Morgunblaðið - 11.02.1975, Qupperneq 7
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 11. FEBRUAR 1975
7
eftir GUNNAR
RYTGAARD
NÝLEGA lézt danska stór-
leikkonan Clara Pontopp-
idan 92 ára að aldri. Við
andlát hennar sagði eitt
Kaupmannahafnarblað-
anna í fyrirsögn á forsiðu
að Clara Pontoppidan hefði
verið „ekki aðeins leik-
kona, heldur heill heimur
út af fyrir sig". Hun var það
ung þegar hún hóf listaferil
sinn hjá Konunglega leik-
húsinu, að hún náði að
halda upp á 75 ára starfsaf-
mæli, en fyrst kom hún
fram barn að aldri í ballett-
sýningu. Á níræðisafmæl-
inu kom hún svo i fyrsta
sinn fram i kabarettsýningu
í Kaupmannahöfn.
Hún var að öllu leyti
mjög óvenjuleg kona. Það
getur einnig ungur íslend-
ingur, Steingrímur Sigur-
jónsson, vottað, en hann
stundar nám i byggingar-
tækni í Kaupmannahöfn.
Þegar hann kom til Kaup-
mannahafnar árið 1972,
leitaði hann sér að hús-
næði. Tókst honum að fá
herbergi hjá eldri konu við
Clara Pontoppidan með
islenzka teppið sem
Steingrimur gaf henni
um jólin 1972.
Steingrímur „Lífvörður”
og Clara Pontoppidan
Clara Pontoppidan og
Steingrímur Sigurjónsson
heima við Lyngbyvej.
Lyngbyvej. Það var ekki
fyrr en hann var fluttur
þangað inn að hann komst
að þvi að þetta var fræg
kona og „grand old lady"
danskrar leiklistar. Húsið,
sem hann fluttist i var Ole
Haslunds húsið, sem notað
er sem heiðursbústaður fyr-
ir danskan listamann.
Listamaðurinn sem þarna
bjó, var sem sagt Clara
Pontoppidan.
Steingrímur bjó hjá Clöru
Pontoppidan í eitt ár — þar
til í júli 1973. Þá fluttist
hann þaðan af einka-
ástæðum. Meðan hann bjó
þar samdi honum sérlega
vel við gömlu konuna, og
þar sem Steingrimur er 1 85
sentímetra hár, 90 kíló og
kraftalega vaxinn, var ekki
óeðlilegt þótt eitt dag-
blaðanna segði að hann
væri lifvörður frú Pont-
oppidan.
— Ég hellti oftast upp á
kaffi fyrirfrú Pontoppidan á
morgnana, segir Stein-
grimur. Ég aðstoðaði hana
einnig við að hugsa um
húsið, og alltaf var hún
mjög þakklát fyrir þá að-
stoð, sem ég gat innt af
hendi. Og það að ég hafi
verið lífvörður hennar er í
rauninni rétt. Hús Ole Has-
lunds liggur alveg víð Lyng-
byvej — eða lá við veginn,
þvi nú hefur verið reistur
þar varnarveggur — og for-
vitnir vegfarendur voru
ekkert feimnir við að vaða
inn i garðinn hjá þessari
þekktu konu. Oftar en einu
sinni hef ég þurft að fleygja
þeim út, sem gerðust of
nærgöngulir, svo Clara
Pontoppidan fengi frið.
Eitt sinn gerðist það
einnig að mikið þrumu-
veður skall á. Þá kallaði
gamla konan i mig, bara af
því að hún var hrædd og
hana langaði i félagsskap.
Um jólin 1972 fór Stein-
grímur i heimsókn heim til
íslands, og þegar hann kom
aftur til Kaupmannahafnar
hafði hann meðferðis gott
íslenzkt ullarteppi handa
frú Pontoppidan. það var
mjög vel þegið. Gamla
konan naut þess að vefja
sig þessu hlýja teppi þegar
hún sat löngum stundum
úti i garðinum að sumar-
lagi.
Benz 8 cyl. sjálfskiptur árg. '71 til sölu. Upp- lýsingar i síma 40885 eftir kl. 17.00. Brotamálmur Kaupi allan brotamálm langhæsta verði. staðgreiðsla. Nóatún 27 Sími 25891.
Hafnarfjörður og nágrenni Ódýru sviðin, ungkálfakjöt, 6 dósir ávéxtir á 1088 kr. ódýr sulta 108 kr. krukkan. KJÖTKJALLARINN, Vesturbraut 1 2. Hafnarfirði. Milliveggjaplötur vorar eru nú aftur fyrirliggjandi. Athugið að nákvæmni í stærð og þykkt sparar pússningu. Steypustóðin hf., simi 33603.
Hafnarfjörður og nágrenni Reykt folaldakjöt 280 kr. kg. kindahakk 370 kr. kg. Reyktar og saltaðar rúllupylsur á 348 kr. stk. KJÖTKJAILARINN, Vesturbraut 1 2, Hafnarfirði Loðnukrabbi til sölu. Upplýsingar í síma 50650.
Hafnarfjörður og nágrenni Folaldabuff og gullash 580 kr. kg. Nautabuff og gullash 650 kr. kg. Nautahakk 450 kr. KJÖTKJALLARINN, Vesturbraut 1 2, Hafnarfirði Springdýnur Tökum að okkur að gera við springdýnur samdægurs. Sækjum og sendum ef óskað er. Opið til 7 alla daga. KM springdýnur, Helluhrauni 20, Hafnarfirði. Sími 53044.
Bólstrun Tek bólstruð húsgögn í klæðn- ingu. Fast verðtilboð ef óskað er. Bólstv. Bjarna Guðmundssonar, Laugarnesvegi 52, simi 32023 — 71538. JHoT0unt>IatiíÍ> >i mnRCFRLDHR mÖCULEIKR VÐRR
Ibúð — Hátún
3ja — 4ra herbergja íbúð í háhýsi í Hátúni 4a
er til sölu. Ibúðin er um 85 ferm.
SKIP&
FASTEIGNIR
SKULAGÖTU 63 - ‘S' 21735 4 21955
Gtæsileg íbúð — til leigu
Þriggja herbergja íbúð, fullbúin húsgögnum til
leigu í fimm mánuði (1 /5 — 1 /10).
Tilboð sendist Morgunblaðinu fyrir 15. febrúar
merkt „íbúð 6589".
GLÆSILEG \ (MIÖ) J
NORSK FRAMLEIÐSLA. \ J\ SÉRFLOKKI
E. TH. MATHIESEN H.F.
STRANDGÖTU 1—3, HAFNARFIRÐI. — SÍMI 51919.
Faryman smá-diesel-vélar
I báta og vinnuvélar, tveggja, þriggja, fjögurra, fimm,
átta, tíu, fjórtán, tuttugu, tuttugu og tveggja, tuttugu og
fimm hestafla. Loft-eða vatnskasldar.
Sturlaugur Jónsson & CO. SF.,
Vesturgötu 16, Reykjavik, sími 14680.