Morgunblaðið - 11.03.1975, Side 12

Morgunblaðið - 11.03.1975, Side 12
12 MORGUNBLAÐIÐ, ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1975 „Ef Reykjavík á þá nokkurn þingmann.. Hlutur Reykjavíkur þéttbýlisvegafé skertur? Albert Guðmundsson. 1 Frumvarp til laga um Vegalög var til 3. umræðu I efri deild Alþingis I gær ásamt tillögu sam- göngunefndar deildarinnar, þess- efnis, að halda skuli eftir 25% (í stað 10% áður) af tilteknu ráð- stöfunarfé Vegasjóðs til afmark- aðra verkefna. Breyting þessi fel- ur m.a. f sér, að hlutur Reykjavfk- ur f þéttbýlisvegafé skerðist um 17—20 m.kr. á árinu 1975, enda þótt 40% af tekjum Vegasjóðs komi frá bifreiðum Reykvíkinga, Albert Guðmundsson (S) mót- mælti þessari breytingu einarð- lega og lagði til, með sérstakri Þingfréttir í stuttu máli Samræmd vinnsla sjávarafla Krumvarp um ofanskráð efni, sem verið hefur í meðferð neðri deildar frá því síðla liðins árs og skiptar skoðanir eru um í þingliði Sjálfstæðisflokksins, var enn á dagskrá neðri deildar í gær. Lauk þá annarri umræðu frumvarps- ins. Atkvæðagreiðslu var frestað, en eftir henni var beðið með nokkurri eftirvæntingu. Landhelgissamningurinn vid Breta Guðlaugur Gfslason (S) tók einn til máls um frumvarpið um samræmda vinnslu og veiðar sjáv- arafla. Vakti hann m.a. athygli á skrifum Þjóðviljans um skiptar skoðanir sjálfstæðismanna um þetta mál. Minnti hann á að þing- menn Alþýðubandalagsins og Þjóðviljinn hefðu vikufn satnan hamast gegn samningum víð Breta um veiðar í íslenzkn land- helgi. Þessar skoðanir hefðu síð- an verið barðar niður í Alþýðu- bandalaginu og þingmenn þess greitt atkvæði með samningnum við Breta. I Sjálfstæðisflokknum gengdi öðru máli. Þar hefðu þing- menn frjálsar hendur um afstöðu til mála, eftir sannfæringu hvers og eins. Þessi mismunur á skoð- anafrelsi þingmanna, sem skildi þesSa líku flokka að, bæði þá og nú, sýndi þó öllum landsmönnum afstöðumun, er vissulega væri verðugt athugunar- og íhugunar- efni. Landshlutasamtök Lárus Jónsson (S) mælti fyrir frumvarpi sínu til breytinga á Sveitarstjórnarlögum, er fjallar um væntanlegan lagagrundvöll landshlutasamtaka. Frumvarpi þessu verða gerð nokkur skil á þingsíðu siðar. Áburöarverksmiðja á Norðurlandi Stefán Jónsson (K) mælti fyrir þingsályktunartillögu um áburð- arverksmiðju á Norðurlandi, er reist skuli I N-Þingeyjarsýslu og nýta raforku frá Kröfluvirkjun. Nokkrar umræður urðu í deild- inni, sem að hluta til fjölluðu um fyrirhugaða járnblendiverk- smiðju á Grundartanga i Hval- firði. Matvæli og söiuskattur: Magnús Kjartansson (K) og Eð- varð Sigurðsson (K) mæltu fyrir frumvarpi sínu um afnám sölu- skatts af matvælum. Töldu þeir slíka ráðstöfun eða sambærilega lækkun beinna skatta á láglauna- fólk, nauðsynlegt innlegg i yfir- standandi kjarasamninga. tillögu, að fjármagn til af- markaðra verkefna skyldi áfram midast vio 10%. Tillaga Alberts var felld með 13 atkvæðum gegn 4. Frumvarpið I heild var síðan samþykkt til neðri deildar. t ræðu sinni vitnaði Albert Guðmundsson m.a. til umsagnar borgarverkfræðings I Reykjavík, sem hér fer á eftir: „Fyrir Alþingi liggur nú tiiiaga til breytingar á vegalögum í þá átt að skerða hlut Reykjavikurborgar í fé, sem ætlað er til þjóðvega i þéttbýli. Reglugerð frá 27. desem- ber 1973 ákveður hvaða vegir inn- an þéttbýlis skuli teljast þjóð- vegir i þéttbýli. í Reykjavík eru þetta Eiðsgrandi frá mörkum Sel- tjarnarnesshrepps að Hringbraut, Hringbraut, Miklabraut og Vest- uriandsvegur að Höfðabakka, Kringlumýrarbraut frá Sætúni að Fossvogslæk, Sætún, Kleppsveg- ur, Elliðavogur og Reykjanes- braut að Breiðholtsbraut, Foss- vogsbraut frá Hringbraut við Sól- eyjargötu sunnan Öskjuhlíðar um Fossvogsdal að Höfðabakka, HÖfðabakki frá Vesturlándsvegi að Breiðholtsbraut og Bæjarháls frá Höfðabakka að Tunguhálsi. Þarna er um að ræða allt aðal vegakerfi Reykjavíkurborgar inn- an skipulagssvæða aðalskipulags frá 1965 að undanskilinni Gqirs- götubrú að því er virðist. Þjóðvegakerfi þetta er ekki nándar nærri fullbyggt og sá hluti þess, sem gerður hefur verið þarf nú á næstu árum verulegra end- urbóta við til þess að geta annað vaxapdi umferð og má þar nefna Miklubrautina frá Háaleitisbraut að Miklatorgi, sem breikka verður innan tíðar í 6 akreinar, og um- ferðarmannvirki á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar svo eitthvað sé nefnt í þvi efni, í öðru lagi vantar inn í kerf- ið enn sem komið er veigamiklar umferðargötur algerlega, eins og Fossvogsbrautina, og Elliðavogur- inn og Sætúnið eru að mestu leyti ógert. Svo að einhverjar tölur séu nefndar má slá þvi föstu, að um- ferðarmannvirkið á gatnamótum Kringlumýrarbrautar og Miklu- brautar muni kosta um 200 millj. kr., en þessi gatnamót eru mikil- vægustu gatnamót í öllu umferð- arkerfi landsins, en Kringlumýr- arbraut fiytur nú alla umferð frá gervöllu Reykjanesi og þéttbýlis- svæðum sunnan Reykjavíkur inn á þjóðvegakerfið í heild. Núr verandi skipting tekna vegasjóðs til þjóðvega í þéttbýli er þannig, að 12'/2% af tekjum vegasjóðs eiga að renna til þjóðvega í þétt- býlí. Ráðherra er þó heimilt að undanskilja það fé, sem renna á til hraðbrauta, hverju sinni. Af því sem þá er eftir skal taka 10% í niMnci sjóð, sem fer til úthlutunar til afmarkaðra verkefna, sem flýta þarf hverju sinni. Framkvæmdir, sem fjármagnaðar hafa verið með þessum fjármunum, eru meðal annars Suðurlandsvegur í gegn- um Selfoss, Gjáin í Kópavogi, og eru þetta stærstu verkin þar. Samkvæmt vegaáætlun fyrir árið 1975 eru markaðar tekjur af bensingjaldi, þungaskatti og gúmmígjaldi 2.250 millj. kr. og sérstakt ríkisframlag til vegasjóðs 380 millj. kr. Samtals 2.630 millj. kr. Fé, sem renna á til hraðbrauta utan þéttbýlissvæða, er 590 millj. kr., þannig að eftir verða þá 2.040 millj. kr. til skipta. 10% frádregin til hins sérstaka sjóðs skilja eftir 1.836 millj. kr. Skiptingin til þétt- býlisstaða fer síðan eftir íbúða- tölu, og eru þá meðtaldir þéttbýl- isstaðir, sem hafa 300 ibúa eða fleiri, og var skiptingin eftir manntali 1. desember 1973 þannig, að Reykjavík taldist hafa 84333 íbúa, en þéttbýlisstaðir með 300 íbúa eða fleiri höfðu í heild 182800 íbúa. Þannig átti Reykja- vík 46.13% af því fé, sem til skipta kemur og gerir það sam- kvæmt áætlun Vegagerðar ríkis- ins því um 105,6 millj. kr. á árinu 1975. Frumvarp það, sem fyrir Alþingi liggur til breytingar á þessu, fjallar um það, að í stað 10% frádráttar á skiptafénu komi 25%, og síðan sú breyting, að þéttbýlisstaðir skuli teljast kaup- staðir og kauptún með yfir 200 íbúa í stað 300 áður. Breyting þessi mundi því muna Reykjavik- urborg tæpuml7 millj. kr. á árinu 1975 og með tilliti til þeirra brýnu verkefna, er við okkur blasa á þjóðvegum í þéttbýli í Reykjavík, og með tilliti til þess, að liðlega 40% af tekjum vegasjóðs koma frá bifreiðum Reykvíkinga, tel ég að þingmenn Reykjavikur, ef Reykjavík á þá nokkra þingmenn, ættu að beita sér fyrir þvi, að þessi tillaga verði felld á hæst- virtu Alþingi." Einar Ágústsson (F) mælti og gegn frumvarpinu, taldi rangt að skerða hlut Reykjavíkur meir en orðið væri: mestur hluti tekna vegasjóðs væri frá Reykvíkingum kominn, mörg kostnaðarsöm verk í samgöngumálum væru óleyst i Reykjavík og vegakerfi borgar- innar væri nýtt af mun fleirum en borgarbúum sjálfum. Halldór E. Sigurðsson (F) talaði hinsvegar fyrir frum- varpinu og breytingartillögum samgöngunefndar, sem að framan greinir; taldi bæði rétt og hyggi- legt að dreifa þessu fjármagni meir en gert væri skv. núgildandi lögum, þó brýningar borgarverk- fræðings í garð Reykjavíkurþing- manna hefðu, af skiljanlegum ástæðum áhrif á afstöðu Alberts Guðmundssonar og utanríkis- ráðherra. Einar Ágústsson (F) talaði síðastur í umræðunni (og flutti etv. stytztu þingræðu i sögu Alþingis): „Ég mun ekki deila við „kollega" minn um, hvor okkar sé meiri kjördæmisþingmaður. Eg hygg að hann standi fyllilega fyr- ir sínum hlut i því efni. Sparnaður gjaldeyris og efling útflutnings LÁRUS Jónsson (S) og Sverrir Hermannsson (S) flytja tillögu til þingsályktunar, þess efnis, að fela ríkisstjórninni i samráði við samtök iðnaðarmanna, iðnrek- enda og iðnverkafólks, að kanna leiðir til þess að hvetja aimenn- ing, m.a. í ríkisfjölmiðlum, til aukinna kaupa og ney/.lu á vör- um, sem framleiddar eru í land- inu, og jafnframt að leita leiða til þess að auka sölu á íslenzkum afurðum erlendis með því að end- urskipuleggja utanríkisþjónust- una, samræma og efla starfsemi þeirra aðila, sem fást við sölu fslenzkra afurða erlendis. 1 rökstuðningi með frumvarp- inu segja flutningsmenn m.a.: Lárus Jónsson alþingismaður. Mesta rýrnun á viðskiptakjör- um, sem orðið hefur frá striðslok- um, skall yfir þjóðina á árinu 1974. Vísitala viðskiptakjara, sem var i ársbyrjun um það bil 123 stig miðað við 100 að meðaltali á árinu 1972, fór niður undir 90 stig á síðasta ársfjórðungi 1974. Þetta er viðskiptakjararýrnun á einu ári sem nemur yfir 30%. Svo að nefnd séu dæmi varð olíuhækk- unin slík, að sama magn, sem ís- lendingar keyptu af sovétmönn- um af olíu á árinu 1973 og kostaði þá um það bil 1600 millj. kr., kostaði á árinu 1974 nálægt 4400 millj. kr. Stórfelld verðlækkun varð á sjávarafurðum erlendis samtímis og hélt auk heldur áfram eftir 1. jan. 1975, svo að talið er jafngildi 8—40% verð- lækkunar frá áramótum. Flestir munu sammála um, að alvarlegasta hlið þessa vanda, þegar kjör allrar þjóðarinnar versna með svo skjótum og stór- felldum hætti, sé sú staðreynd, að sáralitiil gjaldeyrisvarasjóður var til þegar áföllín skullu yfir, þrátt fyrir nýafstaðin góðæri til lands og sjávar, sem eru þau hagstæð- ustu að því er varðar uppskeru, afla og verð á sjávarafurðum, er þjóðin hefur lifað. Gjaldeyrissjóð- urinn er nú þorrinn og horfur eru mjög tvísýnar vegna viðskipta- kjararýrnunar, að greiðslujöfnuð- ur við útlönd náist á yfirstand- andi ári, þrátt fyrir nýafstaðna gengisbreytingu og fyrirhugaóar erlendar lántökur til fram- kvæmda, sem spara eða auka Sverrir Hermannsson alþingis- maður. gjaldeyriseign þjóðarinnar. Þegar svo er komið er augljóst, að efna- hagslegu sjálfstæði þjóðarinnar er hætt, breyti hún ekki lifnaðar- háttum sinum um sinn og aðhalds og sparnaðar verði gætt, bæði í opinberum rekstri og hjá ein- staklingum. Þegar þannig er ástatt, er ein- sýnt að finna þarf leiðir til þess að spara gjaldeyri og efla útflutn- ingsstarfsemi. Rétt gengisskrán- ing er grundvallarforsenda fyrir því að slíkt megi takast. Á hinn bóginn er unnt og raunar nauð- synlegt að fylgja áhrifum fpngis- breytingarinnar eftir í þessu efni, þ.e.a.s. með gjaldeyrissparandi aðgerðum og aukinni sölustarf- semi á íslenskum afurðum erlend- is. Siðan vara flutningsmenn við einhliða höftum í þessum til- gangi, sem auðveldara sé að koma á en afnema, hamli eðlilegri upp- byggingu atvinnulífsins, leiði til kjaraskerðingar þegar fram í sæki og hafi um langt árabil eftir síðari heimsstyrjöldina átt sinn þátt í þvi hvað Islendingar urðu öðrum þjóðum seinni að koma á efnahagslegum framförum hjá sér. „Þær aðgerðir, sem koma helzt til greina, eru, að stjórnvöld hafi forgöngu um samstarf milli ís- lenzkra iðnrekenda, iðnaðar- manna og iðnverkafólks og rétti þessum aðilum örvandi hönd um að efla almenna upplýsingastarf- semi um islenzkar iðnaðarvörur og hvetja fólk til þess að kaupa íslenzka framleiðslu...“ „Fyrir- greiðsla hins opinbera gæti að verulegu leyti falist í því, að opinberir fjölmiðlar tækju að sér slíka upplýsinga- og auglýsinga- starfsemi gegn vægu gjaldi." Þá benda flu-tningsmenn á það i greinargerð að nýta megi utanrík isþjónustuna betur en nú er gert til markaðöflunar, m.a. með starf semi viðskiptafulltrúa á þeim svæðum, þar sem við höfum mestra hagsmuna að gæta, sem og með samhæfðri sölustarfsemi þeirra aðila, er að útflutningi ís- lenzkrar framleiðslu víqíki.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.