Morgunblaðið - 11.03.1975, Blaðsíða 35

Morgunblaðið - 11.03.1975, Blaðsíða 35
MORGUNBLAÐIÐ. ÞRIÐJUDAGUR 11. MARZ 1975 35 Foringja Jap- ananna leitað Stokkhólmi, þjóó, Karl Fisher, segir að hann 10. mars — NTB. og annað starfsfólk sendiráðsins JAPANIRNIR tveir, sem hand- hafi fengið viðvaranir frá öryggis- teknir voru f síðustu viku er þeir lögreglunni um að vera við öllu voru að taka myndir af byggingu i búin. ,,En við höfum takmarkaða Stokkhólmi þar sem sex sendiráð möguleika á að verja okkur sjálf eru til húsa, þ.á m. sendiráð Is- fyrir hermdarverkamönnum. Við iands, eru nú grunaðir um að treystum á sænsku lögregluna.“ hafa ætlað að taka austurríska Lögreglan leitar enn þriðja Jap- sendiráðið herskildi. Sænska ör- anans, sem talið er að sé foringi yggislögreglan upplýsti einnig f þeirra sem þegar hafa verið hand- dag, að við framköllun á filmum teknir, og eru allar landamæra- Japananna hefðu einnig komið stöðvar m.a. á varðbergi. Félagar fram myndir af sendiráðum Aust- þans eru hins vegar þöglir sem urríkis f Kaupmannahöfn og gröfin. Japanarnir þrír eru taldir Osló. Samtals höfðu þeir tekið 300 tilheyra hermdarverkasamtökun- ljósmyndir. um Rauða hernum i Japan. Sendiherra Austurríkis í Sví- Hæstu vinningar í Happdrætti Háskóla Islands Mánudaginn 10. marz var dregið í 3. flokki Happdrættis Háskóla Is- lands. Dregnir voru 8,775 vinningar að fjárhæð 78.750.000 krónur. 1.000.000 króna vinningurinn kom á númer 7181. Var þetta númer selt i þessum fjórum um- boðum: AÐALUMBOÐINU, Tjarnargötu 4, hjá Frímanni Frí- mannssyni í Hafnarhúsinu og á NESKAUPSTAÐ. 500.000 krónur komu á númer 30 770. Voru allir miðarnir af því númeri seldir hjá Frimanni Frímannssyni í Hafnarhúsinu. 200.000 krónur komu á númer 7211. Voru allir miðarnir af þessu númeri seldir hjá Frimanni Frí- mannssyni I Hafnarhúsinu. 50.000 krónur: 3994 —; 7180 — 7182 — 7748 — 8224 — 8507 — 11346 — 11827 — 12196 — 13849 — 14446 — 15884 — 31853 — 36227 — 39832 — 40496 — 40564 — 46657 _ 48442 — 56737 — 59051 — 59055. Sjö mál afgreidd á Búnaðarþinginu FUNDUM var fram haldið á Búnaðarþingi f gær og hlutu sjö mál afgreiðslu á fundinum. Fjór- ar ályktanir voru samþykktar. Rætt var um fyrirhugaða málm- blendiverksmiðju I Hvalfirði og ályktað um það mál. Tók Búnaðarþing m.a. undir þær ósk- ir, að framkvæmdir verði ekki hafnar við verksmiðjuna fyrr en ýtarleg liffræðileg rannsókn hafi farið fram. Þá var samþykkt ályktun um Stofnlánadeild land- búnaðarins og Búnaðarbankann, ályktun um holdanautarækt og mat á nautakjöti og um rekstrar- lán til bænda. Þá voru samþykkt- ar áskoranir um rafmagnsmál, um vaktaskyldu vegna bilana á raflínum og um eyðingu flug- vargs. 75 ára í dag KRISTIN Guðjónsdóttir Hlfðar- götu 26, Neskaupstað er 75 ára f dag. Hún dvelst eftir kl. 20 f kvöld hjá syni sfnum að Keldu- hvammi 4 f Hafnarfirði. — Til vopna Framhald af bls. 34 200 milna takmarkaSur og sækja yr8i um leyfi til a8 veiða innan 200 mílna. Jafnframt sagði Ronald Reagan, fyrrverandi rikisstjóri Kaliforníu, um helgina að nauðsynlegt kynni að reynast að beita bandariskum her- skipum til að koma í veg fyrir að bandarískir túnfiskbátar væru teknir fyrir ólöglegar veiðar við strendur Ecuador. Að öðrum kosti taldi hann að Bandarikjamenn gætu sjálfir fært út landhelgi sina í 200 milur. — Mikill stuðningur Framhald af bls. 2 maður bandarísku sendi- nefndarinnar á hafréttarráð- stefnunni, lagði áherzlu á að góðar horfur væru á samkomu- lagi um hafréttarmálin I heilu lagi á ráðstefnunni i Genf og mundu einhliða aðgerðir Bandaríkjanna einungis spilla þeim árangri, sem vænta mætti. Sagði Moore einnig að 200 milna einhliða útfærsla myndi ekki verða til verndar fisk- stofnum, heldur auka líkur á átökum við aðrar þjóðir og nefndi hann sem dæmi um átök af þessu tilefni Þorskastríðið á miðunum við island. Moore taldi einnig að einhliða út- færsla væri algerlega ólögmæt að alþjóðalögum, enda hefði dómstóllinn í Haag dæmt út- færslu Islendinga, sem þó hafi aðeins verið í 50 mílur, ólög- lega. Thomas Clingan aðstoðar- utanríkisráðherra, sem fer með fiskveiðimál tók mjög í sama streng og Moore og taldi hags- munum bandarískra sjómanna betur borgið með því að bíða úrslita hafréttarráðstefnunnar eða semja að öðrum kosti við aðrar þjóðir um minnkandi sókn. Gat Clingan um ýmsa samninga sem gerðir hafa verið undanfarna mánuði eða reynt hefur verið að ná við þær þjóðir, sem veiðar stunda á miðum bandarískra fiski- manna. Haraldur Kröyer, sendiherra Islands í Washington, og Þor- steinn Ingólfsson sendiráðsrit- ari fylgdust báðir með um- ræðum í dag. Taldi sendi- herrann greinilegt að þolin- mæði þingmanna væri á þrot- um i þessu máli. John Norton Moore tjáði sendiherranum hins vegar að góðar líkur væru nú á samkomulagi i Genf og tók sérstaklega fram að árangurinn af starfi Evensenhópsins, svo- nefnda, hefði verið mjög já- kvæður og þar hefði islenzki sendiherrann Hans G. Ander- sen átt mikinn og góðan hlut að máli. Umræðum fyrir undirnefnd- inni verður haldið áfram út alla þessa viku og kemur fjöldi manns fyrir nefndina, þ. á m. fulltrúar hinna fjölmörgu hags- munahópa, sem telja sér málið skylt. Ekki er hægt að fullyrða um hvenær nefndin afgreiðir máiið frá sér. — Hvassafell Framhald af bls. 36 um möguleika á því að losa olíuna úr skipinu en Hjálmar var erlend- is. Samkvæmt upplýsingum frétta- ritara Mbl. á Húsavik fóru 8 skip- verjar af Hvassafellinu aftur til Flateyjar í gær til þess að bjarga úr skipinu persónulegum eigum áhafnarinnar ogflytjatil Húsavik ur. Ákveðið var að sex þeirra kæmu aftur í gærkveldi, en tveir dveldust í Flatey til þess að hafa eftirlit með skipinu og manna- ferðum til eyjarinnar. Búa menn- irnir að Bergi, sem er ekki gamalt steinhús og eitt hið siðasta sem vfirgefið var, þegar byggð lagðist niður í Flatey. Hvassafellið hafði i gærkveldi ekkert rótazt til á strandstað og var ástandið óbreytt, en einhver sjór mun kominn í lest númer eitt og í vélarúm. — ísleifur Framhald af bls. 36 björgunarskipinu Goðanum sagði að sjór væri of kyrr á strandstað, en vonir stæðu nú til að það myndi breytast. Ennfremur munu flóðin nú með morgninum verða öllu meira en í gær. Voru björgunarmenn þvi vongóðir með árangur væntanlegrar björgunar- tilraunar i dag. Árdegisflóðið í dag er rétt fyrir klukkan 06. — Alger nauðsyn Framhald af bls. 34 skipti landsins myndu bíða hnekki vegna vanefnda útflytjenda og iðnfyrirtækja og framleiðslan myndi óhjákvæmilega dragast saman og atvinnuleysið aukast enn og ná til um 2—300.000 manns, ef landið gæti ekki staðið við skuldbindingar sínar við er- lenda viðskiptamenn. Þjóðþingið getur ekki setið aðgerðarlaust hjá og horft á fyrirsjáanlegt öngþveiti og efnahagslegt hrun," sagði Kjeld Olesen. Hörð gagnrýni frá vinstri Frummælendur þeirra flokka, sem eru vinstra megin við jafn- aðarmenn gagnrýndu rlkis- stjórnina ákaflega fyrir Ihlutun i samninga vinnumarkaðarins, þeir sögðu það algera óhæfu, að rikis- stjórnin skyldi ekki hafa leitað álits verkalýðssamtakanna á til- lögunum. Frummælandi sósialska þjóðarf lokksins sagði: „Flokki mínum er það mikið áfall, að sjá rikisstjórn jafnaðarmanna standa að slikum aðgerðum sem hér eru hafnar. Það er dapurlegt að sjá sósialískan flokk ganga þannig beinna erinda auðvaldsaflanna i þjóðfélaginu." Hann kvað at- vinnulifið með góðu móti geta borið kjarabætur stórum meiri en þær, sem gert er ráð fyrir i tillög- um sáttasemjara og rikisstjórnar. Frummælandi kommúnista Knud Jespersen, sagði. að það væri nú augljóst að flokkur jafn- aðarmanna hefði frá upphafi vinnudeilunnar verið ákveðinn i að gripa inn og lögfesta samninga á vinnumarkaðinum. Þetta hefði vinnuveitendum verið Ijóst og þvi hefðu þeir staðið þverir gegn öllum tillögum verkalýðshreyf- ingarinnar. Hann sagði, að tillögur stjórnarinnar væru bæði ranglátar og hættulegar og þær myndu vissulega valda óróa á vinnumark- aðinum. „Það hefur verið kreppa hjá auðvaldinu" sagði Knud Jespersen, „en nú er lika skoltin á þingræðisleg kreppa, lagaboð eiga að hindra réttláta lausn handa launþegunum og vissulega mun það ekki heppnast fyrir rikisstjórn- ina að ganga þannig einhliða erinda eigenda atvinnufyrir- tækja," sagði Knud Jespersen. Skaðar jafnaðarmenn pólitískt Daginn, sem umræður fóru fram i Þjóðþinginu um tillögur ríkis- stjórnarinnar var boðað til úti- fundar við Kristjánsborgarhöll og mótmælt afskiptum löggjafans, en það gerðist lika að á mörgum vinnustöðum voru samþykktar ályktanir sem lýstu stuðningi við margt i tillögum rikisstjórnarinnar í dönskum dagblöðum nú um helgina og meðal almennings virðist gæta viss skilnings á nauð- syn þess að gripa inn i einmitt nú. Pólitískar skoðanir manna hafa auðvitað mikil áhrif á afstöðu þeirra til tillagna rikisstjórnarinnar en fullyrða má. að i heild hefur það framtak, sem stjórn jafnaðar manna sýnir með atbeina þessum jákvæðan skilning meirihluta þjóðarinnar. Það er svo á hreinu, að pólitiskt mun það skaða flokk jafnaðarmanna að standa að málum þessum. Baráttan um stuðning kjósendanna er hið sigilda vandamál allra stjórnmála- flokkanna, þar sem nákvæmar skoðanakannanir fara fram með jöfnu bili. Eftir þessar aðgerðir rikisstjórnar Ankers Jörgensens munu jafnaðarmenn varla auka fylgi sitt frá flokkunum til vinstri, en ef til vill gæti þetta orðið til þess að jafnaðarmenn mundu kvarna til sin eitthvað af fylgi borgaraflokkanna Það þykir ýms- um þeirra súrt í broti — og þó. — EBE-fundur Framhald af bls. 1 fast gegn endurgreiðslu nema að- eins á þeim hluta framlagsins, sem kemur frá virðisaukaskatti, en Bretar hafa krafist endur- greiðslu á iðnaðartollum og gjöld- um af landbúnaðarafurðum. Vitað er að Wilson hefur neitað að gefa áðurnefnda yfirlýsingu áður en hann hefur lagt málið fyrir fund í rikisstjórn sinni, en hins vegar gaf hann þá yfirlýs- ingu að Bretar myndu auk kröfunnar um endurgreiðslu, aðeins vilja fá tryggingu fyrir áframhaldandi innflutningi mjólkurvara frá Nýja Sjálandi til EBE-landanna. Bretar hafa á undanförnum vikum lagt fram ýmsar aukakröfur, sem gert hafa leiðtogum hinna EBE-rikjanna gramt i geði. Fundinum lýkur siðla dags i dag, þriðjudag. — Danmörk Framhald af bls. 1 60 danska aura á timann, en þó er gert ráð fyrir að hinir lægst laun- uðu fái einnig 40 aura aukahækk- un 1. marz og 1. september 1976. Þá verður gildandi kjarasamning- um framlengt óbreyttum í tvö ár, sem þýðir að engir nýir kjara- samningar verða gerðir fyrr en eftir 1. apríl 1976. Á móti launastöðvuninni kemur svo takmörkun á hagnaði fyrir- tækja, og þak á bilið milli innláns- og útlánsvaxta bankanna ásamt takmörkun á hækkun greiðslu hlutafjárarðs og gjaldskrám i þjónustugreinum. — Islenzkt ljóðasafn Framhald af bls. 14 árum komst Horatius svo að orði, ef ég man rétt, að „Ijóð hefðu það til síns ágætis aðgeta verið mönnum sifelldlega Vil yndis, jafnvel við tíunda lestur.“ Það er föst von okkar í AB, að þessu ummæli, sem tuttugu aldir hafa ekki haggað, eigi enn fyrir sér að rætast á ÍSLENZKU LJÓÐASAFNl, og að það verði ekki einungis kær- komin lesning á þúsundum heimila, heldur megi einnig eiga sinn þátt í að brúa bilið milli liðinna kynslóða og samtíðarinnar og jafnvel efia nýjan skáldskap til sterkari og heillavænlegri áhrifa — á þjóð sina og frá þjóó sinni. (Ur Fréttabréfi AB.) — Frydenlund Framhald af bls. 1 bandalagið að annast varnir þeirra. Hann sagði, að svonefnd Stoltenberg-nefnd, mundi fjalla um verndun olíuborunar- pallanna og hún mundi leggja fram álitsgerð þar að lútandi næsta sumar. Hann kvað eðli- legt, að Norðmenn hefðu sam- ráð við önnur lönd við Norður- sjó um vörzlu pallanna, en kvaðst taka með efasemdum hollenzkri tillögu, sem fram hefði komið þess efnis, aó við- ræður um það mál færu einnig fram innan hins svonefnda Evro-hóps. Varnir oliuborunarpallanna eru fyrst og fremst lögreglu- verkefni og því þjónar engum tilgangi-að ræða málið innan Evro-hópsins, sem hefur það markmið að auka hernaðarlega samvinnu milli evrópsku NATO-rikjanna, sagði Knud Frydenlund. — Hörðustu árásirnar Framhald af bls. 34 Jafnframt samþykkti öldunga- deildin éinróma tillögu Mark Hatfields þar sem skorað er á stjórn Fords forseta að tryggja að að minnsta kosti helmingi þeirra hrísgrjónabirgða er Bandarikja- menn senda til Kambódíu verði dreift ókeypis. I Peking skoraði Alþýðudag- blaóið á Bandarikjamenn að láta Kambódíumenn sjálfa leysa vandamál sin og sagði að þjóð landsins gæti séð fram á úrslita- sigur á stjórn Lon Nols. Jafn- framt hefur Sihanouk fursti sagt að Norður-Víetnamar hafi lofað að auka sendingu kinverskra vopna til uppreisnarmanna. I Suður-Vietnam hafa hermenn Norður-Víetnama og Viet Cong brotizt gegnum víggirðingar um- hverfis fylkishöfuðstaðinn Ban Me Thout, einn þriggja mikilvæg- ustu bæjanna á fjallasvæðunum 200 km norðaustur af Saigon, en þó hefur stjórnarherinn mestall- an bæinn enn á valdi sínu að sögn suður-vietnömsku herstjórnarinn- ar. Bardagar hafa enn harðnað á miðhálendinu. — Sölubeiðni Framhald af bls. 36 verðara. Um minni togarana gilda bátakjarasamningar og kvað hann sem dæmi sem skipti milljónum króna i rekstri skips á ári vera lifeyrissjóðsgreiðslur til áhafnar- innar. Af stóru skipunum er greitt í lífeyrissjóð togaiasjó- manna hundraðshluti af brúttó- tekjum sjómannanna, en á minni togurunum aðeins hlutur af tryggingu. Hann kvað það ekki uppbyggingu skipsins, sem gerði það óhagkvæmt, heldur það kerfi, sem hér gilti. Það virtist útiloka arðbæra útgerð togaranna og því væri ekki unnt að breyta. Þórhallur Helgason, fram- kvæmdastjóri Hrannar h.f. og Is- fells h.f., en þessi tvö fyrirtæki eiga sitt hvorn togarann, Hrönn, samnefndan togara, sem ber ein- kennisstafina RE 10 og Isfell h.f. Engey RE 1, sagði að fasleignasali hefði fyrir mánuði síðan haft sam- band við útgerðirnar og skýrt frá þvi að Vestur-Þjóðverji hefði áhuga á að kaupa skipin. Síðan kvað hann fieiri fasteignasala hafa fylgt i kjölfarið. Þórhallur sagði að fasteignasölunum hafi verið tjáð að kæmi hagkvæmt boð væri Isfell væntanlega tilbúið til að selja. Hins vegar var aldrei rætt um sölu á Hrönn meðal eig- enda hennar. Siðan kvað hann ekkert hafa heyrzt frá þessum mönnum. Þórhallur sagði að eig- endur skipanna hefðu ekki boðið þau til kaups, heldur hefðu aðeins svarað áðurnefndri fyrirspurn. Þórhallur kvað rekstrargrund- völl togaranna gjörsamlega brosl- inn og hafa verið það lengi. Hefði reksturinn stórversnað upp á sið- kastið. Fiskverðshækkunin, sem kom eftir gengisfellinguna sagði hann að vægi ekki einu sinni upp á móti hækkuninni á olíunni, sem einnig fylgdi i kjölfar gengis- breytingarinnar. Ef öll veiðarfæri hækkuðu svo einnig -—væri varla unnt að ímynda sér nókkurn rekstur sem væri verri. Skipin kostuðu . á sínum tima um 2 milljónir Bandaríkjadollara og myndu talsvert dýrari i dag, þar eð 3 ár eru frá því er um þau var samið og þá á föstu verði. Valdimar Indriðason, útgerðar- maður á Akranesi, sem er einn aðila í Krossvik h.f., sem gerir út Ver AK 200, sagði að sala á skip- inu erlendis hefði aðeins verið könnuð. Aðilar innanlands höfðu samband við útgerðina og spurðu, hvort hún vildi selja skipið, ef unnt væri að ná samningum. I kjölfar þess hefur farið fram könnun á sölumöguleikum. en annað hefur ekki verið gert. Þá hafði Morgunblaðið sam band við Aðalstein Loftsson á Dalvik, sem er útgerðarmaður Baldurs EA 124. Aðalsteinn vildi hvorki staðfesta né neita þvi. að leitað hefði verið eftir sölumóci; leikum vegna skipsins erlendis

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.