færeyska liðinu voru
þeir Kari Mortensen sem leikur
með danska 1. deildar liðinu
Efterslægten og vinstri handar
skyttan Hanus Joensen.
ISTUTTU MALI
NM i handknattleik
Grevehallen 4. febrúar
(Jrslit: tsland — Færeyjar 27
Gangur leiksins.
Mín. Island
1. Viðar 1
2. Hördur 2:0
3. Axcl 3:0
4.
4. ólafurJ.
5.
7. Viðar
9. ÓlafurJ.
11. Pálmi (v)
12. Viðar
14.
17. Pálmi
19. ólafurE.
20.
21. Stefán
22. Pálmi (v)
—17
Færeyjar
Joelsen
J akobscn
Mortensen
K. Mortensen
25.
26.
28.
28.
30.
32.
32.
33.
36.
36.
37.
38.
39.
40.
42.
43.
46.
47.
48.
50.
51.
Viðar
ólafur J.
Viðar
Axel
Hörður
ólafur J.
Hörður
Hörður (v)
Axcl
Pétur
Stefán
Axel
Hálfleikur
13:5
13:6
14:6
14:7
15:7
r
16:7
16:8
17:8
17:9
18:9
19:9
19:10
20:10
20:11
20:12
21:12
22:12
23:12
23:13
24:13
24:14
51. Viðar
54.
55. Viðar
57.
57.
58. ÓlafurJ.
25:14
25:15 S. Jakobsen
26:15
26:16 S. Jakobsen
26:17 H. Joensen
27:17
H. Joensen
K. Mortensen
H. Joensen
Midjord
S. Jakobsen
H. Joensen
H. Joensen
Thorsteinson
K. Mortensen
Mörk Islands: Viðar Símonar-
son 7, Ólafur H. Jónsson 5,
Hörður Sigmarsson 4, Axel Axels-
son 4, Pálmi Pálmason 3, Stefán
Halldórsson 2, Ólafur Einarsson
1, Pétur Jóhannesson 1.
Mörk Færeyja: Hanus Joensen
5, Sverrir Jakobsen 4, Kari
Mortensen 4, Hilmar Joelsen 2,
Kari Thorsteinson 1, Johan Petur
Midjord 1.
Brottvisanir af velli: Axel
Axelsson í 2 mín. Einum færeysk-
um leikmanni i 2 mín.
Misheppnað vftakst: Pálmi
Pálmason skaut framhjá úr víta-
kasti í s.h.
Eigum góða möguleika gegn Dönum
Graaskjær látinn hætta
I KVÖLD fara fram úrslitaleik-
irnir f Norðurlandameistaramót-
inu f handknattleik. KI. 18.00
leika Finnar og Færeyingar um
fimmta sætið, kl. 19.30 leika Dan-
ir og fslendingar um þriðja sætið
Gunnlaugur
landsliðs-
þjálfari?
FLOGIÐ hefur fyrir, að Gunn-
laugi Hjálmarssyni hafi verið boð-
in staða landsliðsþjálfara i hand-
knattleik í Færeyjum. Gunnlaug-
ur er meðal áhorfenda á Norður-
landameistaramótinu i Danmörku
og átti þar Thorbjörn Mikkaelsen,
formaður færeysku handknatt-
leiksnefndarinnar, viðtöl við
hann. Morgunblaðið hafði í gær-
kvöldi samband við þá Gunnlaug
og Thorbjörn, en hvorugur þeirra
vildi staðfesta að Gunnlaugur
tæki að sér þjálfarastöðuna.
og strax að þeim leik loknum
hefst viðureign Norðmanna og
Svfa um gullverðlaun mótsins.
Gffurleg óánægja var f Dan-
mörku með frammistöðu danska
liðsins f leiknum við Norðmenn,
enda höfðu Danir gert sér góðar
vonir um að lið þeirra myndi
leika úrslitaleikinn f Norður-
landameistaramótinu. Landsliðs-
þjálfarinn, Jörgen Graaskjær, var
látinn segja af sér f gær, en um
hann hefur staðið mikill styrr að
undanförnu. Það verður hinn
gamalkunni handknattleiksmað-
ur og þjálfari Gerd Andersen sem
tekur við störfum hans og stýrir
danska liðinu gegn tslendingum I
kvöld.
— ÞAÐ er ekki gott að tjá sig
um þennan leik, sagði Birgir
Björnsson landsliðsþjálfari eft-
ir leikinn við Færeyinga í gær-
kvöldi. — Eitt er þó augljóst;
islenzka liðið skortir samæf-
ingu. Leikurinn í kvöld var eng-
inn mælikvarði á getu liðsins.
Leikir vilja oft verða fremur
slakir, þegar styrkleikamunur-
inn er vitaður fyrirfram. Um
leikinn við Danmörku i kvöld
sagði Birgir: — Ég tel að við
eigum góða sigurmöguleika. Þó
vil ég ekki vera of bjartsýnn. Ef
þetta smellur bærilega saman
hjá okkur, þá er tæpast vafamál
að við erum með betra tið en
þeir.
Viðar Sfmonarson sagði eftir
leikinn: Þetta er eins og venju-
lega þegar við förum i leiki sem
vitað er fyrirfram að við vinn-
um. Spilamennskan er á núll-
punkti. Og þetta er ekkert eins-
dæmi hjá okkur — útkoman
hjá Svfum var svipuð á móti
Færeyingum. Við getum
skammast okkar fyrir frammi-
stöðuna i kvöld, og hún verður
vonandi til þess að menn taka
sig saman í andlitinu og vinna
Danina i kvöld. Það væri okkur
mikil sárabót.
Sigurður Jónsson, formaður
HSl: Þannig verða leikir þegar
menn ætla að gera þrjú mörk í
hverju upphlaupi. Þessi slaka
frammistaða liðsins verður von-
andi til þess að það tekur sig á
og vinnur leikinn i dag. Eg geri
mér auðvitað grein fyrir því að
það þarf margt að ganga okkur
í haginn, ef við eigum að vinna
Dani á heimavelli þeirra, en
vona hið bezta. Eitt er þó alveg
augljóst. Til þess að eiga mögu-
leika á að sigra i leiknum í dag
þarf islenzka liðið að leika
margfalt betur en það gerði I
kvöld.
Ólafur H. Jónsson: Það er
erfitt að leika gegn liði eins og
því færeyska. Þegar við erum
komnir 10 mörkum yfir virðist
sem hver einasti maður sjái
gott skotfæri eftir 5 sekúndur.
Ég tel að við eigum góða mögu-
leika á móti Dönum. Við verð-
um þó að þjappa vörninni betur
saman hjá okkur til þess að eiga
möguleika.
Thorbjörn Mikkaelsen, sagði
að þetta hefði ekki verió góður
leikur. Islendingarnir hefðu
verið miklu betri og beztu
menn liðsins verið Ólafur H.
Jónsson og Viðar Símonarson.
Johan Petur Midjord, fyrir
liði færeyska liðsins, var sam-
mála formanni sínum að þetta
hefði verið slakur leikur. —
Við vorum orðnir mjög þreyttir
undir lokin, eftir að hafa leikið
tvo erfiða leiki sama daginn.
Ólafur Jónsson er bezti leik-
maður sem ég hef séð á hand-
knattleiksvelli, sagði Midjord,
og bætti því síðan við, að hann
væri viss um að íslendingar
sigruðu Dani í leiknum í dag.
PHILIPS
KÆUSKAPAR
Næst hér
NÆSTA Norðirrlandamót í hand-
knattlcik verður haldið á tslandi
milli jóla og nýjárs næsta vetur.
Sagði Sigurður Jónsson, for-
maður Handknattleikssambands
tslands, f viðtali við Morgun-
blaðið f gærkvöldi, að hann von-
aðist eftir þvf að það mót gæti
orðið stærra í sniðum en yfir-
standandi mót, þ.e. að allir lékju
þá við alla.
Lokastaðan
Lokastaðan I riðlakcppni Norðurlanda-
mótsins varð þessi:
ARIÐILL:
Svfþjóð 2 2 0 0 44:31 4
tsland 2 1 0 1 43:35 2
Færeyjar 2 0 0 2 32:52 0
BRIÐILL:
Noregur 2 2 0 0 36:28 4
Danmork 2 1 0 1 40:32 2
Finnland 2 0 0 2 24:40 0
RKRI
R
SMEKIN UM
Póllinn h.f. ísafiröi.
K/F V-Húnvetninga Hvammstanga.
Véla & Raftækjasalan h.f., Glerárgötu 6, Akureyri.
K/F Borgfirðinga Borgarnesi.
Verzl. Bjarg h.f. Skólabraut 21, Akranesi.
Stafnes s.f. Vestmannaeyjum.
philips kann tökin á tækninni Hafnarstræti 3 - 20455. Sætún 8 - 15655